Þjóðviljinn - 20.10.1956, Qupperneq 4
*>
ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 20. október 1956
• •• •••••
Mid
böfum fariö /
nýjar leiðir
og því tekizt að skapa nýjan og fullkominn leikfanga*
gerðariðnað á íslandi
• •••**
****•••*••*•••••••
Plastleikföng:
Fíll, Alpabjalla, Smádýr meS og án
jaælu, Vagga Óli lokbrá, Diskurinn
fljúgandi, Dráttarbáturinn Magni,
HraSbátur, Farþegaskip, Blæjubíll,
Bangsahjól, Bangsahringla, Skopp-
arakringla, Hjólbörur meö garSáhöld-
um, Vatnabíll, Dúkka, Sími, Sport-
bíll, Brunabíll, Barnafata meS skóflu,
Skófla, Kisuhringla, Þrýstiloftsflug-
vél, Skúffubíll, BrúSubaSherbergi,
Sjö manna bíll, Bollapör, Dúkka
(Simbi & Sambo), Fiskur hringla,
Seglbátur, Ferguson dráttarvél, plóg-
ur, herfi, Bangsi flugmaSur, Hleöslu-
fceningar, Plastperlur fjórar stærSir,
Farþegaskip.
Tréleikföng:
Vörubíll meS og án sturSu, Jeppar,
Traktorar, Sprettfiskur, BirkibrúSa,
Svanur, Brúöuvagn, Keilur, Hjól-
börur.
Stoppuð leikföng:
Bambi, Hundur, Jólasveinar 5 mis-
munandi, BrúSa, Bangsi.
Málmleikföng:
í undirbúningi er framleiSsla á hinu
þekkta drengjaleikfangi úr málmi
„Mekkanó“.
+ ••06 SOOMÐUÍTAÐ
REYKJALUNDUR
Stúdentaskemmtun
verður í Tjarnareafé
kl. 9 x kvöld.
Hljómsveil Aage Loraitge leikur
Aðgöngumiðar við
innganginn eftir kl. 8.
Nauðimprupboð
verður haldið í tollskýlinu á hafnarbakkanum hér í
bænum, eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, mánu-
daginn 29. október n.k. kl. 2.30 e.h. Selt verður m.a.
42 ha. Read-wing benzínvél, 4 ha. Stuardvél, dexion-
skápar, spjaldskrárskápar, borð, brennsluolíulokur og
sjódælur.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík
Sendisveinn
óskast hálfan daginn.
Upplýsingar í skrifstofunni.
ÞJÓÐVILJINNi
3«naaaaHaaaaaa>aaaa>ajiaaBiaaajiiaiiaBaaaaB«aHai
Um skákina •— íslenzka olympíusveitin komin heim
—Engin hátíðleg móttaka — Reikningskunnátta
algreiðsluíólks
SKAKVINUR skrifar: „Póstur
sæll! Mig hefur furðað á því,
að hvorki þú né kollegar þín-
ir hjá hinum blöðunum skuli
hafa sagt frá .heimkomu olymp-
íuskáksveitarinnar íslenzku, en
hún er nú komin heim fyrir
nokkru síðan, nema Freysteinn,
sem ,, mun verða viðstaddur
skákmót í Moskvu sem áhorf-
andi. Frammistaða ísl. sveitar-
innar var tvímælalaust ágæt
og okkur til sóma, þótt hún
kæmist ekki í úrslit, né hreppti
efsta, sætið í öðrum flokki. Á
fyrsta borði var Friðrik þriðji
hæsti maður að vinningafjölda,
næst á eftir Larsen og Bot-
vinnik; sömuleiðis Baldur á
þriðja borði; og frammistaða
Freysteins á fjórða borði var
éinnig afbragðsgóð. Það er al-
kunnugt, að það var aðeins ó-
heppnin, sem olli því, að ís-
lenzka sveitin komst ekki í
úrslitin; margar sveitir sem
komust þangað höfðu miklu
færri vinninga, t. d. danska
sveitin, og í öðrum fíokkinum
urðu íslendingar hærri en
kunnar skákþjóðir, eins og Sví-
ar, Hollendingar og Pólverjar.
Það hefur oft verið gert mikið
veður út af minni afrekum á
íþróttasviðinu, og t. d. þegar
Friðrik og annar keppandi
skiptu með sér 1. verðlaunum
á Hastingsmótinú (sem var
ekkert nálægt því eins sterkt
mót og þetta), þá ætiaði allt
um koll að geyra að hrifningu.
Eg vildi aðeins benda á þetta,
af því að mér finnst, að vel
hefði mátt sýna ísl. sveitinni
einhvem sóma við heimkom-
una, fyrir ágæta frammistöðu
sína á þessu erfiða móti.“
— PÓSTINUM finnst raunar, að
bréfritari hafi talsvert til, síns
máls, og tvímælalaust var
frimmistaða ísl. sveitarinnar á
olympíuskákmótinu með mikl-
um ágætum.
EN HÉR er svo annað bréf urn
óskylt efni. G. S. skrifar: „Mér
hefur oft dottið í hug að senda
þér línu um reikningskunn-
áttuna hjá afgreiðslufólkinu í
sumum verzlunum bæjarins;
mér virðist hún ekki vera á
marga fiska. Um daginn keypti
ég einn pakka af Camel-síga-
rettum í búð einni, en svo stóð
á, að ekki var til nema einn
pakkj af þessari tegund og
auk þess búið að taka úr hon-
um eina sígarettu. Eg sagði, að
það væri allt í lagi, ég fengi
bara það sem eftir væri. Stúlk-
an rétti mér pakkann og sagði:
— Það eru ellefu og fjörutíu.
— Getur það verið; kostar síga-
rettan ekki nema 20 aura?
sagði ég. Stúlkan fékk sér blað
og reiknaði í ákafa; tilkynnti
mér síðan, að þetta kostaði
ellefu krónur, tuttugu og tvo
aura. Hvernig hún hefur feng-
ið þá útkomu, veit ég ekki, en
ég nennti ekki að standa í
þessu lengur og borgaði með
15 krónum. Reiknaðist mér svo
til, að ég ætti þá að fá 3,78 kr.
til baka. En stúlkan rétti mér
hins vegar 3,68 kr., og með það
fór ég, Nú, þetta eru náttúrlega
smámunir, en ef fólkið er ekki
fært um að reikna svona auð-
veld dæmi, hvernig er þá með
stærri upphæðir?“
— VAFALAUST er afgreiðslu-
fólk misjafnlega vel að sér í
reikningi, en samlagningu og
frádrátt einskonar talna hélt
ég þó að flestir kynnu sæmi-
lega. Auðvitað getur t. d. ungu
og óreyndu afgreiðslufólki
skjátlast, því það er náttúrlega
misjafnlega vel þjálfað í því
að leggja saman og draga frá
í snarheitum. Ef viðskiptavin-
irnir sjá, að um skekkju er að
ræða, þá eiga þeir að leiðrétta
það kurteislega, og trúi ég
ekki öðru en í langflestum til-
fellum verði ,,leiðréttingunni‘5'
tekið vinsamlega.
Vmningarnir
í afmælis-
happdrætti
Þjóðviljans
ern 82 þúsimd
rona
og
15 ísskápar,
liver að verðmæti
kr. 7450.00.