Þjóðviljinn - 21.02.1957, Síða 10
10) _ ÞJÓÐVILJINN — Fmuntudagnr 21. febrúar 1957
Allar tillögur meirihluta ijár-
veitinganefndar samþykktar
Framhald af 7. síðu.
greiða sitt framlag nema eftir
því, sem fé var til þess veitt á
fjárlögum árlega í einni fúlgu,
sem fræðslumálastjórn skipti
milli þeirra héraða, sem í fram-
kvæmdum stóðu. Var þess
vegna héruðunum að mestu í
sjálfsvald sett, hve þau stofn-
uðu til mikilla skulda af hálfu
ríkisins, — og skuldirnar hlóð-
ust upp til leiðinda og tjóns.
Til þess m. a. að reyna að
ráða hér bót á voru sett lög 6.
mai 1955 um greiðslu kostnað-
ar við skóla. Þau komu til
fullra framkvæmda með árinu
1956. Ákveða þau, að ríkinu sé
skylt a’ð greiða sitt framlag
til bygginganna á eigi skemmri
tíma en 5 árum eftirleiðis, en
jafnframt ákveða þau, að Al-
þingi skuli skipta fjárveiting-
um árlega til þeirra, er byggja,
og að engum sé heimilt að
hefja byggingarframkvæmdir,
„fyrr en fyrsta fjárveiting er
fyrir hendi“.
Alþingi skipti þessum fjár-
veitingum í fyrsta sinn á fjár-
lögum 1956. Þá voru í smíðum
24 barnaskólar, sem rétt óttu
til framlags. Við þá tölu bætti
Alþingi 18 skólum. Einnig voru
þá í smíðum 10 gagnfræða- og
héraðsskólar. Við þá tölu bætti
Alþingi 4 nýjum skólum Alls
urðu fjárveitingarnar þá til
þessara skóla (ásamt tilheyr-
andi skólastjórabústöðum og
hlutdeild skóla í íþróttahúsum)
8.950.000 kr.
Þegar fjárveitinganefnd nú
fór að athuga sömu liði vegna
fjárlagaafgreiðslunnar 1957,
blasti við, að ef ekki átti að
reisa ríkissjóði hurðarás um
öxl eða stofna til öngþveitis,
varð að takmarka mjög upp-
töku nýrra skóla, þótt margir
óskuðu þess að fá byrjunar-
fjárveit'ngar. Sjá þarf betur
fram úr með skuldbindingar
fyrsta fimm ára tímabilsins áð-
ur en miklu er á hlaðið.
Enn fremur kom í ljós við
athugun, að fæstir umsækjend-
ur, sem vildu fá byrjunarfjár-
veitingu, höfðu lokið þeim und-
irbúningi, sem lögin taka fram
að þeir skuli láta gera áður en
til fjárveitingar kemur á Al-
þingi.
Tillögur fjárveitinganefndar
eru í samræmi við framanritað
þær, að Aiþingi veiti að þessu
sinni byrjunarframlag til fjög-
urra barnaskólabygginga,
tveggja gagnfræðaskólabygg-
inga og hlutdeildar í einu i-
þróttahúsb
Þrátt fyrir þessa takmörkun
verða þó veitingarnar til fram-
kvæmdanna, þ. e. skóla í smíð-
um og nýrra skóla, 11.420.000
kr. eða 2.470.000 kr. hærri en
á fjárl. 1956.
Meiri hl. fjárveitinganefndar
leggur áherzlu á það, að eftir-
leiðis láti öll skólahéruð, sem
sækja um byrjunarfjárveit-
ingu, fylgja umsóknum sínum
skilríki um að kostnaðaráætlun
og teikning bygginganna hafi
hlotið samþykki menntamála-
ráðherra og húsameistara rík-
isins. Lögin mæla svo fyrir,
enda öllum aðilum fyrir beztu,
að ekki sé hrapað að þessum
framkvæmdum.
Lagt er til að áætla ráðs-
konukaup við heimavistarskól-
ana 26 þús. kr. hærra en gert
er í frumvarpinu, og er það til
samræmis við raunverulegan
kostnað.
Eiðaskóli er fimmtugur á
þessu ári og ráðgerir að gefa
út minningarrit í tilefni þess.
Lagt er til, að 40 þús kr.
styrkur verði veittur til rits-
ins.
íþróttasjóður er þess van-
megnugur sökum fjárskorts að
fullnægja því hlutverki, sem
honum er ætlað. Lagt er til, að
framlag til hans verði aukið
um 400 þús. kr., og ætti það að
greiða nokkuð fyrir starfi hans,
þótt því fari fjarri, að vandi
hans sé þar með leystur.
Fyrirhugað er, að Islending-
ar taki þátt í Evrópumeistara-
móti í frjálsum íþróttum sum-
arið 1958 í Sviþjóð. Þótti
nefndmni vert að sinna ósk í-
þróttamanna um fjárhagsað-
stoð til þeirrar ferðar og legg-
ur til, að 40 þús. kr. styrkur í
þessu skyni verði tekinn á
þessa árs fjárlög.
Þá er lagt til, að styrkur til
Alþýðusambands fslands verði
hækkaður um 75 þús. kr. og
upp tekinn 25 þús. kr. styrkur
til Bandalags starfsmanna rikis
og bæja.
Bókmenntir, listir og
vísindi.
Á áætlun um framlag til
gamalla bæja í umsjá þjóð-
minjasafnsins er lögð til 10
þús. kr. hækkun til leiðrétting-
ar. Þá hefur þjóðminjavörður
bent á, að þak það, sem sett
var á sínum tíma yfir rústirn-
ar í Stöng í Þjórsárdal þeim til
hlífðar, sé nú að falli komið,
og óskar hann fjárveitingar til
að endurnýja það. Nefndin ger-
ir tillögu um, að orðið verði
við þeim tilmælum þannig, að
fjárveiting til þess skiptist á
tvö ár.
" Lagt er til, að styrkur til
náttúrugripasafnsins á Akur-
eyri hækki um 10 þús. kr. og
styrkur til Náttúrufræðifélags-
ins um 5 þús, kr. vegna útgáfu
„Náttúrufræðingsins“.
Raflagnir í safnahúsinu
þykja ótryggar, og e^ endur-
nýjun þeirra talin nauðsyn-
leg, enda mikils um vert að
forðast eldhættu á þeim stað,
og er lagt til, að gjöld vegna
þeirrar endurnýjunar hækki
um 100 þús. kr.
Smávægilegar hækkunartil-
lögur eru um framlög til sjó-
mannalesstofa.
Rímnafélagið undirbýr út-
gáfu á rímnaskrá og sækir um
sérstaka fjárveitingu til þess
verks. Er lagt til, að veittar
verði til þess 25 þús. kr.
Dr. Jón Dúason hefur notið
nokkurs styrks til fræðiiðkana
og útgáfustarfsemi á undan-
förnum árum. í frumvarpinu
er ekki gert ráð fyrir styrk til
hans, en nefndin leggur til, að
hann njóti nokkurs styrks til
útgáfu rita sinna.
Tillögur eru um tvo orða-
bókarstyrki, annars vegar 10
þús. kr. styrk til Ingvars G.
Brynjólfssonar, sem vinnur að
íslenzk-þýzkri og þýzk-íslenzkri
vasaorðabók, og hins vegar 25
þús. kr. hækkun á styrk til
hinnar miklu íslenzku orðabók-
ar, sem unnið er að á vegum
háskólans, og mun Sáttmála-
sjóður hækka sitt framlag til
þessa verks um aðrar 25 þús-
undir, að fengjnni þeirri hækk-
un ríkisframlags, sem hér er
gerð tillaga um.
Héraðsskjalasöfn, sem afla
sér hjá Þjóðskjalasafninu
filmu-eftirrits af skjölum varð-
andi sitt umdæmi, hafa not-
ið nokkurs styrks sum undan-
farin ár. Nú er lagt til, að slík-
ur styrkur verði veittui hér-
aðsskjalasafni Suður-Þingey-
inga.
Laun til skálda, rithöfunda
og listamanna eru í tillögum
nefndarinnar hækkuð um rúm-
lega 200 þús. kr. eða rösklega
20 af hundraði og vísinda- og
fræðimannastyrkur í hlutfalli
við það um rösklega 30 þús.
kr.
íslenzkir myndlistarmenn
hafa ráðið þátttöku sína í nor-
rænni sýningu, sem fram á að
fara í Gautaborg á sumri kom-
anda. Lagt er til, að þeir njóti
til þess 50 þús. kr. styrks.
Þá er lagt til, að styrkur til
myndlistarskólans í Reykjavík
hækki um 10 þús. kr. og að
upp verði tekinn nýr styrkur,
10 þús. kr. til myndlistarskól-
ans í Vestmannaeyjum.
Tillaga er um 20 þús. kr.
hækkun á styrk til Leikfélags
Reykjavíkur og 5 þús. kr. styrk
til leikfélags í Kópavogi. Enn-
fremur er tillaga um að rekstr-
arstyrkur Bandalags íslenzkra
leikfélaga verði hækkaður um
25 þús kr. og að því verði í
ár veittur stérstakur styrkur
til að standa straum af vænt-
anlegri heimsókn og leiksýn-
inguni norskra leikara á ýms-
um stöðum hérlendis.
Nýr tónlistarskóli hefur tek-
til til starfa á Hvolsvelli, og er
lagt til, að hann verði styrkt-
ur á sama hátt og aðrir sam-
bærilegir skólar.
Allmargar lúðrasveitir hafa
að undanförnu notið styrks til
hljóðfærakaupa. Lagt er til, að
þessir styrkir verði framvegis
ekki bundnir við hljóðfæra-
kaup, en verði almennir starfs-
styrkir, bundnir skilyrði um
mótframlag annars staðar að,
og hækki úr 8 í 10 þús. kr..
Þá er lagt til, að þrjár lúðra-
sveitir með slíka styrki bætist
við þær, sem á frumvarpinu
eru, svo og Samband íslenzkra
lúðrasveita með 10 þús. kr.
styrk.
Kvæðamannafélagið Iðunn
hyggst taka upp á segulbönd
raddir ýmissa kvæðamanna til
að varðveita gömul kvæðalög
frá glötun, og er lagt tii, að
það fái 10 þús. kr. styrk til
þeirrar starfsemi.
Lagt er til, að Guðmunda
Elíasdóttir söngkona fái 8 þús.
kr. styrk á þessu ári.
Þá eru tjllögur um.tvo nýja
styrki til fræðimanna úr al-
þýðustétt, Vilhjálms Ögmunds-
sonar bónda á Narfeyri, sem
iðkað hefur stærðfræðilegar
athuganir um langt skeið og
hlotið viðurkenningu hálærðra
stærðfræðinga fyrir fræði sin,
og Þorsteins Jónssonar i Lauf-
ási í Vestmannaeyjum, sem í
löngu starfi sínu sem formaður
á fiskibátum hefur haldið til
haga margháttuðum fróðleik
um fiskimiðin við Vestmanna-
eyjar og gert af þeim sérstaka
uppdrætti, sem gefnir hafa ver-
ið út.
Tillaga er um smávægilega
hækkun á framlagi til minn-
ingarlundar Þorsteins Erlings-
sonar að Hlíðarendakoti í
Fljótshlíð.
Lagt er til, að bætt sé við
sem svarar hálfum sérfræð-
ingslaunum við landbúnaðar-
deild atvinnudejldar liáskólans.
Er það vegna væntanlegrar
ráðningar sérfræðings í jarð-
rækt (jurtakynbótum), en
maður til þeirra starfa er
væntanlegur heim frá námi er-
lendis á miðju ári.
Rannsóknarstofa háskólans
er talin þurfa að fá 55 þús.
kr. hækkun á framlagi vegna
nýju yfirfærslugjaldanna, og
er sú breyting lögð til.
I ráði er að koma upp sér-
stakri stöð fyrir mælingar á
geislavirkum efnum, og er til-
laga um 100 þús kr. framlag í
því skyni.
Endurskoðun á áætlunum
veðurstofunnar hefur sýnt, að
nauðsynlegt má teljast að
hækka framlag til þeirrar
stofnunar um 42 þús. kr., og
er tillaga gerð um það.
Við það að sjókortagerðin
hefur nú flutzt inn í landið, er
framlag til hennar, 200 þús. kr.
talið nauðsynlegt.
Eftirlit við opinberar bygg-
ingar verður stöðugt umfangs-
meira með hverju ári. Er nú
lagt til, að veittar verði 85 þús.
kr. til kaupa á bifreið vegna
þeirrar starfsemi.
Atvinnumál.
Lagt er til, að framlag til
starfsemi Búnaðarfélagsins
hækki um 50 þús. kr. og til
Fiskifélagsins um sömu upp-
hæð. Hafa bæði þessi félög
haft uppi óskir um meiri hækk-
anir en hér eru lagðar til
Varðandi fyrirhleðslur í
vötnum og vamargarða gegn
sjávarágangi eru lagðar til
miklar hækkanir, og er þó lík-
legt, að fyrir 3. umr. verði
bætt við fleiri tillögum um
sjóvarnargarða. Nema hækkun-
artillögur vegna fyrirhleðslna í
vötnum 275 þús. kr., en tillög-
ur vegna sjóvarnargarða 594
þús kr.
Sandgræðslan gþmir við stór
verkefni og mikilsverð, og er
lagt til, að framlög til hennar
hækki um 170 þús. kr.
Varðandi skógræktina er
lagt til, að henni verði veittar
50 þús. kr. til skjólbeltarækt-
ar.
Lagt er til, að styrkur til
Garðyrkjufélagsins hækkj um
8 þús. kr.
f Laxá í Vindhælishreptíi
hefur verið gerður laxastigi, og
ber samkvæmt lögum að taka
þátt í kostnaði við hann.
Lög um iðnfræðsluráð hafa
ekki verið framkvæmd nema
að litlu leyti til þessa. Ei nú
ætlunin að auka framkvæmd
þeirra laga nokkuð, og hefur
það kostnað í för með sér.
Gerð er tillaga um 110 þús. kr.
hækkun á þeim lið.
Félagsmál.
Greiðsluskylda ríkissjóðs
vegna laga um atvinnuleysis-
tryggingar reynist meiri en á-
ætlað hafði verið, og er lagt
til, að áætlunarframlagið til
þeirra trygginga verði hækkað
um 2 millj. kr.
Þá hefur komið í ljós, að
ekki hefur verið gert ráð fyrir
kostnaði ríkissjóðs af vinnu-
miðlun, sem þó er ákveðin í
lögum nr. 52/1956, og er gerð
tillaga um 150 þús. kr. fjárveit-
ingu til að mæta þeirri skyldu.
Lagt er til að Elliheimilinu
i Skjaldarvik verði veittur sér-
staklega 20 þús. kr. styrkur til
að lagfæra veginn af þjóðveg-
inum heim að heimilinu.
Til væntanlegs orlofsheimil-
is verkalýðssamtakanna er lagt
til.að veitt verði l.millj. kr.
Á fjárlögum sl. árs var 50
þús. kr. fjárveiting til raf-
magnsheimtaugar að bama-
heimilinu Sólheimum í Gríms-
nesi. Lagt er til, að sama fjár-
veiting verði í ár í þessu skyni
og sé það lokagreiðsla.
Blindravinafélagið hefur með
höndum útgáfu bóka á blindra-
letri, og er lagt til, að sú starf-
semi sé styrkt með 20 þús.
kr. framlagi.
Lagt er til að flugbjörgunar-
sveitin haldi sama styrk og á
sl. ári.
Vegna alveg sérstæðra áfalla,
er konan Rósa A. Georgsdótt-
ir hlaut fyrir nær 10 árum, er
lagt til að henni verði veittar
150 þús. kr. bætur, er greiðist
a 3 arum, þannig að á þessi
fjárlög komi 50 þús kr.
greiðsla.
Lagt er til að styrkur til
Ungmennasambands íslands og
til starfsíþróttanna haldist ó-
breyttur frá fyrra ári.
Náttúrulækningafélag fs-
lands er sem kunnugt er kom-
ið vel á veg með að byggja upp
myndarlegt hæli í Hveragerði.
Hefur það notið til þessa nokk-
urs styrks úr ríkissjóði, Er lagt
til að því verði nú ákveðinn
100 þús. kr. styrkur til bygg-
ingarframkvæmdanna, og er
það talið geta verið lokafjár-
veiting.
Lagt er til að veittar verði
20 þús. kr. til endurbóta á
gufuböðum á Laugarvatni.
Til Ungverjalandssöfnunar
Rauðakross íslands hefur
nefndin áður samþykkt að
mæla með 250 þús. kr. fram-
lagi, og hefur það í samráði
við nefndina þegar verið greitt.
Er hér lagt til, að fjárveiting
þessi verði tekin inn á fjár-
lög.
Tillög til Alþjóðastofnana,
sem ísland er aðili að, verða
nú að greiðast með yfirfærslu-
gjaldi og hækka því um 16%,
Framhald á 11. síðu.