Þjóðviljinn - 13.11.1956, Page 6
B) -- ÞJÖÐVIWfN'N' — l»i-iðjudagur 13. nóvembér 1956
þlÓÐVlLIINN
Útgefandi:
Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Blindir í þjónustunni
I Cvo blint er íhaldið í þjón-
f ^ ustu sinni við bandaríska
: hernaðársinna og innlend her-
gróðaöfl að það virðist halda
a,ð atburðir síðustu tíma úti í
iheimi séu eins og hvalreki á
íjörur þess. Er nú á því
ihamrað af hálfu íhaldsins í
' ræðu og riti að hörmungarnar
' í Ungverjalandi og árásin á
' Egypta séu sönnun þess að
I Island þurfi að vera hernum-
I ið um ófyrirsjáanlega framtíð.
1 Hafa íhaldsmenn á Alþingi
! gengið svo langt að flytja
| þingsályktunartillögu í þess-
! ium anda og aðra um að agent-
' ar hernámsstefnunnar skuli fá
! aæti í nefnd þeirri er fjallar
iim samningana við Bandarík-
i ííj af hálfu Islendinga.
í . . ' . . . •
! i llir sem opin hafa augu
munu sjá að þeim álykt-
unum sem Islendingum ber að
draga af síðustu atburðum er
alveg öfugt farið við það sem
íhaidið vill vera láta. Örlög
annarra hernuminna þjóða
sýna okkur á eftirminnilegasta
hátt hvílíkur háski stafar af
hersetu stórveldanna utan
heimalanda þeirra. Og árás
tveggja stórvelda, Breta og
Frakka, á Egyptaland hefur
sýnt og sannað að yfirlýsing-
ar Atlanzhafsbandalagsins um
að þátttökuríki þess skyldu
lifa í friði við allar þjóðir og
leyta öll deilumál á friðsam-
leg.H i hátt reynist yfirdreps-
skapurinn einn. Þessi vest-
rænu stórveldi hafa hiklaust
rofið Atlanzhafssáttmálann og
farið með árásarstríð á hend-
ur vopnlítilli smáþjóð til að
tryggja stórveldahagsmuni
sína. Hljóta íslendingar hér
eftir að líta svo á að með að-
gerðum Breta og Frakka í
Egyptalandi sé Atlanzliafs-
samningurinn úr gildi fallinn
og aðalforsenda hernámsins
þar með úr sögunni.
Sannleikurinn er sá að aldrei
fyrr hafa íslendingar haft
svo ríka ástæðu sem nú til
þess að sameinast sem einn
maður um kröfuna um aflétt-
ingu hernámsins. Aldrei fyrr
hefur það legið eins ljóst fyr-
ir hvílíkur háski steðjar að
þeim smáþjóðum sem eru und-
irorpnar hernámi framandi
stórvelda. Þau harmsögulegu
tíðindi sem borizt hafa utan
úr heimi síðustu daga hljóta
því að verða öllum heiðarleg-
um Islendingum öflug hvatn-
ing til að herða baráttuna og
sameinast um kröfuna um
brottrekstur ameríska hersins
úr landi. Engar aðrar álykt-
anir verða dregnar af því sem
gerzt hefur, ef ekki koma til
annarleg sjónarmið. Þess
vegna mun þjóðin rísa ein-
huga og sterk gegn þeim fyr-
irlitlega áróðri sem flokkur
hersetunnar og gróðasjónar-
miða hermangaranna hefur nú
í frammi og afþakka öll af-
skipti flugumanna hans af
þeim örlagaríku samningum
sem framundan eru.
Hættuleg
öt ningaklíkan sem stjórnar
1 Sjálfstæðisflokknum hefur
margsinnis sýnt og sannað að
hún kann ekki að taka dómi
sem almenningur kveður upp
yfir henni; hún sættir sig
ekki við annað en að vald
hennar drottni. Þetta birtist á
einkar minnisstæðan og lær-
dómsríkan hátt i kosningun-
um í Kópavogi, þar sem fólk
var neytt til þess að greiða
atkvæði æ ofan í æ í von um
að hægt væri að þreyta kjós-
endur svo mjög að þeir gæf-
ost upp að lokum. Þetta fór
þó ú aðra lund, en atburða-
rásin sýndi fólki djúpt inn í
hugskot forsprakkanna og
duldist engum að þar fór ekki
mikið fyrir lýðræðisást þeirri
sem smurð er á varirnar af
mestri ákefð.
"I 'iðbrögð íhaldsins við valda-
* t "ku núverandi ríkisstjórn-
ar eru á sömu lund. Það sætt-
ir sig ekki við það að meiri-
hluti þjóðarinnar ákveði að
Btjórna landsmálunum án þess
að thorsararnir séu til kvadd-
ir. Fyrsta tilefni sem gafst
var notað til þess að reyna
ir rnene
að stofna til almennra æsinga
og knýja meirihlutastjórn frá
völdum með því móti, og fóru
forsprakkarnir ekkert leynt
með að þetta var tilgangur-
inn. Sjálfir helztu forustu
menn flokksins stóðu fyrir
götuóeirðum og skrílslátum,
og ætlunin var að halda slík-
um vinnubrögðum áfram þar
til þau hrifu. En einnig þetta
mistókst; almenningur neitaði
algerlega að láta skipa málum
sínum með slíkum vinnu-
brögðum.
■Jjað er nauðsynlegt að allur
* almenningur geri sér ljóst
hvert er hugarfar leiðtoga
Sjálfstæðisflokksins. Þessir
menn eru hættulegir þjóðinni,
þeir eru hvenær sem er reiðu-
búnir til að grípa til annar-
legustu ráða til að tryggja
völd sín og gróða. Það er
sannarlega ástæða til þess að
almenningur sé vel á verði og
að stjórnarvöldin tryggi að
forustumenn íhaldsins fari
með engin önnur völd en þau
sem þjóðin hefur fært þeim í
almennum kosningum.
segir
Benediktsson aí sér1
Það hefur áður verið vakin
athygli á því hér í blaðinu áð
það hefur aldrei gerzt fyrr en
nú hér í Reykjavík að ráðizt
hafi verið að erlendu sendi-
ráði. Þó hafa margsinnis ver-
ið haldnir mótmælafundir og
verið heitt í fólki vegna at-
ferlis erlendra stórvelda, ekki
sízt Breta og Bandaríkja-
manna sem einatt hafa leikið
íslendinga grátt. En almenn-
ingur hefur litið á sendiráðin
sem friðhelga staði, fánar
þeirra hafa aldrei verið ó-
virtir, né sendimenn þeirra
mætt öðru en kurteisi — fyrr
en nú.
Það er vægast sagt kynlegt
að það skyldi vera Pétur
Benediktsson sem varð til þess
að hefja nýja hætti í um-
gengni við erlend sendiráð,
maður sem um langt skeið
hefur verið sendiherra íslands
hjá flestum Evrópuþjóðum og
er nú einn æðsti embættismað-
ur þjóðorinnar, Það var þessi
virðulega persóna sem stjórn-
aði aðförinni að sovézka
sendiráðinu 7. nóvember og
ber öllum öðrum fremur á-
byrgð á þeim verkum sem þar
voru unnin. Það er öruggt og
víst að Heimdellingar hefðu
ekki árætt að vinna óþokka-
brögð sín ef þeir hefðu ekki
í sífellu verið eggjaðir og
hvattir af Pétri Benediktssyni.
Og það er einnig öruggt og
víst að þótt ýmsir Heimdell-
ingar séu ekki ábyrgir gerða
sinna fyrir sakir æsku,
heimsku og fáfræði vissi Pét-
ur Benediktsson fullvel hvað
hann var að gera. Hann skildi
til hlítar hversu alvarleg verk
var verið að vinna undir
stjórn hans og hverjar af-
leiðingar það gat haft. Hann
veit einnig hversu alvarlegum
augum íslenzk löggjöf lítur á
hegðun sem hans, en í 95.
grein hinna almennu hegning-
arlaga segir svo:
„Hver, sem opinberlega
smánar erlenda þjóð eða er-
lent ríki, æðsta ráðamann,
þjóðhöfðingja þess, fána þess
eða annað viðurkennt þjóðar-
merki, skal sæta sektum, varð-
haldi eða fangelsi allt að sex
árum. Söniu refsingu skal hver
sá sæta, sem smánar opinber-
lega eða hefur annars í
framini skammaryrði, aðrar
móðganir í orðum eða athöfn-
um, eða ærumeiðandi aðdrótt-
anir við aðra starfsmenn er-
lends ríkis, sem staddir eru
hér á landi.“
Svona alvarlegum augum
lítur íslenzk löggjöf á verk
þau sem unnin voru sl. mið-
vikudag. Þjóðfáni Sovétríkj-
anna var tvívegis óvirtur,
skorinn niður 7. nóvember og
honum var rænt daginn eftir.
Það verk unnu tvær unglings-
telpur og þær hlupu með fán-
ann heim til Ólafs Thors, for-
manns Sjálfstæðisflokksins og
tengdaföður Péturs Benedikts-
sonar, og skildu hann eftir
fyrir utan dyrnar. En þessar
unglingstelpur eru auðvitað
ekki ábyrgar gerða sinna; þær
hefðu aldrei hegðað sér þann-
ig ef ekki hefði Jkomið til for-
dæmi hins virðuiegasta emb-
ættismanns,, enda sýndu þær
með hlaupunum -að þær vissu
fullvel hvar húsbændurna var
að finna.
Almenningur befur. kveðið
upp mjög þungan dóm yfir
Pétur Benediktsson
Pétri Benedjktssyni, sömuleið-
is öll dagblöð bæjarins nema
blöð Sjálfstæðisflokksins. I-
haldsblöðin hafa þó ekki
treystst til þess að bera blak
af Pétri einu orði, þau hafa
meira að segja talið ráðlegast
að lýsa yfir ógeði sínu á ó-
þverraverkunum í aukasetn-
ingum. Og ekki hefur Pétur
sjálfur gert minnstu tilraun
til að skýra eða réttlæta fram-
komu sína. Framkoma Péturs
er þeim mun alvariegri sem
hann er bankastjóri sjálfs
Landsbankans. Sovétríkin eru
sem kunnugt er eitt helzta
viðskiptaland Islendinga, og
það er Landsbanki Islands
sem annast öll þau viðskipti.
Það verður ekki hjá því kom-
izt að álykta sem svo að Pét-
ur Benediktsson hafi vitandi
vits verið að reyna að tefla
viðskiptum íslendinga og
Sovétríkjanna í tvísýuu, enda
er það í samræmi við hatursá-
róður íhaldsins gegn þessum
mikilvægu viðskiptum. Það
var Bjarni Benediktsson sem
batt endi á verzlumarsamning-
ana við Sovétríkin 1947, með-
an Pétur bróðir hans var1
sendiherra í Moskvu, en með
þeirri stefnu var áruin saman
leitt hið versta fjánnálaöng-
þveiti yfir islendínga. Nú
reynir Pétur enn að vega í
sama knérunn, að þessu sinni
með löglausustu ofbeldisverk-
um. Fyrir þá frainkoinu getur
hann aðeins bætt ineð einu
móti; með því að segja af sér
umsvifalaust.
En auðvitað á Pétur Bene-
diktsson ekki mannlaund til
þess að bregðast karlmann-
lega við afbrotum sínum; í
fyrradag gýndi hann aðra
hlið á sér. Hann birti í Morg-
unblaðinu grein sem vert er
að taka upp í heilu lagi; hún
er svohljóðandi:
„Þakldr til biskups.
Ég vil hér með þakka herra
Ásmundi Guðmundssyni bisk-
upi fyrir hið snjalla ávarp
hans til þjóðarinnar hinn 8.
þ.m. og fyrir forgöhgu hans
um hluttekningu íslenzku
kirkjunnar í harmi Og þján-
ingum Ungverjalands.
Mér er þeim mun ljúfara að
gera þetta sem mér er nú
kunnugt, að herra Ásmundur
hafði samið hið skörulega á-
varp sitt áður en ég hóf máis
um þetta efni á * fundi Stúd-
entafélags Reykjavíkur að
kveldi hins 7. þ.m. Hefur
biskup nú sem fyrr sannað að
hann er drengur góður.
Pétur Benediktsson“
Ýmsum lesendum Morgun-
blaðsins hefur fundizt þessi
grein torskilin og þeir hafa
spurt með hvaða rétti ó-
spektaleiðtoginn Pétur Bene-
diktsson sé að þakka biskupi,
ekki sízt þeir sem muna hin
ósmekklegu fáryrði Péturs um
biskup á stúdentafundinum
fyrir rúmri viku. En þegar
betur er að gáð er einkar ljósf
hvað fyrir Pétri vakir. Hann
er á lítilmannlegasta hátt að
reyna að læða inn þeirri grun-
semd hjá fólki að það hafi nú
í rauninni verið hann, Pétur
Benediktsson, sem átti upp-
tökin að bænagerð íslenzku
kirkjunnar á sunnudaginn
var! Leiðtogi Heimdellinganna
er að reyna að fela sig bak
við þjóðkirkjuna og biskup-
inn yfir Islandi, og senn kem-
ur væntanlega að því að at-
burðunum fyrir utan sovézka
sendiráðið verði lýst sem
helgistund til að undirbúa
bænagerð. Einnig þessi við-
brögð gefa skýra mynd af inn-
ræti og mannlund Péturs
Benediktssonar, og vissulega
eru þeir menn miklu sælli sem
verða fyrir árásum lians en
hinir sem verða að þpla lofs-
yrði hans.
En það er sama hvort Pét-
ur Benediktsson opinberar fúl-
lyndi sitt eða heimóttarskap,
það er nú almenn skoðun að
þjóðin megi ekki lengur hljóta
minnkun af því að slíkur
maður stjórni þjóðbankanum.
Almenningur spyr: Hvenær
segir Pétur Benediktsson af
sér? Og vonandi dregst það
ekki lengi að bankastjórinn
svari þeirri spurningu.
165 flugvélar
höfðu viðkomu
í októbermánuði 1956 höfðu
samtals 165 farþegaflugvélar við-
komu á Keflavíkurflugvelli.
Eftirtalin félög höfðu flestar
viðkomur:
Pan American World Airways 35
Br. Overseas Airways Corp. 22
Trans World Airways 20
Flying Tiger Line 14
Seaboard & Western 11
Samtals fóru um flugvöllinn tæp-
ir 6000 farþegar. Vöruflutningar
námu alls 210000 kg. og póstur
34000 kg. •
(Frá flugvarliarstj. Keflav.)]