Þjóðviljinn - 20.10.1956, Side 1

Þjóðviljinn - 20.10.1956, Side 1
 Útvarpsumræða^ o p 13 * • Laugardagur 20. október 1956 — 21. árgangur — 240. tölublað um tjariogin ^ Fyrsta umræða uni fjárlog fer fram í Sameinuðu Alþingf n.k. mánudag og hefst kl. 13.00« Samkvæmt þingsköpum ber að? útvarpa umræðunni. Verður samlð um smíði nýju togaranna í A.-Þýzkalandi? Ausfur-þýzkur fogarl fil sýnis i Reyk]a- vikurhöfn þessa dagana Ríkisstjórnin hefur, sem kunnugt er ákve'öiö aö láta smíða 15 nýja togara. Hér 1 Reykjavíkurhöfn er nú tog- ari sem Austur-Þjóðverjar hafa sent hingað til þess að íslenzkir útgerðarmenn geti kynnt sér af sjón og raun vinnubrögð austur-þýzkra skipasmiða. Þegar verzlunarsamningar voru gerðir við Austur-Þýzka- land á síðastliðnu hausti var lögð á það áherzla frá þeirra hálfu að keypt yrðu frá Aust- ur-Þýzkalandi skip og vélar. Aðilar þeir, sem áður höfðu einkum flutt inn slikar vörur komu sér þá saman um að stofna sameiginlegt hlutafélag í þessu skyni og nefnist það Desa h.f. Fyrir milligöngu þess hefur þegar verið samið um smíði á fimm 75 smálesta fiski- skipum úr stáli í Austur-Þýzka- landi fyrir Islendinga, og verið er að vinna að undirbúningi á samningum um smíði stærri fiskiskipa i Austur-Þýzkalandi. I fyrradag kom hi’ngað 6 manna nefnd frá Austur-Þýzka- landi til þess að undirbúa frek- ari viðræður um sölu á stærri fiskiskipum til íslands frá Austur-Þýzkalandi. Formaður þeirrar nefndar er yfirmaður allra skipasmíða Austur-Þýzka- lands, Leder að nafni. í sam- { bandi við þessar viðræður hef- ur einn austur-þýzkur togari ( verið látinn fara inn til ( Reykjavíkur svo Islendingar geti kynnt sér vinnubrögð Austur-Þjóðverja við skipa- smíðar. Héðan mun hann fara á veiðar, en annar austur-þýzk- ur togari er nú á veiðum hér við land. Togari þessi er ekki af þeirri stærð sem ísl. útgerðarmenn nota, heldur minni. Burðarmagi rúml. 300 lestir. Hann er 193 feta langur, breidd 29.5 fet, dýpt 18 fet. Togari þessi er gerður fyrir 34 manna áhöfn, ganghraði 12 mílur. Hann er knúinn 920 ha vél, auk 300 ha hjálparvél fyrir vindu og ljósa- véla. Togarinn mun verða útgerð- armönnum til sýnis hér í nokkra daga, en að því loknu mun hann halda út á veiðar. Stjórn Desa sýndi blaða- mönnum skip þetta í gær. Stjórn Desa er skipuð þessum mönnum: Eggert Kristjánssyni, Hjalta Pálssyni og Gunnari Friðrikssyni. HfiPPDRIfTTI ilF' 13 DAGAR ÞANGAÐ TIL DREGIÐ VERÐUR Austur-þýzki togarinn sem nú er í Reykjavíkurliöfn. Manni bjargað með snarræði frá drukknun í Elliðavatni Árdegis í gær var Guðmundi Óskari Steindórssyni, vörubíl- stjóra, Nýbýlavegi 48 í Kópavogi bjargað t'rá drukknun í Ell- iðavatni; og er björgunin að þakka snarræði Steingríms Páls- sonar á Elliðavatni. Ennþá er ekki komin nógu mikil þátttaka i sölu afmælis happdrættisins; fleiri þurfa að leggja sitt lið við söluna. Mun ið að margar hendur vinna létt verk. Nú gildir að nota vel þessa daga sem eftir eru. — Gerið skil. — Afgreiðslan er opin til kl. 4 í dag. Atvikin voru þau að laust upp úr kl. 10 í gærmorgun valt vörubifreiðin G-1521 út af veg- inum við brúna hjá Elliðavatni, og steyptist hún í vatnið, sem er um tveggja metra djúpt á þessum stað. Kona heima á bænum sá er slysið varð, og gerði hún Steingrími þegar að- vart og síðan rannsóknarlög- reglunni. Steingrímur brá þeg- ar við á jeppa' og tók með sér stiga. Lagði hann stiganum frá landi út á aðra skör pallsins á vörubílnum er stóð upp úr vatninu, og fikaði sig síðan eftir pallbrúninni fram að stýr- ishúsinu sem var alveg á kafi. Sat bilstjórinn þar meðvitund- arlaus í sæti sínu í vatninu, en Steingrímur náði til hans um gluggann og dró hann á þurrt, land. Hóf hann þegar lífgunar- tilraunir, og hélt lögreglan þeim áfram er hún kom á vett- vang. Um hádegisbilið raknaði Guðmundur við á slysavarð- stofunni, en síðan var honum ekið á Landspítalan. Er hann ekki í neinni hættu. Umrædd tolíahælckyri á freðfiski í USA nemur 50 Tollanefnd bandariska þingsi.ns Iag6i fil einróma að follurinn nœmi um 1 kr. á kf> . Ein af myndunum á sýningu Þorvalds Afmælissýning Þorvalds Skúlasonar opnuð í dag Þorvaldur Skúlason listmálari varð fiinmtugur á síðastliðnu vori. Félag íslenzkra inyndlistarinanna ákvað af því tilefni að gangast fyrir sýningu á verkum hans, og verður hún opnuð í Listamannaskálanum kl. 2 í dag. Slíkur tollur myndi gereyðileggja markaðinn þar fyrir íslenzkan fisk Nánari fréttir hafa nú borizt af tillögum hinnar banda- rísku tollanefndar um hækkun á tollum á innfluttum fiski. Nemui' sú hækkun, sem hún leggur einróma til, 50%, og myndi, ef hún nær fram aö ganga, gereyði- leggja markaö okkar fyrir freöfisk í Bandaríkjunum. Á sýningunni eru milli 30 og 40 málverk er Þorvaldur hefur valið sjálfur til sýningar — sum í eign hans sjálfs, önnur í eigu einstakra manna, nokk- ur úr Listasafni ríkisins. En uppsetningu sýningarinnar hafa þeir Svavar Guðnason, Sigurð- ur Sigurðsson og Gunnlaugur Scheving annazt. Elztu myndirnar á sýning- unni eru frá því fyrir 1930, en nokkrar eru alveg nýjar. Þessi sýning getur þó ekki kallazt yf- irlitssýning á myndum Þor- valds, þar sem vantar myndir frá tveimur tímabilum á list- ferli- hans — frá 1938—1940 og frá árunum 1945—1946. Frá því verður nánar skýrt í viðtaii við listamanninn, sem Þjóðvilj- Framh. á 3. síðu Nefndin sendi bandarísku stjórninni fyrir nokkrum dög- um erindi, þar sem segir að hún hafi að athuguðu máli samþykkt einróma að leggja til að tollur á freðfiski verði hækkaður um 50 prósent eða úr 1,875 senti á enskt pund (ca. 68 aura á kg.) upp í 2,8125 (ca 102 aura) af innflutningskvótanum, en hann er 15 milljón pund, eða um 6.750 lestir, Tollur af freðfiski, sem fluttur er inn umfram þennan kvóta, hefur verið 2,5 sent á enskt pund (ca 88 aurar á kg), og nefndin leggur einnig til, að hann verði hækkaður um 50%, eða upp í 3,75 sent á enskt pund (ca 132 aura á kg). Kosningar fyrir dyrum Bandarískir fiskframleiðendur hafa um langt skeið barizt fyr- ir því að fá hækkaðan toll á innfluttum fiski. Þeim varð lengi vel ekki ágengt, en árið 1954 féllst meirihluti hinnar svo- nefndu tollanefndar (Tariff Commission) á að mæla með því við forsetann að tollurinn yrði hækkaður. Þau ríki, sem eiga mestra hagsmuna að gæta í þessu sambandi, og það eru einkum Kanada, ísland og Nor- egur, mótmæltu þá harðlega og munu þau'mótmæli hafa val því, að Eisenhower forseti : ekki að ráði nefndarinnar. Bandarísku fiskframleið. urnir hafa nú fengið alla ne armenn á sitt mál og því telja liklegra en áður, að k- þeirra nái fram að ganga. er sennilega engin tilviljun. krafan keraur aftur fram mitt nú, þegar forsetakosnir. standa fyrir dyrum. Fiskfr"” leiðcndur eru mjög áhrifami í norðausturfylkjum Banda'" ajnna. hinum svonefndu Ký; Englandsfylkjum, þar sem ir? allur bandaríski fiskiflotinn. : veiðir á Atlanzhafi, hefur fcsr' stöðvar sínar. Fiskframleiðendur vestra ; sér vafalaust vonir um ,að setinn telji sig ekki geta ': gegn kröfum þeirra þegar sv stendur á. Hann hefur 15 samkvæmt sextíu daga umhu: unarfrest, en forsetakosnin'’- ar fara fram eftir rúinan h' mánuð. Framhald á 5. siði.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.