Þjóðviljinn - 14.08.1956, Side 1
ÆFR-fnndur 1
ÆFR heldur félagsfund 3
Tjarnargötu 20 kl. 8.30 £
fimmtudagskvöld. Ingi R,
Helgason ræðir stjórnmála við«
horfið; einnig eru félagsmál.
Nánar á morgun.
Yinátta Rúmena og Islendinga eflizt
yið stofnun stjórnmálatengsla
segir Coreinschi, sendiherra Rumena á Islandi
■ Ég vil fyrst af öllu nota þetta tækifæri til þess að láta
í Ijós ánægju mína yfir því að nú hefur veriö komiö á
stjói'nmálasambandi milli Rumeníu og íslands, sagöi
sendiherra Rúmeníu á íslandi, hr. Corcinschi, er frétta-
maöur Þjóöviljans átti tal við hann í gær að Hótel Borg.
Eg vil flytja íslenzku þjóðinni
kærar kveðjur frá hinni rúm-
énsku þjóð, sagði sendiherrann.
Bæði. Rúmenar og íslendingar
berjast fyrir málstað fríðarins,
fyrir vinsamlegum samskiptum
milli allra þjóða, hvert svo sem
stjómskipulag þeirra er.
' Rúmenska þjóðin hefur haft
góð kynni af íslenzkri menningu,
sagði hann ennfremur. Við höf-
um heyrt mikið um fombók-;
menntir fslendinga, og íslenzk-
um nútímabókmenntum höfum
við einnig kynnzt.
Aukin viðskipti.
Við Rúmenar höfum mikínn
áhuga fyrir þvi að auka og efla
viðskipti og verzlun milli landa
okkar, fslands og Rúmeníu. Þeg-
ar nú hefur verið komið á
stjómmálasambandi milli land-
anna, auðveldar það um allan
helmíng iausn á öllum vanda-
málum verzlunar og viðskipta
milli þeirra. í Lundúnum, þar
sem ég hef aðsetur, verður
margfalt auðveldara að ná sam-
bandi vjð fulitrúa íslenzkrar ut-
anríkisverzlunar, til þess að
koma á enn nánari viðskip'ta-
tengslum milli landa okkar.
Verzlunarsamningurinn sem
gerður var í fyrra milli landá
okkar gildir til nokkurra ára,
svo að ekki mun í bráð þörf á
að endurnýja hann. En við mun-
úm með ánægju taka við öllum
fulltrúum íslenzkrar verzlunar,
hvort heldur er í Búkarest eða
Lundúnum. Slík bein sambönd
verða til þess að hægt er að
leysa á fljótan hátt öll vanda-
mál sem kunna að rísa.
Vöruskipti
Við höfum mikinn áhuga fyrir
því að kaupa íslenzkan fisk, sér-
staklega síld, sem okkur þykir
Herstöð
í Færeyjum?
Danska blaðið Berling'ske Tid-
ende hefur flutt fregn. þiess efn-
is að ferð H. C. Hansens for-
sætisráðherra til Færeyja
standi í éinhverju sambandi við
fyrirætlanir um að stofna þar
bandaríska herstöð, sem taka
eigi við af Keflavikurflugvelli.
H. C. Hansen hefur skoðað
flugvöll Færeyinga við Suður-
vog á Vogey. Um þessar mund-
ir er færeyska lögþingið að
ræða frumvarp um að stækka
flugvöllinn og auka framlag
ríkisins til hans.
rnjög lostætur matur, en við höf-
um ú boðstólum fóðurmjö), timb-
ur til húsa- og skipabygginga,
olíu, salt og fleiri vörur.
I
Mennlngarsainskipti
Það er alkunna að á síðustu
árum hafa menningarsamskipti
milli landa okkar færzt stöðugt
^ Corcinschi sendiiierra
í aukana, sagði lir. Corcinschi.
Ágætt tækifæri til að auka
menningarleg kynni milli íslands
og Rúmeníu gefst i nóvember
næstkomandi. Þá verður opnuð
Nasser kvað egypzku stjórn-
ina leggja til, að i stað hinn-
ar fyrirhuguðu Lundúnaráð-
stefnu, yrði kölluð saman önn-
ur ráðstefna. Aðild að þeirri
ráðstefnu ættu öll ríki, sem
ættu skip í förum um skurð-
inn. Hlutverk hennar yrði að
endurskoða samninginn frá
1888 um siglingar um Súez-
skurðinn. Hinn nýi samningur
tryggi öllum skipum frjálsar
siglingar um skurðinn, en
grundvallaratriði hins nýja
samnings yrði viðurkenning á
yfirráðarétti Egypta yfir
skurðinum.
Útvarpsávarp Nassers
Seinna á sunnudaginn flutti
Nasser forseti ávarp til e-
gypzku þjóðarinnar og annarra
arabaþjóða. Hann sagði að
stjórn Egyptalands hefði í
í Búkarest sýning þjóðlegrar
listar á Norðurlöndum. Það er
von mín að íslenzk list skipi
einnig sinn sess á þessari sýn-
ingu. Meðan á sýningunni stend-
ur verður einnig háð þing lækna
í Rúmeníu, og mun þar tækifæri
til að kynnast rúmenskum vís-
indamönnum á því sviði.
Skipti á listamöiuium
og listaverkum
Við Rúmenar eigum þjóðlega
myndlist og handavinnu sem
fræg er um allan heim. Við vild-
um gjarnan kynna þennan þátt
rúmenskrar listar á íslandi. Enn-
fremur þætti okkur mikils um
vert ef gagnkvæm þekking ykist
á bókmenntum Ianda okkar.
Þegar hefur verið hafizt handa
í þessu efri, t. d. komu tvær
bækur Hal ; ' Srs Kiljans Laxness
út á rúmenaku fyrir skömmu í
allstóru U' ,lagi, eða 20.000 ein-
tökum. Lessar bækur eru ís-
landsk jkkan og Atómstöðin. Vel
j væri það farið, ef tækist að efla
I ani Rúmena af íslenzkum
j fombókmcnntum. Munum við
vinna að því að svo megi verða.
Við höfum og hug á að fá rúm-
enska tónlistarmenn og aðna
listamenn til að koma til íslands
og íslenzka listamenn til Rúm-
eníu.
Míkil fjarlægð aðskilur lönd
okkar, en með góðum vilja þjóð-
anna sem í þeim búa mun takast
góð vinátta milli beggja, sagði
Corcinschi sendiherra að lokum.
fyrstu ekki verið því fráhverf
að taka þátt í Lundúnaráð-
stefnunni. En útvarpsræða sir
Anthony Edens, forsætisráð-
herra Breta, hefði ráðið úrslit-
um um ákvörðun stjórnarinnar.
í henni hefði falist hótun um
beitingu valds gegn Egyptum.
Forsætisráðherrann hefði með
orðum sínum móðgað egypzku
þjóðina, farið óvirðingarorðum
um forseta landsins.
Stuðningur Araba-
bandalagsins
Stjórn Arababandalagsins til-
kynnti i Kaíró í gær að af-
loknum fundi sínum þá ákvörð-
un, að árás á Egypta yrði
skoðuð sem árás á öll araba-
ríkin.
Þingflokkur Verkamanna-
flokksins samþykkti á fundi
Famhald á 7. síðu.
Nasser hafnar þátttöku í
Lundúnaráðstefnunni
Nasser, forseti Egyptalands, hélt fund me'ö blaöamönn-
um á sunnudaginn var eins og tilkynnt haföi veriö. Skýröi
hann þar frá því, aö Egyptar hefðu ekki taliö sér fært að
eiga aöild að Lundúnaráöstefnunni um Súezskuröinn.
Verzlunin Bru við Hrútafjarðará. ,
Kaupfélag Hrútfirðinga hefur opiiað
ferðamannaverzlun við Hrútaf jarðará
í byrjun s.l. mánaöar opnaöi Kaupfélag Hrútfiröinga á
BorÖeyri útibú við brúna á Hrútafjaröará undir nafninu
Verzlunin Brú.
Rekstur þessarar verzlunar
er eingöngu miðaður við þjón-
ustu við ferðamenn, enda er
hún mjög vel staðsett til þeirra
hluta, nokkurn veginn miðja
vega milli Reykjavíkur og Ak-
ureyrar. — Þess má einnig
geta að þarna er hin nýja
skiptistöð Landssímans fyrir
Norður- og Vestm’land.
Verzlunin Brú hefur á boð-
stólum flestar þær vörur, sem
henta ferðafólki, svo sem gos-
drykki, tóbak, sælgæti, kex og
ýmiskonar niðursuðuvarning,
auk hreinlætisvara, fatnaðar
og ferðaútbúnað margskonar,
blöð og tímarit ásamt ýmsu
fleira. — Þama er einnig benz-
ínafgreiðsla.
>á má telja það til nýmæla,
að þarna eru prýðileg snyrti-
herbergi til afnota f.\rrir ferða-
menn og eru þau opin allan
sólarhringinn.
Verzlunarhúsið.er hið smekk-
legasta og vandaðasta að allri
gerð. Teikningu gerði teikni-
stofa SÍS og annaðist það
starf Skúli Norðdahl arkitekt.
Smiður ísak Árnason Sanðár-
króki. Raflagnir lagði Einar
Pétursson rafvirki Blönduósi
og Guðbjartur Oddsson mál-
arameistari annaðist málningu,
— Verzlunarstjóri er Pálmi
Sæmundsson, kaupfélagsstjóri
Jónas Einarsson.
Flokksþing Demókrata sett í gær
Truman lýsir yfir stuðningi við Harrr 1
man sem íorsetaefni
í gær hófst í borginni Chicago i Bandaríkjunum þing
Demókrataflokksins, og verður höfuöverkefni þess að veljá
frambjóöanda flokksins í forsetakosningunum í haust.
Þíngið stendur í 5 daga, og
verða umræður um stefnu
flokksins fyrstu 3 dagana, en á
4. degi hefst atkvæðagreiðsla um
val forsetaefnis. Alls eru full-
trúar á þinginu um hálft. þriðja
þúsund.
Ilver verður valinn?
Erfitt er að segja fyrir um,
hver verður endanlega valinn
sem forsetaefni Demókrata. Síð-
an Estes Kefauver dró sig í hlé
og lýsti yfir stuðningi við Stev-
enson, hefur Stevenson haft
mestar líkur fyrir að verða fyr-
ir valinu.
Stevenson cða Harrinian
Helzti keppinautur Stevensons
er Averell Harriman, fylkisstjóri
í New York. Nú hefur Trurnan,
fyrrverandi forseti og mikill á-
hrifamaður innan flokksins, lýst
yfir fylgi við Harriman sem for-
setaefni Demókrata. Á fundi
með blaðamönnum ó iaugardag-
inn lét Truman svo um mælt,
að hann teldi Harriman hafa
, flesta þá kosti sem prýða þurfa
forseta Bandaríkjanna. Það eru
margir, sem eru hæfir til að
taka að sér að vera í framboði!
fyrir Demókrataflokkinn í for-
setakosningunum, sagði Truman,
en Harriman er nú vel undir
það búinn að taka að sér for»
setaembættið. Verði Harrimaií
valinn þurfa Bandaríkin ekki að
óttast að yfir þau skelli heims-
kreppa og þær raunir sem henni
fylgja. sagði Truman ennfremur,
Kom á óvænt
Þessi yfirlýsing Trumans konii
nokkuð á óvænt, sérsltaklcgai
mun Stevensonsmönnum þykjai
sem þeir séu nú i)la sviknir',
Stuðningsmeun Stevensons haldac
því fram að Stevenson fái örugg-
lega 630 atkvæði á flokksþing-
inu, en þarf að fá 686,5 atkv. til
að ná útnefningu. Má búast viðl
að yfirlýsing Trumans hafi all|
nokkur áhrif á þingfulltrúa, ogj
nú muni syrta í álinh fyriq
Stevenson. Nú hafa Harrimaps-
menn fengið byr undir báðg
: £ Framliald á 8. síðw j