Þjóðviljinn - 08.02.1957, Page 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 8. febrúar 1957
Vanhugsuð tíilaga felld
Framhald af 1. síðu.
við það, eu ég segi nei við
þessari tiílögu eins og hún
liggur hér fyrir.
v Greinargerö Hannibals
Eg tel Alþingi ekki geta
sainþykkt tillögu unv að taka
gilda kosningu ákveðins
manns, án þess að kjörbréf
lians iiggi fyrir til afgreiðslu
liér í þinginu, en er hins veg-
ar þeirrar skoðunar, að Al-
þingi mundi hafa getað látið
í Ijós vilja sinn um rétt
flokka almennt undir sams-
konar kringumstæðum og
hér liggur fyrir, og segi nei
við tilleigunni.
Umrœðurnar
Tillaga Áka Jakobssonar og
Gísla Guðmundssonar var flutt
sem minnihlutatillaga úr kjör-
bréfanefnd, og var svohljóð-
andi:
„Sameinað Alþingi sam-
þykkir að taka Eggert G. Þor-
steinsson gildan sem réttkjör-
inn varamann af lista Al-
þýðuflokksins í Reykjavík."
Umræðurnar hófust með
framsöguræðu Áka Jakobsson-
ar, en auk hans tóku til máls
Bjarni Benediktsson og Alfreð
Gíslason og gerðu grein fyrir
hver sínum minnihluta kjör-
bréfanefndar. Höfðu þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í nefndinni
greitt atkvæði gegn tillögu Áka
og Gísla um að taka gilda
kosningu Eggerts, án kjör-
bréfs. Alfreð Gíslason mótaði
sína afstöðu með þessari til-
lögu:
„Kjörbréfanefnd telur það
utan verksviðs síns (sbr. 4.
gr. þingskapa) að fjalla um
þetta mál, eins og það er
fyrir hana lagt, og skilar því
ekki áliti á þessu stigi.“
I rséðu sinni á þingfundinum
MATAR»t
Nýjar þýzkar
posÉulInsvöriirs
MATARSTELL, 5 skreytingar,
verð frá kr. 1175,00.
KAFFISTELL, 5 skreytingar,
verð frá kr. 498,00.
BOLLAR, 5 skreytingar,
verð frá kr. 15,40.
DISKAR, verð frá kr. 8,30.
Leirvörur
nýkomnar:
SKÁLASETT, 6 skálar,
verð kr. 46,00.
BOLLAR, verð kr. 9,00.
STAKAR SKÁLAR,
verð kr. 4,50.
Búsáhaldadeild
Skólavörðustíg 23 — Sími 1248
rökstuddi Alfreð þetta álit sitt,
en lagði áherzlu á, að með þess-
ari afstöðu til afgreiðslu máls-
ins i kjörbréfanefnd hefði hann
enga afstöðu tekið til efnis-
hliðar málsins.
Einar Olgeirsson ræddi ýtar-
lega um þær greinar stjórnar-
skrár og kosningalaga, sem til
greina koma í þessu máli. Tók
hann skýrt fram að hann teldi
Alþýðuflokkinn eiga tvímæla-
lausan rétt til varaþingmanns
í Reykjavík, en vandkvæði
væru á að samþykkja varaþing-
mennsku Eggerts Þorsteinsson-
ar án þess að Alþingi tæki þá
ákvörðun með breytingu á
kosningalögunum, breytingu
sem væri í fyllsta samræmi við
bókstaf og anda stjórnarskrár-
innar.
Nokkurt hlé var gefið á
fundi áður en atkvæðagreiðsl-
an fór fram, að beiðni Sjálf-
stæðisflokksins, en að því loknu
fór atkvæðagreiðsla fram,
fyrst um kjörbréf Geirs Gunn-
arssonar, er samþykkt var ein-
róma, og svo um tillögu Áka
og Gísla.
ÓeirðÍE í Madrid
Framhald af 1. síðu.
Barcelona, sem hættu að ferð-
ast með almenningsfarartækjum
í síðasta mánuði í mótmæla-
skyni við hækkaniri á fargjölö-
um og síversnandi lífskjör.
Talsmaður Francostjórnarinn-
ar sagði í gær að vitað væri að
þessar aðgerðir hefðu verið
skipulagðar í Barcelona og væru
þar að verki fjandmenn stjórn-
arinnar, bæði í meðal vinstri-
manna og hægrisinna.
Heiðið hátt
Framhald af 2. síðu.
man aðstoðarflugstjóri haltr
ar blístrandi í átt að flugvél
inni, Fjórir-tveir-núll, og lít
ur eftir að allt sé í lagi áðu:
en lagt er upp frá Honolulu
lokaatriðið gerizt á flugvellin
um í San-Francisco, þegar á
höfnin tínist burt.
Leikendur fara yfirleitt á
gætlega með hlutverk sín
John Wayne er viðkunnanleg
ur í gerfi Dan Romans, Claire
Trevor fer með hlutverk Marj
Holst, Larine Day leikuh Ly
diu Rice, Robert Stack Sulli-
van flugstjóra, Jan Sterling
Sally McKee, Pliil Harris Ec
Joseph, Robert Newton Gust-
ave Pardee, David Brian Ken
Childs.
Ekki þarf að efa, að mynd-
in í Austurbæjarbíói verður
vel sótt; lesendur framhalds-
sögu Þjóðviljans fá þar tæki-
færi til að sjá sögupersónurn-
ar á léreftinu, aðrir munu
heldur ekki sjá eftir bíóferð-
inni. iHJ.
Sænskur diplómat lézt í
fangelsi í Moskva 1947
Vitneskja íengin um örlög Raoul Wallenbergs
12 árum eftir hvarf hans í Búdapest
Sænski stjórnarerindrekinn, Raoul Wallenberg, sem
hvarf í janúar 1945 í Búdapest, þar sem hann gegndi
embætti við sænska sendiráöið, lézt í júlí árið 1947 í
fangelsi í Moskva.
Frá þessu er skýrt í orð-
sendingu sem Gromiko, aðstoð-
arutanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, afhenti sænska sendi-
herranum í Moskva í gær, en
sænska stjórnin hefur á und-
anförnum árum margsinnis far-
ið þess á leit við sovétstjórn-
ina að hún grennslaðist fyrir
um hver hefðu orðið afdrif
Wallenbergs.
Lézt í Ljúblankafangelsi
Sovétstjórnin segir að rann-
sókn sem hún hafi látið gera
hafi nú leitt í ljós að Wallen-
berg hafi verið handtekinn í
Búdapest og fluttur þaðan í
fangelsi í Moskva. Hann hafi
látizt aðfaranótt 17. júlí 1947
af hjartameini. í skjalasafni
sjúkradeildar fangelsisins hafi
fundizt afrit af bréfi sem for-
stöðumaður deildarinnar hafi
sent Abakúmoff, sem þá var
öryggismálaráðherra Sovétrikj-
anna, og sé skýrt frá andláti og
banameiui Wallenbergs í þessu
bréfi. Lík hans var brennt án
þess að það væri krufið.
Haldið. leyndu fyrir
utanríkisráðuneytinu
Sagt er í orðsendingunni að
Abakúmoff hafi bæði haldið
handtöku og andláti Wallen-
bergs leyndum fyrir utanríkis-
ráðuneyti Sovétríkjanna, og
hafi það verið einn liðurinn í
afbrotum hans. Abakúmoff var
viðriðinn mál Beria og var eins
STAÐFEST var i Wa,shington í
gær að þangað væri á næstunni
væntanleg liefnd frá Póllandi til
að semja um viðskiptasamband
Póllands og Bandaríkjanna.
Sagt var að Pólverjar hefðu á-
huga á að fá að kaupa með
lánskjörum ýmsar vörur af of-
framleiðslubirgðum Bandaríkj-
anna, t.d. hveiti og baðmull.
og hann dæmdur til dauða og
tekinn af lífi árið 1954.
Sovétstjórnin segist harma
mjög það sem gerzt liafi og
lætur í ljós samúð með ætt-
ingjum Wallenbergs.
Sænska stjórnin sagði í gær
að henni þætti miður að sovét-
stjórnin skyldi ekki hafa gert
nánari grein fyrir máli Wallen-
bergs en gert var í orðsending-
unni. Engin skýring væri þar
gefin á því fyrir hverjar sakir
hann var handtekinn né hvað á.
daga hans dreif næstu árin eftir
handtökuna.
Nefndakjör
Framhald af 3. síðu.
um var kosinn Geir Hallgríms-
son, verkfræðingur í þjónustu
bæjarins Ingi Ú. Magnússon og
óbundinni kosningu Sigurður
Sigurðsson.
Varamenn í sömu röð : Auð-
ur Auðuns, Sveinn Torfi
Sveinsson og Friðrik Einarsson.
I sóttvarnanefnd var kosinn
dr. Sigurður Sigurðsson.
Til að semja verðlagsskrá
var kosinn Þorsteinn Þorsteins-
son.
Stjórn lífeyrissjóðs
í stjórn lífeyrissjóðs voru
kosin Auður Auðuns og Geir
Hallgrímsson af lista Ihaldsins
Alfreð Gíslason af lista vinstri
manna.
Endurskoðendur
bæjarreikninganna
Endurskoðendur bæjarreikn-
inganna voru kosnir Ari Thor-
lacius, Ólafur Friðriksson og
Eggert Þorbjarnarson. Vara-
menn: Björn Steffensen, Óskar
Sigurðsson og Magnús H.
Jónsson.
FACOSNIÐ - FACOSNIÐ - FACOSNIÐ - FACOSNIÐ
O Molskinnsjakkar
U á drengi og fidlorðna
Allar stœrðir.
Sendum gegn póstkröfu
Verzlunin F A C 0 , Laugaveg 37. — Sími 81777
MUNIÐ
Kaffisöluna í Hafnar-
stræti 16.
Næst verða málverk. — Þeir, sem óska
að selja málverk á næsta uppboði, eru beðnir
að láta vita um það sem íyrst.
Listmunauppboð
Sigurðar Benediktssonar,
Austurstræti 12 — Sími 3715