Þjóðviljinn - 20.10.1956, Síða 11
Laugardagur 20. október 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (11
19. dagar
daga áhyggjur. Svo kæmi rúsínan í pylsuendanum. þeg-
ar hann sagöi: „Já, Martha. Einu sinni hefurðu þó sagt
satt. Ken Childs er dauöur. Ég drap hann og þú veizt
hvers vegna“. Aö sjá fraiman í hana þá! — Oh ....
augun í henni! „Ég drap hann i San Francisco og ef
þig langar til aö valda dauöa tveggja manna, skaltu
hringja á lögregluna“.
Hann fór aftur aö fitla viö bindisnæluna, svo hallaði
hann sér út aö glugganum og horfði á hafiö fyrir neð-
an. Þaö yröi aöeins einn sólarhringur þangaö til hann
yröi kominn aftur til Honululu. Hans yröi ekki saknað
á skrifstofunni — símtal þess efnis, aö hann hefði feng-
iö snert af hitasótt, gæfi skýringu á fjarveru hans.
Aöeins Martha vissi að hann haföi yfirgefiö eyna.'Og
Martha, fallega, ótrúa Martha mundi loksins komast að
því, að hún væri gift dugandi manni en ekki mannleysu,
sem léti kokkála sig fyrir ekki neitt. Hún mundi ekki
segja neitt.
Nú er tími til að leggja þetta allt niöur fyrir sér, því
að Ken Childs gat ekki komizt undan. Hann var læstur
inni í flugvél ásamt eiginmanni Mörtu, og lifði sinar
síðustu ævistundir án þess að hafa hugmynd um, af
þeirri einföldu ástæðu að Mörthu hafði ekki fundizt nein
þörf á aö kynna hann. Hún blygöaöist sín augsýnilega
fyrir mann sinn. Byssan skyldi veröa kynning hans,
byssan 1 jakkavasanum .... hún beiö þar róleg, fast
upp við brjóst hans, hörð viðkomu og næstum lifandi.
Rödd Spaldingar hreif hann upp úr þessum heilabrot-
um.
„Þér misstuð kveikjarann yðar, hr. Agnew“. Hún rétti
hann í áttina til hans.
Hann hrökk við og svaraði stuttaralega. „Hann er»
.... ég á hann ekki. Ég er ekki kvæntur“.
Ó “
„Náiö í eldSpýtur fyrir mig“.
„Sjálfsagt, hr. Agnew“.
Áður en Spalding gekk aftur í flugvélina til að sækja
eldspýturnar, laut .hún yfir Frank Briscoe, sem sat í
næsta sæti fyrir framan.
„Misstuð þér þennan kveikjara, hr. Briscoe?“
„Nei, ljúfan. Ég reyki ekki“.
,,Ó, afsakið'. Ég hélt að hann hefði kannski runnið
niður á gólfið bak við sætiö yðar“.
„Konan mín hét Helen“.
Þegar Spalding kom með eldspýturnar tók Agnew
brosandi við þeim. Hann kallaöi sjálfan sig heimsk-
ingja. Hve margar Mörthur voru til í heiminum? Ef
þessi stelpubjáni les um fráfall Ken Childs í blööunum
á morgun, gæti svo farið, að jafnvel hana tæki að
gruna sitt af hvmju. Kannski man hún þá nafnið á
kveikjaranum. Gættu þín vel, Humphrey Agnew. Svona
nokkuð má ekki koma fyrir í starfi þínu. Slík smá-
rnistök, vegna of fljótfærnislegrar íhugunar, gætu kom-
ið af stað alls konar eftirgrennslunum. Það gat gert
honum miklu erfiðara fyrir. Það var kjánaskapur að
vilja ekki kannast við kveikjarann, einungis af því
maður hataöi hánn. Næstu klukkustundirnar yrði
hann að hugsa vandlega hvert einasta smáatriöi eins
og* brothætt gler og rannsaka það út í æsar. Það var
nægur tími.
„Hér eru eldspýturnar yðar, hr. Agnew“.
„Ó, þakka yöur kærlega fyrir.“
„Ef þér þarfnist einhvers annars, skuluð þér bara
styðja á hnappinn fyrir ofan höfuöið á yður.“
„Segið mér eitt. . . . hvaö gerist, ef þér finniö' verö-
mætan kveikjara. . . . eins og þessi hlýtur að hafa
verið?“
„Hvaö gerist?“
„Já. Þaö viröist enginn farþeganna eiga hann.“
„Ég legg hann inn á afgreiöslu óskilamuna. Líklega
spyr eigandinn eftir honum.“
„Já. • • •“ Hann sendi Spalding sama. brosið og sjá
mátti á glæsilegu meöalaauglýsingunum hans. „Já....
ég býst viö aö hann geri það.“
Frá sæti sínu andspænis Kenneth Childs gat May
Holst fyígst með hverri hreyfingu hans. Það var ekki
í fyfsta skipti, sem hún veitti honum. athygli; þau
höföu dvalið á sama gistihúsinu og hún hafði séö
hann á baðströndinni á daginn og við barinn á kvöld-
in. Henni geöjaðist mun betur að andliti hans nú en
þegar hún sá hann fyrst. Það var orðiö feitlagnara af
whiskydrykkju, og kannski yröu kinnarnar full bústnar
að nokkrum árum liðnum, en það var ennþá eitthvaö
sterklegt við munn hans og kjálka. Augabrúnir hans
voru grásprengdar og óstýrilátir lokkar gægðust fram
á ennið, en hrukkurnar kringum augun virtust bíöa í
ofvæni eftir því aö hressandi hlátur kæmi þeim úr
jafnvægi. May fannst allur svipur hans og yfirbragð,
allt frá bláum augunum niður á sterklegar hendurnar,
sem flettu blaöinu, bera vott karlmennsku, sem var
oröinn fágætur eiginleiki nú til dags, aö henni fannst.
Og svo var hann auösjáanlega stórauöugur. Enginn
nema sterkríkur maður mundi dirfast að handleika
sígarettumunnstykkið sitt eins og Ken Childs geröi,
eða böðlast gegnum dagblaðið og fleygja því frá sér
meö fyrirlitningu, eins og hann vissi fyrir fram hvaö
í því stæði. AÖeins þegar hann las kauphallarsíðuna
fór hann sér hægar eins og hann væri að athuga,
hvernig ástatt var í fjármálunum. Alveg eins og Sterl-
ing hafði einu sinni gert.
Sem snöggvast leit hún af Ken Childs og hugsunin
um hann,vék úr huga hennar fyrir minningunni um
Sterling. Hún lifði á ný gönguferöirnar meö honum í
rigningu snemma morguns fyrir fimmtán árum.
„Ég held, að' þú sért einhver dásamlegasta stúlka,
sem nokkur maöur getur fundið. .. .“ Hún heyrði enn
þá fyrir sér sterka, greinilega rödd hans.
„Þú fannst mig ekki. Ég fann þig. ... dálítið drukk-
inn að vísu, en það varst þó þú.“
„Ég var allur plástraður.“
„Já, það var ástæða til.“ Þannig var hægt að tala ’
viö Sterling síðar, en fyrstu árin var hann mjög upp-
stökkur, ef minnst var á ástæöurnar fyrir drykkju-;
skap hans. Uppstökkur og í vígahug eins og fyrsta1
kvöldið, þegar hann kom æðandi inn í krána og
heimtaði stelpu. Hann fékk May Ladzeny — unglings-
stúlku, sem var aö reyna að bægja vágestinum frá
dyrum fátækustu pólsku fjölskyldunnar í Toledo. Þeg-
ar Sam, eigandi krárinnar, kynnti hana sem May,'
14
♦»i tnll isþátl u r
Bólerótreyjur eru í tízku
Bólerótreyjan er
svo mikið í tízku,
að varla verður
litið á tízkublað
svo að ekki blasi
við bóleróar og
aftur bóleróar,
sama er frá
hvaða landi blað-
ið er. Myndirnar
sýna hvernig
hægt er að
breyta til með
ýmiskonar krög-
um og hnepping-
um á flík þessari.
Það er þægilegt-
að bregða henni
yfir kjólinr þeg-
ar kólnar, og
það fer betur við
kjólinn en prjóna
peysa, með öðrum
lit og sniði. Fleg-
inn kjóll, sem ó-
hæfur mundi
vera á vinnustað,
verður við það
vel hæfur þar,
en getur hinsveg-
ar gilt á
skemmti stað án
treyjunnar.
Kjörbréfamálið
Framhald af 10. síðu
al þjóðarinnar og á Alþingi.
Eg trúi því að báðir þessir
flokkar, einnig Framsóknar-
flokkurinn, þó að hann hafi
um alllanga hríð haft hag af
núverandi skipan þessa ra
mála, muni ganga að því
verki, sem þeir hafa samn-
ingsbundið sig til, með það í
huga að skapa hér meira rétt-
læti og að það ranglæti,
mesta ranglætið, sem fyrir
getur komið, að meiri hluti
Alþingis sé í engu samræmi
við meiri hluta þjóðarinnar,
geti ekki átt sér stað.
TIL
LIGGUfi LEIÐIN
i S
PERtíl
þvottaduft
aðeins
■
■
j kr. 3,70 pr. pk.
UmBlQCÚS
Minrdngarkortia er« til söla
£ sfcrifstofu Sósíalistaflokks-
ins, T.iarnargötis 20; afgreiðsla i
Þjóftviljans: Bókabúð Kron;\
Bókabúð Máls og uenningar, |
Skólavörðustíg 21; og í Bóka- J
verzlun Þorvaldar Bjarnasos- 1
ar í HafnarfirCL
l'útgefandi; Saraemingarllokkur alþýðu ~ Sósiálistafiokkurinn. _ Eitstiórar: Magnús Kiartansso
. Sieursur GuSmunasson. — Préttaritstjóri: Jón BJaraason. - BKtðamenn: Ásmunrtur Sigui
. , • . 11 J. . Jonsson, Bjarni Bcúodikt.ssön, GuáraUndúr Vigfússon, fvar H. Jónsson, Magnús Torfi ólafsson ■
AuslysingastJóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjórn, afgrciSsla, auglýsinEár, prontsmiaja: SkólavörSustíg 19 ~ Sími 7500 I
S'lliÍMM m4nuS1 1 ReykiRVÍk o* nágrenni; kr. 22 annarsstaSar. - LausasöluverS kr. 1.-«()