Þjóðviljinn - 01.02.1957, Page 10

Þjóðviljinn - 01.02.1957, Page 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 1. febrúar 1957 IÍTSALA r a VEFNAMRVÖRUM OG BÚTUM Blússueíni, Kjólaefni, Velour, Jersey, Rifs, Gaberdine, Gallasaiin, Fóður o. fl. GLUGGATJALDAEFNI ýmiss konar Allt með mjög miklum afslætti. FELÐUR h.f. ÚTSALA r KÁPUM Nýtt úrval af alls konar ullarkápum fyrir börn, unglinga og fullorðna. MIKIL VERÐLÆKKUN FELDUR h.f. ÚTSALA r DRÖGTUM KJÖLUM og POPLÍIVKÁPUM FELDUR h.f. ÚTSALA r HÖTTUM og HÚFUM á börn og fullorðna. FELDUR hJ. LAUGAVEGI 116. Taniilivöss tengdaiiiamina Framhald af 6. síðu. draga í efa. Unnustu hans leikur Þóra Friðriksdóttir og gerir það lýðum ljóst að hún hefur erft nokkuð af ráðríki og skapi móður sinnar, eplið fellur aldrei langt frá eikinni. Framsögn hennar er nokkuð einhæf enn sem komið er, enda hefur leikkonan ekki náð fullum þroska, en glæsi- legri og eigulegri brúður hef- ur ekki lengi sést á leiksviði. Árna Tryggvasyni tekst furðuvel að lýsa skozkum upp- runa svaramannsins og sjó- liðans Carnoustie, gera hann hæfilega ólíkan umhverfinu, þótt ekki hafi hann neina mál- lýzkuna við að styðjast. Og skoplegur og skemmtinn er hann í bezta lagi, fyndinn í svörum og öruggur í hverri raun, og þarf engum á óvart að koma. Sjóliðinn skozki krækir að lokum í brúðar- meyna Dafne, það máttu reyndar allir vita fyrir. Sig- ríður Hagalín lýsir hinni lífs- glöðu og heilbrigðu stúlku á sannfærandi hátt, hún er lag- leg, hæfilega léttlynd og ást- leitin og býður af sér góðan þokka. Meðferð höfundanna á Edie Bæjarpósturinn Framhald af 4. síðu. þess, að ég tel mestum hluta yngri kynslóðarinnar gert rangt til, ef við gerum ráð fyrir að ungir menn verji svo til öllu eyðslufé sínu í vín og tóbak, en séu svo hugmynda- snauðir, að þeir sjái ekki aðr- ar lystisemdir en þessar, auk kvikmynda, þótt ekki vilji ég amast við þessu sé það í hófi“. — ★ PÓSTURINN BJÓST reyndar alltaf við því, að „kostnaðar- áætlun“ hans mundi sæta gagnrýni, enda sízt að furða, þar eð hún var bæði einhæf og ófullkomin að ýmsu öðru leyti. Bréfritari telur, að „mestum hluta yngri kyn- slóðarinnar“ hafi verið gert rangt til með umrædda áætl- un. Það má vel vera. Ekki held ég þó, að „mestur hluti yngri kynslóðarinnar“ kaupi bækurog tímarit neitt að ráði, a.m.k. ekki bækur eða tíma- rit, sem verulegur fengur er að lesa, þvi miður. Þá tel ég ekki loku fyrir það skotið, að ungur maður, sem kaupir grammófónplötur og plötu- spilara, reyki líka einn pakka af sígarettum á dag. Hitt er annað mál, að þær „lystisemd- ir", sem bréfritari nefnir, eru miklum mun æskilegri en þær, sem taldar voru upp í Póstin- um á sunnudaginn var, og sízt væri það Póstinum móti skapi, þótt meiri hluti yngri kyn- slóðarinnar girntist þær frem- ur. Þegar áætlað var í sunnu- dagspóstinum, að hver bíó- ferð kostaði 20 krónur, þá var ekki eingöngu átt við verð aðgöngumiðans, heldur líka strætisvagnafargjöld fram og til baka, svo og hitt, að fjölmargir bíógestir kaupa sér eitthvert slikkerí til að japla á, meðan þeir eru „í bíó“. En eins og bréfritari bendir rétti- lega á, getur fjölmargt komið til greina að teljast með í svona lagaðri „kostnaðaráætl- un“, og væri nógu gaman að fleiri segðu sitt álit. frænku er smíðagalli á leikn- um, þessi móðursjúka pipar- mey barmar sér og grætur í sífellu, rekur sömu harma- töluna miklu oftar en góðu hófi gegnir, Útlit og látbragð Auróru Hálldórsdóttur hæfa vel hlutverkinu, hún bjargar því með eirtlægni sinni og lát- lausum mainnlegum skilningi, gerir það sízt af öllu afkára- legra en efni standa til. Nína Sveinsdóttir leikur hina á- gengu skrafskjóðu nágranna- konuna skýrt og skemmtilega, og er einnig á réttum stað. Framsögn þennar hlýðir að vísu ekki 1 alltaf ströngum reglum leiklistarinnar, og það væri synd að segja að hún fari mjúkúm höndum um galla þessarar konu. Loks er Steindór Hjörleifsson ágætur í gervi prestsins, ótvirætt góð- menni í sjón og raun, sann- kallaður mannasættir. Þau eru ekki merkileg orðin sem hon- um eru lögð í munn, en klerka- stéttin má vera hreykin af þessum geðþekka starfsbróður sínum á sviðinu. Leikstjóri er Jón Sigur- björnsson og vinnur verk sitt af mikilli kostgæfni og sýni- legri lagni, leikurinn er snurðulaus og vel æfður, allt gengur eins og í sögu. Hér er um frumraun að ræða, ekki erviða að vísu, en árangurinn vel sæmandi vönum leikstjóra. Setustofu Hornettshjónanna og útsýnið þaðan hefur Haf- steinn Austmann málað af smekkvisi og góðum skilningi, híbýli þessi bera svip hins enska smáþæjar og vitna um þrifnað og reglusemi húsmóð- urinnar sem þar ræður ríkj- um. Þýðing Ragnars Jóhann-, essonar er lipur og létt og rit- uð á góðu máli, en áhrifa frá frummálinu gætir á stöku stað. Áhorfendur skemmtu sér forkunnar vel og tóku leikn- um með kostum og kynjum. Enda þótt leikritið sé hvorki nýstárlegt né merkilegt í neinu, fór hér á sömu leið og í Lundúnum: allir hlógu sig máttlausa, ungir og gamlir, það var eins og þeir heyrðu gamanmál þessi í fyrsta sinn. Á. Hj. Auglýsið í Þjóðviljanum Húsnæðismál Framhald af 12. síðu. húsnæðismál á þessu þingi. Hvað sem öðru liði mætti ekki draga úr íbúðabyggingum í Reykjavík, og treysti hann því að ríkis- stjórnin miði aðgerðir sínar við það. Hinsvegar væri skaðlaust að dregið væri úr byggingum ó- hófsibúða. Gunnar játar Gunnar Thoroddsen viður- kenndi að lögin frá 1929 um út- rýmingu heilsuspillandi kjallara- íbúða hefði orðið pappírsgagn. Hannibal svaraði: Hvers vegna urðu þau pappírsgagn? Vegna þess að Reykjavíkur- bær sveikst uni að fram- kvæma þau. Bágur viðskUnaður Sýndi hann fram á hvernig íhaldsstjórnin skildi við húsnæð- ismálastjórn í algeru öngþveiti og féleysi og hugsaði um það eitt að láta úthluta því sem til var fyrir kosningar. Það væri rétt að allt of lítið fé hefði fengizt til lána síðasta ársfjórðunginn, þó ríkisstjórnin hefði útvegað 7 milljónir króna hefði það hrokkið skammt. Minnið að bila? Auk þeirra sem þegar er getið, tóku Jón Kjartansson, Páll Zóphoníasson og Jóhann Jósefs- son til máls. Minnti Jóhann að hann hefði fyrstur þingmanna orðið til að biðja* um „frelsi" í byggingamálum meðan hið „grómtekna ófrelsi“ fjárhagsráðs Sjálfstæðisflokksins lá á þjóð- inni! Tillaga Gunnars var felld og frumvarpið afgreitt sem lög. Fiskirannsóknir Framhald af 12. síðu. sýnishorn átu, sem safnað væri með tæki þessu af brezkum kaupskipum frá mörgum svæð- um í norðurhluta Atlanzhafs. Fram til þessa hefðu rannsókn- ir stöðvarinnar þó ekki náð til íslenzkra hafsvæða. Dr. Henderson kom hingað til lands sl. laugardag. Hann mun halda heimleiðis í dag. Vegir og færð Framhald af 1. síðu. umferðin brátt komast í sæmi- legt horf. Ruðningsmenn Vega- gerðarinnar hafa sannarlega átt erfiða daga undanfarið, má segja að lengst af bæði nætur og daga hafi einhverjir þeirra verið að starfi einhverstaðar. STAÐA FULLTRCA ■ i við Almanna tryggingaumboöiö í Hafnaríirði, og j Gullbringu- og Kjósarsýslu, er laus til umsóknar. j Laun samkv. VII. flokki launalaga. Skriflegar umsóknir, þar sem tilgreind sé menntun og fyrri störf, sendist undirrituöum fyr- j ir 28. febrúar n.k. ■ Bœjarfógetinn í Hafnarfir'öi. ......................................... BIFREIÐAGEYMSLA SÍMI 5065

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.