Þjóðviljinn - 22.03.1957, Page 10
fffip — ÞJÓÐVILJINN— Föstudagur 22. marz 1957
Opið bréf fil leigubifreiða-
stgóra í Reykjavík
t
Framhald á 10. síðu.
tog nýja bílasíma um allan bæ.
: Því svo einkennilega vill til
að fólkið notar ekkert meira
bíla þó þeir séu merktir á
þennan hátt. Meinið var það að
þessi reglugerð kom einum of
seint, já eða jafnvel tveimur.
En það er of seint að iðrast
eftir dauðann, nú verður að
bjarga því, sem bjargað verð-
ur, en til þess þarf samstillta
og umfram allt samvinnuþýða
amenn. Eg vildi mega í nafni
allra eiginkvenna þessara
manna skora á hina nýkjörnu
stjórn Hreyfils að hún vinni
nú markvíst og sleitulaust að
aðkallandi vandamálum. Við
hljótum að eiga kröfu á að lifa
mannsæmandi lífi eins og aðr-
ar stéttir þjóðfélagsins.
Við krefjumst lækkaðra tolla
og tryggingagjalda af atvinnu-
tækinu og lækkaðs benzín-
verðs handa öllum leigubílum.
Eg tel það á engan hátt sann-
gjarnt að okkar börn.' gangi
klæðlítil og vanhaldin, svo að
útgerðarmennirnir og „gróss-
erarnir“ geti farið í fleiri reis-
ur til útlanda, keypt sér dýrari
villur og sumarbústaði, eða
hvert dettur ykkur í hug að
þessar 30 þúsund kr. hafi farið
sem hreiniega var af ykkur
stolið þegar þið fenguð nýjan
bíl í fyrra? Er til of mikils
mælzt að þið fengjuð það til
baka aftur? Og að síðustu
þetta; Hefur þjóðfélagið efni á
eð hafa 500 fullhrausta karl-
menn hangandi tímunum sam-
an í einum hóp eða snapandi
| um göturnar eins og soltnir úlf-
ar eftir björg. Hafa heimili
ykkar sjálfra efni á að sóa svo
dýrmætum tíma og fjármun-
um?
Hvenær ætlar ykkur að skilj-
ast að til þess að verandi sé í
þessari atvinnu, þurfið þið að
ekipuleggja vinnutímann, líkt
og þekkist Hjá öllu andlega
Gullfoss
fer frá Reykjavík laugardaginn
23. þ.m., kl. 7 síðdegis til Leith,
H&naborgar og Kaupmanna-
Ihafnar
Parþegar eru beðnir að koma
til skips kl. 6.30.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG
ÍSLANDS.
vestur um land til Akureyrar
hin 26. þ.m.
Tekið á móti flutningi til
áætlunarhafna í dag. Farseðlar
fedir á mánudag.
heilbrigðu fólki; 8 stunda þrí-
skipt vakt hlýtur að vera tak-
markið sem vinna verður að
og ég álít að það þoli enga bið.
Virðið meira .rétt barna ykkar,
kvenna og heimilis, en látið
stjórnmáladeilur innan félags-
ins bíða þar til hagurinn batnar.
Þetta kann að þykja orðið
nokkuð langort, en svo rná
lengi kynda að upp úr sjóði.
Virðingarfyllst,
Reykjavík 17. marz 1957.
Rósa Sveinbjarnardóttir
----fi-------------------------
Tónlistarhátíðin
í Edinborg
Framhald af 3. síðu.
og Eugene Ormandy með Brein,
Firkusny og Szymon Goldberg
sem einleikara. Sinfóníuhljóm-
sveit útvarpsins í Miinchen og
Philhai-monia hljómsveitin í
London leika þar einnig.
Þarna verður og mikið um
kammertónleika og hljómleika
einstakra sólóista og kvartetta.
Á þessum tónleikum kemur
einnig fram hinn heimsfrægi
Shakespeare-leikari Sir John
Gielgud.
Óperuflutningur mun að
vanda skipa veglegan sess á
Edinborgarhátíðinni. Verða
fluttar 4 óperur: „II Matrimo-
nio Segreto" eftir Cimarosa,
„La Sonnambula“ eftir Bellini,
„L’Elisir D’Amore" eftir Donni-
zetti og „II Turco in Italia“
eftir Rossini. Óperurnar verða
fluttar af söngfólki frá La
Scala í Mílano.
Ballettsýningar verða fjöl-
margar sem nokkrir heimsfræg-
ir ballettflokkar annast. Eru
meðal þeirra Konunglegi sænski
ballettinn og Les Ballet Afri-
cains de Keita Fodéba.
Leiksýningarskrá hátiðarinn-
ar telur mörg höfuðverk leik-
bókmenntanna: „La Répétition"
eftir Anouilh, flutt af Com-
pagnie Renaud-Barrault; „Nek-
rassov" eftir Sartre, flutt af
The English Stage Company,
„Man of Distinction" eftir Has-
enclever, „The hidden King“
eftir Griffin o. fl.
Orlof h.f. sér nú eins og áður
um ferðalög þeirra er hátíðina
vilja sækja héðan og pantar
gistingu og aðgöngumiða að
hljómleikum og sýningum há-
tíðarinnar. Þar sem tugþúsund-
ir erlendra ferðamanna sækja
hátíðina, fyrir utan hina geysi-
legu aðsókn frá Bretlandseyj-
unum, er mjög áríðandi að á-
kveða sem allra fyrst um þátt-
töku. Eftir að komið er fram í
apríl er enginn von um að
mögulegt verði að útvega gist-
ingu á hótelum í allt að 70 km
hring um Edinborg, í hæsta
lagi verður hægt að útvega
gistingu á einkaheimilum. Enn-
fremur seljast allir aðgöngu-
miðar að hljómleikum og leik-
sýningum 6 mánuðum fyrir há-
tíðina. Þeim Islendingum sem
sækja vilja hátíðina sem að
þessu sinni hefst 18. ágúst og
lýkur 7. september, skal bent á
að panta nú þegar. ■
með fershum liðunarvökva
er laust við lykt
eins og liðun getur verið
Engin römm ammoníak-lykt. Engin
svæla, sem pestar loftið og loðir í
hárinu.
Hið nýja Toni með „ferska" hárlið-
unarvökvanum er það mildasta og þó
ái'angursríkasta, sem enn er völ á.
Hárþvottur og lagning
á litlum hluta kvöldsins
Hið nýja „ferska“ Toni er sérstakt í
sinni röð. Hvernig hártegund, sem
þér hafið, þá tekur liðunin aðeins 15
stuttar mínútur. Engar tímaágiskan-
i'r. Engin mistök. Þér þurfið ekki að
bíða alla nóttina, tnei, spólurnar eru
teknar úr eftir fyrsta klukkutimann.
Toni bregst ekki — og kvöldið er
yðar.
Fyrir fegurri endiflgarbetri hárliðun,
sem er laus við lykt, eins og liðun getur verið
þá veljið TONI við yðar hsefi.
Norðurlandasiglingar m.s. HEKLU sumarið 1957
■ [ýr :• •
Frá Reykjavík laugardag 8/6 22/6 6/7 20/7 3/8 17/8 31/8
Til/frá Thorshavn mánudag 10/6 24/6 8/7 22/7 5/8 19/8 2/9
— Bergen þriðjudag 11/6 25/6 9/7 23/7 6/8 20/8 3/9
— Kaupmannahöfn fimmtudag 13/6 27/6 11/7 25/7 8/8 22/8 5/9
— Gautaborg föstudag 14/6 28/6 12/7 26/7 9/8 23/8 6/9
— Kristiansand laugardag 15/6 29/6 13/7 27/7 '10/8 24/8 7/9
— Thorshavn mánudag 17/6 1/7 15/7 29/7 12/8 26/8 9/9
Til Reykjavíkur miðvikudag 19/6 3/7 17/7 31/7 14/8 28/8 11/9
Fargjaldinu er mjög stillt í hóf. Til dæmis kostar hringferð, sem tekur
11 daga, aðeins frá kr. 1744.00 til kr. 2623.00. Ferð til Bergen kostar frá
kr. 703.00 til kr. 1020.00. Fyrsta flokks fæði og framreiðslugjald er inni-
falið í fargjöldum.
Farþegar, sem koana með skipinu erlendis frá, geta fengið að nota skipið
sem hótel meðan það stendur við í Reykjavík frá miðvikudagsmorgni til
laugardagskvölds.
Þeim, sem verzlunarviðskipti eiga við Norðurlöndin, er einnig bent á þess-
ar hentugu ferðir til vöruflutninga,
Nánari upplýsingar á aðalskrifstofu vorri í Hafnarhúsinu, sími 7650.
Skipaútgerð ríkisins
fer til Vestmannaeyja í kvöld.
Voruxnóttaka í dag.