Þjóðviljinn - 13.08.1957, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 13.08.1957, Qupperneq 3
Þriðjudagur 13. águst 1957— WÓÐVILJINN — <3 f— t \ ÍÞRÓTTIR RITSTJOKl: FRIMANN HELGASOI* DYi&osna ircsi&n Frcsm IIjfij&jfír' | í me © Það munu margir hafa gert ráð fyrir að Fram mundi þurfa oftar en þrisvar sinnum að sælcja knöttinn í mark sitt í \-mgar sigor- sælir í Daomörk II. flokkur KR hefur að nndanförnu dvalizt í æfinga- búðum á Jótlandi, eins og áð- ur var greint frá. í flok*n- um eru m. a. allir þrír „gull- drengir“ félagsins. Hafa þeir vakið sérstaka athygii og æf- ingar þeirra verið kvikmyndað- ar. Flokkurinn hefur leikið tvo leiki í ferð sinni. Annar leik- urinn var við sænskt. úrval frá Stokkhóbni, og sigraði KR með 3:2, Hinn var við úival frá Jótlandi, og sigfaði KR með 6:3. I gær hófst svo Norðurlanda- keppni II. flokks liða. og fer fram í Bagsværd. Lék KR fyrst við Söborg boldklub, en síðdegis í gær höfðu ekki borizt fréttir af leikslokum, hrmm sigraði Um síðustu helgi fór fram íslandsmeistaramót kvenna i handknattleik utanhúss. Mótið var háð á Sauðárkróki og sá Ungmennasamband Skagafjarð- ar um framkvæmd þess. Þátt 1 því tóku sex félög víðsvegar að af landinu. Til úrslita. léku Ár- mann og KR og lauk þeim leik með sigri Ármanns 7:5. Dóm- arar á mótinu voru Ragnar Jónsson og Daníel Benjamíns- son. Ármann sigraði einnig i móti þessu í fyrra. Urval Suðvestur- laods gego Dynamo Kieíí V Úrvalslið Suðvesturlands hef- ur nú verið valið, en það leik- ur við Dynamo Kieff í kvöld á leikvanginum í Laugardal, og er það helzt markvert við það val, að Sveinn Teitsson mun leika sem vinstri innherji. Lið- ið er skipað þessum mönnum talið frá markma.nni: Helgi Daníelsson, Kristinn Gunnlaugsson, Ámi Njálsson, Reynir Karlsson, Halldór Hall- dórsson, Guðjón Finnbogason, Gunnar Gunnarsson, Ríkharður Jónsson, Þórður Þórðarson, Sveinn Teitsson, Þórður Jóns- gon. Varamenn: Björgvin Her- mannsson, Jón Leósson, Páll Aronsson, Guðrnundur Óskars- eon, Halldór Sigurbjömsson. leiknum við Dynamó. Það ólík- lega. skeði samt að aðeins tvö mörk skildu liðin að í leiknum, sem var allan tímann undrajafn og tvísýnn. Fram náði betri leik en nokkurn óraði fyrir, og eftir fyrri hálfleik hefðu leikar eins getað staðið 2:2, en leikar stóðu 2:1 fyrir Rússana. Það hleypti kjarki í Fram- ara að þeir skoruðu mark á 5. mín leiksins eftir gott áhlaup þar sem knötturinn gekk fram miðjan völlinn, þar fær Dag- bjartur knöttinn, milli miðju og vítateigs. Hann sendir hann út til Karls sem rétt strax sendir hann aftur til Dagbjarts, sem sendir hann til Björgvins Áma- sonar sem skorar óverjandi af stutt.u færi. Framarar náðu hvað eftir annað góðum samleik sem kom Rússunum sýnilega. nokkuð á óvart. Það var líka athyglisvert hvað Framararnir voru hreyf- anlegir, þegar }>eir höfðu ekki knöttinn, en það opnaði þeim möguleika til þess að láta knöttinn ganga frá manni til manns. Það sýndi sig einnig að Framarar höfðu úthald, því þeir gáfu ekkert eftir í síðari hálfleik. Fyrri hSlfleikur var mun bet- ur leikinn af báðum aðilum, og mátti þá sjá mörg góð áhlaup af beggja, hálfu. Knattmeðferð og uppbygging Rússanna var þó betri, en það var eins og þeim mistækist illa er upp að marki Fram kom, og fengju ekki skotin til að fara rétta leið. Síðari hálfleikur var ekki eins góður og sá fyrri. Hann var þófkenndari og ekki eins skemmtilegur á að horfa. Leik- ur Rússanna var ekki eins ná- kvæmur og maður hefur átt að venjast af þeirn í leikjunum undanfarið. í fyrri hálfleik komu mörg skemmtiieg atvik, og munaði þá oft litlu. Á 11. mín.-er vinstri útherji Rússanna kominn inn- fyrir alla. og á ekki annað eft- ir en að skora, en skotið Jenti beint á markmanni sem varði. Litlu síðar er Björgvin Árna- son kominn innfyrir og örstutt frá marki, en skotið misheppn- aðist og fór framhjá. Á næstu min. ver Geir vei með því að hlaupa fram og slá knöttinn af skalla eins Rúss- ans, ef svo mætti segja. Það er ekki fyrr en á 20. mín. að Rússunum tekst a.ð jafna, en þá er það miðherjinn sem skýriir af löngu færi, og fer knötturinn útvið stöng. Geir var nokkuð seinn að átta sig, sennilega ekki séð til hans fyrr en of seint. Litlu síðar er hægri innherji Rússanna. kominn tit í hornið vinstra megin og sendir þaðan knött fyrir markið, og á ein- liveni óskiljanlegan hátt skýzt knötturinn framhjá markmann- inum og í netið, og þó átti markið að vera lokað. Fleiri mörk komu elcki í hálf- leiknum, þrátt fyrir góð áhlaup af beggja hálfu. í síðari hálfleik gerðu Rúss- armr ekki nema eitt rnark, og þrátt fyrir nokkrar góðar til- raunir tókst' þeim aldrei að skapa sér opin tækifæri. Þetta eina mark, sem gert var í hálflei.knum, kom eftir sendingu fyrir mark Fram frá hægri, en knötturinn lenti í Gunnari Leóssyni og þaðan í mark Fram. Lið Fram mun sjaldan hafa komið jafnheilsteypt til leiks og einmitt nú og eins og fyrr seg- ir tók það fram það bezta sem það á og maður hefur séð við og við í sumar, en nú hélt það út allan leikinti, þó því tækist ekki eins vel upp í síðari hálf- leiknum eins og í þeim fyrri. Þeir léku yfirleitt eftir þeirri r-eglu að finna næsta mann eða þann sem var hezt staðsettnr og að halda knettinum niðri, og það ánægjulega var, að liðið virtist hafa útlxaldið i lagi. Vörn Fram var sterk og eýnir það bezt hve illa hinum snjöllu leikmönnum Dynamó tókst að komast í gegnum hana og skora. eða skapa sér tækifæri. Allt liðið lék hæði í sókn og vörn og slitnaði því aldrei í sundur, og það gaf Rússunum aldrei frið til að atbafna sig. Halldór Lúðvíksson átti góð- an leik og mun aldr-ei hafa verið öruggari og sterkari. Sama er að segja um Reyni Karlsson. Hinrik og Guðmund- ur voru einnig öruggir. Gunn- ar Leósson var betri en oft undanfarið, en liann skyldi gjalda varhug við að hrinda. með þeim hörkuaðferðum sem bann notaði í þessum leík; af því geta hlotizt. meiðsli, og slíkt. | er ekki álitsauki fyrir þá sem temja sér slíkar leikaðferðir. Innherjarnir Guðmiuidur og Björgvin unnu mikið í leiknum og byggðu vel upp, og sama er um Dagbjart að segja,. Skúli Nielsen var ekki eins virkur og maður hefði getað búizt við, cnda var hann ekki mikið not- aður. Karl Bergmann sótti sig er á leið og var í nokkur s-kipti sá sem „startaði1* áhlaupunum, með því að koma nokkuð ó- venjulega langt aftur. Geir í markinu stóð sig vel, nema hvað hann átti að verja annað markið. Hann gerir al- veg rétt í því að reyna að senda knöttinn til samherja, ef hann er nærri og vel stað- settur, í stað þess að spyrna langt uppá von og óvon að samherji nái knettinum, og það einmitt á því augnabliki sem allt liðið virðist innstillt á það að leika stutt saman, Það er í rauninni erfitt að gera upp á milli Rússanna. Þeir raða allir yfir mikilli leikni og sýna oft leikandi samleik, þó þeir fái eltki það útúr leik sínum sem manni virðist eðlilegt miðað við getu þeirra og kunnáttu. Vafalaust mun malarvöllurinn þeim nokk- ur fjötur um fót. í framlínunni eru það miðherjinn og vinstri Framhald á 6. síðu BÆJARFRÉTTIR ★ f dag er Jirið.judagurinn 13. ágúst — 225. dagur ársins i— líippolytus — Tungl í hásuðri kl. 3.13 — Árdeg- ishátlæði ld. 7.58 — Síð- degisháflæði kl. 20.14. Fastir liðir eins og venjulega. Kl. .13.55 Útvarp frá Rvíkurflug-veHi: -— Lýst komu finnsku forsetahjónanna í opin- bera heimsókn til íslands. — Leiknir þjóðsöngvar Finnlands og Islands. 19.00 Hús í smíð- um; XXII. Múrhúðun (Mar- teinn Björnsson verkfræðing- ur). 19.30 Þjóðlög frá ýmsum löndum. 20.15 Finnsk tónlist. Útvarp frá veizlusal að Ilótel Borg: Forseti íslunds og for- seti Finnlands flytja ræður. 21.30 Erindi: Úr sögu Finn- lands (Ölafur Hansson mennta- skólakennari). 22.10 Kvöldsag- an: Ivar hlújárn eftir Seott, XXI. (Þorsteinn Hannesson flytur). 22.30 Þriðjudagsþáttur- inn. — Jónas Jónasson og H. Morthens sjá um flutninginn. 23.30 Dagskrárlok. Loftleiðir: Saga. er væntan- leg kl. 8.15 árd. frá N. Y. Flug- vélin heldur á- frarn kl. 9.45 áleiðis til Bergen, K-hafnar og Hamborgar. Edda er væntanleg kl. 19 í kvöld frá Hamborg, Gautaborg og Osló; flugvélin heldur áfram kl. 20.30 áleiðis til N.Y. Hekla er vrent- anleg kl. 8.15 árdegis á morg- un frá N. Y. Flugvélin lieldur áfram kl. 9.45 áleiðis til Glas- gow og I>ondon. Flugfélag íslands: Gullfaxi fer til Glasgow og K- hafnar kl. 8 í dag. Væntanleg- ur aftur til Rvíkur kl. 22.50 í kvöld. Flugvélin fer til Osló, K- tíáfnar og Hamborgar kl. 8 í fyrramálið. Innanlandstiufi,: I dag er áætlað að fljúga til Akureyrar 3 ferðir, Blönduóss, Egilsstaða, Flateyrar, Isafjarð- ar, Sauðárkróks, V estmanna- eyja 2 ferðir og Þi.ngeyrar, á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar 3 ferðir, Egilsstaða, Hellu, Hornafjarðar, Isafjarð- ar, Siglufjarðar, Vestmanna- eyja 2 ferðir og Þórshafnar. Skipadeild SÍS Hvassafell fór 10 þm. fsá Sigiti- firði áleiðis til Helsingfors og Abo. Arnarfell er í Leníngrad. Fer þaðan væntanlega 15. þm. áleiðis til Islands. Jökulfell e«“ i Riga. Fer þaðan væntanloga í dag til Stettin. Dísarfeíl er væntanlegt til Hangö í dag. Fer þaðan til Abo og Riga. Litlafell er í Rvík. Helgafell fór frá Þorlákshöfn 9. þm. áleiðis til Stettin. Hamrafell fór framhjá Gíbraltar 11. þin. á leið til Batum. Sandsgard fór frá, Riga 5. þm. áleiðis til Islands. Eimskip: Det.tifoss er í Hamborg, fer þaðan um miðjan mánuð ti! R« víkur, Fjallfoss fór frá Ant- verpen í gær til Hull og R- víkur. Goðafoss fór frá Rvík í gæi-kvöld til N. Y. Gullfoss fór frá Rvík sl. laugaidag til Leith og R-hafnar. Lagarfoss íór frá Húsavík 9.8. til Vent- spils. Reykjafoss er í Rvík. Tröllafoss fór frá Rvík 3.8. til N. Y. Tungufoss er á Akra- nesi. Drangajökull fermir í Hamborg í vikunni til Rvilíur. Vatnajöku.11 ferrair í Hamborg um 15.8. til Rvíkur. Katla fermir í Kaupmannahöfn og Gautaborg um 20. ágúst til R- víkur. Ski{»aútgerð ríkisins: Hekla, er væntanleg til Rvíkut’ árdegis á morgun frá Norður- löndum. Ésja fór frá Reykja- vík í gærkvöldi vestur um land í hringferð. Herðubreið er á Austfjörðum á silðurleið. Skjaldbreið er væntanleg til R- víkur árdegis i dag að vestan. Þyrill fór frá Rvík í gær til Austfjarða. Skaftfellingur fer frá Rvík í kvöld til Vestm.- eyja. Slysavarðstolan Heilsuverndarstöðinni er opin allan sólarhringinn. Nælurlsakmr Ij.R. (íyrir vitjanir) er á sama 3Íað írá kl. 18—8. Síminn er 15030. Næturvörður er í Iðunnarai>óteki sírai 1-79-11. Holte apótek, Apótek Austurbæ.t- ar og Vesturbæ.iai'apótek eru opin daglega til kl. 8, uema á Iaugardögum til kl. 4 og á sunnu- dögum frá kl. 1—4. SKlTAR Stttlhur, plltar, ljósáifar og yifmgar Mætið stundvlslega kl. 12.30 i Skátaheimilinu í dag. Mætið’ í búningi. STJÓRNIR FÉLAGANNA. \ 'ffi* í jy. Rússneska knattspyrnufélagið DYNAM0 leiknr í Reykjavík 4. leikur fer fram á íþróttasvæðinu í Laugardal, þriðjudaginn 13. ágúst, klukkan 8 e.h. I»á leikur Dynamo og úrvai Snðvesturlands Tekst úrvalinu að sigra? Aðgöngumiðasala hefst á íþróttavellinum í dag kl. 1 til 8 e.h. og eftir kl. 7 úr bílum z Laugardal. Verð stúkusæta kr. 40,00, stæði kr. 20,00 og fyrir börn kr. 5,00. MÓTTÖKUNEFNDIN.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.