Þjóðviljinn - 21.02.1957, Side 3
Fimmtudagur 21. febrúar 1957 — ÞJÓÐVTLJINN — (3
Áthuganir um möguleika
á leiriðnaði á Islandi
Allsherjarnefnd sameinaSs þings hefur lagt til aö
athuguð verði leirlög um land allt, ef verða mætti undir-
staða. leiriðnaðar hér landi.
Er tillaga allsherjarnefndar
um breytingu á tillögu er
Friðjón Þórðarson flutti um
rannsóknir til undirbúnings
leirverksmiðju í Búðardal í
Dalasýslu.
Fer hér á eftir álit þriggja
sérflóðra aðila um mál þetta.
Álit Iðnaðarmála-
stoínunar íslands
28. desember 1956.
Vér höfum haft til umsagn-
ar bréf allsherjarnefndar frá
6. desember, þar sem beiðzt er
umsagnar Iðnaðarmálastofn-
unarinnar um tillögu til þdngs-
ályktunar um að láta nú þeg-
ar fullrannsaka hvort hag-
kvæmt muni vera að reka leir-
verksmiðju að Búðardal í
Dalasýslu.
Svo virðist, sem Islendingar
hafi mjög takmarkaðan áhuga
á að hagnýta leir sinn á liðn-
um áratugum, enda hefur
varla um annan iðnað verið að
ræða á þessu sviði en listiðn-
að.
Teljum vér tímabært, að ís-
lendingar hefjist handa um
að hagnýta þau verðmæti, sem
fólgin eru í leirnum, í stærri
stíl en verið hefur og fram-
leiði m.a. ýmsar vörur til
bygginga, sé slíkt arðvænlegt.
Þótt ýmsar rannsóknir hafi
verið gerðar á leirlögum hér
og tilraunir verið gerðar með
framleiðslu úr íslenzkum leir
síðustu þrjá áratugi, virðast
ekki liggja fyrir niðurstöður,
sem unnt væri að byggja á nú
að öllu leyti, og teljum vér
því æskilegt, að efnt sé til
sérstakrar athugunar, eins og
gert er ráð fyrir í tillögu til
þingsályktunar.
Hr. Guðmundur Einarsson
frá Miðdal hefur greint oss
frá ýmsum athugunum og að-
gerðum síðustu þrjátíu ár,
sem hafa miðað að því að
stofiia til aukinnar leirvinnslu
hér á landi. Teljum vér æski-
legt, að þeim aðila, sem yrði
falið að gera athugun vegna
leirverksmiðju í Búðardal,
yrði einnig falið að safna sam-
an þeim fróðleik, sem til er um
fyrri rannsóknir, og gefa síð-
an út bók eða rit um efnið,
ef ástæða þætti til.
Virðingarfyllst,
Iðnaðarmálastöfnun íslands,
Sveinn Björnss., framkvstj.
Álit Rannsóknarráðs
ríkisins
Reykjavík, 18. des. 1956.
í tilefni af bréfi yðar, dag-
settu 6. þ.m., hefur rann-
sóknaráð tekið til athugunar
tillögu til þingsályktunar um
undirbúning að byggingu leir-
verksmiðju að Búðardal í
Dalasýslu.
» Rannsóknaráð hefur leitað
álits sérfróðra manna um mál-
ið, og fylgir hér með greinar-
gerð frá Tómasi Tryggva-
syni jarðfræðingi.
Svo virðist sem leirinn við
Búðardal sé hæfur í grófan
leiriðnað, svo sem múrsteina,
pípur og þakhellur. Hins veg-
ar er engan veginn öruggt, að
hægt sé að finna hagrænan
grundvöll fyrir slíkan iðnað.
Oss virðist því ekki tíma-
bært að hefja alhliða undir-
búningsrannsóknir fyrir leir-
verksmiðju í Búðardal, en
sem undirbúningsathugun
mætti fá þar til hæfan mann
til þess að gera kostnaðar-
áætlun fyrir stofnun og rekst-
ur leirverksmiðju í Búðardal,
og væri þá gengið út frá, að
nægar birgðir af nothæfu hrá-
efni væri fyrir hendi. Yrði
sérstaklega að taka til athug-
unar flutningskostnað og
orkuþörf. Einnig væri rétt að
fá samanburð við rekstur
verksmiðju, sem staðsett væri
nær aðalnotendasvæðinu fyrir
framleiðslu verksmiðjunnar.
Virðingarfyllst,
Rannsóknaráð ríkisins,
Þorbjörn Sigurgeirsson.
Álit Atvinmideildar
Háskólans
Reykjavík, 13. des. 1956.
Vegna bréfs allsherjar-
nefndar sameinaðs Alþingis,
dagett 6. des. 1956, hefur
rannsóknaráð ríkisins æskt
umsagnar undirritaðs um
þingskjal 26 1956, tillögu til
þingsályktunar um undirbún-
ing að byggingu leirverk-
smiðju að Búðardal í Dala-
sýslu.
Islenzkur leir er yfirleitt
járnríkur og hentar þess vegna
bezt sem hráefni í grófar og
ódýrar iðnaðarvörur, þar sem
litlar kröfur eru gerðar til
hráefnisins. Má þar nefna
múrsteina til bygginga, pípur
í holræsi og ef til vill þak-^
hellur. Árleg þörf okkar á
leirmunum til skrauts, heimil-
isþarfa og fyrir rafmagnsiðn-
að er svo lítil, að litlu máli
skiptir, hvort hráefnið er sótt
til útlanda eða tekið í landinu
sjálfu.
Steinar úr brenndum leir
eru að vísu ágætt byggingar-
efni og hafa löngum verið
notaðir umfram steinsteypu
víða erlendis í venjulegar
byggingar. Þróuninni miðar
samt í þá átt, að steinsteypan
vinnur jafnt og þétt á í sam-
keppninni við brenndu múr-
steinana.
Vegna hins háa flutnings-
kostnaðar í strjálbýlinu á Is-
landi er þess sízt að vænta,
að brenndur múrsteinn gæti
orðið ódýrara byggingarefni
en steinsteypa á Islandi.
Þakhellur úr brenndum leir
eru dýrari vara en brenndur
múrsteinn og mundi þess
vegna fremur þola flutninga
en múrsteinninn. Á hinn bóg-
inn er ekki fullkunnugt um
það, hversu heppileg þak-
klæðning þær eru í íslenzku
tíðarfari.
Súrt jarðvatn tærir stein-
steypu, en hefur lítil áhrif á
brenndan leir. Væri þess vegna
æskilegt, að unnt væri að nota
pípur úr brenndum leir frem-
ur en steinsteypu í hvers kon-
ar pípuræsi, svo sem skolp-
lagnir, lokaða framræslu-
skurði o. s. frv.
Hér á landi er þörfin fyrir
slík pípuræsi langsamlega
mest við sunnanverðan Faxa-
flóa og á Suðurlandsundir-
lendinu. Mjög yrði dýrt og
úrgangssamt að flytja svo
þungan og brothættan varn-
ing sem brenndar leirpípur frá
Búðardal til Reykjavíkur, og
hníga öll hagræn rök á móti
slíkum flutningi, þar eð not-
hæft hráefni mun vera fyrir
hendi nær áfangastaðnum.
Virðingarfyllst,
Atvinnudeild háskólans,
iðnaðardeild,
Tómas Tryggvason.
á bókamarkaðinum í Listamannaskál-
anum er hægt að gera góð kaup
Ýmsar bókanna munu þrjóta næstu daga
Fjórtán bókaútgefendur hafa opnað bókamarkað í
Listamannaskálanum og eru þar hundruö bóka. Sumar
þeirra eru á þrotum eöa munu þrjóta einhvern næstu
daga.
Bókamarkaður þessi er á
vegum sölunefndar Bóksalafé-
lags Islands og eiga a. m. k.
14 útgefendur bækur á mark-
aðinum.
Öðru hverju hefur verið efnt
til svipaðra bójcamarkaða og
eru ástæður til þess ýmsar, en
þessar helztar: Geymslu- og
sýningarpláss útgefenda er tak-
markað og því vill það oft
verða að nýlegar bækur eru
látnar rýma fyrir nýjum og
grafast þannig smám saman
bak við yngri bækur.
Oft er það einnig að bækur
seljast upp hjá útgefanda að
hausti og eru ófáanlegar hér
um sinn, en þegar frá líður
koma eintök utan af landi er
tíTSALA - CTSALA - tlTSALA
UTSALA
HEFSTIDAG
Kjólar frákr. 95.00
tilkr. 995.00
ekki hafa selzt þar. Nokkur
eintök af þannig „horfnum“
bókum eru nú til sölu í Lista-
mannaskálanum.
Margar bókanna á markaðn-
um eru 10—15 ára gamlar,
nokkrar eldri, en flestar munu
þær gefnar út fyrir 1954. Á
síðustu árum hefur bókaverð
hækkað mjög og eru eldri bæk-
ur því orðnar mjög ódýrar,
miðað við þær sem t. d. voru
gefnar út s.l. ár. Af mörgum
bókanna á markaðinum er að
sjálfsögðu töluvert til, en af
öðrum er lítið eftir og af
nokkrum eru aðeins örfá ein-
tök er geta þrotið fyrr en varir.
Þeir sem hug hafa á bóka-
kaupum, eða vantar eitthvað
af eldri bókum ættu því að
líta inn í Listamannaskálann
næstu daga, en markaðinum
lýkur eftir viku.
ALLT A» 75% AFSLÁTTLR
GULLFOSS
AÐALSTRÆTI
Frá
ÞjMjaiim:
AFGBEIÐSLA
blaðsims er opin alla
virka daga frá kl. 9—6
(opið í hádeginu) nema
laugardaga frá
12 f. h.
kl. 9—
SKRIFSTOFAN og
AUGI.ÍSINGA-
SKRIFSTOFAN
eru opnar alla virka
daga frá kl. 9-12 f.h. og
1-6 e.h. nema laugardaga
frá kl. 9-12 f.h.
KVARTANIR
um vanskil á blaðinu
þurfa að koma á af-
greiðslutíma, komi þær
á öðrum tímum er hætta
á að þær komist ekki
til afgreiðslunnar.
ÞI6ÐVIUINM
Sím 7600