Þjóðviljinn - 09.05.1957, Page 7

Þjóðviljinn - 09.05.1957, Page 7
 :r' ' ■ • . Á þjóðhátíðardegi Tékkóslóv- akíu 9. maí er þess ekki aðeins minnzt að þann dag fyrir 12 árum endurheimti landið sjálf- stæði sitt éftir sjö ára hernám. Þá er einnig litið yfir farinn veg og rifjað upp, hvemig tek- izt hefur að nytja auðlindir landsins, sem í stríðslok voru í niðumíðslu eftir rányrkju er- lendra húsbænda. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að Tékkóslóvakía er eítt þeirra Evrópulanda, þar Sem breytt hefur verið um hagkerfi, áætlunarbúskapur op- inberra aðila og samvinnu- rekstur tekið við af einka- rekstri. Strax haustið 1945 var ailur stóriðnaður, námui’, bank- ar og önnur stórfyrirtæki, þjóðnýtt. Nú er svo komið að mest allur iðnaður og verzlun ðru I höndum rikisfyrirtækja, fyrirtækja bæjar- og sveitarfé- laga og samvinnufélaga. Pyrsta verkefnið var að auka framleiðslu iðnaðarins svo að jafuaðist við það sem hún nam ár'ið 1937, síðasta heila árið áður en stjórn nazista í Þýzka- lancft tókst að lima Tékkó- slóvakíu í sundur. Þessu marki var náð árið 1948. Þé tók við fyrsta fimm ára áætlunin. Framkvæmd hennar hófst árið 1949 og lauk árið 1953. Á þessu tímabili tókst að auka afköst iðnaðarins um helming. Meginálierzlan var lögð á tvennt. í fyrsta lagi var komið upp öflugum vélsmíða- iðnaði, svo að unnt væri að smíða innanlands meginþorra þeirra atvinnutækja, sem at- vinnulífið þarfnast. í öðru lagi var ákveðið að stefna að jafn- vægi i þróun atvinnuveganna tim landið allt. Fram til þessa hafði Slóvakía búið við frum- Stæða atvinnuhætti og lítið haft af iðnaðinum að segja. Lífskjör voru þar því mun lak- ftri en í löndum Tékka. Árið 1953 var svo komið að iðnað- arframleiðsla í Slóvakíu hafði sjöfaldazt frá því sem hún var 1937. Nú eru stórverksmiðjum- ar, sem reistar hafa verið í Slóvakíu síðan 1945, orðnar. 230 talsins. en náði ekki að komast fram úr framleiðslumagninu á ár- 1 unum fyrir stríðið. Ástæðan var sú, að eftirspumin eftir vinnuafli í iðnaðinum hafði þau áhrif, að fólki fækkaði meira í sveitunum en svo að Þrdun atvinnu- Uísins í Tékkó~ slóvakíu Á árum fyrstu fimm ára á- ætlunarinnar jókst framleiðsla neyzluvamings um 80 af hundr- aði. Kaup fór hækkandi en verðlag hélst stöðugt. Trygg- ingakerfið og heilbrigðisþjón- ustan voru endurbætt. Atvinnu- leysi hvarf úr sögunni í fyrsta skjpti síðan Tékkóslóvakía varð iðnaðarland. í landbúnaðinum var byrjað að mynda samyrkjubú. Komið var upp vélastöðvum, sem sjá bæði samyrkjubændum og bú- um einstakra bænda fyrir véla- kosti. Landbúnaðarframleiðsl- an jókst á áætlunartímabilinu, aukinn vélakostur megnaði að bæta það upp. Afrakstur af ræktuðu landi jókst en rækt- arlandið minnkaði nokkuð. Niðurstaðan af fyrstu fimm ára áætluninni varð því, að settu marki hafði verið náð í iðnaðinum, en ekki hafði ver- ið nægilega vel séð fyrir þörf- um landbúnaðarins. Ljóst var, að á því þurfti að ráða bót, ef halda átti áfram að bæta lífskjörin. Einnig þurfti að treysta undirstöðu iðnaðarins, orkulindirnar. Sumstaðar kom fjárfesting í nýjum verksmiðj- um ekki að fullu gagni, vegna þess að ekki reyndist unnt að fullnægja algerlega þörfum þeirra fyrir kol, raforku og hráefni. Árin 1954 óg 1955 var hlut- fallslega minna fé varið til að reisa nýjar verksmiðjur en á árum fyrstu fimm ára áætlun- arinnar, en þeim mun meira fé fest í landbúnaðinum og hrá- efnaframleiðslunni. Jafnframt var hlutur neyzluvöruiðnaðar- ins í héildarframleiðslu iðnað- arins aukinn. Markmiðið með þessum ráðstöfunum var að bæta lífskjörirí örar en unnt hafði verið meðan verið var að koma atvhmulífinu á traust- an grundvöll. Þessu marki var náð. Meðalneyzla á mann var á síðasta ári fjórðungi meiri en árið 1953. Árið 1956 kom svo til fram- kvæmda önnur fimm ára á- ætlunin, sem á að standa til 1960. Á því tímabili er ætlun- in að auka iðnaðarframleiðsl- una um 50 af hundraði. Þar af á framleiðsla framleiðslutækja að aukast um 57 af hundraði en neyzluvarnings um 40 af hundraði. Ætlunin er að auka framleiðslu landbúnaðarvara um 30 af hundraði. Meðal- neyzla á mann á að aukast um 30 af hundraði. Að því er stefnt, að Tékkó- slóvakía ríái sem fyrst háþróuð- ustu iðnaðarlöndum Vestur- Evrópu í framleiðslumagni und- irstöðugreina (raforku, stáls) á nef hvert. Stjómendur Tékkó- slóvakíu telja þetta engar skýja- borgir, og benda því til sönn- unar á reynslu liðinna ára. Sé framleiðsluaukningin í nokkruin greinum frá árinu 1937 iil ársins 1955 borin sam- an, verður niðurstaðan þessi: Raforkuframleiðslan hefur auk- izt um 300 hundraðshluta í Tékkóslóvakíu, um 120 hundr- aðshluta í Frakklandi, 170 í Syíþjóð og. HQ,.á ítaliu. Kola- Hln mikla stálverksmlðjusanit, steypa Gottwald í Ostrava <efr| myndin) og hverfi nýbyggðra sambýlishúsa í tékkneskri borg. framleiðslan í Tékkóslóvakíu * jókst um 46 af hundraði, Bandaríkjunum 22 af hundraði, Frakklandi 19 og Bretlandi 14 af hundraði. Hrájámsfram,- leiðslan í Tékkóslóvakíu er núi 97 af hundraði meiri en 1937. í Bandaríkjunum er aukning- in á sama árabili 47 af hundr- aði, Bretlandi 37, Belgíu 33 og Frakklandi 32 af hundraði. Ár- ið 1937 var iðnaðarframleiðsla á nef hvert í Tékkóslóvakíu 83.5 hundraðshlutar af sam- svarandi tölu í Frakklandi. Ár- ið 1955 var iðnaðarframleiðsl- an á mann í Tékkóslóvakíu orðin 119 hundraðshlutar af því sem hún var sama ár i Frakklandi. Aukin orka er undirstaða' aukinnar iðnaðarframleiðslu. Nú er unnið að því að gemýta vatnsaflið í þeim tveim ám Tékkóslóvakíu, sem bezt eru fallnar til virkjunar. Stíflur i ánni Váh í Slóvakiu og raf- stöðvar við þær verða alls 22 talsins. Stórvirkjanir við ána Vltava i Bæheimi verða þrjár. Einni þeirra er lokið og vinna er hafin við hinar báðar. Breytingar á kaupgjaldi og vöruverði bera vott batnandi lífskjörum almennings í Tékkó- slóvakíu. Frá árinu 1953 tii 1956 hækkuðu meðaítekjuU iðnverkamanna á mánuði úr 1145 tékkneskum krónum i 1307 krónur. Á sam;í tima lækkaði útsöluverð matvæla um 14 af hundraði að meðal- tali og útsöluverð iðnaðarvarn- ings um 20 af hundraði. Áhrifl aukins kaupmáttar launanna segja til sín í aukinni neyzlu. Kjötneyzlan á mann jókst til dæmis frá 1953 til 1955 ún 38.5 kílóum á mann í 42,2 kíló, sykumeyzlan úr 27.9 kílóum t Framhald á 8. síðu. I r-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.