Þjóðviljinn - 29.11.1956, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 29.11.1956, Qupperneq 9
ÍÞRÖTTIR RITSTJÓRI:. FRtMANN HELGASON Olympíufrétfir Fiiinmtudagvir 29. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Olympíuieikamir settir • Hvað varð um ffofck Panama? • Landy sór efðinn Það var sem tákn um vernd guðanna yfir ÓL. að sumarið kom með sól og hita einmitt daginn sem leikarnir hófust. Völlurinn, Cricket Ground, var blómum stráður og nokkur hluti þeirra til heiðurs hertoganum af Edinborg, því að stúka hans var fagurlega skreytt. Leikvangurinn var fullsetinn og má þar þakka mikið að „skrúfað hafði verið frá“ sumarveðrinu, eins og eitt blað orðar það. Á hina stóru töflu sem úrslit eru skráð á stóðu orð í anda Coubertin á þessa leið: Hinir ólympísku leikir leitast við að safna saman á litlum ljósfleti öllum þeim er í heimi leiða mannkynið til fullkomnunar. 300 manna hljómsveit lék fög- ur lög og iitklæði tónlistar- mannanna settu svip á leikvang- inn, og þegar ein hljómsveitin myndaði hina fimm ólympísku hringi kváðu við hrifningaróp á- horfenda. k Filippus hertogi kemur inn á leikvanginn Á mínútunni kl. 3 kom Filip- pus hertogi í fögru bifreiðinni sinni inn um hlið vallarins. í fylgd með honum var forsætis- ráðherra Ástralíu, Menzies, og formaður framkvæmdanefndar- innar, Kent Hughes. Æðsti gestur leikanna þennan dag var kom- ihn Og nú hófst ganga hinna 67 flokká inn á leikvanginn. Sam- kvæfnt vénjunni fóru GrikKir fyrstir og síðan hvert landið af öðru í stafrófsröð. Hvað varð af • flokki Panama? Alls áttu 68 lönd að vera kom- in til leikanna en þegar inngang- an hófst var einn flokkur af þeim sem höfðu tilkynnt þátt- töku ekki viðstaddur. Við at- hugun kom í ljós að það var 'flokkur Panama. Alþjóðaolymp- iunefndin sendi þegar skeyti til Panama, en fékk aðeins það 'svaf að flökkurinn hefði farið kf stað fyrir 14 dögum. Flestir frá Ástralíu Eins og oft vill verða var stærsti flokkurinn frá Ástralíu og voru í honum 308 menn. Næst komu: Sovétríkin 269, Bandaríkin 209, Japan og Eng- land 135, Frakkland 130, Þýzka- land 117, Ungverjaland 111, Kanada 77, Pólland 75, Sví- þjóð og Finnland 63, Singapore 58, Pakistan 55, Rúmenía 51. Aðrar þjóðir höfðu færri. Að þessari athöfn lokinni á- varpaði Hughes þátttakendur, en formaður CIO, Brundage, bað Filippus. hertoga að lýsa yfir opn- Un leikanna. ,jÉg lýsi hér með yfir að hinir olympísku leikir í Mol- boume sem fram fara á 16. olympíutímabilinu, eru settir.“ Á þessa leið mælti hertoginn. í sama mund kvað við olympíulag- ið frá hljómsveitinni, og stóri olympíufáninn var dreginn að hún. í fjarska kváðu við fall- byssuskot og 5000 þús. dúfur voru leystar úr búrum sínum og skyggðu um stund á sól. 2750. hlauparinn kemur Hvorki meira né minna en 2749 hlauparar höfðu lokið við hlaup sín með kyndilinn, sem á sínum tíma hafði verið kveikt á í Grikklandi. Flugvél hafði flutt hann til Ástralíu. Því hafði verið haldið leyndu, hver mundi verða þess heiðurs að- njótandi að hlaupa með kyndil- inn síðasta spölinn. Hann var aðeins nokkur hundruð metra í burtu og nálgaðist óðum. Kliður- inn á vellinum þagnaði. Allir beindu augum sínum að aðal- hliðinu þar sem hann átti að koma inn. Og þar kom hann og það var maður að nafni Ron Clarke, einhver bezti hlaupari sem Ástralía hefur átt. f ágætum hlaupastíl hleypur hann einn hring og fer síðan upp hinar 85 tröppur sem liggja að skál þeirri þar sem ólympíueldurinn á að loga meðan leikarnir standa, og ber kyndilinn að og til himins stígur breiður tindrandi logi. John Landy sver eiðinn Öllum til ánægju var John Landy valinn til þeirrar virðing- ar að sverja hinn ólympíska eið. Fánaberi Ástraliu, sem var ræð- arinn Mervin Wood, greip hendi um fánann meðan Landy sór: „Við sverjum að við munum taka þátt í ólympiuleikum þessum í sönnum íþróttaanda og að við skulum virða og hlýða þeim reglum sem gilda til heiðurs fyrir íþróttirnar og til heiðurs fyrir land okkar.“ Síðan var þjóðsöngur Ástralíu leikinn pg þátttakendur fóru út af leikvanginum í öfugri röð við það sem þeir komu inn. Hinn mikli hiti hafði fengið mikið á marga er þarna voru og féllu allmargir ‘ í yfirlið. Nokkrir þeirra sem báru skilti fyrir flokkunum féllu í ómegin og keppendur Jíka, t. d. rúss- neska konan og kúluvarparinn Galina Sybina. ,,Stærsti dagur á íþrótta- ferli iuínum44, segir Kuts Þnt fyrslu menn I 10000 m hlaupinu á shemmri tíma en gamla OL-metið Kuts hafði forustuna frá byrjun til enda, með þeirri und- antekningu að Pirie var um skeið á 7. hring fyrstur, en Vladimir Kuts það var meðan þeir hlupu aðra beygjuna en þá tók Kuts for- ustuna aftur með helmingi meiri þrótti en Pirie gerði og eftir það gerði hann ekki fleiri tilraunir og hafnaði í 8. sæti. Þegar Pirie kom í mark virt- ist hann ekki þreyttur en hann sagði „að Kuts hefði „myrt“ sig.“ Á eftir óskaði hann Rúss- anum til hamingju með sigur- inn. Þegar Kuts „flaug“ í markið kváðu við æðisgengin fagnaðar- læti og Kuts lyfti örmum upp yfir höfuðið í gleði sinni og hélt áfram og hljóp einn hring, þar sem hann veifaði til áhorf- enda. „Þetta er stærzti dagur- inn á íþróttaferli míniun“, sagði hann. Sviinit þjáðist af blóðeitrnn en vann bronslð Göngugarpurinn John Ljung- gren varð hetja dagsins er kappgangan fór fram. Honum hafði verið bannað að taka þátt í 50 km kappgöngu þar sem hann hafði vott af blóð- eitrun í annarri stórutánni Enginn hafði gert sér vonir um að hann mundi einu sinni ljúka keppninni. Um miðja gönguna var hann að því kominn að gefast upp, að hann sagði eftir á, en fæt- umir héldu áfram. Hann hélt sig alltaf meðal þeirra 7.-8. fyrstu. Á síðustu km komst hann fram fyrir einn eftir annr an og þegar ð krn voru eftir var hann orðinn þriðji og þar var hann lika, er í mark kom. Tugþrautm í dag í dag yerður keppt til úrslita í tveim greinum frjálsíþrótta á ol- ympíuleikunum í Melbourne: 400 metra hlaupi og 3000 metra hindrunarhlaupi. Þá hefst einnig keppnin í tugþraut. Verður keppt í fimm greinum þrautarinnar, 100 metra hlaupi, langstökki, kúluvarpi, hástökki og 400 metra hlaupi. Einnig verða undanrásir í 200 metra hlaupi kvenna og 1500 metra hlaupi karla. Békaprentvél til sölu Tilboð óskast í notaða bókaprentvél, stærð 63x96 (innan ramma). Upplýsingar í Préntsmiðju Þjóðviljans næstu viku. Tilboð sendist á afgreiðslu Þjóðviljans eða I prentsmiðjuna. n Skólavörðustíg 23, sími 1248 NYK0MIÐ: ö ^ Fyrir raimagnseldavélar: ^ I POTTAR með 8 mm þykkum botni, 3ja, 4ra, 5, 7, 9, og 14 Iítra. KAFF1K0NNUR ? með þykkum botni, IVa, 2ja og 3ja lítra. Pottar með þunnum botni, 10 stærðir Skaífpott&r ......... 4 stærðir Kökuform ............. 3 stærðir ÞvotfaiÖt, djúp , 6 stærðir Nestiskassar ......... 2 stærðir Búsóhaldadeild Nauðungaruppkoð sem auglýst var í 68., 69. og 70 tbl. Lögbirtingablaðs- ins 1956, á húseigninni Sóltún 7, Keflavík, þinglesin eign Ásgeii's Einarssonar, fer fram eftir kröfu Egils Sigurgeirssonar, hrl., o.fl. á eigninni sjálfri, miðviku- daginn 5. desember 1956, kl. 2.00 e.h. Bæjarfógetinn í Keflavík, 27 nóv. 1956, A. Gíslason I aniun ! ailHilllitHlliliaMllflHIIHimilUIMHiaiHHIKHHHiHlxÍ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.