Þjóðviljinn - 15.04.1956, Síða 1
Mótmælaíundir og verkiöll í
Danmörk héldu áíram í gær
B laðaútgáfa sósíaldemókrata úti á landi stöóvuó.
vinnustöóvunin nær alger í Kanpmannaliöfn í gær
Blað kominiinista í
USA ávítir sovél-
leiðtoga
Málgagn kommúnista í New
York, Daily Worker. birti í gær
grein þar sem leiðtogar kommún-
ista í Sovétríkjunum eru gagn-
rýndir fyrir að hafa ekki leiðrétt
þau mistök sem blaðið segir að
hafi átt sér stað í afstöðu stjóm-
arvalda í Sovétríkjunum til sam-
taka gyðinga á fyrstu árunum
eftir stríð. Á þessum árum var
m. a. hætt útgáfu á blöðum og
tímaritum gyðinga sem prentuð
voru á „alþjóðamáli'1 þeirra
jiddisch, og hömlur settar á al-
menna félagsstarfsemi þeirra. t.
d. var leikhúsi þeirra í Moskva-
lokað.
Hundruö þúsunda danskra verkamanna héldu áfram
mótmælaaðgerðum sínum gegn lögfestingu málamiölun-
artillögunnar sem þeir höfðu hafnaö sem smánarboði.
Vinna. lá niöri í flestum borgum og bæjum landsins og í
Kaupmannahöfn var vinnustöövunin nær alger. Mót-
mælafundir voru haldnir víða og hópgöngur farnar
Víða kom til átaka milli
verkfallsmanna og lögreglu, sem
notaði barefli til að dreifa mann-
fjölda sem safnaðist saman víða
á götum úti. í Kaupmannahöfn
voru sporvagnsteinar rifnir upp
sums staðar í fyrrinótt og götu-
vígi voru hlaðin til að varna lög-
reglunni vegar. Allt lögreglulið í
Danmörku var haft til taks ef
stjórnarvöldin álitu nauðsynlegt
að hleypa upp fundum og tvístra
kröfugöngum.
Nefnd sú sem 800 trúnaðar-
menn á vinnustöðum í Kaup-
mannahöfn kusu úr eigin hópi
m á fundi sín-
um í Grundt-
vigshúsi í
iyrradag
gekk i gær á
fund Ejler
Jensen, for-
manns stjórn-
ar danska al-
þýðusam-
bandsins og
bar fram við
hann þá
kröfu fundarins, að alþýðusam-
bandið hæfi þegar í stað aft-
ur viðræður við vinnuveitendúr
í þvi skyni að knýja fram meiri
kjarabætur en fólust í hinni
lögfestu málamiðlunartillögu.
Fundurinn í fyrradag hafði sam-
þykkt, að ef slíkar viðræður
yrðu ekki teknar upp og bæru
árangur, myndu verkamenn hefja
skæruhernað á vinnustöðunum
til að knýja kröfumar fram.
Forsætisráðherra
lofar fögru
Síðan hélt trúnaðarmanna-
nefndin á fund H. C. Hansens
forsætisráðherra og bar fram við
hann þá kröfu íundarinsi að
ríkisstjórnin gangist þegar i stað
fyrir lagasetningu um bann við
öllum hækkunum á verðlagi og
álagningu.
Forsætisráðherra sagði, að
stjórnin hefði þetta mál þegar til
athugunar og myndi leggja frum-
varp þess efnis fyrir þingið í
næstu viku, senniiega strax á
þriðjudag.
Trúnaðarmannanefndin ákvað
eftir þessar viðræður að kalla
alla trúnaðarmenn í Kaupmanna-
höfn aftur saman á fund og verð-
ur hann að likindum haldinn á'
morgun.
Mótmæl af undir
úti á landi
f Álaborg var enn haldinn
fjölmennur útifundur í gær til
að mótmæla lögfestingunni og
var til hans böðað af fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna í borginni.
Áður en fundurinn v.ar haldinn
fóru verkamenn í hópgöngu um
götur borgarinnar. Á fundinum
var samþykkt að vinna skyldi
aftur tekin upp í fvrramálið. en
skýrt kom í Ijós, að verkamenn
myndu grípa til sinna ráða ef
ekki verður gengið að kröfum
þeirra um styttan vinnutíma með
óskertu kaupi og bindingu verð-
lags.
f Óðinsvéum var mjög' ófrið-
samt í allan gærmorgun og kom
hvað eftir annað til átaka milli
verkfalismanna og lögreglu. Um
hádegisbilið réðst stór hópur lög-
reglumanna á hópgöngu verka-
manna og létu kylfuhöggin dynja
á þeim.
Mótmælafundur var haldinn á
Bispetorvet i Árósiun og hélt
einn af bæjarfulltrúum komm-
únista, Robert Sartori, þar ræðu.
í Randers stöðvuðu verkfalls-
menn alla umferð méð strætis-
vög'num og leigubifreiðar stöðv-
uðust einnig. Þar var haldinn
mótmælafundur á Ráðhústorgi.
Otti Þjóðvarnar við
Alþýðubandalagið
Blöð sósíaldemókrata
stöðvuð
Svipaða sögu er að segja frá
öðrum dönskum bæjum, frá
Næstved, Viborg, Hilleröd, Nak-
Framhald á 5. síðu.
Kostoff veitt uppreisn æru,
Artur London látinn laus
Búlgarski ráðherrann sem aldrei jataði
sekt sína nú sagður dæmdur saklaus
Sjivkoff, ritari Kommúnistaflokks Búlgaríu, skýröi frá
því í gær, að rannsókn hefði leitt í ljós, aö Trajtsjo Kost-
off, fyiTV. varaforsætisráðhei
laus til dauða áriö 1949.
Sagði hann að i ljós hefði
komið að ákærurnar á Kostoff
fyrir að hafa haft glæpsamleg
tengsl við samtök i Júgóslavíu
hefðu ekki verið á rökum reist-
ar. Tíu menn sem dæmdir voru
i fangelsi i sömu réttarhöldum
og Kostoff hefðu einnig allir
reynzt vera saklausir og hefði
þeim öllum verið sleppt úr
fangelsi og veitt uppreisn æru.
Sjivkoff sagði, að sú spilling
réttarfarsins sem þessir dómar
væru vitnisburður um hefði þró-
azt í skjóli manndýrkunarinnar,
sem hefði fært allt starf
flokksins úr réttum skorðum.
Hann sagði að Térvenkoff, nú-
verandi forsætisráðherra, bæri
sök á því að manndýrkunin
ruddi sér til rúms i Búlgaríu.
Hélt ætíð fram sakleysi sínu.
I réttarhöldunum yfir Kost-
off, sem stóðu 7.—14. desem-
ber 1949 og lauk með þvi að
hann var dæmdur til dauða en
5 aðrir sakborningar í ævilangt
fangelsi, 3 í 15 ára, 1 í 12 ára
'ra, heföi veriö dæmdur sak-
og 1 í 8 ára fangelsi, hélt hann
því fram til hins síðasta að
hann væri sýkn af alvarlegustu
sökunum sem á hann höfðu
verið bornar, njósnum og land-
ráðum. Hann játaði hins vegar
að hafa unnið gegn Sovétríkj-
unum og ljóstrað upp um rík-
isleyndarmál. Allir hinir sak-
borningarnar játuðu hins vegar
sök sína fyrir rétti og báru
vitni gegn Kostoff.
Artur London látinn laus.
Siroky, forsætisráðherra
Tékkóslóvakíu, skýrði frá þvi í
gær, að Artur London, fyrrv.
aðstoðarutanríkisráðherra,
hefði verið látinn laus úr
fangelsi og honum veitt upp-
reisn æru. London var dæmdur
í ævilangt fangelsi af dómstóli
i Prag i nóvember 1952. I þeim
sömu réttarhöldum voru ellefu
háttsettir embættismenn dæmd-
ir til dauða, en tveir aðrir en
London í ævilangt fangelsi.
Meðal þeirra sem dæmdir
Framhald á 5. síðu.
Þegar farið er yíir síðasta
eintak Frjálsrar þjóóar
kemur í ljós aö stjórnmála-
efnið skiptist í meginatriö-
um á þessa leið:
★ Fimm greinar fjalla um
Alþýðubandalagiö og sósí-
alista, þar af tvœr mjög
langar, og taka þœr sam-
tals um tíu ddlka rúm í
blaðinu.
★ Þrjúr greinar fjalla um.
kosningasamvinnu Fram-
sóknar og Alþý&uflokks og
taka þær samtals um
fjögurra dúlka rúm i blað-
inu.
★ Þrjár greinar fjalla um
Sjálfstœðisflokkinn og fylla
þœr samtals um fjóra
dállca í blaðinu.
★ Þrjár greinar fjalla um
ríkisstjórnina og taka þær
samtals um tveggja dálka
rúm í blaðinu.
Það er þannig jafn mik-
ið um Alþýöubandalagiö
eitt í Frjálsri þjóö og um
öll önnur stjómmálasam-
tök í landinu, og auk þess
er heiftin margföld í grein-
um þeim sem fjalla um Al-
þýöubandalagið, svo aö
ekki sé minnzt á fúkyröin.
Þessar staðreyndir sýna
tvennt. Ráðamenn Þjóð-
varnar telja það aðalverk-
efni sitt að ráðast gegn
samvinnu vinstri manna,
og sýnir það glöggt hlut-
verk þeirra í íslenzkum
stjórnmálum. Ráðamenn
Þjóðvarnar telja það einnig
mestu nauösyn sína aö
vara lesendur Frjálsrar!
þjóðar viö Alþýðubandalag- j
inu, af því að beir finna j
glöggt aö meginhlutinn af \
fyrri kjósendum Þjóðvarn-:
arflokksins er fylgjandi
vinstra samstarfi og and-
vígur sundrungarstefn-
unni. Ráðamenn Þjóövarn-
ar eru aö berjast fyrir póli-
tískri líftóru sinni, og
þeúrri baráttu er beint gegn
Alþýðubandalaginu. Það er
góðs viti.
Margt bendir til að stjórn Francos á Spáni sé að verða völt í sessi. Víðtæk verklöll hafa verið
báð á Norður-Spáni síðustu viku (sjá 12. síðu) og stúdentar við háskólann í Madrid hafa ln að
eltir annað síðustu mánuði látið í Ijós aiulúð súia á Francostjórninni með hópgöngum eins og
þessari sem myndin er af.