Þjóðviljinn - 01.09.1957, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 01.09.1957, Blaðsíða 9
) ÍÞRÓTTIR MTSTJÓRl FRtMANS HELGASO* fsland íeikur 20. lands leik sinn í dag sm Sjaldan mun meiri „spenning- nr“ hafa verið i sambandi við knattspyrnukappleik en þann sem fyrir dyrum stendur nú við Frakka. Kemur þar ýmislegt til, hið mikla tap landsliðsins í sumar úti í Frakklandi, frammi- staða liðsins sem lék við Dyna- mó, sem gaf vonir um betri ár- angur, og svo hinar miklu deil- ur og blaðaskrif um val liðs- ins sem lejka á í dag. Vafalaust €r þetta erfiðasta verkefnið sem iandslið okkar hefur fengið hér heima, því franska landsliðið er með þeim beztu sem teflt er fram í álfunni í augnablikinu. Allir hafa leikmennimir mikla treynslu og hafa leikið fjölda Jandsleikja auk hinna venjulegu hörðu atvinnumannaleikja sem eru erfiðir og krefjast mikils af leikmönnum. Sá sem hefur Jeikið fiesta lejkina er Jouqvet, sem á 42 landsleiki. Knattspyrna gömul íþrótt í Frakklandi Frakkar eru engir byrjendur í knattspyrnu, ef gluggað er í söguna og hún skoðuð, þó sú knattspyrna hafi verið eitthvað frábrugðin þeirri sem leikin er í dag Knattspyrna var leikin í Frakklandi á 14., 15. og 16. öld og var þá köluð „shoule". Varð leikur þessi sannkölluð þjóðar- íþrótt víða þar í landi, t.d.. í Bretagne og Pigardie; og þótt nokkuð dofnaði yfir henni síð- ar, lifði hún þó i s.jnni uppruna- legu mynd fram á 19. öld. Regl- nrnar voru nokkuð mismunandi ó hinum ýmsu stöðum, en alls - staðar var það sameiginlegt að knettinum var sparkað. Stórar knattspyrnukeppnir fóru fram í sambandi við trúarhátíðir, og var jóladagurinn þá ekkj síður notaður en aðrir hátíðisdagar. Knattspyrna þessi varð einnig' vinsæl meðal munka í klaustr- nm, og i klaustrinu Auxerre hafa. fundizt reglur þær sem notaðar voru 1396 í klaústri þessu hafði sá sið- ur myndazt að hver nýr ábóti varð að gefa knött og hann varð að vera svolít.ið stærri en sá sem fyrir var. En 1412 varð að setja fastar reglur um stærð knattarins. Fjöldi leikmanna var mis- munandi, gat. orðið nokkur hundruð i hvoru liði, og venju- lega var það bær sem lék móti bæ, eða giftir menn gegn ógift- um. Mörkin voru margs konar: hl.'.ð við kirkju, siki eða stólpi með hring sem korna átti knett- inum í gegnum. Um 1700 dofn- ;aði víða yfir leiknum, en í Bretagne var hann þó alltaf að- 'alskemmtun fólksins. Nokkrum sinnum var leikurinn bannaður af konungum, en hann lifði samt meðal fólksins sem vildi ekki xnissa af ánægjunni sem hann veitti. í fyrsta sinn, sem keppt var i knattspyrnu á OL., varð Frakk- land í öðru sæti og Belgía i þriðja, en England varð 'sigur- vegari. Þetta var árið 1900 á leikjunum í Paris. Á leikina í London 1908 sendu Frakkar tvö lið og áttu bæði við dönsku liðin sem þar kepptu I þá daga máttj hvert land senda fleiri en eitt lið. Leikar fóru þannig að Danmörk vann báða, B-Ieikinn með 9:0 og A-lelkinn með 17:1. Síðán það gerðist hefur knatt- spyrnan þróazt í Frakklandi í það að verða áð fullkóminni' og glæsilegrj iþrótt. Enda ' er það talið af mörgum að knattspyrna eigí vel við skapgerð og bygg- ingu Frakkanna, og hún er vin- sæl þar í landj eins og hún var fyrr á öldum. Mikið af þeim læra Hvem'ig sem leikur þessi fer. þá má fullyrða að rnikið má af þessum gestum læra; og eru þeir því kærkomnir hingað til okkar norður undir heimskauts- haugjnn. Vonandi fá þeir „heit- ari“ viðtökur hér í okkar kalda landi en þeir.fengu í sumar úti í Frakklandi hjá þessu mikið til sama liði. Það er einnig von allra að aðstaða til að leika verði sem bezt. Blautur völlur verður okk- ar mönnúm ábyggilega fjötur 1956 Helsingf. Ísl.-Finnl. 1956 Rvík, Ísl.-England 1957 Nantes Ísl.-Frakkl. 1957 Brússel Ísl.-Belgía 1957 Rvík, Ísl.-Noregur 1957 Rvík, Ísl.-Danmörk 1:2 2:3 0:8 3:8 0:3 2:6 Sunnudagur 1. september 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Franska landsliðið við komuna til Beykjavíkur (Ljósin. Bjari l.) RÍKARÐUK JÓNSSON fyrirJiði ísiendinga á leikvelli leikur 19. tandsleik sinn í clag. um fót, því enn eru þeir ekki biinir að venjast erfiðleikum hans. Úrslit hinna 19 Ieikja 1946 Rvik, Ísl.-Danmörk 0:3 1947 Rvik, Ísl.-Noregur 2:4 1948 Rvík, Ísl.-Finnland 2:0 1949 Árósum, fsl.-Danm. 1:5 1951 Rvík, Ísl.-Svíþjóð 4:3 1951 Þrándh., Ísl.-Noregur 1:3 1953 Rvík, fsl-Austurr. 3:4 1953 Khöfn, Ísl.-Danm. 0:4 1953 Bergen, Ísl.-Noregur 1:3 1954 Rvík, Ísl.-Noregur 1:0 1954 Kalmar, Ísl.-Sviþjóð 2:3 1955 Rvik, ísl.Danm. 0:4 1955 Rvík, Ísl.-Bandaríkin 3:2 Engimr nýliði í ísleir/ka liðinu í islenzka liðinu er enginn ný- liði að þessu sinni. Flestir hafa leikmenn þess á okkar mæli- kvarða rnikla reynslu í meistara- flokksleikjum, og aldrei hefur landslið okkar verið svo oft í eldinum 'og í ár, og er það útaf fyrir sig góður undirbúningur. Flesta leiki hafa leikið í lands- liðinu: Ríkarður 18, Þórður ÞÓrð- arson 15, Guðjón Finnbogason 13, Helgi Daníelsson 10, og Hall- dór Halldórsson 9, af þeim sem leika að þessu sinni. Það æt'ti því að vera að liðið, sem nú kemur nú til leiks, sé bétur undir viðureignina búið en nokkru sinni fyrr. Frakkár strangir með sið- ferði manna sinna Þess má geta að á það er minnzt í erlendum blöðurn að Frakkar komi ekki með bezta markmann sinn til keppninnar hér, en hann heitir Remetter og er heimsfrægur maður milli stanganna. Hann fór út í verzl- unarbrask sem franska samband- ið taldi ekki samræmast fram- komu góðs íþróttamanns og úti- lokaði manninn frá allri keppni. Remétter setti sig á háan hest og gerðist óvæginn við félag sitt sem heitir Sochaoux, í þeirri 'trú að það dygði, og hótaði að hætta að leika knattspyrnu. En þeir voru ekki fæddir í gser og settu ungan mann í markið með svo góðum árangri að hann ér þar enn, og þá vildi knattspyrnusam- bandið ekki taka Remetter í landsiiðið, en annars væri hann hér í dag. Franska knattspyrnu- sambandið er mjög strangt í svona málum. Þess má líka geta til gamans að 'þetta franska lið hefur þeg- ar tryggt sér dvalarstað til æf- inga og hvíldar fyrir heimsmeist- arakeppnina í Svíþjóð, og stað- urinn er enginn annar en sjálf- ur V&ládalen í Svíþjóð, bezta í- bróttaæfingastöð Svia. Ætla þeir að dvelja þar í 10—12 daga, rétt áður en keppnin hefst. Skipstjórinn á Batory ræðir um pólsku strokumennina . Við heima eigum dálítið eríitt með að skilja þessa sjötíu" Eins og kunnugt er af fréttum hlupust 70 manns af pólska skipinu Batory, er það' lá í Kaupmannahöín fyrir skömmu. S.l. miðvikudag kom skipið aftur til Hafnar, að þessu sinni á leið til Kanada. Flykktust blaðamenn þá um borð í skipið til þess að ræða viö skipstjórann um flóttamennina. Segir fréttamaður Land og Folk svo frá þeim viðræðum: SKIPAUTGCRB RIKISINS B al du r fer til Gilsfjarðar- og Hvamms- fjarðarhafna á þriðjudag. Vöru- móttaka á mánudag. „Batory hafði að þessu sinni verið aðeins fimm tíma í Kaup- mannahöfn. Rétt fyrir klukkan 8 lagðist skipið við vesturgarð fríhafnarinnar, og varla hafði landgöngubrúin verið sett nið- ur, þegar ýmsir blaðamenn úr Kaupmannahöfn komu um borð til þess að heyra skýringar skipstjórans á máli stroku- mannanna. Szudzinski skipst jóri vildi þó fyrst- fá að neyta morg- unverðar í ró og næði. — Hann hafði staðið í brúnni alla nótt- ina, sagði hann. En hálftíma síðar kvaðst hann vera reiðu- búinn til viðræðu við aila for- vitna. — Bjuggust þið við, að ég yrði sendur til Síberíu? spurði hann og brosti glaðlega og sagði, að hann hefði auðvitað orðið að gefa tilheyrandi skjírslu í heimalandi sínu úm þá 70 menn, er kusu að hverfa frá borði í Kaupmannahöfn. Hann sagði, að pólskir blaða- menn hefðu að sjálfsögðu einn- ig skrifað um málið eins og dönsk blöð. Én heima eigum við dálítið Baímagnsheilinn Framhald aí 12. síðu. af í fangelsi fyrir þá sök, að hann hafði þann vana, að reyna að sýna liðsforingja sínum fram á, hve fáránlegar fyrir- skipanir hans væru! Árangur þessa varð sá, að nú getur hann svarað á 30 sek- spurningu sem slíkri: upp á hvaða dag' pásk- ana beri árið 5.702.342 (Rétt svar ku vera: 22. apríl). Ennþá styttri tíma þurfli Dagbert til að svara eftirfar- andi spurningu: „Ef hver klst. væri 37]/2 mínúta og í hverri mínútu væru 96 sekúndur — hve margar sekúndur eru þá í 24 árum ?!“ „751.382.400 ‘, svar- aði Dagbert um hæl og hafði þá auðvitað reiknað hlaupárin með. örðugt með að skilja þessa. sjö- tíu menn. Eftir því, sem ég'' bezt veit er pólska stjórnin nú að semja ný lög fyrir útflytj- endur. Hefðu þeir beðið dá .itið, ^ myndu þeir áreiðanlega hafa komizt brott á venjulegan hátt. Szudzinski skipstjóri sagði, að Pólland væri að vísu að mörgu leyti fátækt land, en strokufnetnnirnir mundu samt áreiðanlega komast að raun um, að lífið erlendis, eins og ‘þeir hefðu gért sér það i hug- arlund, væri aðeins fallegur draumur. Þeir' hefðu kannski 'álitið, að þeir fengju bíl og hús um leið og þeir géngju hér á land ? En menn yrðu víst éinn- ig að vinna í Danmr rku ? Þegar hann heyrði að meiri- hluti' þeirrá ætlaðr til Kanada, sagð’ hann: „Ráðið þéirir í öllirin bænum frá því. Þeim væri betra að fara til Ástralíu, þar eru skilyrðin miklu betri“. Annars sagði skipstjórinn, að þessi atburður myndi ekki hafa áhrif á þær’ aætlanir, sem nú væru í undirbúningi um sumar- ferðalög næsta ár. „Hafið þér fleiri spurningar fram_ að bera“, spurði hann hvetjándi. ,,Nú ekki það . . . . “ Bílsíjóradeilan Framhaid af 6. síðu ar ábyrgir aðilar, að því er virðist, leika sér að þvi að gefa villandi og rangar upplýsingar varðandi þýðingarmiki! mál- efni, sem þe_'r öllum fremur ættu að þekkja; það er aldrei vænlegt til góðs árangurs að halla réttu máli, hv-er svo sem tilgangurinn er. Að síðustu vildi 'ég óska þess, að þessi viðkvæmu deilumál Ieystust hið allra fyrsta. báðum deiluaðilum til hagsbóta og blessunar. Maguús Jóiisson. vöru- bílsijóri, Stykkishólini.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.