Þjóðviljinn - 13.11.1956, Page 9
Þriðjudagur 13. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (9.
ÍÞRÓTT
RITSTJÓRI: FRÍMANN HELGASON
Brynjólfur Ingólfsson kos-
inn formaður FRl
Þingi Frjalsíþróttasambands
íslands lauk á sunnudagskvöld.
Brynjólfur Ingólfsson formaður
sambandsins flutti skýrslu
stjómarinnár, sem var mjög
ítarleg. Ennfremur voru lagðir
fram reikningar og var á þeim
nokkur halli vegna landskeppn-
innar við Dani og Hollendinga.
Á þinginu komu fram mörg
mál og mörg þeirra þýðingar-
mikil. Allar umræður um þau
einkenndust af áhuga og vilja
á því að vinna sem bezt .að
þeim. Verður þeirra og skýrsl-
unnar getið hér á Íþróttasíðunni
næstu daga.
Formaður FRÍ fyrir næsta ár
var einróma kjörinn Brynjólfur
Ingólfsson en hann hefur verið
formaður tvö undalnfarin ár.
Með honum í stjóm voru kosnir
Lárus Halldórsson, Guðmundur
Sigurjónsson, Þórhallur Guðjóns-
Son og Gunnar Sigurðsson (Þór-
hallur er úr Keflavík). Sú ný-
breýtni var bundin í lögum á
þinginu og þar skyldi kjósa sem
fasta menn í stjórn sambandsins
formann dómara- og laganefndar
og formann útbreiðslunefndar.
Fórmaðilr dómara- og laga-
nefndar var kosinn Jóhann Bern-
harð, en formaður útbreiðslu-
nefndar Bragi Friðriksson.
I varastjórn voru kósnir:
Bjöm Vilmundarson, Jóhannes
Sölvásón og Jón M. Guðmunds-
son.
Endurskoðendúr: Gunnar
Vagnsson og Hörður Haraldssön.
í íþróttadómstól FRÍ voru
kosnir Jóhann Bernharð, Þórar-
inn Magnússon og Jón H. Guð-
mundsson.
Áðalfundur KRR
annað kvöld
Annað »kvöld hefst aðalfundur
Knattspyrnuráðs Reykjavíkur,
og verður hann haldinn í félags
heimili Fram. Ger.a má ráð fyrir
að rniklar umræður verði um
ýms mál er varða knattspyrnuna
og þá ekki sízt dómaramálin og
þá vandræða þróun að verða
stöðugt að fresta leikjum, en það
hefur truflandi áhrif á gang
móta.
'Úrslit norrænu unglingakeppninnar í sumar:
Svíþiáð efsf - ísland neðst
í skýrslu stjórnar FRÍ var
skrá yfir úrslit í unglingakeppn-
inni í sumar, og fer hún hér á
eftir. Eru úrslitin ekki éins
skemmtileg og áður, því að nú
skutust Danir upp fyrir okkur
og vorum við því neðstir að
þessu sinni, eins og segir í
skýrslunni.
100 m:
11,18 Svíþjóð
11,30 Noregur
11,40 Danmörk
11,52 Finnland
11,95 ísland
1500 m:
4:10,73 Sviþjóð
4:12,49 Finnland
stig
5 stig
Landslið kvenna í handknatt-
leik heiðrað af stjórn ISI
Framkvæmdastjórn íþróttasam
þands. íslands éfúdí s.l. miðviku-
öag til samsætis fyrir stúlkur
þær sem kepptu fyrir íslands
hönd í handknattleik við Norð-
menn og tóku þátt í norrænu
meistarakeppninni í Finnlandi í
sumar. Við þetta tækifæri af-
henti forseti ÍSÍ stúlkunum
landsliðsmerki ÍSÍ. Er til þess
getlazt að .allir þeir sem taka
þátt í landsleik i handknattleik
fái slík merki í framtíðinni.
Merkið er ÍSÍ-merkið úr silfri.
son formaður HKRR. María
Jónsdóttir þakkaði fyrir hönd
stallsystra sinna. Auk gesta sem
nefndir hafa verið var stjóm
Handknattleiksráðs Rej'kjavíkur
þar og boðin.
Priðja og síðasta
fSugvéiin lagði af
4:18,5 Noregur 3 —
4:19,5 Danmörk 2 —
4:44,5 ísland 1 —
Langstökk: 6,48,04 Finnland 5 stig
6,37,64 Sviþjóð 4 —
6,22,0 Noregur 3 —
6,04,04 Danmörk 2 —
5,77,0 ísland 1 —
Hástökk: 1.78,08 Sviþjóð 5 stig
1.77,28 'Finnland 4 —
1.76,0 Noregur 3 —
1.65,44 Danmörk 2 —
1.59,0 fsland 1 —
Kúluvarp: 12.90,58 Finnland 5 stig
12.72,0 Noregur 4 —
12.33,68 Svíþjóð 3 —
12.08,0 ísland 2 —
10.21,16 Danmörk 1 —
Kringlukast: 37.55,80 Finnland 5 stig
35.57,7 Noregur 4 —
35.40,92 Svíþjóð 3 —
34.78,0 ísland 2 —
28.21,84 Danmörk 1 —
Heildarstig landanna: 1. Svíþjóð 25 st. (1955: 22 st.)
2. Finnland 25 — (1955: 28 —)
3. Noregur 21 — (1955: 19 —)
4. Darimörk 11 — (1955: 10 —)
5. ísland 8 — (1955: 12 —)
* * ÚTBREIÐIÐ
• * ÞJÓDVILJANN
ússi og !rs
Aukin landbúnaðarkreppa en
samt skortur á matvælum
Uppskeruárið 1955-1956 var
heildarframleiðsla matvæla og
landbúnaðarafurða í heiminum
3% meiri en árið áður. Verð-
lag landbúnaðarafurða fór
hinsvegar lækkandi og í flest-
um Löndum eru meðaltekjur
bænda lægri nú en þær voru
fyrir nokkrum árum. I mörg-
um iðnaðarlönduin liefur verið
stefnt að því að framleiða ein-
ungis þær landbúnaðarafurðir,
sem íbúar landsins þarfnast
sjálfir. Sé hinsvegar litið á
landbúnaðarmáíin í lieintinum í
heild má segja, að framboð og
eftirspurn standist nokkurn-
vegin á. Fyrningar eru þær
sömu og þær voru fyrir nokkr-
um árum.
Þessar upplýsingar eru í
skýrslu FAO (Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna), sem nýlega
liefur verið birt. Það kemur
fram í skýrslunni, að í iðnað-
arlöndum virðist vera lögð
meiri áherzla á byggingarfram-
kvæmdir en að yrkja jörðina.
Fiskveiðar hafa hinsvegar auk-
izt og bómullarræktun og rækt-
un brauðkorns, sem var í aft-
urför hefur aukizt nokkuð aft-
ur. Trjáræktarþjóðir hafa
aldrei flutt út jafnmikið af
timbri og á síðastliðnu ári.
Allir reyna að vera sjálf-
um sér nógir.
Aukning landbúnaðarfram-
leiðslunnar varð mest í Norð-
ur-Ameríku og á Kyrrahafs-
svæðinu, þar sem fyrningar
voru mestar fyrir. I löndum
Austur-Asíu hefur landbún-
aðarframleiðslan einnig aúkizt.
En bæði á Austurlöndum og á
Kyrrahafssvæðinu • varð fram-
leiðslan um 10% minni en hún
var fyrir stríð, þegar reiknað
er hlutfallslega við íbúatölu.
I vanyrktu löndunum hefur
framleiðsla eggjahvíturíkrar
fæðu aukizt, þæ. framleiðsla
kjöts og fisks. 1 iðnaðarlöndun-
um, aðallega í V-Evrópu, var
framleiðslan svipuð og árið áð-
ur. í hinum síðarnefndu lönd-
um liefur verið lögð meginá-
herzla á að bæta gæði fram-
leiðslunnar til þess að gera
fæðuna sem fjölbreyttasta.
Heimsverzlunin með land-
búnaðarafurðir reyndist 5%]
meiri en árið áður og hefur
hún aldrei verið meiri. En
samanborið við vöxt heims-
verzlunarinnar í heild er þetta
ekki mikil aukning þar sem
heimsverzlunin með allar vörur
er nú 70% meiri en liún var
á árunum 1934-1938.
Nákvæmar rannsóknir hafa
leitt í ljós, að verzlun með kjöt
korn, epli, nokkrar fisktegund-
ir og bómull hefur aukizt mjög
hægt og ér sumstaðar minni
en liún var fyrir stríð. Hins
vegar hefur verzlun með kaffi,
kakó, banana og blaðapappír
aukizt ört. Þær þjóðir, sem áð-
ur fluttu inn allmikið af korni
og öðrum mikilvægum landbún-
aðarafurðum stefna nú að því,
að framleiða sjálfar til eigia
þarfa, því allar þjóðir vilja
verða sjálfum sér nógar
framleiðslu nauðsynja.
Aðalvandamál landbúnaðar-
ins um allan heim, og þó eink-
um i iðnaðarlöndunum, er að
framleiða landbúnaðárafurðir
við vægu verði til neytenda og
tryggja á sama tíma, að bænd-
ur fái viðunandi laun fyrir sína
vinnu, segir í FAO skýrslunni.
N auðungar uppboð
sem auglýst var í 72., 74. og 75. tbl. Lögbirtingarblaðs-
ins 1956, á hluta í húseigninni nr. 39 við Sigtún, liér í
bænum, eign Páls S. Dalmar, fer fram eftir kröfu Ágústs
Fjeldsted hrl., Árna Stefánssonar hdl. og Iðnaðarbanlta
Islands h.f. á eigninni sjálfri, laugardaginn 17. nóvember
1956, kl. 2.30 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík
ti fá efnafræðiverð
Óneitanlega hefði verið æski-
legt og eðlilegt að þetta nýja
merki hefði borið keim af hand-
knattleik og að þessi byrjun hefði
verið hugsuð þannig að: sama
merki mætti nota þótt sérsam-
band verði stofnað í handknatt-
leik.
Þá virðist næsta eðlilegt að
jsamþykktin um landsliðsmerki
Þetta verki aftur fyrir sig og
þeir menn sem hafa háð lands-
leiki fyrir íslands hönd fái merk-
ið, enda er það ekki fjölmennur
liðpur.
Við þetta'tækifæri fluttu m. a.
Suk forsetá ÍSÍ, ræður þeir
Hannes Sigurðsson, Árni Árna-
ÚtbreiSiS
ÞjóSviljann
Eins og áður liefur verið sagt
komu olympíunefndir Norður-
landanna sér saman um að hafa
samflot til OL í Melbourne og
leigðu sameiginlega flugvélar lijá
SAS flugvélaginu. Eru þetta stór-
ar flugvélar af gerðinni DC7C
og tekur hver þeirra 74 farþega.
Fyrsta vélin fór af stað 7.
nóv. og sú næsta daginn eftir
og sú síðasta fór í gær. Flugvél-
arnar fóru sem leið liggur yfir
Norðurpólinn og fyrsta lendin'g
var í Anchorage í Alaska eftír
14 tíma flug. Þaðan var flogrö
til Honölulu- og tók það lí)
tíma.
Þriðja lending var í Fijieyjun-
um og er það líka 10 tíma flug
og síðasti spölurinn til Melbourne
tekur 13 tíma.
Þetta verður allerfitt ferðalag
og þess vegna var stanzað góða
Framhald á 10. slðu
EfnafræöiverSlaun Nóbels hafa veriö veitt Englend-
ingnuin Cyril Hinselwood og Rússanum Nikolaj Semjon-
off en eölisfræöiverölaunin þrem Bandaríkjamönnum
William Shockley, John Bardeen og W. H. Brattain.
Verðlaunaveitingin til Sem-
jonoffs hefur vakið einna
mesta athygli, þetta er nefni-
lega í fyrsta skipti sem sov-
ézkum ríkisborgara eru veitt
Nóbelsverðlaun.
. Hinselwood og Semjonoff
hafa hvor í sínu lagi unnið að
rannsóknum á þvi, hvernig
efnabreytingar gerast. Hinsel-
wood hefur starfað við háskól-
ann í Oxford en Semjonoff í
Leníngrad og Moskva. Einn
þýðingarmesti þáttur rannsókna
þeirra snýst urn svokallaðar
keðjuverkanir. Þær eiga sér
víða stað, svo sem við bruna,
sprengingar, njyndun gerviefna
svo sem plastefna, nælons og
gerfigúms og síðast en ekki
sízt þegar kjarnorka leysist úr
læðingi. Þessar rannsóknir hafa
því mikla tækniþýðingu.
Bandaríkjamennirnir þrír eru
höfundar transitoranna svo-
nefndu, sem gert hafa mögu-
lega smíði hinna flóknu reikn-
ingsvéla sem nefndar hafa ver-
ið vélheilar. Transitorar eni
gerðir úr svonefndum hálfleið-
andi efnum, svo sem germaní-
um og kísil, sem hafa þana
eiginleika að þar sem þau koma
saman breytist hæfnin til að
leiða rafstraum eftir styrk-
leika og stefnu straumsins.
Transitorarnir geta komið |
stað lofttómra lampa í marga-
konar raftækjum. Þeir eru
langtum ódýrari, sterkari og
endingarbetri en lamparnir og
taka aðeins brot af rúmi þeirra,
Þar að auki er gifurlegur
straumsparnaður að notkua
transitora. Ekki hefðu verið tök
á að smíða vélheila ef nota
hefði átt lampa til að geg®|
hlutverki transitoranna. j