Þjóðviljinn - 04.10.1957, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 04.10.1957, Qupperneq 10
10) — ÞJÓÐVTLJINN — Föstudagur 4, október 1957 Voru Esse Framhald af 5. síðu. ,,Ókunnugum hlyti að finnast sem þeir gættu ægilegs leynd- ardóms," skrifar Jósefus. Ess- enarnir héldu hvildardaginn enn heilagri en hinir tveir trúflokkar Gyðinga. Dýrfórnir færðu þeir ekki, en kváðust færa aðrar og hreinni fómir. Essenunum var af þeirri á- stæðu meinuð innganga inn í musterisgarðinn í Jerúsalem, og þeir munu hafa haldið sig fjarri þeirri trúarmiðstöð Gyðinga. Gagnstætt Saddúke- unum, sem trúðu ekki á dauð- leik sálarinnar og töldu sálina farast með líkamanum, kenndu Essenarnir, að sálin lifði, þótt líkaminn dæi. Sálin væri gerð úr hinum fíngerðasta Ijós- vaka, en haldið niðri af álög- um náttúrunnar, innibyrgð í líkamanum; en við dauðann losnaði sálin úr helsi og bær- ist til himins. Essenamir trúðu því, eins og Forn- Grikkir, að dyggðugum sálum væri helgaður reitur einhvers staðar handan hafsins, þar sem snjór, regn og hitar þekkjast ekki og hægur and- yari leikur jafnan um; en aft- ur á móti lenda vondar sálir í myrkri og róstusamri dýfl- issu. Jósefus og Filon eru á einu máli um, að Essenarnir hafi notið mikils álits. Að sögn Jósefusar tóku þeir fram bæði Grikkjum og öðmm þjóðum í dyggðugu líferni og um ára- foil gátu þeir haldið uppi þess- um stranga aga sínum. Þeim kemur lika saman um hörm- ungar heims þess, sem Ess- enarnir háfa dregið sig í hlé út úr, en hafa getað boðið siðferðilega byrginn. Antíókk- «s Epifanes, (sá, sem fengið hafði að erfðum ríki Alexand- ers mikla við botn Miðjarðar- liafsins og Gyðingar lutu), lét steypa styttu af Seifi, „.viðurstyggð eyðileggingar- innar“, í musteri þeirra og skipaði þeim að tilbiðja hana. Undir forystu Makkabeana tókst þeim að brjótast undan kúgun þessari, en ekki var langt um liðið, þegar leiðtog- arar þeirra spilltust og urðu eins grimmir og útlendu vald- hafarnir höfðu verið, sem steypt hafði verið úr stóli. Og siðar, 70 e. K., biðu Gyð- ingar algeran ósigur fyrir herjum Rómverjans Titusar, sem lagði musteri þeirra í eyði, eins og her Nebúka- desar hafði áður gert. Fílon farast svo orð: ,,Enda þótt á ýmsum skeiðum hafi hertekið land þeirra valdhafar, hverir öðrum ólíkir að geði og skapsmunum; sem sumir ' íiverjir hafa verið grimmari I villtum rándýrum og einskis | narnir .... dýrslegs ódæðis svifist og hafa hvað eftir annað látið lífláta þegna sína hrönnum saman og jafnvel látið slíta af þeim limina lifandi, skorið af þeim lim eftir lim, eins og þeir væru matgerðarmenn, unz guðleg réttvísi jafnaði við þá sakirnar og þeir urðu að þola þá sömu vesöld og þeir höfðú öðrum búið; en sem sumir hverjir sneru hamslausu dýræði sínu upp í annars konar lesti, þótt þeir hafi ekki kunnað að stilla villimennsku sinni í hóf, og hafa talað blíðlega til manna, þótt skinið hafi í grimmúðleg áform þeirra að baki blíð- mælginnar, og hafa að liætti laungrimmra hunda reynt að koma sér í mjúkinn hjá vænt- anlegum fórnarlömbum sínum, sem þeir áttu eftir að valda ómælanlegri eymd, og hafa reist sér minnisvarða um guð- leysi sitt og mannhatur í ó- gleymanlegum þjáningum kúg- aðra í öllum borgum, sem lot- ið hafa valdi þeirra; hefur enginn, jafnvel ekki neinn hinna tryllingslega grimmu né hinna fláráðu og hræsnisfullu, getað borið fram neinar rök- studda ákæru gegn þeim flokki manna, sem Essenar eru nefndir eða hinir heillögu." En allir hafa viljugir nauðug- ir litið upp til þeirra sem> frjálsra frá náttúrunnar hendi og ekki undirorpna geðþótta nokkurs manns og hafa róm- að borðsiði þeirra og sam- lyndi, — en orð brestur til að lýsa gagnkvæmu trausti þeirra — sem næga sönnun um fullkomið og frámunalega hamingjusamt líf.“ Jósefus líkur lofsorði á hugrekki Ess- enanna. Hann segir: „Þeir eru æðrulausir í lífshættu og sigr- ast á sársauka með viljastyrk. Dauðdaga með sæmd meta þeir meira en ódauðleika. í stríðunum við Rómverja reyndi á þiek þeirra í hvers konar mannraunum. I því augnamiði að neyða þá til að formæla löggjafa sínum eða neyta einhvers þess, sem þeim var forboðið, voru þeir beittir hvers kyns pyndingum, lagð- ir á pyndingabekk og snúið liggur leiðin upp á handleggi þeirra eða fótleggi, limlestir og brénndir, eh við hvorugri kröfunni urðu þeir og þess er ekkert dæmi, að þeir hafi beðið kvalara sína um miskunn eða tárfellt. Pyntaðir brostu þeir og hædd- ust góðlátlega að kvölurum sínum og gáfu upp öndina í trausti þess, að sál þeirra yrði ekki grandað. Þegar þeir við inngöngu í regluna unnu eið- ana ægilegu, sem Jósefus nefnir svo, sóru þeir að vinna ekki framar eið, og þeir höfðu þau orð um að sá, sem ekki sé tekinn trúanlegur án skir- skotunar til guðs, sé fyrir- fram sakfelldur, og hvert orð þeirra var þyngra á metunum en eiður, (heldur Jósefus á- fram). Hann segir svo frá, að Heródes mikli hafi veitt regl- unni undanþágu frá því að sverja trúareiða; en getur þess, að það hafi hann gert, því að hann minntist þess, að einn Essenanna liafði mætt honum á förnum vegi, þegar framtíðarhorfur hans voru tvísýnar og klappað á öxl honum og spáð, að hann yrði siðar meir konungur. Essen- inn hafði bætt því við, að hann myndi spillast að lokum, en Heródes hafði efni á því að gleyma siðari hluta spá- dómsins, þegar hann var kom- inn til valda og gat sýnt stór- lyncM með því að vera mildur við Essenana. Bæjarpósturinn Framhald af 4. síðu. strákling þessum kjálkað nið- ur við hlið eina fullorðna mannsins í hópnum. Sá sat í fremsta sæti og virtist vera foringi fararinnar. Þótti pilt- .inum það mikil undur að í á- ætlunarbifreið skyldi vera sér- stakur fararstjóri. — Síðar komst hann að raun um, að hann hafði farið bifreiðavillt. Þama var á ferðinni Gagn- fræðaskólj ísafjarðar og mað- urinn, er tók hann undir sinn verndarvæng og veitti honum ókeypis far til ákvörðunarstað- arins var sjálfur skólastjórinn, Hannibal Valdimarsson. — Þannig hóf Pósturinn sína veg- ferð út í lífið með því að fara farartækja villt eins og Svip- all, en þau mistök urðu hon- um fremur til góðs en hitt. NÝIR Svefnsófar á aðeins Kr. 2900 Grettisgötu 69 kl. 2—9 í dag Verltainanxiaflokkiiríbn Frámhald af 12. síðu. varaði við því að hún yrði skuldbundin til að afsala sér ráðum yfir kajrnorkuvopnum. Slíkt myndi þýða að utanríkis- ráðherra þeirrar stjórnar kæmi tómhentur á samningafundi. Mælska Bevans var slík að Cousins bað um fundarhlé til að han.n gæti ráðgazt aftur við meðfulitrúa sína um af- stöðu þeirra. Að fundarhléinu loknu hafði hann skipt um skoðun og tillagan var felld með yfirgnæfandi meirihluta. Vélskólinn Framhald af 3. síðu. anda.. Batna þá starfsskilyrði til muna. Gjafir til skólans Skólanum bárust tvær gjafir, önnur frá fyrirtækinu Rafeind, sem gaf rafmagnsmælitæki, og hin gjöfin, indikator, frá vél- stjórum er tóku þróf frá skól- anum fyrir 20 árufn. I.okaoráum síimrn beindi skólastjóri til nýsveina skól- ans og baó þá að hafa í huga skyldur sínar við þjóftfélagrið, stétt sína og ekki sízt þá sjálfa. Vincenzo Demetz Framhald af 1. síðu. Þó að Stefán íslandi hverfi af landi brott eftir helgina verða sýningar á Toscu ekki felldar niður í Þjóðleikhúsjnu. ítalski söngvarijin Vincenzo Maria Demetz, sem dvalizt hefur hér á landi við söngkennslu sl. tvö ár, tekur nú að sér hlutverk Cavaradossi, en hann hefur áð- ur sungið það hlutverk oft i heimalandi sínu og víðar. Fyrsta sýningin með. Demetz í lilut- verkinu verður n.k, miðviku- dagskvöld. Bókamarkaðttr Frámhald af 12. síöu. Heklu, sem væntanleg er á markað í byrjun næsta mánað- ar. Bækur Helgafellsforlagsins einar fylla að mestu meðalstóra bókabúð, sag'ði Ragnar Jónsson, forstjóri Helgafells, er frétta- maður Þjóðviljans leit inn í Listamannaskálann í gær. Það er því útilokað iað hafa þær al- mennt til sýnis og sölu í bóka- búðum. Því hefur forlagið öpn- að sérstaka búð, Unuhús, fyrir forlagsbækur sínar og efnir öðru hverju til sýninga. og rýmingar- sölu hér í skálanum. Fyrir for- laginu vakir nú sem fyrr að gefa fólki kost á að kaupa jóiagjafabækurnar með fyrra móti. Það sem forlagið hefur leyfl til að selja af málverkaprentun- um sínum hér í bænum og ná- grenni verður selt á markaðn- um. Sérstaklega skal fólkl bent á myndirnar tilbúnar til séndingar til útlanda, pakkaðar í alúmínhólk. Á markaðnum er lítið eitt gamalla bóka og nokkrar sér- útgáfur og einnig nokkur ein- tök af fáeinum bókum Daxness í fyrstu útgáfu. Að öðru leyti verða öll verk Laxness seld í heild gegn afborgunum og nokk- ur önnur verk, en ekki einstak- ar bækur. Guíuhoriim Framhald af 1. síðu í gær að fara þess á leit við ríkisstjórnina að felldir verði niður eða lækkuð verulega gjöldin til rikissjóðs í sam- bandi við kaupin á bornum. Guðmundur Vigfússon tók undir þessi ummæli og kvað eðlilegt að gjöld þessi yrðu fellcl niður, þar sem hér væri um stórfellt nytjatæki að ræða. V iðskiptamenn eru vinsamlega beðnir að athuga, að búðir félags- ins eru núna aðeins opnar til kl. 18 á föstudög- um og til kl. 16 á laugardögum, frá 1. október til 1. janúar, Kaupfélag Bsykjavíkur og nágrennis Múrarar óskast Löng vinna Byggmgarfélagið Bær hi. Símar 33-560, 19-874, 34-892. HVER Um litlu telpuna „Skottu“ eru komnar út margar bækur á Norðurlöndum, og hafa fáar unglingabækur orðið vinsælli. Höfundur er skáldkonan Lisbeth Verner. Fyrsta bindið er nú komið í bókaverzlanir, og segir af „Skottu“, réttu nafni Eenta Winter, þégar hún var send í heimavistarskóla út á Sjáland, meðan faðir hennar sigldi til útlanda, en hún hafði áður misst móður sína. „Skotta“ er hugrökk stúlka, kát og djörf, og lendir fljótt í mörgum spennandi ævintýrum,,, eignast góðar vinstúlkur en líka óvini. Hún verður fyrir tortryggni og margt stríðir á ER SK0TTA? hana,, en rætist að lokum vel úr öllu, vegna þess hve Skotta er réttlát og hreinskiiin. Hún hefur orðið vinur allra sem lesið hafa sögu hennar, og svo mun einnig verða á Islandi að allar stúlkur vei'ða hrifnar af Skottu. „Skotta í heimavist“ er komin í allar bókaverzlanir. — HEIMSKHINGIA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.