Þjóðviljinn - 29.11.1956, Síða 1
«
Fimmtudagur 29. nóvember 1956 — 21. árg. — 272. tölublað
Jnni í blaðinn
Minning Pálina Hannessonar*
— 7. síða.
Brezka ihaldið að klofna —«
6. síða.
Frelsisútvarp í Skotlandi —«■
5. síða.
Ekki horfur á að bilið milli
vesfurveldanna verði brúað
Ágreiningurinn milli Bandarik]anna og
Bretlands og Frakklands hefur vaxicS
Það er nú ljóst að bilið milli afstöðu Bandaríkjanna
annars vegar og Breta og Frakka hins vegar til mála í
löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs verður ekki brúað,
nema þá með þeim hætti að hinir síðamefndu breyti
um stefnu og fallist á sjónarmið Bandaríkj astj órnar.
Selwyn Lloyd, utanríkisráð-
herra Bretlands, kom í gær-
morgun til Lundúna frá New
York þar sem hann hafði setið
allsherjarþing SÞ. Hann sagði
við fréttamenn á flugvellinum
að enginn vafi væri á því að
Bretland og Bandaríkin yrðu
að samræma betur stefnur sín-
ar í löndunum fyrir botni Mið-
jarðarhafs, enda væni það að-
eins kommúnistaríkin sem hag
hefðu af því ástandi sem nú
ríkti.
Djúpstæður ágreiningur
Hann sagði að menn yrðu að
horfast í augu við þá staðreynd
að djúpstæður ágreiningur væri
milli stjóma Bretlands og
Bandaríkjanna í þessum mál-
um og sá ágreiningur hefði ekki
minnkað.
Hann sagðist hafa farið vest-
ur um haf í þeim tilgangi að
sýna mönnum fram á að stefna
brezku stjóraarinnar hefði ver-
ið rétt, en mörgum væri það
dulið enn hve mjög ástandið
væri að versna.
Þeim skjátlaðist alvarlega
sem héldu að rétt væri að
hverfa aftur til þess ástands
sem ríkt hefði áður en Bretar
hófu aðgerðir sínar.
Lloyd ræddi við Butler, sem
nú gegnir embætti forsætisráð-
herra, í 2y2 klukkustund og í
dag er búizt við að hann muni
gefa brezka þinginu skýrslu.
Talið er að harðar umræður
verði á þinginu í dag.
Andbandarískir íhaldsmenn
Rúmlega hundrað þingmenn
brezka íhaldsflokksins, eða um
þriðjungur þingflokks íhalds-
manna, hafa lagt fram álykt-
unartillögu, þar sem hörmuð er
afstaða bandarísku stjóraarinn-
ar til Súezmálsins og einnig
samþykkt allsherjarþings SÞ
um tafarlausan brottflutning
erlendra herja úr Egyptalandi.
Aðrir þingmenn flokksins, að-
eins 30 að tölu, hafa borið fram
ályktunartillögu þar sem fagn-
að er yfirlýsingu Eisenhowers
um afstöðu Bandaríkjastjórnar
til bandamanna sinna.
Til að draga úr andúð
Þessi yfirlýsing var falin í
svari við heillaóskaskeyti frá
forseta Frakklands til Eisen-
howers vegna kosningasigurs
hans. Langt er liðið síðan
heillaóskaskeytið var sent og
þykir einkennilegt að svarið
skyldi ekki birt fyrr en nú.
Fréttaritarar segja að það tali
sínu máli að svarið skuli birt
nú þegar andúð á Bandaríkj-
Framhald á 10. síðu.
Sjú Enlæ fagm
hann kom til ln
Búizt við að Nehru reyni að mið?a málum
milli Kínverja 09 Bandaríkjamanna
Tuttugu þúsund manns fögnuöu Sjú Enlæ, forsætis-
og utanríkisráðherra Kína, þegar hann kom í gær til
Nýju Delhi, höfuðborgar Indlands, í opinbera heimsókn.
Kadar sendir
Tító kveðju
Janos Kadar, forsætisráð-
herra Ungverjalands, hefur
sent Tító, forseta Júgóslav-
íu, heillaóskaskeyti í til-
efni af þjóðhátíðardegi
Júgóslava, sem er í dag. I
skeytinu segir hann að vin-
átta Júgóslava og Ungverja
sé báðum þjóðum mikilvæg
í viðleitni þeirra við að
byggja upp sósíalisma í
löndum sínum.
Gyðingaofsóknir í
Egyptalandi?
Ben Gurion, forsætisráðherra
Israels, sagði á þinginu í Jerú-
salem í gær, að stjórn hans
hefði áreiðanlegar heimildir
fyrir því að egypzk stjórnar-
völd fremdu nú ofsóknir gegn
gyðingum sem helzt minntu á
aðfarir nazista. Fjölskyldum
væri stíað i sundur og þær
sendar í fangabúðir, ríkisfangs-
lausum gyðingum væri vísað úr
landi, en egypzkir borgarar af
gyðingaættum yrðu fyrir alls
kyns ofsóknum. Hann tók fram
að arabar í Israel myndu ekki
ofsóttir í hefndarskyni.
Kúts lék eftfr czfrek
Zatopeks í Helsinki
Bandaríkjamenn áttu þrjá íyrstu í 110 m
grindahlaupi í þriðja sinn í röð
Sovézka hlauparanum Kuts tókst það á olympíuleikun-
um í Melbourne sem fæstir hafa búizt viö: Hann lék eftir
afrek Zatopeks á leikunum í Helsinki að sigra bæöi í
10.000 m og 5.000 m hlaupi og þaö með yfirburöum.
Bvetinn Pirie hafði verið talinn
langlíklegastur til sigurs í 5.000
m hlaupinu, enda á hann heims-
metið í þessari grein. Kúts tók
að venju forustuna í upphafi
hlaupsins, en Bretarnir þrír
Pirie, Ibbotson og Chattaway,
fylgdu honum fast eftir. Þeim
tókst öllum að halda i við hann
þar til þrír hringir voru eftir.
Þá þrutu kraftar Chattaways og
hann dróst aftur úr. Á Kúts var
hins vegar engan bilbug að finna,
hann greikkaði sporið, skaut
keppinautum sínum aftur fyr-
ir sig og kom 80 metrum á und-
an Pirie i mark. Úrslit:
1. Kúts (Sov.) 13,39,(1
2. Pirie (Bret.) 13,50,6
3. Ibbotson (Biæt.) 13,54,4
4. Szabo (Ung.) 14.03.4
5. Thomas (Ástr.) 14,04,8
6. Tabori (Ung.) 14.09,8
Chattaway varð ellefti í röð-
inni, en Daninn Thögersen átt-
undi. Kúts settí nýtt olympíumet,
gamla metið, 14,06,6 átti Zato-
pek. Heimsmet Piries er 13,36,8
Bandaríkjamenn héldu áfram í
Framhald á 10. síðu.
Nehru forsætisráðherra og
ýmsir aðrir ráðamenn Indverja
tóku á móti Sjú Enlæ og fylgd-
Sjú Enlæ
arliði hans á flugvellinum. Auk
þeirra voru þar fyrir til að
fagna honum leiðtogar Tíbet-
Benzínskömmtun hófst í Dan-
mörku á miðnætti í nótt og
verður skammturinn þriðjungi
minni en upphaflega var ætlað.
búa, Dalai Lama og Pantséa
Lama, sem að undanförnu hafa
verið gestir indversku stjórn-
arinnar.
Til að treysta vináttubönd
Sjú Enlæ sagði í ávarpi á
flugvellinum, að hann væri
kominn til Indlands til að
treysta vináttubönd Indverja
og Kínverja, en einnig til að
sjá með eigin augum hve miklu
Indverjar hefðu afrekað, síðan
þeir öðluðust sjálfstæði. Ilann
mun dveljast í Indlandi í 12
daga og mun ferðast nokkuð
um landið.
Miðlar Nehru málum?
Fréttaritari brezka útvarps-
ins í Nýju Delhi segir að þar
í borg séu menn þeirrar skoð-
unar að eitthvert samband sé
á milli heimsóknar Sjú Enlæs
og'fyrirhugaðrar ferðar Nehrus
til Bandaríkjanna. Búizt sé við
að Nehru muni þegar hann
kemur vestur tala máli Kin-
verja við bandaríska ráðamenn
og leggja fast að þeim að falla
frá þeirri stefnu að meina kín-
versku alþýðustjórninni að taka
sæti Kína hjá SÞ.
Egyptar munu ekki iórna S)álf<
stæði sínu fyrir heimsfriðinn
Yfirlýsing egypzku stjórnarinnar sem
segir miklar hœttur fyrir dyrum
Egypzka stjórnin gaf í gær út yfirlýsingu þar sem hún
segir mikla hættu á því aö bardagar hefjist í Egypta-
landi á nýjan leik, ef hinir erlendu innrásarherir veröi
ekki þegar í staö fluttir á brott.
í Gaza meðan þeir börðust við
Israelsmenn þar.
I yfirlýsingunni er m.a. kom-
izt svo að orði:
Við teljum að brezka stjórn-
in beri ein ábyrgð á árás Bret-
lands, Frakklands og ísraels,
og á þeiin liryðjuverkum sem
unnin hafa verið í Port Said
og á Sinaiskaga. Hún mun
einnig bera alla ábyrgð á liin-
um örlagaríku afleiðingum
sein kunna að verða af því að
hernámsliðin hafa ekki verið
flutt á brott.
Síðan segir egypzka stjórnin
að Egyptar geti ekki fórnað
sjálfstæði sínu fyrir heimsfrið-
inn. Hún tekur fram að Israel
hafi því aðeins getað hernum-
ið Sinaiskaga að Bretar héldu
uppi stöðugum spréngjuárás-
um á egypzkar borgir og seg-
ir, að brezk herskip hafi haldið
uppi skothríð á stöðvar Egypta
Mikil hætta á ferðum
Fréttaritari danska útvarps-
ins í New York sagði í gær,
að í aðalbækistöðvum SÞ væri
talin mikil hætta á því að aftur
skærist í odda í Egyptalandi.
Fréttaritarinn sagði að ræða
Fawzi, utanríkisráðherra Eg-
yptalands, á allsherjarþinginu
í fyrradag hefði orðið til að
auka óttann við að vopnahléð
yrði rofið.
Fawzi lýsti yfir því í ræðu
sinni, að egypzka stjórnin teldi
að hún ein réði því hvar liðs-
sveitir SÞ yrðu staðsettar í
Egyptalandi og hve lengi þær
dveldust þar. Hann ítrekaði
kröfuna um tafarlausan brott-
flutning hinna erlendu herja úr
landinu og lagði áherzlu á að
löggæzlulið SÞ væri ekki komið
þangað til að leysa nein vanda-
mál, né heldur væri því ætl-
að að skerða á nokkurn hátt
fullveldi Egyptalands. Eina
ætlunarverk liðsins væri að
binda endi á innrás hinna er-
lendu herja og sjá um að þeir
hefðu sig á brott.
Fulltrúi Indlands, Krishna
Menon, lýsti yfir stuðningi
stjórnar sinnar við þessi sjón-
armið Egypta og sagði að lög-
gæzlulið SÞ myndi ekki hafa
neitt að gera í Egyptalandi
eftir að herir Breta, Frakka og
ísraelsmanna hefðu hlýtt fyrir-
mælum SÞ að fara þaðan. .
Ný árás undirbúin?
Sépiloff, utanríkisráðherrá
Sovétríkjanna, kom til Kaup-
mannahafnar í gær á leið heim
til Moskva frá New York. I
viðtali á flugvellinum sagði
hann að enginn vafi væri á því,
að Bretar, Frakkar og tsraels-
menn væru nú að undirbúa
nýja árás á Egyptaland og
önnur arabaríki.