Þjóðviljinn - 29.11.1956, Page 10

Þjóðviljinn - 29.11.1956, Page 10
1D) — 1>JÓÐVILJINN — Fimmtudagur 29. nóvember 1956 Minning Pálma Hannessonar Framhald af 7. síðu „Áður sat ítur með glöðum og orðum vel skipti; nú reik- ar harmur í húsum og hryggð á þjóðbrautum". Þessi orð komu ósjálfrátt í hugann þeg- ar fregnin barst um hið svip- lega fráfall Pálma Hannes- sonar. Þeir sem kynntust hon- um nokkuð hljótá jafnan að minnast hans með trega og þakklæti. Hann var dreng- ur góður. Sérstaklega verð- ur hann hugstæður okk- ur, fyrsta stúdentsárgangin- um. Við minnumst átaka og erfiðleika fyrsta skólaársins í Menntaskóla Reykjavíkur undir stjórn hans, veturinn 1929—1930, og þeirra taum- lausu ofsókna sem hið sið- spillta afturhald Reykjavíkur hélt uppi gegn honum. En við munum einnig vel þann ferska blæ sem hann flutti með sér inn í skólann, það fordæmi sem hann gaf, þær vonir sem við tengdum við hann. Daginn sem Pálmi setti Menntaskólann í fyrsta sinn hélt hann fræga ræðu, þar sem hann brýndi fyrir okkur að leita sannleikans. Á þá ræðu var hlustað með heim- spekilegri alvöru. En reynsla áranna, og ekki sízt kynni við Pálma Hannesson sjálfan, staðfesti þau sannindi sem Halldór Laxness meitlaði í þessa setningu um sömu Sjálflýsandi merki á fleklu- mundir: „Sannleikurinn er ekki í bókum, og ekki einu sinni 1 góðum bókum, heldur í mönnum sem hafa gott hjartalag“. Pálmi lifir í verk- um sínum. En okkur sam- tímamönnum hans, vinum og samherjum í margri raun verður þessi glæsilegi, hjarta- hreini maður ógleymanlegur, viðkvæmur og karlmenni í senn, traustur vinur og nær- gætinn andstæðingur. Varla mun nokkur annar maður um vora daga hafa sameinað í jafnríkum mæli þekkingu á landinu, skilning á sögunni og ást á tungunni. Slíkir menn eru salt jarðar. Með þessum fátæklegu orð- um vil ég bera' fram þakkir fyrir góð kynni og færa ást- vinum Pálma samúðarkveðju. Þorvaldur Þórarinsson íslenzkar þjjóðsögur Framhald af 12 síðu. Loks er svo 8. flokkurinn í þessari bók: stjúpusögur, um álögur og allskyns illar stjúpur og kvikindsku þeirra — og þá að sjálfsögðu hina óhjákvæmi- legu kóngssyni er ætíð hjálpuðu hinum hrjáðu stjúpdætrum vondra stjúpmæðra. Að lokum eru svo Skýringar og athugasemdir þeirra Bjarna og Árna sem séð hafa um út- gáfuna. Allmargt galdrastafa er til skreytingar í bókinni, svo og handritasýnishorn, og er engin bls. auð í bókinni. M.m. er þarna sýnishorn af handriti 12 ára drengs, Þáls Pálssonar prests í Árkvörn, en hann hóf 11 ára gamall að skrifa upp þjóðsögur eftir gamalli konu á heimilinu. Fremst í bókinni er mynd af útilegumannakofa í Hvannalind- um, sem grafinn var upp um 1940. Vilja kaupa tvo togara úip um Fataverksmiðjan Hekla Ák- *reyri hefur nýlega fest kaup á slysavarnamerkjum, sem fylgja eiga öllum kuldaúlpum barna frá verksmiðjunni. Þessi merki eru sjálflýsandi i myrkri og hafa erlendis þótt mikilvægt framlag til slysa- varná. Forráðamenn verksmiðjunnar skilja mikilvægi þessara merkja og vilja á þennan hátt leggja- sinn skerf til úrbóta í þessu efni. Framnalö af 12. síðu ins gert nokkra athugun á því, hvernig helzt væri hægt að leysa þennan vanda og hef- ur hún þá einkum athugað, hvernig hagnýta mætti togara- afla í hraðfrystihúsunum á hinum minni höfnum. Athug- un nefndarinnar bendir ein- dregið til þess, að hagkvæmt sé að gera út litla togara, um 350 tonn að stærð, í þessu skyni og yrði veiðisvæði þeirra að staðaldri við austanvert landið, milli Ingólfshöfða og Melrakkasléttu. Gert er ráð fyrir því, að þegar atvinnu- þörf heima fyrir krefðist yrði aflinn hraðfrystur, en við og við gætu skipin fárið á veiðar í salt eða jafnvel á síld. Reynsla enskra togara, sem mikið veiða á þessu svæði, bendir mjög eindregið til þess, að útgerð togara sem þessara yrði hagkvæm, en nefndin afl- aði sér góðra og öruggra heim- ilda um þessar veiðar Eng- lendinga. Um það hverjir skuli eiga þessi skip telur þingið ekki ástæðu til að gera tillögur, enda getur það farið eftir atvikum. Þó telur þingið ekki óeðlilegt, að þaú byggðarlög, sem fyrst og fremst ættu að njóta skipanna, ættu þau. Kæmu þá til greina sveitarfélögin sjálf, félagssam- tök s.s. kaupfélög og frysti- hús og loks einstaklingar. Ef myndaður yrði einhverskonar félagsskapur, t.d. hlutafélög, til kaupa og reksturs skipanna, væri ekki óeðlilegt, að ríkið væri beinn hluthafi í slíkum félögum. Það getur varla verið efa bundið, að ef af þessum skipa- kaupum yrði, mundi atvinna í viðkomandi þorpum stóraukast og rekstur frystihúsanna og annarra fyrirtækja, sem byggja tilveru sína á viðskiptum við útveginn, stórbatna. Og allt stuðlar þetta að hinu marg- umtalaða jafnvægi í byggð landsins. Það er von fjórðungsþings- ins að ríkisstjórnin athugi hvort ekki væri skynsamlegt og hagkvæmt, að hefja útgerð til- tölulega lítilla togara, jafn- framt því sem útgerð stærri skipa verður aukin". VÖNDUÐ ÚTGAFA Bjarni Vilhjálmsson kvað tvö meginsjónarmið hafa ráðið við útgáfu þessa. í fyrsta lagi að hún væri góð og þægileg lesút- gáfa og i öðru lagi að fræðimenn gætu haft gagn af henni, bæði þeir sem fást vilja við persónu- sögu og einnig þeir sem rann- saka vilja málið á þeim tíma sem handritin eru skráð. í því bindi sem væntanlega kemur út að hausti verður bæði atriða- og nafnaskrá og mun Árni Böð*- arsson, sem nú dvelst i Noregi, sjá um atriðaskrána. Eini síð- asta bindisins verður annars æv- intýri og máske eitthvað af kreddum. Til þessarar útgáfu af þjóðsög- unum hefur verið vandað mjög og eiga bæði fræðimenn þeir sem hér hafa að unnið, þeir Bjarni Vilhjálmsson og Árni Böðvarsson og útgefendur, þakk- ir skildar fyrir gott verk Olympíuleikarnir Odýrir karlmannahattar VERÐ AÐEINS KR. 120.00 1 Tegundir: BATTERSBY: VEZZANI WOODRUP Framhald af 1. síðu. gær að sópa til sin verðlaunun- um í frjálsum iþróttum karla og í 110 m grindahlaupi fengu þeir öll verðlaunin og var það þriðji þrefaldi sigur þeirra í röð i þessari grein á olympíuleik- um. Úrslit: 1. Calhoun (Band.) 13,5 2. Jack Davis (Band.) 13,5 3. Shankle (Band.) 1.4,1 Einnig í þessari grein var sett nýtt olympiumet, gamla metið, 13,7, áttu Bandaríkjamennirnir Dillard og J. Davis í sameiningu. Heimsmet Davis er 13,4. O’Brien hinn ósigrandi Það kom engum á óvart að Bandaríkjamaðurinn O’Brien skyldi sigra í kúluvarpinu, það var eiginlega loku fyrir það skotið að hann, sem varpað hef- ur kúlunni 70 sm lengra en nokkur annar, gæti tapað. Úrslit: 1. O’Brien (Band.) 18,57 2. Bantum (Band) 18,18 3. Skobla (Tékk.) 17,55 O’Brien bætti sitt eigið oíympíu- met um hvorki meira né minna en rúman metra, gamla met hans var 17,41. Þrcfaldur sovézkur sigur í 20 km göngu unnu sovézkir göngugarpar þrefaldan sigur, fyrstur var Sparlin á 1.31,27,0. Svíinn Ljunggren var fjórði. Ástralska stúlkan Shirley Strickland sigraði i 80 m grinda- hlaupi kvenna á 10,7, næst varð þýzka stúlkan Köhler, 10,9 og þriðja Thrower frá Ástralíu á 11,0. Rúmensk stúlka sigraði í spjótkasti kvenna, 53,85, Zatop- kova, kona Zatopeks, varð fjórða. í fimmtarþraut hermanna, nú- tíma fimmtarþraut, sigraði Svi- inn Lars Hall, en Rússar unnu flokkakeppnina í þeirri grein. Ágreiningur vesturveldanna AUSTURSTRÆTl Framhald af 1. síðu. unum magnast stöðugt í Bret- landi og Frakklandi. Eisenhower leggur í svari sínu við skeytinu áherzlu á að Bandaríkjamenn, Frakkar og Bretar haldi samstarfi sínu og tekur fram að ágreiningur þeirra sé aðeins um eitt mál. Vaxandi ágreiningur Fréttaritari brezka íhalds- blaðsins Daily Telegraph í New York segir að Selwyn Lloyd hafi farið heim með fullan skilning á því að síðustu daga hafi andstaða Bandaríkjastjórn- ar gegn aðgerðum Breta og Frakka í Egyptalandi vaxið. The Times í London sagði í gær í ritstjórnargrein að hætta sé á nýjum tilgangslausum flokkadeilum í brezka þinginu vegna ágreinings við Bandarík- in Blaðið segir að meiri þörf sé nú á rólegri íhugulT þeirra al- varlegu vandamála sem leysa verði. Blaðið segir að brýna nauð- syn beri til að öll utanríkis- stefna Bretlands verði endur- skoðuð og sama eigi við um stefnu annarra ríkja Vestur- Evrópu í utanríkis- og efna- hagsmálum. Athugun þurfi einnig að fara fram á því hvað sé raunverulegt gildi Atlanz- bandalagsins og annarra hem- aðarbandalaga. Og um Banda- ríkin segir blaðið, að þau verði að leitast við að koma sér nið- ur á einhverja stefnu í utanrík- ismálum yfirleitt. The Times segir að mest ríði á því að traustið á Bandaríkj- unum verði endurvakið og blað- ið varar eindregið við þeim fjandskap í garð Bandaríkj- anna sem stefna þeirra hafi að undanförnu vakið í Bretíandi. Alvarleg hætta Robert Menzies, forsætisráð- herra Ástraliu, hélt. ræðu á stjórnmálafundi i Sydney í gær. Sagði hann að hið alvarlega ástand sem nú ríkti stafaði fyrst og fremst af því að SÞ hefðu fyrirskipað Bretum og Frökkum að hverfa á brott með heri sína úr Egyptalandi. Hann sagði að afstaða Banda- ríkjanna í þessu máli hefði stofnað sambúð þeirra og Ástr- alíu í alvarlega hættu. Hernaðarbanda I ög nöfnin ein Ágreiningur vesturveldanna er mjög ræddur í blöðum. Sænska blaðið Stoekholm»-Tidn- ingen, sem nú er málgagn sænska alþýðusambandsins, sagði í gær að Atlanzbandalag- ið væri nú í rauninni aðeins nafnið eitt. Önnur blöð láta í Ijós svipaðar skoðanir og franska blaðið Le Monde sagði í gær um Bagdadbandalagið, að það væri úr sögunni. Handtökur í Tékkósíóvakíu Fréttaritari AFP í Prag segir að tékknesk stjómarvöld hafi að undanförnu tilkynnt um hand- tökur fjölmargra manna sem stundað hafi njósnir og skemmd- arverk í landinu. í blöðum iands- ins séu menn stöðugt hvattir til að vera vel á varðbergi gegn hvers konar erlendum eríndrek- um.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.