Þjóðviljinn - 20.10.1956, Síða 9

Þjóðviljinn - 20.10.1956, Síða 9
Laugardagur 20. október 1956 — 2. árgangur — 38. tölublað Loksins svarar afi Það voru ekki amaleg- ar undirtek'timar, sem Addý og afi hennar á Berufjarðarströnd fengu í sumar, þegar þau sendu upphöfin að vísunum. Fjölda margir botnar bárust og margir þeirra ágætir. Birturn við botn- ana í nokkrum blöðum í sumar, En okkur vantaði botna frá afa sjálfum. Marga langaði tii þess að sjá vísur hans í heilu lagi. Honum var því send ósk um að senda botna sína, og nú eru þeir komnir. Vísur afa á Berufjarð- arströnd eru þá þannig: Anga viðir, brosa blóm, blær í laufi þýtur. Lífiuu er öllu létt uin róm, ljóma vorsius nýtur. Veður batna, blómin vaxa blæriim strýkur hlýtt um kinu. Ofinn gliti geislafaxa grípur hörpu fossbúinn. Hitinn (Úr stíl). Það er eðli hitans, að hann þenur allt út; sést það bezt á því, að þegar fer að hitna á vorin, þá lengjast dag- amir. Aparnir Spjátrungur nokkur ætlaði að ferðast í póst- vagni, Hann kom rétt áður en lagt var iaf stað og ávarpað.i vagnstjórann á þessa leið: „Eru nú öll dýrin kom- in inn í örkina hans Nóa?“ Vagnstjórinn svaraði um leið og hann opnaði vagninn og bauð mann- inum inn: „Nei, apamir eru ó- komnir. Gjörið þér svo vel að ganga inn.“ Og enginn kötturinn Frúin (við nýju vinnu- konuna); Hver hefur brotið fallegu könnuna mína? Vinnukonan: Kötturinn. Frúin: Hvaða köttur? Vinnukonan: Er nú enginn köttur hér? Það kalla ég skrítið heimili að hafa engan kött! Ráðningar á þraut- um í síðasia blaði Gátau: Falskur pening- ur. Táknmálið: HvLa — fuglsnafnið Hávella. Skemmtilegasta les- greinin Sendið svör ykkar við spumingunni sem fyrst. Hvaðla lesgrein er skemmtilegust? — Nefn- ið einhverja af þessum fjórum: Landafræði, ís- landssaga, Náttúrufræði, Kristinfræði. Ilver er höfundurinn? Hér birtast tvö erindi úr ættjarðarljóð- um. Hverjir eru höfundarnir? I. Svo frjáls vertu, móðir, sem vindur á vog, ©g vötm þín ineð straumunum þungu, sem Mminsims braga-ndi norðljósa log og Ijóðim á skáldanna tungu, ©g aldrei, aldrei bindi þig bönd mema bláfjötiir Ægis við klettótta strönd. H. Þessuim holtum ég ann, þessum besðum ég ann, þessi hraun eru mein, sem að græða mér ber. Þessi fammþöktu f jöll era formvimir öll, ©g hver fossandi smálækur vinur minn er. Ó-mál og P-mál og önnur mál Margir uppvaxandi les- endur Óskastundarinnar hafa' minnzt á málfarið og gert athugasemdir við talshátt fólks, málvenj- ur og orðskrípi, sem vaða uppi í daglegu tali manna. Nú kveður Gamli Nói, kunningi okkar, sér hljóðs, og segir m. a. í bréfi, sem okkur barst nýlega: — „Ég kann held- ur illa við að heyra krakka segja næstum daglega orðið „fortó“ í staðinn , fyrir gangstétt, ,,strætó“ segja flestir í staðinn fyrir strætisvagn, þá mætti segja t. d. —: Eg kom með strætisvagn- inum, — en fyrir ialla muni ekki „strætó“. — Þetta segir. Gamli Nói, sem er Reykjavíkur- drengur, 13 ára að aldri. Hann er á Austfjörðum á sumrin, en í Reykjavík á vetuma, og hefur senni- lega töluverðan saman- burð á málfarinu. Já, það er alveg satt, sem þú segir, Nói, það er ekkert til fyrirmyndar að vera með þennan ó- talsmáta í tíma og ó- tíma. En þetta ó-mál á sér nokkum aldur, og vafalaust hafa feður og mæður, afar og ömmur yngstu kyns(lóðarinnar, haft þetta á vörum. „Ættum' við ekki að fara i Gúttó í kvöld“, sagði afi við ömmu í gamla daga, sþegar hann var að bjóða stúlkunni sinni á dans- skemmtun. Þessar ó-endingar eru því nokkuð gamlar hjá okkur, ef til vill hafa þær fengið fótfestu, þeg- ar bíóin hófu starfsemi sína hér. Fyrstu kvik- myndahúsaeigendurnir í Reykjavík voru jafnvel kenndir við fyrirtæki sín og nefndir Bíó-Bjarni og Bió-Petersen, en ekki kvikmynda-Bjami eða kvikmynda-Petersen. Fór þetta þægilega í munni, en þó hefur það ekki festzt við aðra fram- kvæmdastjóra. Það er ekki talað um Bíó-Örn eða Bíó-Friðfinn, þó að þeir séu forstjórar kvik- myndahúsa. En svo getur verið að ó-málið hafi borizt : frá Danmörku; Einu sinni var það leik- ur, sem fór um alla Dan- mörku að enda orðin á ó-i og vita hversu lengi væri hægt tað halda á- fram án þess að fara út af reglunni, svo sem þessi setning sýnir: Deta haro eno abeo kato skriv- eto. Det har en abekat' skrivet. — Og svo byrj- aði p-málið á íslandi og unga fólkið var að reyr.is, Framhald á 2. síðu Gátur og 1 þrautir 1 1. Hvaða fugl verðu*! að mörgum fuglum, þeg- ar einum staf er bætí framan við og öðrúm aft- an við nafn hans? 2. Lofa lesa límgadd. Myndið úr þessum orður.í fyrstu hendinguna í al- kunnu íslenzku kvæði. 3. Hvað er í miði'4 Reykjavík? 4. Maður sagði: Ef þi setur kommu yfir næsi’ fyrsta stafinn í nafnin-4 mínu og skiptir því sv j í tvennt, þá verður þal sama sem elii. Hvað hei'4 ég? Sjötngsafmæli Framhald af 6. síðu. ar, veitt K.í, 100 þúsund kr. styrk á ijárlögum. Um vorið 1944 réðst Syafa Þórleifsdótt- ir, íramkvæmdastjóri K.í. Hún ferðaðist um allt land til að skipuleggja starfið, og liafi hún ekki verið það áður, þá verður hún á þessum ár- nm þjóðkunn. Það kveður að samtökunum, og lán þeirra er að hafa svo víðsýnan og dug- mikinn starfsmann. Um haust- ið 1948 fer Svafa frá fram- kvæmdastjórastarfi í K.í. og munu margir hafa álitið það mjög misráðið. X" NORSK ELÖÐ SlaSatiirninn, Laugavegi 30 B. Laugardagur 20. október 1956 — ÞJÓÐVILJINN — ÍUt Hún hefur alltaf verið kjör- in á Landsþing K.I. og Lands- fundi Kvenréttindafélags ís- lands; vinsældir hennar sem félagskonu eru af bezta toga spunnar, heiðarleg málsmeð- ferð, samfara hlutlægu mati á málefni. Mér hefur stundum gramist, þegar hún hefur ekki getað orðið mér sammála í félags- málefnum, þó að í flestum málum sem nokkru hafa skipt höfum við átt samleið, en mér hefur aldrei fundizt hún taka afstöðu af neinum lágkúruleg- um ástæðum, heldur af hinu að sannfæring hennar var þannig. Eg þakka fyrir sam- starfið í Kvenréttindafélagi íslands, í Menningar- og minn- ingarsjóði kvenna, á Banda- lagsfundum og á landsþingi K.í. Svafa hefur alið upp fóstur- son, Svavar Ólafsson, klæð- skera; er vinkona hennar lézt, tók hún drenginn tveggja ára til uppeldis og hefur verið honum sem bezta móðir. Hann er kvæntur Elísabetu Linnet og eiga þau þrjú börn: Guð- rúnu Svöfu, Kristján Jóhann og Hlíf. Enn er Svafa á kafi í ýmsum félagsstörfum, og viidi ég óska okkur í félagsmálahreyfingu kvenna þess að við fáum not- ið starfskrafta. hennar sem lengst. — Afmælisbarninu óska ég allra heilla. í dag dvelur Svafa Þórleifs- dóttir á Melliaga 5 hjá Krist- jáni Linnet fyrryerandi bæj- arfógeta. Ragnlieiður E. Möl’ler. Eva N©vak Eva Novak lætur frá sér heyra Ungverska sundkonan Eva Novak, sem nú er gift Belgan- um Gerard og því belgískur rík- isborgari, hefur enn ekki verið valin í olympíulið Belgiu, þar eo hún hefur ekki verið talin í nægilega góðri þjálfun. Fyrra sunnudag vakti hún þó mikla athygli með því að sigra í 200 metra bringusundi á góðum tíma: 2.56,8. Önnur í því sundi var hollenzka stúlkan Rita Kroon; hún synti vegalengdina á 2.58,1. Júgóslavinn Racic kastaði ný- lega sleggju 62,80 metra. Fyrra lándsmet hans var 60,28. TékhnesMr karlmmmask&r MEÐ LEÐUR- OG GÚMMÍSÓLUM Gjörið svo vel og lítið á úrvalið 1 Skóverzlun Péturs Andréssonar Laugavegi 1“ — Framnesvegi 2 SVEINSPRÖF í RAFVÍRKJUN Umsóknir ásamt tilskyldum vottorðum og prófgjaldi, kr. 500.00, sendist formanni prófnefndar, Finni B. Kristjánssyni, Nökkvavogi 60, í síðasta lagi þann 25. október. Próíneíndin f

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.