Þjóðviljinn - 15.04.1956, Síða 4
4) — ÞJÓÐV3XJINN — Smri „iagur 15. apríl 1956
Þórbergui Þórðarson:
Gamall kunningi 75 ára
Mánudaginn 16. þessa mán-
aðar verður einn a£ mínum
gömlu og góðu kunningjum 75
ára. Hann heitir Ingimundur og
er Ögmundsson. Hann er Hrút-
firðingur að ætt og uppruna,
fæddur að Fjarðarhorni 16.
apríl 1881 og er systkinabarn
við Guðmund og Kristínu, sem
þar bjuggu langa ævi, annál-
uð fyrir gáfur, bókvísi og gest-
risni.
Foreldrar Ingimundar, Ög-
mundur Kristjánsson og Sigur-
björg* Sigurðardóttir, bjuggu
fyrst að Fjarðarhorni á móti
Ögmundi Bjarnasyni, föður
Guðmundar og Kristínar, en
fluttust þaðan, þegar Ingimund-
ur var þriggja ára, að Hálsi
á Skógarströnd og bjuggu þar
síðan.
Þegar Ingimundur var fjórtán
ára, byrjaði hann sjómennsku
á opnum bátum og reri fyrst
frá Elliðaey á Breiðafirði og
síðan undir .Tökli. Eftir það var
hann á skútum frá Stykkis-
hólmi. Aldamótaárið hvarf
hann til Reykjavíkur og stund-
aði þaðan sjó á skútum yfir
tuttugu ár og síðan alllengi
á togurum, en jafnframt tog-
aravistinni lagði hann stund á
húsasmíðar á sumrin, því að
hann er hagur maður og verk-
maður ágætur, og smíðaði hann
jafnvel hús upp á eigin spýtur.
Árið 1911 kvæntist Ingimund-
ur Auðbjörgu Árnadóttur, ætt-
aðri úr Árnessýslu, mikilli
glæsikonu. Þau eignuðust níu
börn, þrjár stúlkur óg sex
drengi. Tvö þeirra dóu ung og
eitt upp komið, en sex eru á
lífi.
Kona Ingimundar andaðist
árið 1926. Tveimur eða þremur
árum eftir það fluttist hann
búferlum úr Reykjavík til fsa-
fjarðar og hefur átt þar heima
síðan. Árið 1930 gekk hann að
eiga Jóhönnu Jónsdóttur frá
Arnardal og varð þeim þrig'gja
dætra auðið, sem allar lifa.
Mér er sagt að öll böm Ingi-
mundar séu myndarleg og ve)
gefin.
Skólamenntunar naut Ingi-
mundur engrar í æsku, en var
part úr tveim vetrum við nám
hjá séra Jósep Hjörleifssyni,
presti að Breiðabólstað á Skóg-
arströnd og lærði þar íslenzku,
reikning og dönsku. Sá lær-
dómur, þó ekki væri lengri,
varð honum að miklu gagni
síðan á ævinni, ekki sízt í er-
indum hans til Norðurlanda á
öðrum og þriðja tug aldarinn-
ar.
Ég kynntist Ingimundi fyrst
í Bergshúsi, sennilega veturinn
1910 til 1911. Ekki bjó hann
þar, en var þar í fæði. Hann
var stilltur maður og prúður,
hygginn og vitur, að því er mér
fannst þá og hefur fundizt
síðan. Þá var mikið talað um
skáldskap og bókmenntir og
stundum af nokkrum hita, enda
var þetta fyrir þá tíma er menn
köstuðu fyrir borð þriðju
dímensjón sálarlífsins, sem
fræðimenn hafa kallað tilfinn-
ingu.
Ingimundur var hagorður og
hafði mikið yndi af öllu, sem
vel var ort og fagurlega stíl-
sett, bæði í bundnu og lausu
máli, og þessir hæfileikar hafa
honum ekki daprazt með aldr-
inum. Hann hefur lesið mikið
og einkum fagurfræðilegar bók-
menntir.
Nú mun Ingimundur vera
alfluttur til Hafnarfjarðar og
dvelst þar hjá Halldóru dóttur
sinni, í Bröttukinn 10, og þar
verður hann á morgun á af-
mælisdaginn sinn. Hann er enn-
þá hraustur og vel að manni
og ekki mjög breyttur frá því,
er við sátum við sama borð í
Bergshúsi og ræddumst við um
skáldskap Þorsteins Erlingsson-
ar og Einars Benediktssonar
og rökin fyrir lífi eftir dauð-
ann.
Þó að þessi afmælisdagur
Ingimundar standi ekki á virðu-
legum áratug, þá vil ég grípa
þetta tækrfæri og þakka honum
fyrir gömul kynni og óska hon-
um allra heilla og svo langra
lífdaga, sem hann nýtur marrn-
vits síns og líkamlegrar hreysti.
RAFGEISLA-
HITUN
er fullkonmasta og hollasta Iiúsliitun sem nú þekkist
1. Sjálfstæð og fullkomlega sjálfvirk hitatemprun fyrir hvert
herbergi, og sérmælir sé þess óskað.
2. Aðeins þarf að setja strauminn á að morgni og rjúfa að
kvöldi. Það má gera með venjnlegum rofa í svefnlterbergi.
Einnig er hægt að nota fyrirfram stilltan klukkurofa.
3. Rafgeislahitun losar fóik við allar áliyggjwr af olíu eða
kolakaupum, stífluðum olíuspissum o. s. frv., ennfremur við
alla ólykt, óhreinindi og hávaða.
4. Ái'um, og jafnvel áratugum saman getur kerfið unnið án
nokkurs viðhalds eða umhugsunar.
5. 90° C heitt vatn allan sólarhringinn og árið um kring. Einn-
ig án umhugsunar.
Leseíni á læknabiðstofum — Erlend blöð og tíma-
rit — íslenzkt lesefni kæmi flestum betur — Hvers
vegna er ekki flutt inn smjör?
H. S. SKRIFAR: — „Ég er
heilsuveill maður og þarf oft
að fara til læknis. Ég hef
komið á margar læknabiðstof-
ur og setið þar og heðið þess,
að röðin kæmi að mér, leng-
ur eða skemur. Það er frekar
leiðinlegt að bíða þannig
kannski 2—3 klukkutíma, og
fólkið reynir að stytta sér
stundir með því að líta í blöð-
in og tímaritin, sem jafnan
eru í stórum bunkum í ein-
hverju horni biðstofunnar. En
það er bara sá hængur á að
öll þessi tímarit og hlöð eru
útlend, og mikill fjöldi þess
fólks, sem þarf að bíða í bið-
stofunum hefur þeirra fengin
not, vegna þess að það skilur
ekki ensku eða dönsku neitt
að ráði. Gætu ekki læknamir
fengið íslenzk blöð og tíma-
rit á biðstofumar, sem ó-
menntað alþýðufólk gæti ies-
ið sér til afþreyingar, meðan
það bfður þar?“ -— Pósturinn
hefur nokkrum sinnum þurft
að sitja dágóða stund á bið-
stofu hjá læknum, og kann-
ast. vel við lesefnið, sem þar
liggur frammi: Danskar og
enskar „forlovelseshistoriur".
ásamt dramatískum frásögn-
um af þeim ,tildragelsum‘' sem
í fyrstu virðast óútskýrauleg
eða yfimáttúrleg, en verða
svo skiljanleg hverju barni,
þegar slyngir leynilögregiu-
menn hafa varpað yfir þau
Ijósi sinnar ótvíræðu snilldar.
Ég vorkenni raunar engum,
þótt, hann skorti tungumála-
kunnáttu til þess að komast
fram úr þessu lesefni; en á
hinn bógimi lái ég heldur eng-
um þótt honum leiðist að bíða
geislbhitum
Garðastræti 6» Reykjavík
Símar 4284 — 80709
Pósthólf 1148
Einkaumboð fyrir Norsk Eswa A/S, Oslo
8
i
««n»innuininn,.m<HniiuunimHmtraiinnnnninn»>,nll„,IimHm„„a,IBUUnm„l„ulmia
■■■■•■■■■■■■■*•■■■■>
á læknabiðstofuna og hafa
ekki einu sinni blað eða tíma-
rit á sínu móðurmáli að líta
í. En þótt andlega fæðan á
biðstofunum sé ekki sem bezt
þá er hitt þó öllu lakara ef
erfiðlega gengur að fá smjör
við sínu daglega brauði. Hér
er sem sé bréf um það efni.
— Húsmóðir skrifar: „Bæjar-
póstur góður! Þú varst ein-
hvern tíma að ræða um
smjörleysið og gafst ef ég
■ man rétt þá skýringu á því,
að bæði hefðu bændur orðið
að fækka kúm á fóðrum hjá
sér vegna lítilla heyja, og þær
kýr sem eftir lifðu mjólkúðu
illa af því fóðrí sem þær
hefðu. Það má vel vera, að
þetta sé rétt. En hvers vegná
er þá ekki flutt inn smjör, ef
það er ekki til innanlands?
Ég fór í nokkrar búðír í gær
að leita að smjöri, en fékk
það ekki, hvorki mjólkurbús-
smjör né bögglasmjör. Mitt
heimilisfólk getur ekki borðað
brauð, nema hafa smjör við
því, og þannig hugsa ég að sé
um marga. Það þykir kannski
óbetranleg heimtufrekja að
fara fram á að smjör sé flutt
inn, svo fólk geti fengið við-
bit við brauðinu, en mér
finnst nú samt að ýmislegt ó-
þarfara sé flutt inn.“ — Það
hafa fleiri kvartað yfir því að
erfitt væri að fá smjör, og
að vonum líkað það illa. En
fyrirspurn „húsmóður“ um
það, hvers vegna smjör er
ekki flutt inn núna (eins og
stundum áður), vísa ég tii
þeirra aðila, sem um þau mÚl
f jalla. ;
: s
Sumarlognccðiir
Stúdentafélags Suðurlands
verður haldiim í Selfossbíói miðvikudaginn 18. þ.m. og
hefst með borðhaldi kl. 7.30.
Guðmundur Jónsson óperusöngvarí og
Karl Guðmundsson leikari skemmta.
Góð Mjómsveit.
Aðgöngiuniðar á staðnum. Stúdentar, fjölmeimíð og
takið með ykkur gesti.
Stjómin
IÐALFUIDUR
Flngmálafélags fslands
verður haldinn í Tjarnarkaffi, uppi, þriðjudagÍHn 17,
apríl næstkomandi klukkan 20.30.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Kvikmyndir: Plug frá Alaska o. fl.
Stjðzirin
■ •*■•»•■•••■■•«•*■•*■■■• ►■•.■■■■■«■*■■•»•» »•*»•■•■»•■■■,■■ ■■■■■■••■■•■ ■■■■«■■•« W»«MI »1