Þjóðviljinn - 21.02.1957, Side 5
Fimmtudagur 21. febrúar 1957.— ÞJÓÐVILJINN — (5
Hörkurifrildí í Hvíta hésirtu
Eisenhower og þingleiStogar ósam-
mála um refsiaÓgerSir gegn Israel
IÐJA, félag verksmiðjufólks
Alvarlegur ágremingur um afstöðuna til ísi'aels er kom-
ínn upp milli þings og stjórnar Bandaríkjanna.
I gær boðaði Eisenhower for-
seti tólf þingleiðtoga, sex úr
hvorum flokki, á fund sinn í
forsetabustaðnum. Með forset-
anum voru á fundinum Dulles
utanríkisráðherra og Lodge, að-
alfulitrúi Bandarikjanna hjá SÞ.
Ávarpar þjóðina
Fréttamenn í Washington
segja, að fundur þessi hafi ver-
ið sá hávaðasamasti, sem hald-
inn hefur verið í Hvíta húsinu
síðan Eisenhower varð forseti.
Hann og embættismenn hans
lýstu yfir, að þeir teldu að
að auknum viðskiptum er
auglýsing í Þjóðviljanum
Bandaríkin yrðu að taka þátt
í refsiáðgerðum gegn fsrael ef
SÞ samþykktu þær. Þingleið-
togarnir höfðu aftur á móti
flestir lýst yfir, að ekki kæmi
til mála að beita ísrael refsi-
aðgerðum, þótt fsraelsstjórn
neitaði að kalla her sinn heim
frá Gaza og suðurodda Sínaí-
skaga.
Það eina sem hafðist upþ úr
þingmönnunum um fundinn í
Hvíta húsinu var, að ekkert
samkomulag hefði náðst. Strax
að fundinum loknum lét Eisen-
hower tilkynna, að hann myndi
ávarpa þjóðina í útvarpi og
sjónvarpi og gera grein fyrir
áliti sínu á málunum fyrir botni
Miðjarðarhafs.
Fulltrúar Afríku- og Asíu-
ríkja á þingi SÞ hafa ákveðið að
leggja fram tillögu um að ísra-
el verði beitt refsiáðgerðum fyr-
ir að neita að rýma egypzkt
TILKYNNING
frá Sérleyfisbifreiðum
Keflavíkur
Frá og með 17. þ.m. verður ekið frá Reykjavík kl. 3.15
e.h. til Keflavíkur og þaðan áfram til Garðs og Sand-
gerðis kl. 4.30 e.h. Og frá Sandgerði verður aftur ekið
kl. 5.15 e.h. til Keflavíkur og áfram til Reykjavíkur.
Frá sama tíma verður sú breyting á, að ferðin Reykja-
vík — Stafnes, verður Reykjavík — Sandgerði kl. 1.15
e.h. og Stafnes — Reykjavík, verður Sandgerði —
Reýkjavík kl. 3.15 e.h.
land. Fundi Allsherjarþingsins
um málið hefur þegar verið
frestað þrisvar að beiðni Banda-
ríkjastjórnar, sem er milli
tveggja elda. Leggist hún gegn
refsiaðgerðum er öll viðleitni
Eisenhowers til að virígast við
arabaríkin unnin fyrir gíg. Léggi
hún hinsvegar refsiaðgerðum lið
mun enn slettast upp á vin-
skap Bandaríkjanna við Bret-
land og Frakkland, auk þess sem
komið getur til harðra átaka
milli þings og stjórnar í Banda-
ríkjunum.
Hansen, forsæt;sráðherra Dan-
merkur, sagði í ga;r að danski
fulltrúinn á þingi SÞ myndi
ekki fylgja refsiaðgerðum gegn
Israel.
Allsherjar atkvæða-
sreiðsla
um kjör stjórnar, trúnaðarmannaráðs og endur-
skoðenda Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík,
fer fram á skrifstofu félagsins, Þórsgötu 1, laugar-
daginn 23. þ.m. og sunnudaginn 24. þ.m.
Kosningin hefst á laugardaginn kl. 1 e.h. og
stendur yfir til kl. 9 e.h. Á sunnudag hefst kosn-
ing kl. 9 f.h. og stendur til kl. 5 e!h. og er þá
lokið.
KJÖRSTJÓRN IÐJU.
Auglýsið í Þjóðviljanuiu
Fnndnr
Knattspyrnusamband íslands boðar til fundar næst-
komandi sunnudag 24. þ.m., kl. 2 e.h. í kvikmyndasal
Austurbæjarbarnaskólans, fyrir stjómir knattspymu-
ráða, íþróttabandalaga, knattspymufélaga, knattspyrnu-
menn, þjálfara, nefndir og aðra, sem að knattspymu-
málum starfa í Reykjavík og nágrenni.
DAGSKRÁ:
1. Ávarp. — Formaður K.S.1.
2. Erindi. — Benedikt Jakobsson.
3. Erindi — Kari Guðinundsson.
4. Albert Guðmundsson ræðir um knattspymu
í Frakklandi og Relgfti.
5. Frjálsar umræður.
6. Kvikmynd.
Þess er vænst, að ofangreindir aðilar
fjölmenni stundvíslega.
KNATTSPYRNUSAMRAND ISLANDS
aaaBas •■;■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■>■■*■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i
Trésntiðafálag Reykjavíkur
ALLSHERJflRATKVÆÐAGBEIBSLA
um kjör stjórnar og fleira, stendur yfir á laugar-
dag, 23. þ.m, kl. 14 til 22 og sunnudag 24. þ.m.,
kl. 10 til 12 og 13 til 20.
STJÓRNIN.
SaistelMaHa gislMsklpafélagié
(B.F.B.S.)
Á/ETLUN M.S. DRONNING ALEXANDMNE IANÚAR—SEPTEMBER 1957
Frá Kaupmannaliöfn:
15/1, 31/1, 19/2, 8/3, 26/3, 12/4, 27/4 22/5. 17/6, 12/7, 27/7, 10/8, 27/8, 13/S
Frá Reykjavík:
22/1, 9/2, 28/2, 16/3, 4/4, 20/4, 13/5, 8/6, 3/7, 20/7, 3/8, 19/8, 3/9, 21/9
#
Komið við í Færeyjum í báðum leiðum, nema 27/4, 22/5, 17/6, þásiglir skipið beint
frá Kaupmannahöfn til Grænlands og þaðan til R.víkur, Færeyja og Kaupmannahafnar.
Breytingar á brottfaradögum, eða að skipsferð falli niður getur ávallt átt sér stað
fyrirvaralaust, ef kringumstæður kefjast þess.
Gegimmgangandi llutningur tekinn tii og Irá ýmsum iöndum
víðsvegar um heim. — Tekið á móti farmiðapöntunum nú þegar.
FARGÍÖLD
(fæði, þjónustugjald
og skáttur innifalið):
Rvík.-Kbli. Rvík.-Þórsli.
1. farrými C-þilfar ..... kr. 1218.00 kr. 555.00
1. farrými D-þilfar ..... kr. 1137.00 kr. 515.00
2. farrými .............. kr. 812.00 kr. 352.00
3. farrými .............. kr. 582.00 kr. 271.00
Skipaafgreiésla Jes Zimsen
— Erlendur Pétursson —
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Mænuséftirl
í Reykjavík
á börnum og únglingum, sem EKKI voru bólusett í haust, fer fram í Ueilsu-
verndárstöS Reykjavíkur í dag og næstu daga. Aldursflokkar mæti sem hér
segir:
Fimmtudaginn 21. febr.: 16 ára og yngri
Föstudaginn 22. íebr.: 17 ára.
Mánudaginn 25. febr.: 1.8 ára.
Þriðjudaginn 26. febr.: 19 ára.
Miðvikudaginn 27. febr: 20 ára.
OpiÖ verður þessa daga kl. 9—12 f.h. og 1—5 e.h.
Inngangur frá Barónsstíg, norSurdyr.
Gjald fyrir bólusetninguna öll þrjú skiptin verða kr. 30,00, sem greiðist viö
skrásetningu. Fólk er vinsamlega beöið að hafa meö sér rétta upphæð, til aö
flýta fyrir afgreiðslu.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur