Þjóðviljinn - 26.11.1956, Side 11

Þjóðviljinn - 26.11.1956, Side 11
Þriðjudagur 27. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (l£ 49. dagur að vera varxur við leiðindakarla eins og' mig, og þér skuluð ekki halda, að þér getið skipað mér burtu eins og hverjum öðrum, sem hefur verið svo óharn- ingusamur að eiga konu, er þér hafið lagzt með —“ „Þér eruð snarbrjálaöur, maður. Eg bauð konunni yðar til hádegisverðar einungis vegna þess, að hún er geðþekk kona og vann þar að auki hjá mér í gamla daga. Vei’sti giæpúrinn, sem hún éf sek um, er sá aö taka 1 höndina á mér. Hættið þessum sviviröingum um hana og gerið ekki sjáTfán|;yÖur a'^iífii^ Þfð er yður fyr- ir beztu.“ „Eg vissi, að þér mynduö hafa einhverjar mála- myndar skýringar á takteinum. En ég er ekki eins mik- ill heimskingi og þiö Martha haldiö. Eg er mjög hygg- inn maður, herra Childs .... og ég ætla aö láta ydur kenna á kænsku minni næstu klukkutímana .... þér skuluð fá að hugsa, eins og ég hef gert ....“ Hann þreif í jakkaermi Kens og hélt henni með heljartaki. Rödd hans hækkaði, svo að hún nálgaöist köll. „Eg hef heyrt sagt frá yðin’ árum saman, og ég hef viöbjóð á yður! Þér eruð kvennaflagari af versta tagi!“ Hann sneri máli sínu til May Holst. „Þér hafiö ef til vill gott af aö vita það, frú. Þaö er honum að kenna, að konan mín er oröin skækja, og það-er T------“ „Nú er1 nóg komið!“ Ken Childs setti glasiö á .gólf- iö og losaði sig úr greip Agnews meö eldsnöggu, átaki. Hann var fljótur á fætur og í næstu andrá hafði hann gefið eiginmanni Mörthu vel útilátinn löðrung. Þeir tókust á góða stund í rökkvuðum ganginum, blésu og másuöu og hrintu livort öðrum á sætisbríkurnar., En leikurinn var fljótlega skakkaður. José Locota, sem var lítlll maöur en þreklegur, kom á vettvang. Stuttir, gildvaxnir handleggir hans héldu bardagamönnunum föstum, svo að þeir náðu ekki hvor til annars, en horfð- ust í augu, illilegir á svip. „Eruð þið orðnir vitlausir, báðir tveir? Hættið þessum siagsmálum!“ Nú komu þeir Milo Buck og Howard Rice til hjálpar; Milo tók um handlegg Agnews, en Howard greip föstu taki um handlegginn á Ken. „Hann er með byssu!“ hrópaði Locota. „Eg fann fyrir henni! Hann er brjálaöur!“ Spalding kom hlaupandi eftir ganginum. „Hvað í ósköpunum gengur hér á?“ Hún fékk aldrei neitt svar. Varla hafði hún sleppt oröinu, er ógurlegur hávaði kvað við, eins og fjölda- margir loftborar væru að vinnu samtímis. Spalding féll á gólfið. Mennirnir fimxn í ganginum köstuðust niður í sætin, er vélin tók snögga sveiflu til hægri. Silfur- borðbúnaður og diskar hrundu úr skápnum hjá skenki- borðinu með glamri og brothljóöi. Clara Joseph æpti upp yfir sig. En hávaöinn hætti jafn skyndilega og hann byrjaöi, og það varð hræðileg þögn. Þá leit Sally McKee út um gluggann viö hlið sér og rak upp skelfingaróp. „Vængurinn ....! Það er kviknað í flugvélinni!“ Sullivan var að drepa í sígarettu í öskubakkanum við hlið sér, þegar hann fann hnykkinn, og um leið leitaði vinstri væng’urinn niöur á við, svo að sjálfstýritækin hömuðust við að rétta hann aftur. „Það er hreyfill nr. eitt! “ hx'ópaði Sullivan. XJm leið og hann laut niður til að minnka benzíngjöfina kvikn- aöi á rauðu viðvörunarljósinu og brunabjallan hringdi. Allt mælaborðið virtist leika á reiðiskjálfi. Rauðgulum bjai'ma sló á gluggann rétt hjá Sullivan, svo aö bjart vai'Ö á flugþiljunum. „Guð minn góður hjálpi mér, það er kviknað í!“ veinaði Hobie örvæntingarfullur. Sullivan trúði vai’la því, sem hann sá. „Jú .... ja-há .. það er hreyfill nr. eitt ....“ Hann færði sig ósjálf- rátt, og meö einu snöggu handtaki lokaði hann fyrir benzínrennsliö til hreyfilsiirs jafnframt því sem hann ýtti á nauðbeitarhnappinn fyrir ofan sig, til þess að breyta skrúfustjórninni. „Settu slökkvidæluna í gang,“ sagði Dan. „Já .. svona, fljótur nú, Hobie!“ Hobie teygði sig fram fyrir Sullivan og opnaði kjör- lokann að hreyfli m'. eitt. Hann gaf sér ekki tíma til að hugsa um, hvers vegna Sullivan hafði ekki gert þetta sjálfur, þar eð þaö lá miklu beinna við. Svo opnaöi hann fyrir kolsýrustreymi inn í hreyfilinn. „Sendu skeyti! Láttu San Francisco vita!“ skipaði Sullivan. Rödd hans varö eðlileg sem snöggvast og þó var í henni einhver hi’eimur, sem bar vott um taugaó- styrk. Hann leit með hálfum huga út um gluggann aftur, og Dan lagði andlitiö að rúðunni fast við hlið hans. í bjarmanum frá eldinum sýndust andlit þeirra beggja koparlituð, eins og myndir á gömlum peningum. „Skrúfan! Hún er gersamlega horfin!“ Það dró aft- ur úr rödd Sullivans, eins og hann tryði ekki sínurn eigin augum. „Og hreyfillinn hangir um það bil tíu gráður niður á við. Hann er laus frá festigrindunum!“ Þeir héldu niðri í sér andanum, og þegar þeir hugs- uðu um benzíniö í vænggeymunum, urðu þeir næsturn stífir af skelfingu. Þaö yröu aöeins fáein augnablik — annað hvort yrði eldurinn slökktur eða vængurinn springa í tætlur. benzíngjöfinni að hinum hréyflunum þremur og ýtti stjórnstönginni fram á við, svo að vélin stefndi niöur í krappri dýfu. Hvæsið í loftræstikerfinu varð að háum blæstri. Fallhraöinn var um þaö bil tvö þúsund fet á mínútu, og lofthraöinn nálgaðist tvöhundruö og tuttugu. Hvort sem það var vegna kolsýruvökvans eða- krappr- ar dýfu vélarinnar og aukins hraða, þá slokknaði eld- urinn í hreyflinum von bráðar. Skyndilega tóku farþeg- ar og áhöfn eftir því, að það varð aftur myrkt fyrir utan og flugvélin hélzt enn á lofti þrátt fyrir allt. „Guði sé lof . ...“ tautaði Leonard. Súllivan færði stjórnstöngina rólega aftur á bak og rétti jafnvægisstýriö. Andardráttur hans varö eðlilegur á ný. „Þaö er slokknað," sagði hann hikandi. „Eg held, aö við þurfum ekki aö óttast frekari íkviknun.“ ® j 1 11 Það ó að skola súlfasópu vandlega af Það er auðvelt að þvo upp úr súlfasápu, og enn auðveldara ef ekki er þurrkað, heldur höfð grind,. sem borðbúnaðurinn þorrnar í. Margar húsmæður fara svona að, og sé þeim sagt, að betra sé að þurrka, svara þær því, að þá virðist ekki mik- ið gagn að súlfasápunni, því ekki þorrni borðbúnaðurinn af sjálfu sér, ef hann sé skolaður úr miður heitu vatni. Qg hví skyldi þurfa að skola. súlfasáp- una af, ef það er satt, sem sagt er, að hún sé skaðlaus ? Svo segir Möllenbach yfir- læknir í dönsku heilbrigðis- málastjórninni i viðtali: — Súlfasápa er ágæt til upp- þvotta vegna þess að hún lækk- ar yfirborðsspennu vatns, og flýtir því fyrir. En sjáifsagt er að skola með hreinu vatni, ekki sízt vegna þess, að mörg- um hættir við að setja allt of mikla sápu út í vatnið. Ef þveg- ið er upp úr heitu vatni, má láta sér nægja kalt vatn til að skola úr, borðbúnaðuiinn þorrn- ar fyrir því, sumpart vegna þess að ylurinn á honum eftir þvottinn úr heita vatninu rýkur ekki alveg burt þótt skolað sé úr köldu. Það er almennt álitið að súlfasápur séu skaðlausar. En þó held ég að ekki sé hollt að borða að staðaldri af diskum, sem drefjar af súlfasápu sitja á; tilbúin efnasambönd eru ekki til þess að sulla þeim sam- an við matinn. — Geta hlotizt veikindi af því að ekki sé skolað? — Það' er sjaldgæft, en til er fólk, sem hefur ofnæmi fyrir súlfasápu, svo að það fær af henni útbrot, og eins geta menn fengið magakvef af henni. Eng- inn veit enn hverju langvinn áhrif geta valdið, en rétt er að fara gætilega, og skola vel. — Er það algengt að exem hljótist af súlfasápu? — Fólk, sem hefur ofnæmi fyrir súlfasápu, þjáist oftast af ofnæmi fyrir ýmsu öðru, svo sem ýmsum snyrti- og fegrun- arlyfjum. — Samkvæmt þessu er ekki neitt sérstaklega varhugavert að nota súlfasápu? — Nei, en því aðeins að borðbúnaðurinn sé skolaður úr hreinu vatni og ekki látin meiri sápa út í en þörf gerist. , Lokafundur ASÍ-þingsins Framhald af 1. siðu. arkaupstaðar og Jón FriS-i bjömsson, Fram Sauðárkróki, Varamenn voru kjörnir Gunnar Jóhannsson formaður Þróttar á Siglufirði og Þorgerður Þórðar- dóttir formaðúr Verkakvenna- félagsins Von á Húsavík. Austurland Úr Austfirðingaf jórðungi vora kjörnir: Ásbjörn Karlsson á Djúpavogi og Alfreð Guðnason Eskifirði. Varamenn þeirra: Sigfinnur Karlsson Neskaups- stað og Benedikt Þorsteinssoa á Höfn í Hornafirði. Vesturland Or Vestfirðingafjórðungi voru kjörnir: Albert Kristjánsson á Súðavik og Ágúst Vigiússon, Bolungavík. Varamenn þeirra: Páll Sólmundsson, Bolungavík og Pétur Pétursson ísafirði. Suður-suðvesturland Af Suður-suðvesturlandi vorii kjörnir: Sigurður Stefánsson Vestmannaeyjum og Herdís Ói- afsdóttir á Akranesi. Varamena þeirra: B jörgvin Sigui’ðssom Stokkseyri og Maron Björnsson Sandgerði. Allir fulltrúar landsfjórðung- anna voru kjörnir í einu hljóði. Sidpuiags- og lagamál Þá voru kosnir í miliiþinga- nefnd í skipulags- og lagamál- um þeir Eðvarð Sigurðsson, Snorri, Jóns§pn„ Tryggvi Helga- son, Jón Sigurðsson og Eggert Þorsteinsson. Var nefndin ein- róma kjörin. Þingslit Að loknu kjöri stjórnar og end- urskoðenda þakkaði þingfoi’set- inn, Sigurður Stefánsson, ræðu- mönnum og þingfulltrúum gott samstarf og gaf þvínæst hinum nýendui’lxjörna forseta, Hanni- bal Valdimarssyni, orðið. Hannibal þakkaði það ti’aust að vera einróma endurkjcrinn forseti. Jafnframt kvaðst hann hanna að minnihlutinn skyldi ekki hafa þegið boð meirihlut- ans um fulltrúa í sambands- stjórn. Hann kvað þetta þing hafa gengið betur og unnið bet- ur og greiðar en allmörg und- anfarandi þing. Kvaðst hann fullviss að allir þingfulltrúar gætu sameinazt í óskinni um heill íslenzkra alþýðusamtaka, og lýsti þingi slitið. umsieeu^ sí amuuauxaKsm Minningaikoi’tlii er* ttt söIe 1 ekrifstofn Sósíalistaflokks- lns, Tjarnargötn 20: afgreiðsla * ÞjóSviljans; Rókabúö Kron; \ BókabúA Máls og menningar. 1 Skólavörðustíg 21; og i Bóka- verzlun Þorvaldar Bjarnason- ar t Hafnarfiríi Útgefandl: Samelnlngarfloklcur alþýSu — SóstaHstaflokkurlnn. — Ritst.tðrar: MagnOs KJartanssos (&b.). SlBUröur auðmundsson. - Préttarltstlórl: Jón Btamason. — BJoÖamenn: Ásmundur Slgur. _ tónsson. B.iarnl Benedlktsson, Quömundur Vlgfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfl Ólafsson - óuglvstngasUórl: Jónstelnn Haraldsson. — Rltstjórn. afgretösla. auglýstngar, prentsmtöja: Skólavöröustfg 18. — Sfml 7500 (I ■ ■^8^32ftarverð ^r- 25 á mánuSl 1 Reykjavík ok náKrennl; kr. 22 aunarsstaðar. — LausasöluverS kr. 1. — Prentsm<SJ» v>jooVliJftns h.i.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.