Þjóðviljinn - 08.02.1957, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagiu- 8. febrúar 1957
tUÓÐVILIINN
Útgejandi:
Sameiningarflokkur alpýðu — Sósíalistaflokkurinn
J____________________________J
Utaiiríkisráðherra 02 hernámið
/^uðmundur I Guðmundsson
utanríkisráðherra komst
m.a. þannig að orði í útvarps-
umræðunrm sl. mánudag:
beldisverkin í Ungverja-
landi og ástandið fyrir
botni Miðjarðarhafs fela í sér
slíka hættu og ógnun fyrir all-
ar frjálsar þjóðir, að það yrði
að teljast óverjandi andvara-
leysi að gera ráðstafanir til
að draga úr vörnum á meðan
hættuástand það og óvissa
ríkir í heiminum sem nú er“.
að hefði farið vel á því ef
utanríkisráðherra hefði
treyst sér til að færa rök að
þessu mali sínu en ekki látið
sér nægja almenn áróðursum-
mæli, en af einhverjum ástæð-
um hafði ráðherrann rök-
stuðning sinn ekki tiltækan.
Hvers vegna eru „ofbeldis-
verkin í Ungverjalandi" rök-
semd fyrir því að íslendingar
verði að sætta sig við það of-
beldi sem felst í erlendu her-
námi, þrátt fyrir samþykkt
Alþingis og yfirlýsingu núver-
andi stjórnar ? Hvað kemur til
að „ástandið fyrir botni Mið-
jarðarhafs" þarf að leiða yfir
Islendinga ástand sem er ó-
samboð’ð sjálfstæði og virð-
ingu þjcðarinnar.
17'n utanríkisráðherra reynir
sem sagt að halda því
fram röksemdalaust að ástand-
ið í heiminum hafi gerbreytzt
síðan Alþingi gerði ályktun
sína 28. marz í fyrra um
brottför hersins og ríkis-
stjórnin hét að framkvæma
hana í stefnuyfirlýsingu sinni
24. júlí i sumar. í hverju eni
aðalbrevt’ngarnar þá fólgnar?
Það hefur orðið uppreisn í
Urgverialandi, sem sýndi að
Vprsjnrbandalagið er mun
ve’kara en talið hafði verið.
Þsssi uppreisn kann að hafa
mikil áhrlf, en sízt af öllu er
hún rókstuðningur fyrir
stefnu hernáms og yalda-
keppni. Uppreisnin hefur nú
verið brotin á bak aftur —
og hvernig er ástatt í Ung-
verjalandi ? Lýsingar Guð-
mundar 'I. Guðmundssonar og
Alþýðublaðsins á ástandinu í
Ungver jalandi nú eru nákvæm-
lega þær sömu og yfirlýsingar
þeirra voru á ástandinu í því
sama landi 28. marz í fyrra
og 24 júlí. Þær yfirlýsingar
voru þá ekki taldar nein rök-
semd fvrir hernámi Islands,
en nú hefur ut.anríkisráðherra
tekið kollstevpu. Hvað veld-
ur ?
17n hvaö þá um „ástandið
fyrir botni Miðjarðar-
hafs“? Þrr gerðust þau tíð-
indi að Bretar og Frakkar
beittu hervaldi sínu til árása
á vanmegna þjóð. Með því
rufu þessi ríki ekki aðeins
stofnskrá Sameinuðu þjóð-
anna, heldur tröðkuðu þau á
sjálfri stofnskrá Atlanzbanda-
lagsins. Árásin á Egyptaland
var mikilvæg röksemd gegn því
að hér á landi væri erlend
herseta á vegum þess banda-
lags. Og hvað gerðist síðan?
Bretar og Frakkar neyddust
til að heykjast á árás sinni,
og nú vínna hersveitir Sam-
einuðu þjóðanna að því að
hrekja alla erlenda heri af
egypzkri grund. En hvað er
þá þetta „ástand fyrir botni
Miðjarðarhafs“ sem felur í
sér „hættu og ógnun fyrir all-
ar frjálsar þjóðir“ ? Er hættan
í því fólgin að forustuþjóðir
Atlanzhafsbandalagsins skyldu
gera slíka ofbeldisárás — eða
ef til viU í hinu að árásin
skyldi mistakast svo herfi-
lega? Vardséð er hvað utan-
ríkisráðherrann á við, en allt
heilskygnt fólk hlýtur að
líta á þróun mála við austan-
vert Miðjarðarhaf, sigur E-
gypta og Sameinuðu þjóðanna,
sem nýja röksemd fyrir því
að hernámi íslands verði af
létt.
IMalflutningur Guðmundar í.
Guðmundssonar er enn
eitt dæmi þess að hernám Is-
lands vsrður ekki réttlætt
með neinum rökum, né heldur
sú afstaða Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins að vilja
ekki fallast á að gengið yrði
frá samningum um brottför
hersins s.l. haust. Og það er
ástæða til að vara utanríkis-
ráðherrann alvarlega við því
að reyna að afgreiða þetta
mál með almennum orðatil-
tækjum, sem hafa enga merk-
ingu og standast enga gagn-
rýni. Sú ákvörðun Alþingis að
fjarlægja herinn úr landi er
ein hin mikilvægasta í sögu
þess um langt skeið, og hún
hlaut staðfestingu mikils
meirihluta þjóðarinnar í kosn-
ingunum í sumar. Fyrirheit
núverandi ríkisstjórnar um að
framkvæma þessa samþykkt
Alþingis og þjóðarinnar er ein
meginundirstaða stjórnarsam-
starfsins; án hennar hefði
þessi ríkisstjórn ekki verið
mynduð. Það skiptir auðvitað
ekki öllu mál hvort herinn
verður rekinn burt nokkrum
mánuðum fyrr eða síðar, en
hitt er ófrávíkjanlegt aðalat-
riði að staðið verði að fullu
við þau fyrirheit sem birt
voru í stjómarsamningnum.
Því meginatriði verður ekki
stjakað til hliðar með almenn-
um ummælum um „hættuá-
stand“ og „óvissu“ einhvers
staðar í heiminum — það
verður án efa lengi hægt að
finna slíkum ummælum stað
og hefur verið hægt alla tíð
síðan Islendingar endurheimtu
fullveldi sitt.
jóðviljinn hefur nokkmm
sinnum séð ástæðu til að
benda á það að vinstri stefna
er ekki orð heldur athafnir.
Það er mjög brýnt að utan-
ríkisráðherra geri sér þetta^
ljóst; honum hefur verið falið
eitt veigamesta atriði stjórn-
arsáttmálans: að ganga frá
brottfcr hersins. Og það er
BJAEM DANSAR RO€K ’N ROLL
1 útvarpsuniræðunum á mánudaginn líkti I.úðvík Jósepsson stefnu stjörn-
arandstöðunnar við tryllingsdansinn Kock ’n roll
— Rock around the stocking
Auðugur konungur -
og líklega ólæs
Ibn Saud, konungur í Saudi-
Arabíu, er einn af tekjuhæstu
mönnum í heimi. Hann fær
300 000 000 dollara fyrir að
leyfa Bandaríkjunum olíu-
vinnslu í hinum gagnauðugu
kosta til hennar 300 000 000
króna, en svo dýra höll hafði
sjálfur sólkóngurinn ekki efni
á að láta reisa.
Ibn Saud var þá um
fimmtugt er hann kom til rík-
is, en það vár árið 1953.
Hann er sagður tröll að vexti,
og svo var faðir hans.
Menntun hans er sögð vera
lítil sem engin, ekki öruggt
að hann sé læs. I höllum
hans, þar sem íburðurinn er
gífurlegri en dæmi eru til,
gegnir fjöldi þræla allri þjón-
ustu. Enginn veit hve margt
þræla er í landinu, en gizkað
er á að þeir séu um 500 000,
en íbúatala landsins er áætl-
uð 5-7 milljónir. Réttarfar er
illt og refsingar grimmilegar,
t. d. er þjófum refsað þannig
að höggnar eru af þeim báðar
hendur. Og örbirgð, vesöld,
og fáfræði meiri en dæmí eru
til um annarsstaðar og er þá
langt til jafnað.
Bíllinn kádiljákur (cadill-
ac) er uppáhaldsfarartæki
konungssonanna. Af þessari
tegund eiga þeir mikla mergð.
En þó að þegnum þessa fyrir-
myndarkonungs sé meinað að
ferðast með flugvélum, á hann
sjálfur fjölda flugvéla, sem
ætlaðar eru eingöngu honum
og skylduliði hans. Ekkí hef
ég séð þess getið, hve margt
kvenna sé í kvennabúri hans,
ekki er óhugsandi, að þær hafi
aldrei verið taldar.
Nú er þjóðhöfðingi þessi í
heimsókn hjá sínum lánar-
drottni, Eisenhower forseta,
og var honum tekið þar með
virktum og s.yni hans, og
hvorki minnzt á pyntingar né
þrælahald. Á heimleiðinní ætl-
ar hann að heimsækja Franco.
F.
IBN SAUD
olíulindum landsins, og renn-
ur upphæðin óskoruð í vasa
hans, og notar hann hana til
heimilisþarfa.
Það mun þykja ólíklegt, að
svo gífurlegri upphæð verði
komið í lóg handa einu heim-
ili, en heimili þetta er í stærra
lagi, og fátt til sparað að gera
það sem veglegast. Synir hans
eru 25 að tölu, og margir
vaxnir, og hefur hann látið
reisa sína höllina handa hverj-
um, er hin tuttugasta og
fimmta í smíðum, og á að
fyrir löngu kominn tími til að
hann framkvæmi þá vinstri
stefnu sem honum var trúað
fyrir.
300 nnglingar handteknir
í Famagusta á Kýpur
Mörg sprengjutilræði þar í gær, skæruliðar
felldir á vesturhluta eyjunnar
300 unglingar og ungir menn innan 25 ára aldurs
,voru í gær handteknir af brezkum hermönnum í borginni
Famagusta á Kýpur.
Undanfarið hafa orðið marg-
ar sprengjingar í borginni og
brezku stjómarvöldin þar
sögðu að unglingamir hefðu
verið handteknir til að koma í
veg fyrir fleiri sprengjutilræði
gegn húsum, þar sem brezkir
menn búa. Samt urðu þar
nokkrar sprengingar í gær.
Tveir skæmliðar féllu fyrir
brezkum vopnum nálægt bæ
einum á vesturhluta Kýpur í
gær. Þeir höfðu sprengt
sprengju undir brezkri herbif-
reið og slasaðist einn hermað-
ur.
Bretar sögðu í gær að þeir
hefðu fundið mikið af skotfær-
um og sprengiefni í einu út-
hverfi Niccosia.