Þjóðviljinn - 02.04.1957, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 02.04.1957, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 2. apríl 1957 — ÞJÖÐVILJINN — .fljlfr RITSTJÓRJ? FRtMANN HELGASON Handknattleiksmótið: KR sigraði Þréff 22:16 og Ár monn vann Víking 16:13 Það verður ekki annað sagt en að leikur Þróttar og KR hafi verið mun jafnara en bjart- eýnustu menn gerðu ráð fyrir, Þróttarar komu á óvart með leik sínum og trufluðu og opn- uðu v,örn KR, og er það vel gert, því að KR er jafnbezta liðið i Reykjavík í augnablik- inu. Vera má að KR hafi ekki tekið leik þennan í fyllstu al- vöru og þess vegna liafi Þrótt- ur komið þeim á óvart. Lið KR virtist ekki sem bezt upp- lagt í leiknum og tókst ekki upp eíns og oft áður. Eigi að síður höfðu þeir leikinn örugg- lega i hendi sinni og forustuna allan leiktímann. Þrótti tókst þó eimi sinni að jafna 3:3. Yfir- burðir KR voru þó ekki meiri en það, að þeir unnu hvorn hálfleik með 3 mörkum. í hálfleík voru mörkin 6:3 fyr- lr KR, Er 12 mín. voru af síðari liálfleik stóðu leikar þannig að KR hafði tvö mörk yfir, 10:8, en þá gera KR-ingar 5 mörk í röð, og gerði Karl þrjú þeirra. Annars var Karl ekki eins virkur og hann hef- ur oft verið. Reynir er vaxandi maður í liði KR og Hörður Fel- ixson hefur ekki lengi verið jafn léttur og nú. Svo að segja allt líð KR hefur mikla leik- reynslu og er skipað nokkuð jafngóðum leikmönnum, svo það verður gaman að sjá þá í löiknum við FH, sem gera má ráS fyrir að verði hrein úr- elit í mótinu. Lið Þróttar átti bezta leik sinn í mótinu og gerði KR mun erfiðara. fyrir en þá eða aðra óraði fyrir. Guðmundur Axels- son átti bezta leik sinn í vet- ur. Hann átti þrjú langskot sem hann skoraði úr og sannaði það, að það er ekki nærri nóg skot- ið „niðri“. Það virtist alveg iokað en smá glufa var þió sem markmaður KR áttaði sig ekki forustu og þó munaði aðeins 3 mörkum í leikslok. Ármann byrjaði að skora og komst upp í 3:1 eftir 5 mínútur, en Vík- ingar jafna og ná 3:3, og taka forustuna. Ármenningum tekst að jafna 5:5 óg aftur 6:6, en 7:7 stóðu leikar í hálfleik. Ármann skorar fyrst en Víkingar jafna og auka töluna upp í 10:8, en Ármenningar jafna 10:10. Þeir komast í 11:10 en Víkingar jafna og komast í 13:11, og eftir eru um 8 mínútur. En þá var sem þeir væru búnir því þeir settu ekki fleiri mörk, en Ármenning- ar settu 5 í röð. Ef maður virðir fyrir sér lið Víkings verður ekki annað sagt en að það fái undra mik- ið útúr leik sínum. Aðalstoðir liðsins eru þeir Sigurður Jóns- son og Björn Kristjánsson, og Gissur í markinu varði vel að þessu sinni. Flestir hinna eru ungir og lítt reyndir menn að Pétri Bjarnasyni undanskildum, og er liðið í framför. Ármenningarnir hafa flestir miklu meiri leikreynslu og mið- að við það virðist manni að þeir hefðu átt að hafa leikinn öruggar í liendi sinni, og yíst er að það var leikreynslan sem gaf sigurinn að lokum. Það er mikill styrkur fyrir liðið að hafa fengið þá Jón Erlendsson og Snorra aftur, en þeir eru ekki búnir að stilla „kanónur" sínar, því að þeir skutu of mik- ið framhjá marki. Lið Ármanns hefur lengi átt við markmanns- leysi að stríða. 1 þessum leik komu þeir með markmann sem lengi hefur leikið með Val, á undanförnum árum. Dómari var Hörður Jónsson og slapp nokkuð vel frá þvi, þó mætti hann vera sjálfstæð- ari í dómum sínum, þ. e. vera ekki á of miklu tali við horna- dómara um auðsæ atriði. 1 kvöld kl. 8 Handknattleiksmótið heldur áfram í kvöld kl. 8. Þá leika í meistaraflokki karla Valur og Afturelding, dómari Hannes Þ. Sigurðsson, og Fram og ÍR, dómari Þórður Þorkelsson. Verða leikir þessir án efa mjög spennandi og óvíst um úrslit. Afturelding vann nýlega ÍR, en Valur tapaði illa fyrir Fram svo ætla má að Aftur- elding muni ekki láta sitt eftir liggja í þessum leik. iR átti góðan leik gegn Þrótti, en eru annars dálítið misjafnir, svo ekki er gott að spá um úrslit leiksins. Honved end- urstofnað Sem kunnugt er, var hið fræga og sigursæla ungverska lið Honved leyst upp eftir för þess til Suður-Ameríku, og fóru sumir leikmanna heim en aðrir halda sig enn erlendis. í Búda- pest hefur verið stofnað annað félag með sama nafni, þótt þeir Puskas og Koesis séu þar ekki lengur með og aðrar stjörnur, og er ekki sami ljómi yfir lið- inu enn eins og áður var. Þetta nýja lið tapaði fyrsta leik sín- um við lið sem lieitir Dozza frá Pecs með 1:0. í þessu sambandi má geta þess að ,,gamla“ Honved lék 19 leiki í vetur í þremur lieims álfum: Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku. Liðið sigraði í 10 af leikjunum, gerði þrjú jafntefli og tapaði sex sinn- um. Skoraði 69 mörk gegn 63. I Evrópu horfðu 475.000 manns á liðið leika, í Afrílcu 20.000 og í Suður-Ameríku um 430.000 manns eða 925.000 alls, og mun það vera met fyrir eitt félag. ^ ■* ÞJÓDVTT TANN TDKTM * UTBREIÐIÐ WI'i KI6-tríóid gaiaila Kieiilrail á. Leikurinn í heild var spenn- andi og skemmtu áhorfendur sér vel. Dómari var Gunnar Bjarnason og tókst ekki sem bezt upp. Víki n.gar höfðu forustuna meiri Uhite leiksins Vikingar komu sannarlega á övart með því að hafa forust- una um markatölu mikinn hluta leiksins við Ármann. Það var ekki fyrr enn á 43. mínútu að Ármanni tókst að taka örugga TRÚLOFUNARHRINGIR Pjölbreytt úrval af STEINHRINGUM 18 og 14 karata. — Póstsendum — Hin árlega árshátið KR var haldin í Sjálfstæðishúsinu laugardaginn 23. marz, var þar fjölmenni mikið og skemmtu menn sér ágætlega. Á árshátíðinni voru eftirtald- ir KR-ingar heiðraðir: Guð- björn Jónsson fyrir 20 ára starf, Brynjólfur Ingólfsson, Magnús Thorvaldsen, María Jónsdóttir, Þórir Jónsson og Friðrik Guðmundsson fyrir 15 ára starf og Magnús Georgs- son, Stella Hákonai’dóttir, Guð- mundur Jónsson, Þorvaldur Veigar Guðmundsson, Guð- mundur Guðjónsson, Atli Helga son, Gunnar Guðmundsson, Sig- urður Bergsson, Sverrir Kjærne sted og Jón Álfsson. Ennfremur var á árshátíð- inni heiðrað hið gamla og fræga „tríó“ KR, þeir Kristján L. Gestsson, Guðmundur Ólafs- son og Erlendur Ó. Pétursson. Þeir eru nú allir komnir yfir sextugt og í tilefni af því á- kvað félagið að láta gera mál- verk af þeim og var Örlygur Sigurðsson fengin til þess. Lokið er að mála myndir af þeim Guðmundi og Erlendi, en Kristjáns mynd er enn ófull- gerð. Gísli Halldórsson, formaður hússtjórnar KR, flutti ræðu fyrir minni þessarra þriggja í- þróttafrömuða og afhjúpaði málverkin af Guðmundi og Er- lendi. Erlendur Ó. Pétursson þakk- aði fyrir liönd þremenninganna með bráðslcemmtilegri ræðu og sagði meðal annars að þegar málverkið af Kristjáni yrði til- búið mætti með sanni segja að „tríóið“ væri orðið að listaverki í höndum hins ágæta listmálara. Síðan voru þremenningarnir og listmálarinn Örlygur Sigurðs- son, hylltir með ferföldu húrra. (Frá KR). Þörf öruggra vetrarflutninga á mjólkurframleiðslusvæðum Fjárveitinganefnd flytur þingsályktunar- 1 j tillögu um málið Fjárveitinganefnd Alþingis flytur tillögu um vétrar- flutninga á mjólkurframleiöslusvæöum. Er tillagan þessi: „Alþingi ályktar aö fela ríkisstjórninni aö láta í sam- ráði við vegamálastjóra athuga, hvernig hægt sé á hag- kvæmastan og öruggustan hátt að halda uppi nauösyn- legum flutningum á mjólkurframleiöslusvæöum, þegar snjóalög eru“. 1 greinargerð segir: „Framleiðsla mjólkur til sölu krefst daglegra flutninga. Neyt- endur þurfa vörunnar með dag hvern, og mjólk geymist ekki óskemmd nema skamma stund. Þar sem mjólk er nú orðin aðalframleiðsluvara bænda á stórum landsvæðum, er aug- ljóst, að öruggir og hagkvæmir flutningar eru bændum þar, neytendum mjólkurinnar og þjóðarbúskapnum í heild mikils virði. Margir síðustu vetur hafa verið óvenju snjóléttir. Þrátt fyrir það hafa þó skapazt í mjólkurflutningum miklir erfið- leikar á hverjum vetri og veru- legu fjármagni verið varið til snjómoksturs árlega þeirra vegna. Á yfirstandandi vetri hafa snjóalög orðið meiri en veriðj hefur um tugi ára. Á sumum mjólkurframleiðslusvæðum, svo sem Mýrum og sunnanverðu Snæfellsnesi, hafa mjólkur- flutningar fallið niður með öllu af þeim sökum nú um nokk- urrá vikna skeið, enda þótt stórfé hafi verið varið frá vegagerð ríkisins og bændum sjálfum til að reyna að halda flutningunum áfram. Hér er því um stói’kostlegt j fjárhagstjón að ræða fyrir þá bændur, sem í hlut eiga, bæði vegna kostnaðar við að reyna að flytja frá sér framleiðsluna og einnig af þvi, að engin tök eru á að vinna mjólkina heima sökum fólksfæðar, enda fram- leiðsluhættir að engu leyti mið- aðir við það. Engin vafi er á því, að ef slíkt endurtekur sig, þá mun mjólkurframleiðslan verða í mikilli hættu. Jafnframt vofir yfir bæjunum sú hætta, að skortur kunni að verða á þessari hollu neyzluvöru. Þa5 er stórfellt nauðsynjamál sem varðar alþjóð, að hægt sé að skapa meira öryggi í mjólkur- flutningum á fjárhagslega við- ráðanlegan hátt. Það hefur sýnt sig á yfir- standandi vetri, að sú aðferð snjómoksturs, sem við notum j til að greiða fyrir mjólkur- flutningum í miklum snjóum, er ekki eingöngu ófullnægjandi, heldur einnig það dýr, að ó- hugsandi er þess vegna að treysta á hana sem framtíðar- úrræði. Fjárveitinganefnd telur brýna nauðsyn á því, að þetta mál verði strax rannsakað með kostgæfni og beztu úrræða leit- að. 30. ársþing ÞjéHrækiíi^félagi Isleitdinga í Vestwrlteimi Hiö 38. ársþing Þjóöræknisfélags íslendinga í Vest* *- urheimi var haldiö í Winnipeg 18.—20. febrúar við góöa aðsókn, einkum voni samkomurnar í sambandi við þingið prýðisvel sóttar. Þingið f jallaði um þau málin, sem löngu eru orðin fastir lið- ir á starfsskrá félagsins, svo sem fræðslumál, útbreiðslumál, samvinnumál við Island og út- gáfumál. Einnig var rætt um nauðsyn sameiginlegs heimilis fyrir íslenzk félagssamtök í Winnipeg, og var það mál sett í milliþinganefnd til frekari at- hugunar, ásamt ýrmsum öðrum málum. Forseti félagsins var kosinn dr. Richard Beck prófessor í stað dr. Valdimars J. Eylands, er baðst undan endurkosningu. Ritari var kosinn prófessor Haraldur Bessason í stað frú Ingibjargar Jónsson, er einnig baðst undan endurkosningu, en vararitari Walter J. Lindal, dómari; hafði prófessor Finn- bogi Guðmundsson skipað þann sess, er hann hvarf heim til ís- lands. Aðrir embættismenn fé- lagsins, sem allir voru endur- kosnir eru þessir; varaforseti, séi’a Philip M. Pétursson, fé- hirðir, Grettir L. Jóhannsson ræðismaður; varaféhirðir frú Hólmfríður Daníelsson; fjár- málaritari, Guðmann Levy; varafjármálaritari, Ólafur Hallsson; skjalavörður, Ragnar Stefánsson. Heiðursfélagar Þjóðrælmisfé- lagsins voru þeir kjörnir Gunn- ar Thoroddsen, bogarstjóri I Reykjavík, og Valdimar Björns- son, fjármálaráðherra Minne- sotaríkis. Kveðjur bárust þinginu meðal annars frá dr. Ásmundi Guð- mundssyni, biskupinum yfir Is- landi; Árna G. Eylands, stjóm- arráðsfulltrúa, formanni Þjóð- ræknisfélagsins á íslandi; Sein- dóri Steindórssyni, yfirkennara á Akureyri; og ríkisliáskólanuin í Norður-Dakota ,er Richard Beck flutti. Ræðumenn á kvöldsamkom- um þingsins voru þeir séra Ól- afur Skúlason, sóknarprestur Framhald á 11. síðu. íslendinga í N-Dakota, á Fróns- mótinu; William iBenedickson, sambandsþingmaður frá Ott- awa, á samkomu Icelandiu Canadian Club; og Björn Sig- urbjörnsson og prófessor Har- aldur Bessason á lokasamkomu þingsins. j

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.