Þjóðviljinn - 12.10.1957, Qupperneq 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 12. október 1957
VIUINN
ÓtKefandi: Sameininscarflokkur alþýðu — Sósiallstaflokkurinn. - RltstJórar:
Magnús KJartansson (áb), Sigurður Guðmundsson. — Préttaritstjóri: Jón
BJamason. — Blaðamenn: Ásmundur Slgurjónsson, Guðmundur Vigfússon,
ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóliannsson. — Auglýa-
ingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prent-
♦miðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 17-500 (5 línur). — Askriftarverð kr. 25 &
feán. í Reykjavík og nágrenni; kr. 22 annarsstaðar. — Lausasöluverð kr. 1.ÖO.
Prentsmlðja Þjóðviljano.
Árangur st j órnarsamstar f sins
j jölnir, blað sósíalista á
Siglufiiði gerir nýlega að
umræðuefni samstarf vinstri
flokkanna um ríkisstjórn
landsins. Blaðið minnir fyrst
á að stjórnin hafi setið að
völdum í rúmt ár, eða rúm-
lega fjórðung kjcrtímabils.
Eftir svo skamman tíma sé
auðvitað ekki hægt að fella
neinn endanlegan dóm um
verk ríkisstjórnarinnar og
efndir hennar á málefnasamn-
ingi og kosningafyrirheitum
stjórnarflokkanna. Bendir
blaðið á að sá dómur verði
ekki uppkveðinn af neinni
sanngirni fyrr en í lok kjör-
timabilsins. Samt sem áður sé
fróðlegt að athuga hvernig
stjórnin hafi staðið í ístaðinu
þann tíma, sem liðinn sé ,af
starfstíma hennar og gera
sér grein fyrir því hvernig
ástatt væri, ef ekki hefði ver-
ið mynduð vinstri stjórn en
íhaídið farið með völdin. Um
þetta segir síðan í Mjölni:
"fhaldið hefur gert mikið
hróp að stjórninni vegna
gjaldeyrisástandsins. Sann-
leikurinn er sá, að gjaldeyr-
isstaðan er nú betri en hún
var á sama tíma í fyrra,
verzlunarjöfnuðurinn hag-
stæðari og gjaldeyrisfram-
leiðslan meiri en nokkru sinni
fyrr. Samt hefur stjómin
þurft að greiða stórar upp-
hæðir til greiðslu á skuldum
sem íhaldið var búið að stofna
til áður en það fór frá völd-
um.
Stjórnin hefur gert ráð-
stafanir til öflunar nýrra
atvinnutækja, stórra vélbáta
og togara, auk smærri skipa.
Togarakaup höfðu engin átt
sér stað í rúmlega tvö kjör-
tímabil á undan, en þá fór
íhaldið með stjórn atvinnu-
málanna. — Sett hefur verið
ný og stórmerk húsnæðislög-
gjöf, sern gera má ráð fyrir
að hafi hinn heillavænlegasta
árangur, þegar áhrifa hennar
fer að gæta að ráði. — Vinnu-
friður hefur. haldizt í landinu.
íhaldið hefur taiað mikið urn
verkföll, sem átt hafi sér stað
undanfarið. Sannleikurinn er
sá, að einungis sex félög með
5—600 meðlimi hafa gert
verkföll síðan stjórnin tók
við völdum, af um 160 félög-
um með ca. 30 þúsund með-
limi, sem eru í Alþýðusam-
bandi íslands.
^iotinn hefur gengið óslitið
á veiðar. En í tíð íhalds-
ins tíðkaðist það, að hann
lægi við landfestar vikum og
mánuðu.m saman vegna þess
að íhaldið þurfti stöðugt að
troða ilisakir við útgerðina
og alla, sem að henni stóðu.
Afstýrt hefur verið gegnis-
lækkun. Ef íhaldið hefði set-
ið við völd áfram, væri búið
að lækka gengið um 50—60%
og skerða með því kjör al-
mennings enn meira en gert
var með stóru gengislækkun-
inni 1950. Komið hefur verið
á verðlagseftirliti með þeim
árangri, að flestar helztu
nauðsynjar almennings hafa
haldizt óbreyttar í verði, enda
hefur vísitala sáralítið breytzt
í tíð núverandi stjórnar.
Afnumin hefur verið einok-
unaraðstaða íhaldsins í
bönkunum og yfir fiskútflutn-
ingnum. — Atvinnuleysis-
tryggingum hefur verið kom-
ið á. Atvinna hefur verið eins
mikil og undanfarin ár, og þó
raunar meiri, því vinnuaflinu
hefur verið beint að íslenzk-
um atvinnuvegum, meira en
mörg undanfarin ár, en í tíð
íhaldsins voru þúsundir
manna látnar vinna hjá Am-
eríkumönnum. Sú tala hefur
lækkað ofan í eitt til tvö
hundruð manns í tíð núver-
andi stjórnar.
ff-uessi ríkisstjóm verður auð-
*■ vitað, eins og allar aðrar
stjómir, dæmd af verkum sín-
um, þegar stjórnartímabili
hennar lýkur. Standi hún ekki
við þau loforð sem hún hefur
gefið, verður það henni til á-
fellis, en efni hún þau full-
komlega eða geri betur en
hún hefur lofað, verður það
henni til aukins álits og
sæmdarauka. En ennþá er of
snemmt að kveða upp endan-
legan dóm, og stjórnarsinnar
hafa enga ástæðu til að vera
óánægðir með störf stjórnar-
innar og munu almennt gera
sér Ijóst, hve lítið mark er
takandi á áróðri íhaldsins. —
Vinstri menn og stjórnarsinn-
ar munu svara þeim áróðri
með því að þjappa sér fast-
ar saman en áður, og auð-
velda með því stjórninni að
framkvæma stefnu sína“.
Alþýða manna um allt land
og aðrir Stuðningsmenn
stjórnarinnar og stefhu henn-
ar munu í öllum meginatrið-
um sammála þessum ummæl
um hins siglfirzka verkalýðs-
blaðs. Með kosningasigri A1
þýðubandalagsins og tilkomu
núverandi ríkisstjórnar urðu
alger þáttaskil í íslenzkum
stjórnmálum. Harðdræg og
afturhaldssöm árásarstefna á
lífskjör almennings beið ósig-
ur fj’rir framsókn og sam-
starfsvilja alþýðu- og fram-
leiðslustéttanna. Þrátt fyrir
illa aðkomu og margháttaða
erfiðleika hefur ríkisstjórn
vinstri flokkanna auðnazt að
koma mörgu nytsömu í verk
og stefnt er að lausn annarra
verkefna. Það er von allra
þeirra sem styðja stjórnina og
stefnu hennar að gengið verði
að lausn þeirra af þeirri fram-
sýni, dirfsku og stórhug að
störf hennar marki djúp og
heillarík spor í þiróun ís-
lenzkra efnahagsmála og
stjórnmála um langa fram-
tíð.
Stutt bréf til Halldórs Halldórs-
sonar prófessors
Kæri garnli kennari.
Þú ert einn þeirra,
sem stjórna Móðurmálssjóði
Bjöms Jónssonar. Á 111. af-
mæli hans veittuð þið Bjama
Benediktssyni aðalritstjóra
Morgunblaðsins verðlaun úr
sjóðnum fyrir „vandað mál
og góðan stil“. Þess er ekki
getið að þú hafir gert ágrein-
ing um þessa ákvörðun. Og
þareð ég hef löngum trúað
þér betur öðrum mönnum
flestum um mál og stíl, lang-
ar mig að senda þér fáeinar
línur.
Þegar stjóm Móðurmáls-
sjóðs veitti Karli ísfeld blaða-
manni þessi verðlaun fyrstum
manna, var víst ekki ástæða
til að vefengja réttdæmi henn-
ar. Og þegar Helgi Sæmunds-
son ritstjóri hlaut verðlaunin
í fyrra, máttu allir vel við
una. En þegar Bjami Bene-
diktsson aðalritstjóri hlýtur
þau í haust, þá er ástæða til
að vefengja réttdæmi ykkar
— þá má enginn vel við una.
Nafni minn við Morgunblaðið
skrifar sem sé hvorki vandað
mál né góðan stíl. Hann skrif-
ar flatt mál, þar sem engin
setning rís ahnarri hærra; að
lesa ritsmíðar hans er áþekkt
því að horfa á Dauðahafið í
logni. Hann skrifar karakter-
lausan stíl, þar sem aldrei
bregður fyrir listgripum af
neinu tagi. Mál hans er nef-
laust, stíll hans augnalaus.
Allt sem hann skrifar er
kauðalegt og lágkúrulegt.
Þetta er eðlilegt, eins og’ mað-
urinn er í pottinn búinn:
sneyddur ímyndunarafli, liug-
myndalaus, snýst alla ævina
múlbundinn kringum tvær eða
þrjár utanaðlærðar kennisetn-
ingar. Hann er svo lélegur rit-
höfundur að hami getur ekki
einu sinni skrifað ærlega á-
deilugrein, heldur nauðar hann
og nuddar, þvargar og þras-
ar •— þrotlaust og þindar-
laust. Bjami Benediktsson er
samskonar ritsnillingur og
kötturinn á sjöstj”rnunni. Við
hvert einasta blað á íslandi
starfa menn, sem rita vand-
aðra mál og betri stíl; jafn-
vel á Morgunblaðinu em of-
jarlar hans á öðm hverju
strái.
Þið lesið vitaskuld milli lín-
anna í reg'ugerð sjóðsins, að
blaðamönnum við tiltekin blöð
megi ekki veita verðlaun.
Samt er mér hulin ráðgáta,
hversvegna þið tölduð ykkur
þurfa að veita þessum manni
verðlaunin í þetta sinn. Þið
gangið að sjálfsögðu framhjá
Þjóðviljanum; en þið gátuð
til dæmis litið inn á Tímanum,
þar sem vinna átta menn mál-
snjallari og stílleiknari en að-
alritstjóri Moi’gunblaðsins.
Jón Helgason er sexfalt betri
rithöfundur en Bjami Bene-
diktsson. Svavar Hjaltested
stendur honum jafnfætis.
Ég er ekki lengur blaðá-
Samlíkingin sem Hannibal
Valdimarsson gerði á við-
brögðum húsfreyjunnar í
Bolungavík þegar verkalýðsfé-
lagið var stofnað þar fyrir
aldarfjórðimgi síðan og í-
haldsins í Reykjavík þegar
tekið var fram fyrir hendur
þess við ólöglega niðurjöfnun
útsvara hefur farið heldur
betur í fínar taugar Stak-
steina-liöfundar Morgunblaðs-
ins í fyrradag. Má heita að
Hannibal sé helgaður allur
þessi eindálkur Bjarna Bene-
diktssonar og ein§ og að lík-
um lætur ekki vandaðar
kveðjurnar.
Það sem lesendur táka fyrst
eftir er málefnaleg uppgjöf
Mbl. Ekki einu einasta atriði
í grein Hannibals er reynt að
svara. Viðbrögð Mbl. birtast
einungis í margtuggnum fúk-
yrðum um ráðherrann og per-
sónulegu narti.
Þetta sýnir að Mbl. er ljóst
orðið að málstaður íhaldsins
í útsvarsmálinu er slíkur að
hann er óverjandi. Það á.eng-
in r",k til stuðnings utsvars-
hneylcsli flokksbræðra sinna
og verður því að láta sér
nægja fúkyrðaausturinn.
Hitt leynir sér ekki að Mbl.
er yfir sig hrifið af fram-
taki hinnar skapmiklu íhalds-
húsfreyju í Bolungavík, sem
sá og skildi að ekki „d.ugði
að stappa“ heldur „varð að
arga“ þegar málstaður vinn-
andi stétta og rísandi verka-
lýðshreyfingar var fluttur þar
vestra fyrir 25 ámm. Segir
Mbl. sem rétt er að Vestfirö-
ingar séu prúðir og góðir
hlustendur á mannfundum og
„að eitthvað meira en lítið
hljóti að hafa verið bogið við
málfmtning Hannibals í Bol-
ungavík fyrst ein af liúsfreyj-
um staðarins ha.fi hvatt til
slíkra aðgcrða gagnvart hon-
um“. Auðvitað var meira en
lítið „bogið við“ þann boð-
skap í þá daga í liugum sann-
trúaðra íhaldsmanna að
verkalýðurinn í þorpi eins og
Bolungavík skyldi búa við
sömu kjör og stéttarsystkini
hans á ísafirði. Það var upp-
reisn gegn máttarvöldum
staðarins sem réttmætt var
að „arga“ niður úr því að
þau hljóð sem framleidd voru
með fótunum dugðu ekki til.
Þessi undantekning í Bolunga-
vík sýnir aðeins til hvaða
ráða íhaldið grípur þegar rök-
in þrjóta og viðbrögð þess í
útsvarmálinu eru sönnun þess
að enn stendur það á óbreyttu
menningarstigi.
Mbl. virðist ekki skilja sam-
•líkinguna lijá H.V. og fjöl-
yrðir um að „fokið sé í flest
skjól“ fyrir ráðherranum þeg-
ar viðbrögð húsfreyjunnar í
Bolungavík séu dregin fram í
umræðum um útsvarshneyksl-
ið. Engum sem las grein ráð-
herrans kemur til hugar þessi
skilningur gáfnaljósa Mbl. í
grein sinni benti H.V. aðeins
á hinn andlega skyldleika að-
sópsmikillar íhaldshúsfreyju
vestra sem vildi láta „ars:a“
maður og kvarta ekki yfir ó-
réttinum í nafni þeirrar stétt-
ar. Eg er ekki heldur að ráðast
á nafna minn. Hann ber þann
ósigur í sjálfum sér, að hon-
um er ekki of gott að fá
svona verðlaun — ef þau
verða honum til gleði; ég þarf
ekki að liðsinna þeim norn-
um, sem skópu aðalritstjóra
Morgunblaðsins örlög. En
lærifaðir og stórmeistari okk-
ar beggja, Sigurður Guð-
mundsson, kenndi okkur forð-
um að unna íslenzkri tungu
um aðra hluti fram; og ég
get ekki orða bundizt um þá
óvirðingu, sem henni er gerð
með ráðstofun ykkar. Ætla
prófessorar í tungu Egils og
bókmenntum Snorra að fara að
hampa lágkúrunni, liefja
máttvana mál upp til skýj-
anna, skipa kollóttum stíl í
öndvegi? Þú varst mér góð-
ur kennari, og þú ert hálærð-
ur maður í íslenzkri tungu.
En verk þitt nú — og allra
þeirra, sern stóðu að þessari
veitingu — ber svip af þeirri
geðlausu ómennsku sern
markað hefur íslenzkt þjóð-
félag um skeið, þeirri ó-
mennsku sem hampar vesal-
dómnum hvenær sem færi
gefst. Þið hafið svipt ykkur
fullu trausti góðra manna.
Það er ein lítil hlið á þessu
máli enn í viðbót. Oflof er
háð, sagði Snorri. Þið hafið
gert nafna minn á Morgun-
blaðinu broslegan með þessari
verðlaunaveitingu. Skátastelp-
urnar í Hafnarfirði eru fam-
ar að hlæja.
Þinn einlægur
Bjarni Benedilctsson
frá Ilofteigi
á málstað verkalýðsins og í-
haldsins í Reykjavík, og þá
ekki sízt Gunnars Thoroddsen,
sem gafst upp á að verja at-
hæfi sitt og samherja sinna
með rökum eða lagatilvitnun-
um en greip til þessa gamal-
kunna ráðs að stappa og arga
í Holstein og á síðum Morg-
unblaðsins.
Og svo talar Mbl. enn einu
sinni um að H.V. hafi ,,flúið“
Vestfirði og annað í svipuðum
dúr! Þetta er orðið of marg-
tuggið slúður, Moggi sæll, til
þess að nokkur taki á því
mark. Það hefur fyrr slreð á
íslandi að menn hafi flutzt
milli byggðarlaga Og flutn-
ingur Hannibals Valdimars-
sonar var ekki dularfyllri eða
„flóttalegri“ en það að hann
var kvaddur tíl ábyrgðar-
mesta trúnaðarstarfs íslenzkr-
ar verkalýðshreyfingar, kjör-
inn forscti Alþýðusambands
Islands. Slík trúnaðarstaða
útheimti að sjáifsögðu búsetu
í Reykjavík, engin leið var að
gegna henni með því að eiga
lieima í fjarlægum lanasfjcrð-
ungi.
Annars er rétt að minna
Mbl. á það af þessu tilefni,
að fátíöar'munu þær vinsæld-
ir og það traust sem Hanni-
bal Valdimarsson liafði áunn-
ið sér meðal vestfirzkrar
verkalýðsstéttar eftir langa
og fórnfúsa baráttu í hennar
þágu. Það traust ávann H. V.
sér fyrir óvenju skelegga
framgöngu í hagsmunamálum
Fr-amhald á 11. síðu.