Þjóðviljinn - 19.01.1957, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.01.1957, Blaðsíða 3
Laugardagur 19. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Hjúkrunarfélagmu Líkn slitið eftir meira en f jörutíu ára mannúðarstarf Síðasta ósk félagsins er su að komið verði upp í Reykjavík geðverndarstöð fyrir börn Hjúkrunarfélagiö Líkn hefur nú verið lagt niður, en Sjúkrasamiag Reykjavíkur. það var stofnaö árið 1915. Tilgangur félagsins var að veita sjúkum hjálp, og var í byrjun ráðin 1 hjúkrunar- kona til að annast sjúklinga á heimilum. Síðar færöi fó- lagiö mjög út kvíarnar, en nú hefur Heilsuverndarstöð- in tekið viö þeim verkefnum sem Líkn annaöist áður: hlutverki félagsins er lokið — því hefur verið slitið. Þær frú Sigríður Eiríksdóttir, sem verið hefur formaður Líkn- ar frá 1931 og löngum lífið og sálin 'í öilú starfi félagsinsi, og frú Anna Zimsen, ræddu af þessu tilefni við fréttamenn í gær; og sögðu þær frá starfi og verkefnum þess. Karlarnir létu að sér kveða Eins og áður segir var félag- ið stofnað árið 1915, og stóðu nokkrar konur að félagsstofnun- inni. Fyrsti formaður var kjörin frú Cristophine Bjarnhéðinsson, kona Sæmundar Bjarnhéðinsson- ar læknis; og var hún formaður til 1931, er frú Sigríður Eiríks- dóttir tók við. Félagar Líknar voru þó bæði konur og karlar; ög lét t. d. Tryggvi Gunnarsson xnikið að sér kveða í félaginu á fyrstu árum þess. ■— Aðrar kon- ur í fyrstu stjóminni voru: frú Flora Zimsen, frú Katrín Magn- ússon, Sigríður Björnsdóttir og frú Guðrún Finsen. Fyrsta verk- efni félagsins var að vitja sjúkra í héimahúsum, og var 1 dönsk hjúkrunarkona ráðin til starf- ans; en fyrstu íslenzku hjúkrun- arkonurnar voru þá að hefja nárn erlendis. Bcrklavarnarstöð — ungbarnavernd Árið 1919 gekkst félagið fyrir stofnun berklavarnarstöðvar, sem var fyrsti vísir að skipu- lögðum berklavörnum hér á landi. Fyrsti læknir var Katrín Thoroddsen, en Sigurður Magn- ússon yfirlæknir tók síðan við starfinu og gegndi því, endur- gjaldslaust, til 1927 er Magnús Pétursson tókst það á hendur. Árið 1927 var Ungbarnavernd Líknar stofnuð, og var Katrín Thoroddsen ráðin þar til forustu frá byrjun. Hún vann einnig á- keypis fyrstu árin, en eftir að félagið fór að njóta meiri opin- bers styrks, breyttist þetta og læknar hlutu laun fyrir störf sín. Árið 1936 voru fengin gegn- lýsingartæki að berklavarnar- v stöðinni með aðstoð Berklavarn- arfélags Islands: Þá var einnig byrjað að gera loftbrjóstaðgerð- ir þar, og læknum var bætt við í starfið, enda hafði Sigurður Sigurðsson berklayfirlæknir þá tekið að sér yfirumsjón stöðvar- innar, en hún var rekin áfram á vegum Liknar. Nokkurs fjárhagsstuðnings naut félagið frá Hafnarfjarðarbæ, gegn því að íbúar þar hefðu af- not af stöðvunum. Árið 1943 tók félagið að sér eftirlit með barnshafandi konum og hafði Pétur Jakobsson yfir- læknir fæðingardeildarinnar yf- irumsjón með því starfi, með íjósmóður sér tii aðstoðar Þá Oíslason menntamálaráöherra. Fremst á myndinni til hœgri sést á nokkurn hluta safnbókanna. (Ljósm. Pétur Thomsen). Frá afhendingu bókagjafarinnar í háskólanum í gœr; til vinstri er Þorkell Jóhannesson háskólarektor, í miðið John J. Muccio sendiherra og lengst til hægri Gylfi Þ. tók félagið að sér að ráða stúlk- ur til starfa hjá sængurkonum, og hafði það starf með höndum i rösk 3 ár. Gengur ísland l UNESCO? Eins og áður hefur verið skýrt frá, bauð Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) ríkisstjóminni að senda áheyrn- arfulltrúa af íslands hálfu á ní- undu aðalráðstefnu stofnunar- jnnar, er haldin var í Nýju Del- hi á Indlandi dagana 5. nóvem- ber til 6. desember síðastliðinn. Var því boði tekið. Hefur ríkisstjórnin nú í athug- un, hvort leggja á til við Alþingi að ísland gerist aðili að UNES CO. (Fi'á menntamálaráðuneytinu) l Sigríður Eiriksdóttir Árið 1939 var dr. Óli Hjalte- sted ráðinn fastur Iæknir að stöðinni, en áður höfðu læknar aðeins unnið þar í tímavinnu, og yfirlæknir stöðvarinnar varð hann árið 1949. Ljósböð — eftirlit með barnshafandi konuxn Árið 1941 var ungbarnaeftir- litið aukið að mun og bætt við starfsliði, bæði læknum og hjúkrunarkonum. Einnig hafði verið hafin fyrir nokknim árum starfsemi ljósbaða fyrir ung börn, og var mikil aðsókn að þeim. Nú átti félagið öllu hæg- ara um vik, þar sem reksturs- kostnaður hafði að mestu leyti færzt yfir á ríki, bæjarfélagið og V erkfa11 ekhi hoðað í Alþýðublaðinu i gær er fregn um, að vörubílstjórafélag- ið á Akranesi lrafi boðað vinnu- veitendum verkfall frá og með 27. janúar næstkomandi. Út af fi-egn þessari átti Vinnuveitenda- sambandið í gær viðtal við Jón Árnason, framkvæmdastjóra, formann Vinnuveitendafélags Akraness. Kvað hann ekkert verkfall hafa verið boðað enn af hendi vörabílstjóra, og er fregn þessi því röng. Hins vegar kvað hann bil- stjórunum hafa verið boðnir sömu samningar og gilda milli Vörubílstjórafélagsins Þróttar í Reykjavík og Vinnuvei:endasam bands íslands, en samningar hefðu enn ekki tekizt. Viiuiuveitendasamband íslands Nær 300 þíisund vitjanir Síðustu árin störfuðu 8 hjúkr- tmarkonur hjá félaginu. Auk tugþúsunda heimilisvitjana, sem lijúkrunarkonurnar fónx á veg- um berklavarnarstöðvar og ung- barnaverndar, hafa frá stofnun Líknar verið farnar 277.098 vitj- anir til sjúklinga, en hver sjúkravitjun tekur minnst klst. og oft lengur. Öll þessi sjúkra- miðlun hefur verið afgreidd frá formönnum félagsins, og öll að- stoð verið ókeypis, utan stöku sjúkravitjana til fólks, sem ósk- aði eftir að greiða þær. Geðverndax-stöð fyrir börn Hér hefur verið stiklað á stóra í starfssögu Líknar, og vinnst ekki rúm til að rekja hana öllu lengur. Frú Sigríður Eiríksdóttir sagði að það væri mikið áhuga- mál þeirra Líknar-kvenna að komið yrði upp í Reykjavík geð- vemdai'stöð fyrir böm, svo sem flestar menningarþjóðir hafa þegar stofnað og þykja gefa góða raun. Er fengið loforð bæj- aryfirvalda fyrir þvi að slík stöð verði stofnuð, og í Danmöi'ku dvelst nú ungur sálfræðingur er býr sig undir að veita slíkri stöð forstjóm. Stjórn Líknar kefur látið það vera síðustu ósk sína til bæjaryfirvaldanna að þessari stöð verði komið upp; og trúir hún því að slík starfsemi geti borið jafnmikinn árangur og ýms sú starfsemi sem félagið hefur haft með höndum í meira en 40 ár. Stjórn Líknar hefur um mörg undanfariri ár verið skipuð þess- um konum: Sigriði Eiriksdóttur, Önnu Zimsen, Sigríði Briem Thorsteinsson, Sigrúnu Bjarna- son, og Ragnheiði B.jarnadóttur sem hefur setið í stjórninni allt frá upphafi. Við þökkum Líkn mikið og fagurt mannúðarstarf. Verðmæt bókagjöf af- hent Háskóla Istands Mikið saín bóka og ritgerða um kjarn- íræði írá Kjarnorkuneínd Bandaríkjanna í gærdag afhenti bandaríski sendiherrann, John J. Muccio, Háskóla íslands mikla og verð'mæta gjöf frá Kjarnorkunefnd gandaríkjanna: safn bóka um kjarn- fræð'ivísindi, 6500 tæknilegar skýrslur og ritgerðir um kjarnfræðirannsóknir, auk spjaldskrár um fjölda annarra rita, sem fjalla um þessi fræði. Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, veitti gjöfinni viðtöku. Viðstaddir afhendingu bóka- gjafarinnar í Háskólanum i gær voru nokkrir gestir, íslenzkir og bandarískir. Einn þáttur áætlunar I í ræðu sinni lét bandaríski sendiherrann þau orð falla, að gjöfin væri þáttur í víðtækri áætlun um skipti friðelskandi þjóða á tæknilegum upplýsing- um um kjarnfræði, en grundvöll þeirrar áætlunar hefði Eisen- tveir íslendingar væru nú á för- um til Bandaríkjanna til að kynna sér hagnýtingu kjarnorku á sviði landbúnaðar í samræmi við þær áætlanir, sem Fram- ieiðniráð Evrópu hefði gert. Morguxui nýs dags í inannkynssögunni Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, þakkaði hina höfðinglegu og verðmætu bóka- gjöf og kvað þjóðina í heild komst m. a. hower forseti lagt með ræðu á meta þann hug> er að bakj henni allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna fyrir rúmlega þremur ár- um. „Einn liður þessarar áætl- unar var að gefa út bækur, lægi. Ráðherrann svo að orði: greinar og tæknilegar skýrslur úr safni Kjarnofkunefndar Bandaríkjanna", sagði sendiherr- ann, „og bjóða þeim þjóðum, sem áhuga höfðu á að fá þær, en þó með því skilyrði að þær láti kjarnorkunefndinni í té samskonar efni og upplýsingar frá vísindamönnum sínum. Is- lenzkir sýndu mikinn áhuga á þessu, og i febrúarmánuði s.l. beiddist sendiherra íslands í Bandaríkjunum þess formlega, að slíkt safn yrði látið íslandi í té.“ Sendiherrann kvaðst vona, að kjarnfræðisafnið ætti eftir að koma íslenzku þjóðinni og Há- skóla íslands að miklum notum. Hann skýrði ejnnig frá því, að Ævintýramyndir í litum sýndar í Stjörnubíói kl. 3 á morgun Fjórar æfintýramyndir fyrir börn verða sýndar á morgun kl. 3 í Stjörnubíói, á vegum MÍR, Myndimar ei’U Gullna antí- lópan, Ferðin til tunglsins, Ó- þægi kettlingurinn og Púkk hug- djarfj. Eru þetta bráðskemmti- legar barnamyndir, auðskildar, einnig ungum börnum. „Gullna antílópan“ er teiknimynd í fögr- um litum, sem var sýnd í Gamla bíói fyrir nokkrum árum. „Púkk hugdjarfi" er eftir kóreskri þjóðsögu og mun börnum þykja gaman að kynnast honum. Og þá ekki síður að ráfa um skóg- inn með óþæga kettlingnum eða lenda óvænt í ferðalagi upp til tunglsins. „Við, sem lifum miðbik tutt- ugustu aldar, lifum í rauninni morgun nýs dags í mannkyns- sögunni. Um þessar mundir má segja að sé 200 ára afmæli iðn- byltingaririnar. Tákn hennar var gufuvélin, kolin og rjúkandi reykháfar. Upp á þetta afmæli hefur maðurinn haldið með því að efna til annarrar iðnbylting- ar, miklu stórkostlegri en hinnar fyrri. Tákn hennar eru kjam- orkuvísindin og kjarnorkuverin. Þau munu gerbreyta lifsskil- yrðum mannkynsins á næstunni, ekki aðeins vegna þess, að orku- framleiðslan mun margfaldast, heldur einnig vegna nýrra skil- yrða, sem kjamfræðin skapar í læknisfræði, erfðafræði og fleiri greinum náttúruvísinda. Hver sú þjóð, sem vill ekki eiga á hættu að verða stórlega eftirbátur annarra í verklegum efnum, verður að reyr.a að fylgjast með því, sem er að ger- ast í kjarnorkufræðum nútím- ans. Af þessum sökum er bóka- safn það, sem íslendingar hafa nú eignazt um kjarnorkumál, mjög mikils vert fyrjr þá. En á gjöf þessari er einnig önnur hlið, sem er ekki síður athyglisverð. Hin nýja þekking hefur ekki að- eins lagt mikið vald i hönd Framh. á 10. eíðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.