Þjóðviljinn - 20.10.1956, Page 5
Laugardagur 20. október 1956 — ÞJÖÐVILJINN — (5
Stórfelldar verðhækkanir
ákveðnar í Finnlandi
Ríkisstjórnin íellir niður verðuppbætur
til að spara um 700 milljónir króna
Finnska stjórnin hefur ákveðið aS fella niður verð-
uppbætur á ýmsum tegundum matvæla og mun sú á-
kvörðun hafa í för með sér miklar verðhækkanir.
Fagerholm forsætisráðherra
flutti tilkynningu um þessa á-
ikvörðun ríkisstjórnarinnar í
finnska útvarpið í gær. Skýrði
hann frá því, að stjórnin hefði
lengi talið óumflýjanlega nauð-
syn að minnka útgjöld ríkisins
um 30 milljarða finnskra
marka, eða nálægt 700 milljónir
íslenzkra króna. Hefði verið
j"— -—---
Bandarískt
k'arnorkikaupfar
Eisenhower Bandaríkjaforseti
hefur fyrirskipað embættis-
mönnum sínum að hefjast
handa eins fljótt og auðið er
tim teikningu og smíði fyrsta
bandaríska kaupfarsins, sem
knúið er kjarnorku.
Hann segist vera sannfærður
lum, að þetta slcip muni verða
það fyrsta af stórum flota
kaupfara og farþegaskipa, sem
ei’tt sinn munj sameina allar
þjóðir í friðsamlegum viðskipt-
um. Skipið á bæði að vera til
farþega- og vöruflutninga,
12.000 lestir og taka 100 far-
þega.
Pélland
horfið að því ráði að fella riið-
ur framlag úr ríkissjóði til að
halda niðri verði á ýmsum al-
mennum neVzluvörum.
Verðlag á smjöri og öðrum
landbúnaðarafurðum hækkar
þegar í stað og á mánudaginn
hækkar verð á kaffi og sykri.
Búizt er við að verðhækkanirn-
ar muni samsvara 4.5 vísitölu-
stigum.
Flest verkalýðssambönd Finn-
lands hafa að undanfömu búið
sig undir kaupgjaldsbaráttú og
mörg þeirra hafa þegar sagt
upp sarimingum. Þessi ákvörð
un rikisstjórnarinnar mun vafa-
laust valda því, að verkamenn
munu kröfuharðari en ella.
Framhald af 12. síðu.
vikið úr öllum embættum í nóv-
émber 1949 og síðan dæmdur
í fangélsi. Tve;r félagar hans,
sen: vikið var úr flokknum um
leié og honum, Spyehalski hers-
höf’iingi, fyrrv. aðstoðarland-
var raráðherra, og Kliszki, fyrr-
verandi aðstoðardómsmálaráð-
her ’a, voru einriig teknir í mið-
stjc rnina.
■■I
Búizt er við að Gomulka
verði . einnig veitt sitt fyrra
sæti í framkvæmdanefnd
flob.ksins og að hann verði aft-
ur skipaður framkvæmdastjóri
ham. Fréttaritari Reuters segir
að þrálátur orðrómur gangi um
það í Varsjá, að hann krefjist
þesr, að sumir háttsettir emb-
ættmmenn flokks og ríkis verði
látri'r víkja. Eru nefndir þeir
Kor.stantín Rokossovskí land-
var ’.aráðherra, sem tók við því
embætti veturinn 1949, réttri
viku áður en Gomulka var vik-
ið úr flokknum, Franciszek
Matúr, varaforseti pólska
þingsins, og Zenon Nowak, að-
stoðarforsætisráðherra.
Ger'r krcifu um meiri áhrif
á s< jórn landsins
PSlski Bændaflokkurinn, sem
er einn þriggja flokka, sem
sta ’.da að pólsku stjórninni
he ur gert kröfu um meiri áhrif
í ríkisstjórninni en liann hefur
nú. Varaformaður flokksins
’ sagði á fundi í Varsjá í gær,
að flokkurinn gæti ekki sætt
sig við að eiga aðeins einn ráð-
herva í rík-isstjórninni. Hann
lagði áherzlu á að flokkurinn
véfcngdi á engan hátt forystu-
hlutverk Sameiningarflokks
verkamanna, en hann ætti samt
sem áður ekki að ráða öllu.
Öryggisráðínu
Öryggisráðið kom saman á
fund í gær til að hlusta á rök
fulltrúa Jórdans fyrir kæru
þeirri sem stjórn hans hefur
sent ráðinu vegna árásar ísra-
elskra hersveita á Jórdan að
undanförnu. Fulltrúi Jórdans
krafðizt þess, að Öryggisráðið
samþykkti efnahagslegar og
stjórnmálalegai- refsiaðgerðir
gegn ísrael til að koma í veg
fyrir að slikar árásir endurtaki
sig. Ráðið frestaði öllum ákvörð-
unum í málinu.
Dani forstjóri not-
endasamtakanna
Stjórnarnefnd Notendasamtaka
Súezskurðarins (SCUA) kom
saman á fund í gær og sam-
þykkti að ráða Ejvind Bartels,
aðalræðismann Darra í New
York, sem framkvæmdastjóra
samtakanna. Hann er væntan-
legur til London einhvern næstu
daga til að taka við hinu nýja
embætti.
Fimm biðu bana
við sprengingu
í Noregi í gær
Fimm menn biðu bana og 13
slösuðust, þegar sprenging v-arð
í gær í skotfæraverksmiðju við
bæinn Raufoss í Noregi. Fjórir
hinna slösuðu eru þungt haldn-
ir.
Ekki er vitað með hvaða hætti
slysið vildi til, en sprengingin
varð í einu geymsluhúsi verk-
smiðjunnar og voru þar geymdar
hvellhettur á riffilskot. Spreng-
ingin var svo öflug, að þykkir
steinsteyptir veggir geymslunnar
hrundu og þykir það kraftaverki
næst, að nokkur verkamannanna
skyldi sleppa lifandi.
Röðin kominað
systur Karolis !
■
■
Brezku stjórnarvöldin á Kýp- i
ur hafa látið handtaka unga i
stúlku, Mahoula Karaolis að i
nafni, systur Mikliails Karaolis, ]
sem Bretar hengdu nýlega í i
Nieosia.
í opinberri tilkynningu segir,
að vitað sé að stúlkan sé félagi
í sarntökum skæruliða, EOKA,
og að hún hafi sjálf viður-
kennt, að hún hafi skotið
skjólshúsi yfir skæruliða, sem
voru á flótta undan brezku lög-
reglunni. Hún var handtekin
samkvæmt ákvæðum laga, sem
heimila landstjóranum að láta
fangelsa fólk eins lengi og hon-
um sýnist, án þess að leitað sé
úrskurðar dómstólanna.
Sovétríkin og Japan
Framhald af 12. síðu.
því í yfirlýsingunni að viðræð-
ur um formlega friðarsamninga
muni hefjast þegar og stjórn-
málasambandi hefur verið kom-
ið á milli ríkjanna og þau hafa
skipzt á sendiherrum. Einnig
hafa stjórnir beggja ríkjanna
orðið á einu máli um að auka
eftir .mætti verzlunarviðskipti
sín á milli.
Búlganín hélt Hatojama og
öðrum fulltrúum japönsku
stjórnarinnar veizlu í gærkvöld
og var til hennar boðið 2000
gestum.
Tollur á freðfiski í USA
Framhald af 1. síðu.
Kanadamenn hafá flutt mest
allra þjóða af freðfiski til Banda-
ríkjanna, eða um 35% af heild-
arinnflutningnum, fem nemur
rúmum 60.000 Íestutn. Innflutn-
ingurinn frá íslandi mun á þessu
ári vera 12—13.000 lestir eða
20% af heildarinnflutningnum.
Hlutur Norðmanna er allmiklu
minni, eða 3.000 lestir. Hér er þó
um mikið hagsmunamál Norð-
manna að ræða, því tað útflutn-
ingurinn á freðfiski til Banda-
ríkjanna nemur 10% af heildar-
útflutningi þeirra á honum.
Myndi gereyðileggja
markað okkar
Þess má geta að heildarsala
á freðfiski á bandaríska markað-
inum mun nú nema um 110.000
lestv’i \, og er þannig meira en
helmingur þess magns fluttur
inn. Bandarísku fiskframleið-
endurnir segja, að enda þótt
neyzla freðfisks hafi ekki .auk- i
l
izt í Bandaríkjunum, hafi inn- i
flutningurinn aukizt og því hafi i
hlutur þeirra minnkað og versn- |
að.
Stjórn Noregs mun þegar hafa j
mótmælt hinum nýju tillögum
um tollahækkun og þess ber að
gæfa iað Bandaríkjastjórln er
skyldug vegna aðildar sinnar að
alþjóðasamningum um tolla og
viðskipti (GATT-samningnum
svonefnda) að hafa samráð við
stjórn Kanada áður en tollur-
inn er hækkaður, en Kanada-
rnenn flytja sem áður er sagt
inn 35% heildarinnflutningsins.
Það má því búast við, að Banda-
ríkjastjórn hugsi sig um tvisvar
áður en hún lætur undan kröfum
fiskframleiðenda. Geri hún það
hins vegar, er engum biöðum um
það að flet-ta, að freðfiskmark-
aður íslendinga í Bandaríkjun-
um væri með öllu úr sögunni.
Ný sencling:
Tyll-og' blúndukjólar
Amerískir kvöldkjólar
QULLFO
Aðalstræti
Nauðungaruppbei j
verður haldið eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík að j
■
Laugavegi 171, hér í bænum, mánudaginn 29. október. j
n.k. kl. 1.30 e.h. Seldur verður einn rennibekkur.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
■
■
■
Borgarfógetinn í Reykjavík •
Auglýsingar,
sem koma eiga í sunnu-
dagsblöðum Þjóðviljans,
skulu vera komnar til
blaðsins fyrir kl. 12 á
hádegi á laugardögum.
IIIÓOViUIMN
sími 7500.
Glasgow - London
Frá
REYKJAVÍK
til
GLASG0W
alla sunnudaga
TiT
REYKJAVÍKUR
fra
GLASG0W
alla laugardaga
Margar ferðir dag-
lega milli
LONÐON og
GLASGOW
‘Loítleiðir
ÞJÓÐVILMNN vantar ungling
til blaöburðar við
Kársnesbraut
ÞJÓÐVILJINN, sími 7590