Þjóðviljinn - 13.11.1956, Page 12
Ósæmileg þáttlaka sendiherra
Frakka í æsingum íhaldsins
Segir upp starfsmanni fyrir þœr einar sakir
oð hafa heimsótt sovézka sendiráÓiÓ!
Franski sendiherrann á íslandi, Henri Voillery, hefur á
hinn furðulegasta hátt gerzt þátttakandi í ofsóknarher-
ferð þeirri sem íhaldið hefur efnt til að undanförnu.
Hann hefur sagt upp einum starfsmanni sendiráðsins,
dr. Hafþóri Guðmundssyni þjóðréttarfræðingi, og er hon-
um gefið það eitt að sök að hafa komið í sovézka sendi-
ráðið 7. nóv. s.l.!
urn eða sendiráði hans, þótt
fslendingar hafi reiðzt fram-
ferði franskra nýlendukúgara á
undanförnum árum, árásum
þeirra og fjöldaaftökum meðal
vanmegna þjóða, og ekki varð
hann heldur fyrir neinni per-
Dr. Hafþór hefur unnið í
franska sendiráðinu síðan
snemma í sumar, og hefur Voill-
ery sendiherra ævinlega látið
í Ijós ánægju með störf hans.
S.l. miðvikudag var dr. Hafþór
meðal gesta í sovézka sendi-
■ráðinu á 39 ára afmæli bylt-
ingarinnar og var nafn hans
birt í æsingagrein Morgunblaðs-
ins daginn eftir. Þegar er
sendiherrann hafði séð Morgun-
blaðið kallaði hann dr. Haf-
þór fyrir sig, sagði honum upp
störfum fyrirvaralaust og lét
hann hætta samstundis án þess
svo mikið sem að greiða þriggja
mánaða uppsagnarfrest. Var
einasta ,,afbrot“ dr. Hafþórs
það að hafa sótt sovézka sendi-
ráðið heim. Þjóðviljinn náði tali
af dr. Hafþóri í gærkvöldi og
staðfesti hann að honum hefði
verið sagt upp störfum af þess-
um ,,sökum“, en vildi að öðru
leyti ekkert um málið segja.
Þetta framferði Voillery sendi-
herra er óafsakanlegt hneyksli
og ósæmileg þátttaka í æsinga-
herferð íhaldsins. Islendingar
hefðu sannarlega mátt vænta
annarrar framkomu af þessum
sendiherra. Hann hefur dvalizt
hér á íslandi um langt skeið
og aldrei átt öðru að mæta en
gestrisni og vinsemd; sérstak-
lega mætti sendiherrann minn-
ast þess að það hefur
aldrei verið látið bitna á hon-
sónulegri áreitni þegar Frakk-
ar gengu í lið með Bretum og
reyndu að kúga af okkur land-
helgina, og er það vissulega
aðeins sjálfsagt mál. Hon-
um sæmir því sízt að ger-
ast þátttakandi í þeirri
nýju tegund „stjórnmálabar-
áttu“ sem forustumenn íhalds-.
ins hafa stofnað til.
Þjóðviljinn væntir þess að
Voillery sendiherra skiljist að
hann hefur misstigið sig illilega
og tryggi á nýjan leik að hann
sé velkominn gestur á íslandi.
Sigurður Guðgeirsson kosinn íor-
maður Sósíalistafélags Reykjavíkui
Á mjög fjölmennum aðalfundi Sósíalistafélags Reykja-
víkur sem haldinn var í gærkvöld var Sigurður Guðgeirs-
son prentari kosinn formaður félagsins næsta starfs-
tímabil.
þiðÐinumM
Þriðjudagur 13. nóvember 1956 — 21. árgangur — 259. tölublaí
Aðrir í stjórn voru kosnir:
Guðmundur J. Guðmundsson,
starfsmaður Dagsbrúnar, Krist-
ján Jóhannsson, verkamaður,
Eggert Þorbjarnarson, fram-
kvæmdarstjóri, Guðmundur
Jónsson, verzlunarmaður, Krist-
ín Einarsdóttir, húsfrú og Þor-
valdur Þórarinsson, lögfræðing-
ur. I varastjórn hlutu kosn-
ingu; Óskar Sigurðsson, Mar-
Mun smíða 80 þús.
tunnur í vetur
Siglufirði í gær.
Frá fréttaritara. Þjóðviljans.
Tunnuverksmiðja ríkisins tók
til starfa sl. laugardag. 1 verk-
smiðjunni vinna 36 menn. Áætl-
að er að smíðaðar verði 80 þús.
tunnur og að smíðin standi yfir
fram í maí-mánuð næsta ár.
Drengur stórslasast
er jeppi hrapar niður í 10 m gljúfur
Það slys varð s.l. laugardag á Fosshóli í Þingeyjarsýslu
að sex ára drengur höfuðkúpubrotnaði og hlaut mikil
önnur meiðsli, er jeppabíll steyptist um 10 m fall niöur í
gljúfur Skjálfandafljóts.
Litli drengurinn er sonur barminum og féll niður í urð,
Páls H. Jónssonar kennara á er þetta talið 10 m fall. Á leið-
Laugum. Jón Kristjánsson á inni niður snérist hann í hring,
Fremstafelli var einmitt að en kom niður á híólin °S mo1-
Frá opnun sýningar Guðmundar Guðmundssonar í Róm.
sem Þjóðviljinn sagði frá á sunnud&ginn var. — Á mynd-
inni frá vinstri sjást listmálarinn Bat-Yosef, Guð-
mundur, próf. Schmeider forstöðumaður sýningarsalarins
og próf. Lionello Venturi listgagnrýnandi.
flytja drenginn í veg fyrir föð-
ur drengsins, en hans var von
að Fosshóli með áætlunarbíl.
Jón stöðvaði bílinn á hlaðinu á
Fosshóli og skrapp inn til þess
að spyrja um áætlunarbílinn.
Þegar Jón var farinn inn tók
billinn að renna aftur á bak, í
áttina niður að ánni. Drengur-
inn var aftur í bílnum,
frammi í honum var Kristján
faðir Jóns, þess er bílnum ók.
Tókst honum að komast út úr
bilnum, en féll við og mistókst
því að hjálpa drengnum út.
Rann bíllinn fram af gljúfur-
Nýr þingmaður
1 gær tók sæti á Alþingi
fyrsti varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík,
Ásgeir Sigurðsson, skipstjóri.
Hann tekur sæti á þingi i
forföilum Jóhanns Hafsteins,
sem dvelja mun erlendis um
ekeið.
brotnaði.
Þegar Jón kom út úr húsinu
á Fosshóli sá hann á eftir bíln-
um og hljóp á eftir honum, en
varð of seinn. Fór hann þá
niður í árgljúfrið og bar dreng-
inn upp skriðu og heim að
Fosshóli. Þrír læknar voru til
kvaddir og komu þeir allir.
en Drengurinn var fluttur í sjúkra-
húsið á Akureyri.
Bretar dæina
hermenn sína
Brezkur berréttur á Kýpur
sakfelldi í . gær sex brezka her-
menn, sem ákærðir voru fyrir
uppreisn gegn yfirboðurum sín-
um. Þetta eru varaliðsmenn sem
kvaddir voru í herinn og sendir
til Kýpur skömmu eftir að Eg-
yptalandsstjórn þjóðnýtti Súez-
skurðinn.
Sigurður Guðgeirsson
grét Auðunsdóttir, Benedikt
Einarsson.
Á fundinum gaf fráfarandi
formaður félagsins Þorvaldur
Þórarinsson yfirlit um starf-
semina á liðnu starfstímabili og
Kjartan Helgason skrifstofu-
maður félagsins las upp reikn-
inga þess og skýrði þá. Miklar
umræður urðu á fundinum um
félagsmál og flokksmál al-
mennt. Húsfyllir var á fund-
Þjóðleikhúsið frumsýnir
Tondeleyo á fimmtndag
Leikritið sýnt í tileíni af 25 ára
leikafmæli Jóns ASils
Jón Aöils leikari á um þessar mundir 25 ára leikafmæli
og minnist Þjóðleikhúsið þess með sýningum á leikritinu
Tondeleyo eftir brezka höfundinn Leon Gordon. Verður
leikritið frumsýnt n.k. fimmtudagskvöld.
Tondeleyo er leikhúsgestum: Jóns Aðils. Fyrsta hlutverk
Jóns á leiksviði var hjá Litla
leikfélaginu, í bamaleikriti eft-
ir Óskar Kjartansson. Síðar lék
Jón f jölmörg hlutverk hjá Leik-
félagi Reykjavíkur og hann var
ráðinn fastur leikari við Þjðð-
leikhúsið er það hóf störf. Er
Jón nú einn þeirra leikenda
Þjóðleikhússins sem farið hefur
með flest hlutverk á sýningum
þess, eða alls 39. Af stærstu
hlutverkum Jóns hjá leikhúsinu
má nefna Kristján skrifara I
JóniArasyni, Skuggasvein, Séra
Sigurð í Islandsklukkunni, Pál
postula í Gullna hliðinu, Greg-
ers Werle í Villiöndinni, dóm-
arann í Deiglunni o. fl.
hér að góðu kunnugt siðan
Leikfélag Reykjavikur sýndi
það í Iðnó fyrir 10 árum við
ágæta aðsókn. Margir þeirra
sem unnu að sýningu leikrits-
ins þá leggja nú einnig hönd að
verki: Sverrir Thoroddsen hef-
ur gert þýðinguna, leikstjóri er
Indriði Waage og með aðalhlut-
verkin fara Inga Þórðardóttir
og Jón Aðils. Lárus Ingólfsson
hefur gert ieiktjöldin en bún-
ingar eru fiestir saumaðir í
saumastofu Þjóðleikhússins, en
nokkrir fengnir hjá leikhúsi
einu í London, sem nýlega
sýndi Tondeleyo.
Auk þeirra Ingu og Jóns eru
leikendur þessir: Valur Gísla-
son, Benedikt Ámason, Baldvin
Halldórsson, Klemenz- Jónsson,
Gestur Pálsson, Valdimar
Helgason, Þorgrímur Einarsson
og Bessi Bjarnason.
Eins og fyrr er sagt sýnir
Þjóðleikhúsið nú Tondeleyo í
tilefni af 25 ára leikafmæli
Li SÞ íeggur af stað fil
yptalands í dag
Hammarskjöld fer til viðræðna við Nasser
Fyrstu sveitirnar úr liði því sem fer til Egyptalands
á vegum SÞ leggja af stað frá ítalíu síðdegis í dag.
Dag iHammarskjöld, fram-
kvæmdastjóri SÞ, skýrði frétta-
mönnum frá þessu í New York
í gær. Hann kvað ríkisstjórn
Egyptalands hafa fallizt á að
veita viðtöku liði frá SÞ að
því tilskildu að fullveldi rikis-
ins væri í engu skert.
Hammarskjöld kvaðst myndi
leggja af stað i dag áleiðis til
Kairó, þar sem hann myndi
eiga fund með Nasser forscta
og ræða við hann um dvöl liðs
SÞ i Egyptalandi. Á leiðinni
ætlar Hammarskjöld að koma
við i Neapel, þar sem liði SÞ
er safnað saman, og ávarpa
hérmennina.
^ramhald á 8. siðu.
Eysteinn Jónsson
fimmtugur
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
herra er fimmtugur í dag. Hann
varð fyrst ráðherra í stjórn
Hermanns Jónassonar 1934, 27
ára að aldri, og hefur gegnt
ráðherrastörfum lengur en
nokkur annar íslendingur.