Þjóðviljinn - 10.10.1956, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 10. október 1956 — 21. árgangur — 231. tölublað
Alþýðusoxnband Vestljarða lýsir fyllsta
stuðningi við aðgerðir rxkisstj órnarinnar
Fagnar myndun rskisstjórnar sem nýtur stuBnings
og trausts vinnustétta landsins
14. þing Alþýðusambands Vestíjarða hefur verið
háð að undanförnu og lýstu fulltrúarnir einróma á-
nægju sinni yfir myndun núverandi ríkisstjórnar.
Jafnframt lýsti þingið fyllsta stuðningi sínum við
aðgerðir ríkisstjórnarinnar í verðlagsmálum.
Eítirfarandi tillögur voru sam- , verklýðshreyfingar, að raunhæf-
þykktar í einu hljóði á þinginu:
„14. þiag A. S. V. fagnar því
að tekizt: hefur að mynda rík-
issíjóm, sem nýtur stuðnings og
trausts vhmustétta landsins.
hingið telur að bráðabirgðalög
rikisstjórnarinnar um bindingu
verðs og kaupgjalds frá 15. sept.
til 1. jan. n.k. hafi verið nauð-
synleg eins og efnahagsmálum
þjóðarinnar var þá komið, og
lýsir því fyllsta stuðningi sínum
við þær framkvæmdir.
Jafnfram treystir A. S. V. því
að ríldsvaldið noti þann tíma
til undirbúnings víðtækra ráð-
stafana í efnahags- verðlags- og
atvinnumálum þjóðarinnar, sem
stuðli að lækkaðri dýrtíð, tryggi
kaupmátt launanna og stöðuga
og örugga atvinnu við fram-
leiðslustörfin.
Þingið viil benda á þá stað-
reynd, að á liðnum árum hefur
það verið stefna verstfirzkrar
asta, . varanlegasta og bezta
kjarabót alþýðunnar, sé að at-
vinna sé næg og kaupmáttur
launanna sem öruggastur og
launamálum þannig skipað, að
vinnuaflið leiti sjáifkrafa til
aðalatvinnuvega þjóðarinnar."
Ennfremur var samþykkt:
„í sambandi við verðbinding-
arlöggjöf ríkisstjórnarinnar, og í
tilefni af blaðaskrifum og funda-
samþykktum vill 14. þing A. S.
V. taka fram að það telur að
ríkisstjórnin hafi á fullnægjandi
hátt og eins og framast var unnt,
þar sem um bráðabirgðalöggjöf
var að ræða, Ieitað eftir stuðn-
ingi Verkalýðshreyfingarinnar í
máli þessu, með því að leita á-
lits og umsagnar miðstjórnar Al-
þýðusambands íslands, stjórna
fjórðungssamtakanna og stjóma
allra helztu verkalýðsfélaga
landsins.“
Dagsbrúnarmenn, munið
fundinn annað kvöld
Verkamannafélagið Dagsbrún lieldur félagsfund
annað kvöld kl. 8.30 í Iðnó.
Á fundinum verða kosnir fulltrúar á 25. þing
Alþýðusambands íslands, og þarf ekki að brýna
fyrir mönnum hversu mikilvœgt er að fundurinn
verði sem fjölmennastur. Þá flytur Lúðvík Jóseps-
son ráðherra erindi á fundinum um efnahagsmál-
in, og mun mörgum forvitni á að heyra álit hans
á þeim málum og þeim aðgerðum sem til greina
kunna að koma.
StjórnarsansviiEia
rædd í Svíj
Samningaumleitanir hófust í ’
gær í Stokkhólmi milli fulltrúa
stjórnarflokkanna, sósíaldemó-
krata og Bændaflokksins, um
nýjan stjórnarsamning. Bænda-
flokkurinn hefur farið þess á
leit að grundvelli stjórnarsam-
starfsins verði breytt, en hann
beið sem kunnugt er mikinn ó-
sigur í þingkosningunum í síð-
asta mánuði.
John
J. Muccio, sendiráð-
herra Bandaríkjanna á Islandi,
kom í fyrradag til Reykjavíkur
frá Bandaríkjunum, en þar tók
hann þátt í undirbúningsvið-
ræðum íslenzkra og bandarískra
ráðamanna undir samninga um
brottför Bandaríkjahers af Is-
landi.
Sendiráðherrann sagði við
komuna hingað, að viðræðurnar
fyrir vestan haf hefðu verið
vinsamlegar og gagnlegar.
Hann vildi ekkert segja um
einstök atriði væntanlegra
samninga, en gaf þó í skyn, að
afstaða Bandaríkjastjórnar
væri enn sem fyrr sú sama og
fram kom í áliti Atlanzhafs-
bandalagsráðsins í ágúst sl., en
ráðið var þeirrar skoðunar að
herseta væri nauðsynleg.
Langt komið að bólusetja öll
7-12 ára gömul börn í bænum
Bólusetning barna V2 árs til 7 ára og
framhaldsskólanemenda fyrirhuguð
Samkvæmt upplýsingum borgarlæknis er nú langt
komið aS bólusetja gegn mænusótt í fyrstu umferö öll
skólaböm hér í bænum á aldrinum 7 til 12 ára. Fyrir-
hugaö er aö bólusetja einnig börn hálfs árs til sjö ára,
svo og nemendur í framhaldsskólunum.
Mun auglýsing um þessa
bólusetningu verða birt innan
skamms og verður þá nánar
skýrt frá framkvæmd hennar.
Allmikið magn af dönsku
mænusóttarbóluefni hefur nú
borizt hingað og er bólusetning
með því þegar hafin hér í
Reykjavík. Hafa Danir sýnt Is-
lendingum mikla velvild með
því að a'greiða bóluefnið hing-
að svo snemma, en vitað er að
eftirspurn er mikil. Áður en
danska bóluefnið barst var
bandarískt bóluefni notað. Það
mun nú nær gengið til þurrðar
og verða ekki gerðar frekari
pantanir í Bandaríkjunum, þar
sem nægar birgðir af bóluefn-
inu hafa borizt frá Danmörku.
Eirtn mesti valdamaðurí Pó!
landi læfur af störfum
Hilary Minc varaforsœtisráSherra fer
frá. — Gomulka tekinn i
Útvarpiö í Varsjá skýröi frá því í gær, aö einn af helztu
ráöamönnum landsins síöan stríöi lauk og einn af áhrifa-
mestu mönnum Sameiningarflokks verkamanna hefði lát-
iö af öllum störfum í ríkisstjórn og flokknum. Þaö er
Hilary Minc, varaforsætisráðherra og lengi vel æðsti mað-
ur í efnahagsmálum Póllands.
Hilary Minc, sem er hag-
fræðingur að menntun, veitti
forstöðu endurreisn pólska iðn-
aðarins eftir stríðið, var iðnað-
málaráðherra á hinum fyrstu
erfiðu árum eftir striðið, og tók
síðan við skipulagningu ialls
efnahagslífs Póllands og varð
formaður áætlunarnefndar rík-
isins árið 1949.
Hann var einn þeirra manna,
sem beitti sér eindregnast gegn
þeirri stefnu Wladyslaw Gom-
ulka, aðalritara Sameiningar-
Þaú leiðinlegu mistök urðu
blaðinu í gær í frétt frá Vest
mannaeyjum, að í stað myndar
af formanni Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja var birt mynd af
allt öðrum manni. Eru lesendur
og þó sérstaklega hlutaðeigend
ur beðnir afsökunar á þessum
leiðu mistökum.
Hreyfllsmeiia: kosn>
lýkur í dag!
flokks verkamanna, að lögð yrði
meiri áherzla á framleiðslu
neyzluvarnings, og varð áhrifa-
mesti maður flokksins í efna-
hagsmálum eftir að Gomulka
yar vikið úr honum árið 1949.
Áhrif Mincs hafa minnkað á
síðustu árum, enda þótt hann
væri enn varaforsætisráðherra.
Hann lét þannig af formennsku
rn,
í áætlunamefndinni árið 1949.
Gomulka aftur í miðstjórn
Telja má sennilegt að afsögn
Mincs sé í einhverju sambandi
við aukin áhrif Gomulka í
Póllandi. Gomulka var fangels-
aður árið 1951, sakaður um
títóisma og hægristefnu, en var
síðan látinn laus og var veitt
fullkomin uppreisn æru í ágúst,
s. 1.
Fundur verður haldinn í mið—
stjóm Sameiningarflokks verka—•
manna í Varsjá á næstunni^
sennilega í næstu viku. Fréttarit-
Framhald á 5. síðu
28S greiddu atkvæði í gær
Geysimikil kjörsókn var í gœr í allsherjarat-
kvæðagreiðslu Hreyfils um kjör fulltrúa á Al-
þýðusambandsþing; kusu 289, eða rúmur helming-
ur þeirra sem á kjörskrá eru, og hefur þátttaka
aldrei áður verið jafn mikil fyrri daginn. íhaldið
fór hamförum í gœr og beitti allri flokksvél sinni
til þess að reyna að halda völdum í þessu höfuð-
vígi sínu í verkalýðshreyfingunni.
í dag verður kosið kl. 1—9, og er kosningu þá
lokið. Eru allir vinstri menn í Hreyfli hvattir til
að taka þátt í kosningunni og vinna sem bezt að
því að þetta verkalýðsfélag bœtist í raðir vinstri
manna.
‘ Þessi vísir að stóru tré sem þið sjáið hér er Alaskaþöll„
harðgerðasta og hraðvaxnasta tegundin í Stálpastaða-
skógi. (Sjá frásögn á 3. síðu).