Þjóðviljinn - 08.06.1957, Page 5
Laugardagur 8. júní 1957— ÞJÓÐVILJINN ~ (5 ■
/----------------------------->
Veiðimenn hafa fundið
leifar af beinum úr risa-
stórum manni í fjöllunum
norðaustur af bænum Tuao í
héraðinu Cagayan á eynni
Luzon í Filippseyjum. Fyrstu
mælingar benda til \að dólg-
urinn hafi verið 525 senti-
metra hár.
Fóik sem býr nærri fund-
arstaðnum telur, að þetta sé
beinagrindin lir eiginmanni
risavaxinnar konu, sem lög-
reglan handtók ásamt 3
mánaða barni í helli í fjöll-
unum árið 1938. Við hellinn
var fullt af beinum úr vatna-
bufflum og hestum, sem tal-
ið var að risahjónin hefðu
haft sér til matar.
Landsmenn telja, að þess-
ir einstaklingar hafi verið
þeir síðustu af áður út-
breiddu risakyni. Framtenn-
umar í risabeinagrindinni
eru 75 mm langar og 50
mm breiðar.
v_______ - _____________/
sem öíl fjölskyldan hefur mæfur á
Smásteik
Saxbautí
Gulrætur
Hauróíur
Atvinnulífið lamað
wegM Inflúenzu
Inflúenzufaralduriím' breiöist út eins og eldur í simi
um mannhaf indversku borganna. Nærri stappar að á-
standiö sé óviðráöaniegt fyrir yfirvöldin.
Þótt farsóttin sé yfirleitt tal-
in væg, hefur 31 maður þegar
látizt af völdum hennar í Bom-
bay og 10 í Kalkútta.
Atvinnulifið er meira og
minna lamað, þar sem inflúenz-
an hefur náð að breiðast út.
Mest er ringulreiðin í samgöng-
um, bæði innan borganna og á
lengri leiðum. í Kálkútta er
helmingur búðarfólks og mikill
hhiti lögregluliðsins sjúkur.
í Nýju Delhi veiktust 800 á
fimmtudaginn og af þeim dóu
þrír. Búizt er við að kvik-
myndahúsum og öðrum
skemmtistöðum verði lokað.
AHstaðar sama sagan
Annars voru þetta helztu
)fréttirnar af inflúenzuvígstöðv-
1 umim í Asíu, þegar síðast frétt-
■ ist:
Thailand: Um 100.000 hafa
tekið veikina en ekki nerna
fimm látizt af völdum hennar.
Allir fangarnir i fangelsi . í
Bangkok, 300 talsins, liggja
rúmfastir.
índónesía: Farsóttin hefur
breiðzt út um mestallar eyj-
arnar Jövu og Súmötru. Iicil-
brigðisyfirvöldin skora á.fólk
að taka c-vítamíntöflur, lög-
reglan hefur gert birgðir lyfja-
búða upptækar til að hindi’a
svartamarkaðsverzlun og hamst-
ur.
Singapore: Veikin hefur gcis-
að í mánuð og er nú í rénun,
Læknar hafa komizt að raun
um, að menn geta féngið hana
hvað eftir annað.
Filippseyjar: Sjúkdómstilfelli,
sem skrásett hafa verið, eru
komin upp í 150.000. Hingað til
er vitað um 527 mannslát af
völdum inflúenzunnar.
Blað í Kína gagn-
rýnir Sjú og Mao
Fréttaritari frönsku fréttastof-
unnar AFP í Peking skýrir frá
því að áhrifamikið kínverskt
blað, Kvang Ming Sji Pao, hafi
gagnrýnt forseta kínverska al-
þýðulýðveldisins, Mao Tsetung,
og forsætisráðherrann, Sjú
Enlæ.
Aðalritstjóri blaðsins sagði í
ritstjórnargrein: Allir keppast
um að gagnrýna smáprestana,
en hingað til hefur enginn árætt
að segja neitt styggðaryrði um
æðstuprestana.
Ritstjórinn gagnrýndi forset-
ann og forsælisráðherrann sér-
staklega fyrir að hafa gengið á
bak orða sinna. Þeir hefðu lofað
því árið 1949, að aðrir stjóm-
málaleiðtogar en kommúnistar
skyldu í framtíðinni eiga sinn
þátt í að móta stefnu stjómar-
innar. Við þetta hefði verið stað-
ið í nokkurn tíma, en síðan 1954
hefðu engir stjórnmálaleiðtogar
nema kommúnistar setið í stöð-
um varaforseta og varaforsætis-
ráðherra.
Lækmriu!! taldi
ástmeyna á að
*•
myrSa konu sína
Franskur læknir, Yves Aven-
ou, og ástmey hans, Simone
Dechamps, hafa verið ákærð
fyrir að myrða í sameiningu
konu læknisins, Claire Avenou.
Lcgreglan segir, að læknirinn,
sem er 49 ára gamall, hafi
knúið ástmeyna, sem er 4.7 ára
gömul, til að myrða eiginkon-
una til að sanna honum ást
sína. Eiginkonan var 43 ára
gömul.
Lögreglan segir, að elskend-
urnir hafi játað glæpinn. Ung-
frii Dechamps stakk frú Av-
enou í hjartastað, þar sem hún
lá í svefnherbergi þeirra hjóna
í dái eftir svefnlyfjaskammt.
Eiginmaður hinnar myrtu stóð
við hlið morðingjans og leið-
beindi, hvar hjartað væri að
finna.
Liírarkæfa
Grænar baunir
LÁTURFÉ LAG
UÐURLAND5
Búddatrú boðuð á
vesturlöndum
BHarkmiðið að bjarga manitkymiiii írá
striðsæði kristmna þjóða
Búödatrúarmenn í Asíu eru aö undirbúa umfangs-
mikla trúboösstarfsemi í hinum kristnu heimsálfum,
Evrópu og Ameríku,
Frá þessu er skýrt í skýrslu,
sem Samband brezkra trúboðs-
félaga hefur sent brezka kirkju-
ráðinu.
trúarbrögð í Burma, Tliailandi,
Ceylon og Indó Kína og á mik-
il ítök í öðrum Asíulöndum,
einlcum Kína og Japan.
NjótiS ieyiisins og takið
itiðursiiðitvönir með I feiðalagið
Kindakjöt
Kindakæfa
Trúboðsskóli
í skipulagsatriðum taka
búddatrúarmennirnir sér hin
kristnu trúboðsfélög til fyrir-
myndar. Til dæmis hafa þeir
stofnað sérstaka skóla, til að
þjálfa trúboðana og gera þá
sem færasta um að koma boð-
skap sínum á framfæri í fram-
andi löndum.
Trúboðsskóli bviddatrúar-
manna er tekinn til starfa í
Rangoon, höfuðborg Burma. I
Colombo, höfuðborg Cevlon, er
búið að stofna annan trúboða-
skóla.
Vakning
Samband brezku trúboðsfé-
laganna segir, að öflug, trúar-
leg vakning riki nú meðal
búddatrúarmanna. Að valming-
unni hafa stuðlað hátíðahöldin
á 2500 ártíð Gátama Búdda,
og sjötta heimsþing búddatrú-
armanna, sem haldið var í
Rangoon. Búddatrú er rikjandi
Friða rboðskapur
Búddatrúarmenn telja frið-
srboó'.kap trúarbragða sinna
eiga sérstakt erindi til manna
eins og nú er komið málum.
Þjóð sem kallar sig kristna
varð fyrst til að beita kjam-
orkuvopnum — til múgdrápa
á Asíumönmim. Tilraunirnar
raeð kjamorkuvopn hafa flest-
ar ver'5 gerðnv á næstu grös-
um við Asiu. Þjóðirnar þar
óttast, að kjarnorkukapphlaupi
r.tórvelda Evrópu og Ameríku
ijúki með kjamorkustyrjöld.
„Leiðtogar búddatrúarmanna
; kora á trúbræður sina, að
íityðja trúboðsstarfsemi um
heim allan til að bjarga mann-
kyninu frá kristindómnum,
sem þeir benda á að hefur
ekki megnað að koma í veg
fyrir að hinar svonefndu
kristnu þjóðir Vesturlanda
steyptu heiminum út í tvær
Framhald á 10. síön
Kjötbúðingur
Bæjarapylsur
Kjötsoð
Svið
Aliar venjulegar stæiðir
Fást í öllum betrl
niatar- eg kjötverzlunum
sláturfélag'
SUÐURLANDS