Þjóðviljinn - 26.11.1956, Blaðsíða 12
25. þing Mþýðusamhands Islands lýsir
trðusti á rlklsstjéminni og fordæmir
tilraunir afturhaldsins til þess að
ira samstarfi vinstri aflanna
þJÓÐVUJINN
Þriðjudagur 26. nóvember 1956 — 21. árg. — 270. tölublað
AlþýðusambandsþingiÖ samþykkti einróma í fyrradag
eftirfarandi traust á ríkisstjórnina og fordæmdi jafn-
framt tilraunir afturhaldsins til þess að sundra sam-
vinnu vinstri aflanna:
Tuttugasta og fiimnta
þing Alþýðusambands Islands
lýsir fyllsta trausti á núver-5
andi ríkisstjórn og stefnu ;
hennar og telur að með mynd-1
un hervnar hafi alþýðustétt-
irnar skapað sér mögnleika
til að verja fengin réttindi
og sækja fram til betri lífs-
kjara.
•Tafnframt því sem þingið
heitir á verkalýðsfélögin að
standa traustan vörð um rík-
isstjórnina og veita lienni all-
an stuðning í orði og verki í
uppbyggingarstarfi liennar og
með því að halda fast að
henni að standa í einu og öllu
við gefin fyrirheit, fordæm-
ir þingið allar tUraunir aft-
urltaldsins og útsendara
þess til að sundra samstöðu
þeirra flokka sem að baki
hennar standa“.
Sjómannafé-
lagskosningin
er hafin og fer fram daglega
í skrifstofu Sjómannafélags
Reykjavíkur í Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu frá kl. 3—6.
Munið að Iisti starfandi sjó-
manna er B-listi'.
Brottflutningur
að hefjast
Búizt er við að næstu daga
muni hefjast brottflutningur
þeirra 13.000 brezkra og 9.000
franskra þegna sem egypzka
stjórnin hefur vísað úr landi.
Flestir hinna brezku þegna eru
frá Kýpur, eða um 6.000.
Gríska stjórnin hefur boðið
þeim öllum grískt ríkisfang og
hafa langflestir þeirra þegið
það boð.
Allar eignir brezkra og
franskra manna í Egyptalandi
hafa verið gerðar upptækar og
er talið að verðmæti brezku
eignanna einna nemi um 100
milljónum sterlingspunda.
Danielsen setti heimsmet í
spjótkasti í Melbourne
Bandaríkjamenn haía náð í tvenn gull-
verðlaun í viðbót, hafa nú hlotið sex
Norski spjótkastarinn Eigil Danielsen setti nýtt ol-
ympíumet í spjótkasti á leikunum í Melbourne, kastaði
spjótinu 85.71, og varö fyrsti Norðurlandamaðurinn sem
fær gullverðlaun á leikunum.
Hinn fyrri heimsmethafi, Pol-
verjinn Sidlo, varð annar, kast-
aði spjótinu 79,98 m, en Tsibul-
enko frá Sovétríkjunum varð
þriðji, 79,50 m. Heimsmet Sidlos
Eigii Danielsen
var 83,66 m, en gamla olympíu-
metið, 73,78, átti Bandaríkja-
maðuritm C. Young,
Bandaríkjameim hafa feng-
ið sex grullverðlauu
Það fór sem spáð hafði verið,
að Bandaríkjamenn myndu skara
langt fram úr öllum öðrum í
Þing Alþýðusambands íslands
brmar og fordæmir árásirnar
á Ungverja og Egypta
Aiþýðusambandsþingið samþykkti einróma í fyrra-
dag eftirfarandi:
,,25. þing Alþýðusambands ísiands harmar og for-
dæmir innrás rússneskra herja í Ungverjaland og
brezkra og franskra herja í Egyptaland, og lýsir yfir
dýpstu samúð sinni með þeim þjóðum sem fyrir árásum
þessara stórvelda hafa orðið.
Þingið finnur til sárrar hryggðar, vegna þeirra
hörmulegu atburða, sem gerzt hafa í Ungvejalandi að
undanförnu, þar sem þjóðin hefur þurft að ganga í
gegn um hinar hræðilegustu þjáningar, og tugþúsundir
frelsisunnandi manna orðið að fórna lífinu í baráttu
fyrir dýrmætustu mannréttindum sínum.
Einnig lýsir þingið yfir þeirri einiægu ósk sinni
og von, að allar þjóðir, sem ofbeldi og kúgun eru
beittar, megi sem fyrst öðlast réttlátan frið, óskorað
frelsi og full umráð yfir löndum sínum“.
frjálsum íþróttum. Þeir bættu
við sig tvennum gullverðlaunum
í gær, í 800 m hlaupi og stang-
arstökki, og hafa þá fengið sex
guilverðlaun.
Bandaríkjamaðurinn Courtney
sigraði í 800 m hlaupi, og setti
nýtt olympíumet, 1,47,7. Landi
hans Whitfield átti gamla met-
ið, 1,49,2, en heimsmet Moens,
1,45,7, stendur enn.
Annar varð Bretinn Derek
Johnson, 1,47,8 og þriðji Norð-
maðurinn Boysen á 1,48,1;
í stangarstökki sigraði Banda-
ríkjamaðurinn Richards, stökk
4,59. Landi hans Gutowski varð
annar, 4,53. Richards átti olymp-
iumetið í þessari grein, 4,55.
Þriðja grein frjálsra íþrótta
sem í gær var keppt til úrslita
í var 100 m hlaup kvenná og
sigraði ástralska stúlkan B.
Cuthbert á 11,3. Þýzka stúlkán
Stubnick varð önnur en ástralska
stúlkan Matthews þriðja.
Undanrásir
I undanrásum í 5000 m hlaupi
sigruðu þeir Pirie (Bret.), Lawr-
ence (Ástr.) og Thomas (Ástr.)
hver í sínum riðli. Meðal ann-
arra sem keppa til úrslita í þess-
ari grein eru Kúts (Sov.), Tabori
(Ung.), Zimny (Pól.), Chattaway
og Ibbotson (Bret.). Keppt verð-
ur í 5000 m á morgun.
Hilmar Þorbjörnsson komst
ekki í úrslit i 200 m hlaupinu,
Framhald á 10. síðu.
Jólianna Egilsdóttir, formaður verkakvennafélagsins Framsókn-
ar átti 75 ára afmæli í fyrradag. Hannibal Valdimasson forseti
A.S.I. kvaddi sér liljóðs utan dagskrár á Alþýðusambandsþing-
imi, ávarpaði Jóhönnu Egilsdóttur, kvað öllum þingfulitrúum
ljúft að miunast hennar og þakka henni fyrir vel unnin störf
í þágu verkalýðssamtakanna. Færði liann lienni fagran vasa
í afmælisgjöf. Auk þess voru henni færð blóm. — Kai Nissen,
fulitrúi danska Alþýðusambandsins ávarpaði Jóhönnu einnig.
Myndin bér að ofan var tekin af þeim Jóhönmí Egiisdóttur og
Hannibai Valdimarssyni við þetta tækifæri.
— (Ljósm. Sig. Guðm.
Ástandið í Ungverjalandi
að verða eðlilegt aftur
Vinna er nú haíin aítur víðast hvar,
verkamannaráðið ræðir enn við Kadar
Svo virðist sem ástandiö í Ungverjalandi sé aftur að
færast í eðlilegt horf, þótt seint gangi. Verkamenn virð-
ast yfirleitt hafa tekið upp vinnu, enda hefur miðstjórn,
yerkamannaráðsins í landinu hvatt þá til þess.
Miðstjórri verkamannaráð-
anna, sem situr í Búdapest, fer
með umboð allra verkamanna-
ráða í landinu og hefur að und-
anförnu átt i samningum við
stjórn Kadars. Þeim viðræðum
var haldið áfram í gær og
jafnframt hvatti miðstjórnin
alla verkamenn í landinu að
hefja þegar í stað vinnu.
Flestir verkamenn munu nú
vera horfnir til vinnu, en þó
ekki allir, því að i gær var les-
in í Búdapestútvarpið tilkynn-
ing frá ríkisstjórninni um að
þeir verkamenn sem ekki hefðu
mætt á vinnustaði sína í
myndu missa vinnu sína.
dag
Flokksstjómarfundurínn
hófsf í gærkvöld
Flokksstjórnarfundur Sameiningarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins hófst í gærkvöld kl. 8.30 í Tjarnar-
götu 20. Formaður flokksins Einar Olgeirsson setti fund-
inn og bauö floksstjórnarmenn velkomna til starfa.
Fundarstjóri var kjörinn Þór-
oddur Guðmundsson, bæjarfull-
trúi á Siglufirði og til vara
Steinþór Guðmundsson, kenn-
ari, Reykjavík.
Einar Olgeirsson flutti á
fundinum í gærkvöld ítarlega
ræðu um stjórnmálaþróunina
frá síðasta flokksþingi og
stjórnmálaviðhorfin nú.
Að ræðu Einars lokinni hóf-
ust umræður. Magnús Kjartans-
son ritstjóri skýrði fundinum
frá þeim fréttum, er borizt
heiðu erlendis frá um samn-
ingana milli íslands og Banda-
rikjanna. Lúðvík Jósepsson ráð-
herra tók einnig til máls um
þetta efni og síðan héldu um-
ræður áfram.
Ávörp Kadars og Apvo
Þeir Kadar forsætisráðherra
og Apro verkamálaráðherra
fluttu á sunnudaginn ávörp í
Búdapestútvarpið.
Báðir tóku þeir fram að
samningar um brottför sov-
ézka hersins myndu hefjast um
leið og sigrazt hefði verið á
gagnbyltingunni.
í tilkynningu frá Kadar sem
lesin var í Búdapestútvarpið í
gær var sagt, að hann hefði í
hyggju að mynda nýja stjórn á
breiðari grundvelli þegar alger
röð og regla væri aftur komin
á í landinu. Myndu teknir í
stjórnina sérfræðingar í efna-
hagsmálum og tæknifræðingar,
og menn óháðir stjórnmála-
flokkum.
Nagy og félagar
Kadar hefur itrekað þá yfir-
lýsingu stjórnarinnar að Imre
Nagy og félagar hans hafi far-
ið af frjálsum vilja til vinsam-
legs sósíalistísks ríkis, og væri
ekki um neina útlegð að ræða..
Ungversk stjórnarvöld hefðu
ekki getað ábyrgzt að gagn-
bj-ltingarmenn réðu þá ekki af
dögum og hefðu þeir þvi tekið
þann kost að fara úr landi.
Búdapestútvarpið sagði í gær
að vinna væri nú hafin aftur í
öllum kolanámum landsins, en
Framhald á 10. síðu.