Þjóðviljinn - 28.07.1957, Síða 2

Þjóðviljinn - 28.07.1957, Síða 2
2) — ÞJÖÐVILJJNN — Sunnudagiir 28. júSÍ 1957 Skákmaður er ég enginn og 'hefi ekkert vit á skák, ekki fremur en kötturinn. En ég er gæddur líkri náttúru og þeir menn, sem hæst hrópa á í- þróttamótum og knattleikjum, bótt sjálfir séu lítt íþróttum búnir og ósnjallir í hvívetna. Ég hefi gaman af að horfa á aðra tefla skák, þótt ég kunni það ekki sjálfur. Þessa dagana hefur staðið yfir hér i Reykjavik mesta og merkasta skákmót, sem haldið hefur verið á Islandi í sam- anlagðri kristni og heiðni. Hefi ég að sjálfsögðu ekld látíð svo merkilegan atburð framhjá mér fara. Þetta er f jórða heimsmeistaramót stúd- enta í skák og fer fram í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Hafa margir lagt þangað leið sína undanfarin kv.Rld til þess að sjá heimsfræga skákmenn þreyta hina göfugu íþrótt. Hinir eru þó fleiri, sem heima hafa setið, hvort sem þeim hefur verið leitt eða ljúft, og þannig fai’ið á mis við þá ánægju að sjá spennandi keppni. Af óskammfeílni hins fávísa ætia ég nú að gerast svo djarfur að bjóða þeim að fylgjast með mér á stúd- entaskákmótið, eina kvöid- . stund eða tvær, þó ekki þeim, sem eru svo fróðir að kunna skil á spönskum leik, drottn- ingarbragði, kóngindverskri vörn eða. öðru baðanaf verra. Þeir geta komizt af án minn- ar leiðsagnar, enda a.ldrei tal- ið heiliavæniegt, að blindur leiði sjáandi. Inn úr anddyri skólans göngum við upp tröppur og komum inn í veglegan sal. Þar er margt manna. Um þvert gólf er raðað borðum og svo inn með báðum hiiðarveggjum allt nð gafli, þannig að aðeins er mjór gangur meðfram þeim. Inn í þessari kró- sitja keppendurnir á mótinu, 56 að tölu, tve'r og tveir hvor gegn rðrum við borð, sem sktpað er í sjö raðir, tveim hvoru megin við breiðan gang eftir miðju gólfi. A borðinu á milli sín hafa skákmennirnir, auk hinna nauðsynlegu hluta taflborðs og taflmanna, forláta klukk- ur, tvær samvannar, svo hag- lega úr garði gerðar, að að- eins önnur þeirra gengur í einu, og þarf sá, sem leikinn á, ekki annað að gera, þegar h'ann er búinn að hugsa og leika, en styðja á hnapp, þá stöðvast hans klukka en sí- amstvíbirri hennar, kiukka andstæðingsins fer af stað og flýtir sér eins og sá svarti sjálfur væri á hælunum á henni. Auk þess hafa skáií- xnennirnir pappíra fyrir fram- an sig, þa.r sem þeir. skrá leikina jafnóðum og þeir leika. Utan \ið borðaferhyrning- inn sitja og standa áhorfend- urnir og fylgjast með því, sem fram fer innan hans. Þeir, sem ekki rúmast niðri í salnum, geta setið eða stað- ið uppi á svölum, sem eru meðfram htiðveggjunum báðu megin uppi á næstu hæð. Inni í hliðarherbergjum þar uppi eru einstakar skákir skýrðar af skákfróðum mönnurn, og á göngunum hanga skrár og töflur tjl leiðbeiningar áhorf- endunum. Eftir að hafa kynnt okkur allt fyrirkomulag hér inni, skulum við virða skákmenn- ina fyrir okkur. Þetta eru menn af fjórtán þjóðernum inðsvegar að úr heiminum og harla ólíkir að útliti og yfir- bragði. Ljóshærðir Norður- landabúar og svarthærðir Mongólar, Suður-Ámeríku- og Austur-Evrópubúar, Bandaríkjamenn og Rússar. Við næsta- borð situr smá- vaxinn Mongólí álútur yfir skákinni og hugsar. Hann á leikinn. Andstæðingur hans tekur lífinu létt á meðan, gengur um meðal borðanna og virðii’ fyrir sér skákirnar. En svo sé r hann útundan sér, að Mongólinn er búinn að setja hans klukku af st.að, og liraðar sér aftur í sæti sitt. Nú er það Mongólinn, sem getur leyf t sér þann munað að horfa á næstu borð. Eg renni augunum yfir sal- inn 'i leit að íslenzku kepp- endunum en sé þá hvergi. Jú, þarna sé ég loks bregða fyr- ir kunnuglegu andliti í þröng- inni á miðju gólfi. En hvert þó í........? Þetta er Pétur háskólaritari. Þú líka, Brút- us, hugsa ég í skelfingu, en svo átta ég mig. Pétur er skákstjóri en ekki keppandi og er hér eins og kommgur á eftirlitsferð í ríki sínu. Loks kem ég auga á Ls- lendingana innst fyrir gafli. Þarna er Friðrik, ljós yfirlit- um, grannleitur og fölur í Tal — sterkasti skákniaður mótsins? andliti, ekki mikill fyrir mann að sjá en leynir á sér. Við hlið hans situr Guðm. Pálmason, öllu dekkri að yf- irbragði, hæglátur, en þybb- inn og traustlegur. Hinu meg- in í salnum sé ég Ingvar, dökkan á brún og brá, þéttan á velli og snarlegan og ákveð- inn á svipinn. Hann horfir hvössum augum yfir borðið á andstæðing sinn, ekki lík- legur til þess að gefast upp að óreyndu. Fjærst mér situr Þórir og grúfist yfir taflborð- ið og rýnir á stöðuha í gegn- um gleraugun. Hann hreykist ekki mikið í sætinu, en í svipnum býr ódrepandi seigia og baráttuvilji. Þetta er lið, sem ekki lætur hug- fallast þótt við ofurefli sé að etja. Eg sný mér nú að hinum keppendunum og les nöfn þeirra, sem ég ekki þekki af myndum, á spjöldum á borð- unum. Þarna er margt frægra manna, Bent Larsen, kapps- fullur og ákveðinn á svip, Lombardy frá Bandaríkjun- um, feitlaginn nokkuð og góð- látlegur, Dr. Filip frá Tékkó- slóvakíu, stór vexti' og eilít- ið þyngslalegur. Og loks eru þarna Spasskí og Tal frá Sovétríkjunum, báðir kornung- ir en algerar andstæður að útliti. Spasskí er stærri vexti, ljós yfirlitum, lítið eitt rauð- leitur á hár, glaðlegur og mjög íslendingslegur í hátt. Tal er lítill, svarthærður með íbjúgt nef, ákaflega snarleg- ur og lifandi í hreyfingum, leikur hratt og öruggt og situr sjaldan lengi kyrr held- ■ur snarast frá borðinu að loknum leik og hvarflar um I’achmann — fararstjóri tékk- nesku sveitarinnar. salinn meðal borðanna, en er jafnskjótt. kominn aftur, þeg- ar þess er þörf, virðir fyrir séry stöðuna stutta stund og leikur. Við skulum staldra lít.ið eitt við og horfa á viðureign okkar manna og Sovétskák- mannanna, sem ég var að lýsa. Þegar ég kem á vettvang er kepphin byrjuð fyrir nokkru. Áhorfendur eru óvenju marg • ir og hafa þyrpzt svo i kring- um borð Islendinganna bæði niðri í salnum og uppi yfir þeim á svölunum, að þaðan er ekki viðlit að sjá neitt. Eg fer því inn í eitt hliðarher- bergjanna, þar sem nú er verið að byrja að skýra skák- irnar, og tek mér sæti. Skák- irnar fjórar eru sýndar á stórum borðum fyrir enda stofunnar og leikirnir símaðir eða sendir upp skriflega jafn- óðum. Þar tekur Jón Þor- steinsson við þeim, færir á borðunum og skýrir gang skákanna eftir föngum. Brátt er stofan orðin full og menn klifra upp á stóla og borð til þess að sjá. Mesta athygli vekur skák Friðriks við Tal. Þeir leika nokkuð hratt og leikirnir ber- ast því ört fyrst í stað Sama máli gegnir um skák Ingvars og Gurgenidze. Hinir fara sér að engu óðslega. Skákin á fyrsta borði er frá upphafi spennandi og tvísýn og menn fylgjast með lienni Söderborg- — I. borðs maður Svíanna. af lífi og sál. Nú fara skák- mennirnir að hugsa sig leng- ur um. Á meðan beðið er eftir leikjunum eru ýmsar- leiðir kannaðar og menn eru óspar- ir að korna með tijlögur, benda á ieiðir og rökræða skákirnar. Einn vill leika hróknum, annar drottning- unni, þiriðji peðinu á c-línunni. o.s.frv. Og allt er þetta reynt, þótt misjafnlega gefist, og búið að leika marga leiki fram í tímann, þegár hinn rétti leikur berst að neðan. Svo er b.yrjað að bollaieggja á nýjan leik. Allt. í einu gefur Tal Frið- rik tækifæri til að vinna peð, sem hann þiggur. En upp úr því lendir hann um hríð í dálitlum örðugleikum. Spenn- ingurinn vex. Hlauparar eru sendir 'fram á svaiirnar til þess að gá niður og kalla leikina upp jafnskjótt og þeir fara fram, því að símleiðin er stundum ekki nógu fljót- farin fyrir fréttirnar. Og a.ll- ir leggja sitt til þess að skýra skákirnar, gamlingjar og strákapattar, jafnvel ung- iingsstúlkan, sem gætir sím- ans. Eg einn þegi og skamm- ast mín niður í tær fyrir fá- fræðina. Loks virðist mesta hættan liðin hjá, en þé berast þær fregnir, að Tal hafi boðið jafntefli og Friðrik þegið. Sumum léttir, aðrir eru ó- ánægðir og vilja að þeir hefðu barizt til þrautar. Svo beinist athygiin að hinum skákunum. Skák Ingvars er komin út í endatafl, þar sem hann á. peði minna, og brátt fer að halla meir á hann og hann gefst upp. Hjá Guðmundi Pálmasyni og Spasskí gengur ailt ró- lega. Guðmundur virðist í öllu meiri sókn, en margt rnanna er enn á borðinu og hættur leynast á, báða taóga. Þá býð- ur Spasskí jafntefli og Guð- mundur þággur, enda tímirn orðinn naurnur. Aftur verða hinir áköfustu óánægðir en liinir gætnari fagna. Knattspyrinunót íslands — 1. deild 1 kvöld kl. 20.30 keppa AKUREYRINGAR OG VALUR Dómari Helgi Ii. Helgason MÓTANEFNDIN Síðastri Jýkur skák Þóris við Gipslis. Hún er sýnd á stóru borði fvrir enda salar- ins og fylgjast flestir með henni þar. Þar eru líka klukk- ur sem sýna tíma keppend- anna. Salurinn er troðfullur og svalimar ííka, en loks fæ ég stæði í stiganum, þar sem ég sé vel á. borðið. Níu eða tíu leikir eru enn eftir og Þórir á aðeins þrjár eða fjórar mínútur eftir til um- hugsunar en Gipslis hálftíma. En Þórir er peði yfir og stað- an virðist sízt, verri hjá hon- um. Hinir bjartsýnustu eru farnir að sjá hilla undir jafn- tefli við Rússana, en tíminn er naumur og margar liættur geta levnzt í stöðunni. Menn híða með öndina í hálsinum. Skyldi homnn takast að sleppa heiil á húfi ur tíma- þrönginni? Ætlar hann ekki að fara að leika? Tapar taann á tíma ? — Svo koma leik- irnir með ieifturhraða. Og allt í einu dynur ólánið yfir. Þóri yfirsést í tímaþröng- inni, drottningin fellur óbætt og það er mát í næsta leik. Hann gefur. Áhorfendurnir andva'rpa, sumir bölva í hljóði, aðrir upphátt. Sv.o taka þeir að sýna á sér far- arsnið. Harðri og skemmti- legri keppni er lokið með ó- sigri Éslendinga eftir tvísýná og drengilega, baráttu. Að lokum vil ég bjóða ykk- ur með mér á. mótsstaðinn í þann mund sem biðskákum. er að ljúka fyrir síðustu um- ferð. Við erum seint á ferð- inni, öllum skákunum ér lok- ið nema eilifðarskák þeirra Ingvars og Rúmenans Ghites- cu. Áhorfendur' eru fáir að þessu sinni og margir keþp- endanna fjarverandi. Þó sitja margir þeirra enn að tafli. Sumir ér.ú að fara í sameiningu yfir skákir, sem þeir voru að Ijúka við að tefla. Þeir raða mönnunum upp aftur og rekja leikina. eftir minni, hratt og örugglega, staldra við vafasama leiki og benda hvorir öðrum á leiðir. Stund- um skilja þeir ekki mál. hvors annars, þá er notszt við bend- ingar, fingramál og látbragðs- leik. Og allt skilst, þegar vilji er fyrir hendi til þess áð skilja andstæðinginn. Flestir eru þó að tefla. hraðskák sér tii gamans, og nú er líf og fjör á ferðum, ekki alvarleiki keppninnar. Kringum eitt borðið er dá- lítill hópur áhorfenda. Þar eigast við Tal og Ungverjinn Háag. Tal virðist hafa mikið yndi af skák, því að á. kvöld- in, þegar hann hefur átt fri eða verið búinn að máta and- stæðinga sína, hefur hann setið og teflt hraðskák við Pilnik kunningja okkar. Hjá þeim Háag veltur á ýmsu. Þeir tefla af miklu fjöri skák eftir skák, og áhorfendurnir, skákmenn frá mörgum þjóðr um, taka þátt í leik þeirrat, hlæja með þeim og benda þeim á yfirsjónir og afíei.ki eftir á, því að betur sjá augu en auga. Því miður má ég ekki vera Framhald á 7. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.