Þjóðviljinn - 17.04.1957, Qupperneq 12
fV Fyrsti knattspynwkappleíkuriim háður fyrsta sumardag
70 keppnisdagar á Iþróttavellinum í
Reykjavík næstu fjóra sumarmánuðina
SMðDVUJIN
Miðvikudagur 17. apríl 1957 — 22. árgangur — 90. tölublað
þegar 70 keppnisdagar verða á
5 mánuðum, en al. vetur fór
fram keppni rúmlega 100 sinn-
7 mánuðum
■Komandi sumar mun verða. eitt hið' athafnamesta í
sögu íslenzkra íþrótta, en nýlokið er niðun’öðun kapp-
Tnóta og kappleikja hér í Reykjavík í sumar. Á næstu
íjórum mánuðum verða á íþróttavellinum 70 keppnis- um á 7 mánuðum í Sundhöll
dagar í frjálsíþróttum og knattspymu. Verður fyrsti Reykjavíkur og íþróttahúsinu
'lcappleikurinn háður á sumardaginn fyrsta, en þá hefst
Heykjavíkurmeistaramót meistaraflokks í knattspyrnu
:með leik milli Vals og Víkings.
við Hálogaland og er því kapp-
mót eða kappleikur annan
hvern dag allt árið um kring
hér í Reykjavík.
Frá þessu skýrði Gísli Hall- ía miðvikudaginn þar á eftir.
idórsson, form. íþróttabandalags I frjálsíþróttum hefst keppni
iReykjavíkur, á fundi með 30. maí með EÓP-mótinu, síðan
ÍJlaðamönnum í gær.
@00 knattspyrnuleikir
í maí verða 2 „stórleikir",
tfoæjarkeppni í knattspyrnu við
íAkranes hinn 12. maí og
ipressuleikur hinn 23. maí.
* I>á hefst íslandsmótið fyrr
®n venja hefur verið, Akureyri
©g Hafnarfjörður leika hér á
Iþróttavellinum hinn 17. mai,
æn 1. deildarkeppninni lýkur 29.
3ÖIÍ. Haustmótið hefst fyrr en
'áíur, eða 12. ágúst og lýkur 22
-sept. Alls fara fram 200 knatt-
spyrnuleikir í Reykjavík í sum-
*r.
Heimsóknir erlendra liða verða
•ileiri en áður, og hingað koma
411 keppni sterkari og betri lið
æn nokkru sinni fyrr. Fyrsta
erlenda liðið sem hingað kemur
■verður tékkneskt úrvalslið á
■vegum Víkings og leikur það 4
leiki 19.—25. júní. Um miðjan
|úlí fer fram afmæliskeppni K.
S. í. með þátttöku 3 landsliða.
fslenzka landsliðið leikur gegn
hinu norska þann 8. júlí og
gegn hinu danska 10. júlí, og
leika gestirnir síðan saman hinn
12. júlí.
1 sambandi við heimsmeist-
arakeppnina fara fram 2 leikir
5 september, leikurinn Island —
Frakkland verður sunnudaginn
1. september og ísland — Belg-
Samkeppni um
skipulag
Klambratúns
Efnt hefur verið til hugmynda-
samkeppni um skipulag Klambra-
túns og skal lienni lokið 27
mai n.k.
Þátttaka í hugmyndasamkeppni
þessari er ekki bundin við verk-
fræðilega þekkingu né aðra sér-
þekkingu, heldur er öllum lands-
tmömium heimil þátttaka.
Þrenn verðlaun verða veitt,
12000.00 kr. fyrir beztu tillög-
una, 8000.0.0 kr. fyrir næstbeztu
Og 5000.00 kr. fyrir þá er þriðju
verðlaun hlýtur.
Uppdrætti og samkeppnisskil-
•nála geta menn fengið gegn
200.00 kr. skilatryggingu í skrif-
stofu borgarstjóra Austur-
•stræti 16.
verða ÍR-mót um 20 júní, lands-
keppni við Dani 1. og 2. júlí,
Meistaramót Reykjavíkur 13.
og 14. júlí, og Meistaramót Is-
lands 17.—19. ágúst.
Kappmót eða kappleikur
annan hvem dag
Yfir sumarmánuðina verður
því keppni að meðaltali annan
hvern dag á íþróttavellinum,
Lítxll afli, slæmar gæftir
Grindavíkurbátar fengu rúm-
lega 13 lesta meðalafla í fyrra-
dag, en hæsti báturinn fékk 27
lestir. Sandgerðisbátar fengu þá
frá 2i/2 til 8 lestir á bát. Sand-
gerðisbátar réru hvorki í fyrra-
kvöld né gærkvöldi vegna óveð-
urs og brims.
Trjáfræi sáð í 5000
fermetra
Ráðgert er að sá trjáfræi í
samtals 5Ö00 fermetra í gróðrar-
stöðvum Skógræktarinnar á
þessu vori.
Útvegun trjáfræs hefur geng-
ið sæmilega, en þó ekki eins
og æskilegt hefði verið og von-
ir stóðu til. Þannig hefur brugð-
izt loforð um stafafurufræ (kont-
ortafuru) frá Alaska. Stafafuran
er í miklum metum, því komið
hefur í ijós að hún hefur reynzt
taka norsku skógarfurunni fram.
Þá er ókomið fræ frá Rússlandi,
en loforð um að það muni koma.
Á sl. vori voru dreifsettar 1.8
millj. trjáplantna í skógræktar-
stöðvunum, en ráðgert er að
dreifsetja á þessu vori 2,2 millj.
Sjúklingar á Kleppi hefja fram-
eiðslu á koddum nýrrar gerðar
SundknattleiJcsflokkur Ármanns sem keppir í Berlín.
- Aftari rÖÖ frá vinstri: Einar Hjartarson pjálfari, Ól-
afur Guðmundsson, Pétur Kristjánsson, Guöjón Sigur-
bjömsson, Sólon Sigurðsson, Ingi R. Helgoson fararstjóri.
■ Fremri röð frá vinstri: Gunnar JúIíussoji; Guðjón Ól-
afsson, Stefán Jóhannsson, Sigurjón Guðjónsson fyrirliði
og Helgi Björgvinsson. — Á myndina vantar bræðurna
Theódór Diðriksson, sem kemur til móts við flokkinn í
Kaupmannahöpi, og Ólaf Diðriksson. (Sjá 9. síðu).
í gær fór á almenuan sölumarkað fyrsta sendingin af
koddum og svæflum, sem sjúklingar á Kleppspítalanum
hafa framleitt, en koddar þessir eru af nýrri gerð, sem
Helgi Tómasson yfirlæknir hefur fundiö upp og hlotið
einkaleyfi á víða um lönd.
Dvalið verður í skála félags-
íns um páskana. Lagt af stað
frá Tjamargötu 20 á miðviku-
ðag kl. 8 síðdegis. — Nánari
gapplýsingar í skrifstofunni.
Helgi Tómasson skýrði blaða-
mönnum frá því í gær, að hann
hefði nú um 20 ára skeið gert
athuganir sínar á svefnbúnaði
manna og þá fyrst og fremst
höfðalaginu, kynnt sér rit og
greinar sem um þetta hefðu
verið skrifaðar og skoðað safn-
muni víða um heim. Ástæðan
til þess að hann hóf þessar at-
huganir sínar var sú, að reynsl-
an hefur sýnt að svefntruflanir
flestra manna eigi rætur sínar
að rekja til þess að ekki fer
nægilega vel um þá í rúminu.
Koddi sá, sem dr. Helgi fann
upp, er gerður eftir niðurstöð-
um rannsókna hans á því,
hvernig menn hvíldust bezt í
svefni, slökuðu á sem flestum
vöðvum. Þess má t.d. geta .
þessu sambandi, að athuganir
hafa leitt í ljós, að 45% manna
sofa á hægri hliðinni, rúmlega
20% á þeirri vinstri, 3% á
grúfu og afgangurinn á bakinu.
Að meðaltaii mun sofandi mað-
ur bylta sér 24 sinnum á nóttu.
Mikil eftirspurn
Framleiðsla til reynslu á
koddum dr. Helga Tómassonar
hófst hér á landi í árslok 1954,
fyrst í mjög smáum stíl, en síð-
ustu mánuðina hefur koddinn
(Rest-Best) verið til sölu í Har-
aldarbúð. Virðist eftirspurn
sanna að almenningur kunni
vel að meta nýjung ‘þessa. í
Danmörku hafa koddar af þess-
ari gerð verið framleiddir frá
því í okt. si. og eftirspum verið
mikil þar líka. Dr. Helgi hefur
sótt um einkaleyfi á framleiðslu
þessara kodda hér á landi og
víða erlendis.
Eins og fyrr segir, hafa nú
sjúklingar á Kleppsspítalanum
hafið framleiðslu á koddum
þessum, þ.e.a.s. þeir sjúklingar
sem eru sæmilega vinnufærir og
verklagnir . Taka sjúklingarnir
að sjálfsögðu full laun fyrir
vinnu sína, en auk þess hefur
dr. Helgi ákveðið að einkaleyf-
isféð sem fæst hér á landi skuli
iagt í sérstakan sjóð í eigu
sjúklinga Kleppsspítalans.
Výlendudagsins minnzt og rætt
um undirbúning heimsmótsins
á kyiuiingariundi Alþjóðasftmvinnunefndar
íslenzkrar æsku n.k. þriðjudag
N.k. þriðjudag, 23. apríl n.k., efnir Alþjóðasamvinnu-
nefnd íslenzkrar æsku til kynningarfundar í Tjarnar-
kaffi, uppi. Á fundinum verður rætt um undirbúning 6.
heimsmóts æskunnar í Moskva á sumri komanda, jafn-
framt veröur nýlendudagsins minnzt.
Kynningarfundurínn hefst kl.
8,30 síðdegis og gefur Guð-
mundur Magnússon, verkfræð-
ingur, formaður Alþjóðasam-
vinnunefndarinnar, fyrst nýjar
upplýsingar um Moskvamótið.
Þá segir fulltrúi Alþjóðasam-
bands lýðræðissinnaðrar æsku
frá lífi æskufólks í nýlendunum
og undirbúningi sjötta heims-
mótsins erlendis. Fulltrúi þessi
er frá Iran og kemur hingað á
vegum Alþjóðasamvinnunefndar
íslenzkrar æsku. Hann er vænt-
anlegur hingað til Reykjavíkur
á annan í páskum.
I fundarlok verður sýnd kvik-
mynd frá 5. heimsmóti æsk-
unnar, sem haldið var í Varsjá
sumarið 1955, sem kunnugt er.
Aðgangur að fundinum er ó-
keypis og öllum heimill, en
nauðsynlegt er að allir þeir,
sem ætla að sækja mótið í
Moskva í sumar, komi á fund-
inn, ef þeir eiga þess nokkurn
kost. Eins eru þeir, er sótt hafa
fyrri heimsmót æskunnar,
hvattir til að mæta á kynning-
arfundinum.
Þingeyingar friða Þin«ey
og stofna byggðasafn
Vilja vegagerð þvert yfir hálendið
Sýslufundur Suður-Þingeyinga samþykkti að stofna
byggðasafn á Grenjaöarstað og friða Þingey.
Fundurinn var haldinn á
Húsavík frá 9.—13. þm. Fundur-
inn samþykkti áskorun til rík-
isins um að afhenda sýslunni
Grenjaðarstað til að koma þar
upp minjasafni. Bændafélag Suð-
ur-Þingeyinga hefur þegar safn-
að nokkrum gripum til geymslu
í væntanlegu byggðasafni og
hefur boðið að leggja þá fram til
safnsins.
Þá samþykkti fundurinn að
verja fé til að gera mikrófilmur
Fundurinn samþykkti einnig
að undirbúa útgáfu ársrits, er
gefið verði út i samráði við
Húsvíkinga o.fl.
Ennfremur lýsti fundurinn ein-
dregnu fylgi við það að sem
fyrst verði gerður akvegur þvert
yfir hálendið, úr Þingeyjar
sýsiu suður yfir Sprengisand og
niður á Rangárveili. — Aðalfar-
artálminn á þeirri leið er
Tungnaá, en á hana er þörf
stórbrúar.
Rúmenskar kvik-
myndir sýndar
Félagið Vináttutengsl íslands
og Rúmeníu hefur nýlega haft
sýningu á nokkrum kvikmynduni
frá Rúmeníú í Stjömubíói, bæði
fyrir börn og fullorðna. í dag
verða myndir þessar sýndar í
Féiagsbíói í Keflavik, barnasýn-
ing kl. 5 og' sýning fyrir fuil-
orðna kl. 7. Síðar verða mynd-
irnar .sýndar í Bæjarbíói. Hafn-
arfirði; á Akranesi og e.t.v. í
Vestmannaeyjum og víðar Að-
gangur er ókeypis að öllum sýn-
ingum.
Bamamyndirnar hafa þótt
einkar skemmtilegar og það
sama má segja um listamynd-
íslandsglíman
verður 10. maí
Íslandsglíman 1957, 47. glíma,
verður háð í B.R.-húsinu að Há-
logalandi föstudaginn 10. maí
n.k. kl. 20.30.
Þátttöku tilkynningum ber að
skila til glímudeildar Ármanns
fyrir 3. maí n.k. Glímufélagið
Ármann sér um mótið.