Þjóðviljinn - 18.10.1957, Blaðsíða 3
Föstudagur 18. október 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Yfirvlnnca í þágu útflutnings-
frumleiðslunnar skattfrjáls
Frumvarp Karls GuSjónssonar og
Gunnars Jóhannssonar flutt að nýju
Tveir þingmenn Alþýðubandalagsins, Karl Guðjóns-
son og Gunnar Jóhannsson, flytja á Alþingi frumvarp
um breytingu á lögunum um tekjuskatt og eignarskatt.
Er efni þess það, að iaun fyrir yfirvirinu í þágu útflutn-
ingsframleiðslunnar verði skattfrjáls.
I frnmvarpinu er kveðið svo
á, að meðal þeirra tekna er Irá
skulí draga, áður en skattur er
ó lagður séu:
„Atvinnutekjur þær, er
skattþegn hefur aflað sér
með eftir-, nætur- og helgi-
dagavinnu við störf í þjón-
ustu útflutningsframleiðsl-
unnar og ekki eru orlofs-
skyldar. Atvinnurekendum
skal skylt að láta skattyfir-
völdunum í té vinnuskýrslur,
er sýni glögglega, hver hluti
af greiðslum til starfsmanna
þeina falli undir þetta á-
kvæði. Einnig skulu laun-
þegar gera gréin fyrir því á
skattframtali sínu, livort ein-
liver hluti íekna þeirra, og þá
hvað mikill, eigi að falla
undir þetta ákvæði.
Káðherra ákveður í reglu-
gerð til hverra starfa ákvæði
þetta taki, og skal þá við það
miðoð, að einungis bein störf
við framleiðsluvöruna sjálfa
heyri undir þetta ákvæði".
í greinargerð segja flutnings-
menn:
Mól þetta hefur verið flutt á
Undanförnum þingum, en ekki
hlotið afgreiðslu til þessa.
Víð flutningsmenn teljum, að
liér sé um réttlætismál að ræða,
sem öll rök hnígi að að sam-
þykkt verði, og þvi er það enn
flutt hér.
Það er alkunna, að þegar mik- i
ið berst að iaf sjávarafla, þá er
unnið að verkun hans miklum
mun lengur en venja er um aðra
vinnu, en verðmæti aflans
mundi spillast, ef menn miðuðu
lengd vinnudagsins við það, sem
þeim þætti hóflegt, en ekkj
nauðsynina á þvi að forða verð-
mætum undan skemmdum. Það
má auk þess segja að minn'sta
kosti um þann þátt fiskverkun-
arinnar, sem fram fer að vetrar-
lagi, að fæstir munu sækja eft-
ir þeirri atvinnu vikum saman
svo lengi á degi hverjum, að
■ jafngildi' tveimur eða hálfum
þriðja venjulegrim vinnudegi,
eins og oft tíðkast þó í afla-
hrotum.
Þjóðfélagið hlýtur að vi#ur-
kenna nauðsynina á því að fá
notið þejrra verðmæta, sem við
vinnu þessa eru sköpuð, ella
; hefðu íslendingar váfalaust tek-
ið upp þann hátt, sem viða
tíðkas-t í öðrum menningarlönd-
um, að reisa með löggjöf skorð-
ur við hóflausri yfirvinnu, en
það er nú víða< talinn sjálfsagð-
ur liður í almennri heilsuvernd.
Víð okkar Staðhætti hlyti slík
takmörkun að minnka fram-
leiðsluna eða ^spilla verðgildi
liennar.
En þótt þegnar þessa þjóðfé-
lags njóti ekki þelrrar verndar
gegn óhóflega löngum vinnudegi,
sem æskilegt væri, þá ætti þjóð-
félagið að geta látið hjá líða að
notfæra sér þennan launaávinn-
ing,'' sem: verkalýðshreyfingin
hefur samið. um fyrir slika yfir-
vinnu, t;l hömlulausrar skatt-
heimtu, og liggur þá beinast við
að leysa launauppbót fyrír ó-
hjákvæmilega j’firvinnu í þágu
útflutningsframleiðslunnar und-
an skattlagningu.
í frumvarpinu er ekkj lagt til,
að yfirvinnan verði öll leyst
undan skattskyldu, heldur að-
eins sá hluti kaupgreiðslunnar,
sem er umfram venjulegt dag-
vinnukaup. Væri þá samræmi
fengið mjlli orlofslaga og skatta-
laga að því er þessa vinnu varð-
ar, því að ekki er skylt að
greiða orlof á yfirvinnuna, nema
sem dagvinna væri.
Afgreiðsla Alþingis á þessu
máli er sýnu brýnni nú en áð-
ur, þar eð fyrirsjáanlegt er, að
til þess hlýtur að koma, að
verkalýðssamtökin hætta að
leyfa takmarkalausa yfirvinnu,
sem sökum skatts og útsvars að-
eins hafnar lítið gjald fyrir hjá
því fólki, sem leggur nótt með
degi í það erfiði, sem þarf til
að gera verðmæta vöru úr sjáv-
araflanum.
— Að lokmim 2 umferðarvikum
Gufuboriim oa Gurniar Thoroddsen
Framhald af 1. síðu.
'rot, en við gerð samninganna
um borkaupin hefði borgar-
stjóri engan fyrirvara gért um
að fá eftirgefin aðflutnings-
gjöld. Það hefði ekki verið fyrr
en 1 ári og 1 mánuði eftir að
'orinn kom til landsins að
borgarstióriun hefði farið að
ugsa og orða það að fá þau
eftirgefin.
Þórður kvað það ekki benda
til þess að borgarstjóranum
væri áhugamál að borinn kæm-
ist í notkun, að hann ætlaði
. Sigurður Þór-
arinsson sedr frá
Rínarlöndum
Ferðafélag Islands hefur fyrsta
skemmtjfund sinn á haustinu i
Tjamarkaffi í kvöld.
Dr. Sigurður Þórarinsson tal-
ar um Rínarlönd og segir frá
ýmsu fleiru úr Þýzkalandsför
sinni. Jafnfranrt sýhir hann lit-
skuggamyndir frá Rínarlöndum.
Er ekki að efa að frásögn hans
verður að vanda í senn skemmti-
leg og fróðleg.
Þá verður einnig mjmdaget-
raun, þar sem menn geta spreytt
s;g á að þekkja ýmsa staði. Er
þetta orðinn vinsæll þáttur á
skemmtifundum félagsins. Að
lokum verður svo dansað.
Aðgöngumiðar eru seldir í
bókaverzlunum Sigfúsar Ey-
mundssonar og ísafoldar — og
ef að vanda lætur ganga þeir
fljótt upp.
nú að flytja frumvarp um mál-
ið á Alþingi, vitandi vel að
langan tíma tæki áður en það
frumvarp yrði afgreitt.
Þórður flutti tillögu þess
efnis að bæjarstjórn legði á-
herzlu á að gufuborinn kæm-
ist sem fyrst í noktun og fæli
því borgarstjóra að ger( ráð-
stafanir til þess að ekki stæði
4 greiðslu gjalda af liálfu bæj-
irins.
Hafa liækliað um helming
á tv’eiin árum
Borgarstjóri var æfur og
kvað ríkisstjórnina hafa borinn
í haldi! Kvað hann stjórnar-
flokkana hafa hækkað gífur-
lega tolla síðan samningurinn
var gerður og gerbreytti það
málinu.
Guðmundur Vigfússon kvaðst
telja að ósk bæjarstjórnar um
niðurfellingu gjaldanna liefði
verið eðlileg, en þar sem rík-
jisstjórnin hefði ekki talið sér
það fært kvaðst hann fylgja
því að bærinn greiddi gjöldin
■ í stað þess að tefja notkun
borsins með því að gera þetta
j ð deilumáli á Alþingi. Guð-
mundur minnti borgarstjóra á
að hann hefði vart efni á því
að tala dólgslega um álögur,
og minnti hann á 250 milljón-
irnar er stjórn Sjálfstæðis-
flokksins lagði á almenning á
þinginu 1955—1956. Ennfrem-
ur að undir stjóm Gunnars
Thoroddsens hefði Sjálfstæðis-
flokkurhm tvöfaldað útsvörin
á Reykvíkingum á tveim árum.
Framhald af 12. síðu.
dregið til að enn séu hér í bæ
þúsundir bifreiða með ranglega
stillt ljós og því fylgir umferð-
arhætta meira en lítil.
Opin eftir vinnutíma
næstu viku
Til þess að bæta úr þessu
veita verkstæðin í Reykjavik
þeim sem vilja láta stilla ljós
bifreiða sinna sérstaka fyrir-
greiðslu, sem verður með þeim
hætti að verkstæðin hafa opið
eftir venjulegan vinnutíma, eða
til kl. 20 á hverju kvöldi, vik-
una 21.—28. október og verða
ekki unnin önnur verk en ljósa-
stillingar og ljósaviðgerðir á
þeim tíma. Athugun ljósa kost-
ar kr. 20,00. Stilling, ef hennar
er þörf, kostar kr. 30,00, en
frekari viðgerðir eftir því hve
mikill tími fer til þeirra.
Bifreiðaeftirlitið og lögreglan
munu samtímis gera ráðstafan-
ir til að stöðva þá sem hafa
ranglega stillt Ijós og koma
fram kæru á hendur þeim.
Ljósin sem slysavörn
Ekki mega ökumenn halda að
nægilegt sé að ljós bifreiðarinn-
ar séu rétt stillt. Það hvílir
einnig á mönnum skylda um
skynsamlega notkun ljósanna
og þá fyrst og fremst að lækka
þau í tíma þegar bifreiðir mæt-
ast.
Ljósin gei a einnig virkað sem
slysavörn við gatnamót þar
sem útsýn í hliðargötur er tak-
mörkuð. Með því að skipta milli
geisla þegar ökutækið nálgast
gatnamótin vekur ökumaðurinn
athygli á sér fremur en ella.
róðrinum um sinn, er von Um-
ferðarnefndarinnar sú að öku-
menn leggi sig fram um að
forða árekstrum eftir því sem
mögulegt er hverju sinni.
Mannslífin eru dýrmæt í okkar
fámenna þjóðfélagi og við meg-
um engu þeirra tapa að þarf-
lausu.
Allir vegfarendur þurfa að
leggjast á eitt
Hvatning umferðarviknanna
hefur aðallega beinzt að öku-
mönnuni. Aðrir vegfarendur,
hjólreiðamerni og gangandi fólk,
eru einnig aðilar að þessum
málum og þeir er oftast verða
fyrir slysunum. Margt gang-
andi fólk hagar sér svo gá-
lauslega í umferðinni að furðu
gegnir. Má með sanni segja að
reykvískir bifreiðastjórar bjargi
áreiðanlega fjölda mannslífa
með árvékni og snarræði.
Þrátt fyrir það verða fleiri
og fleiri banaslys með ári
hverju. Það sýnir að ökumenn
verða að sýna enn meiri að-
gæzlu, en umfram allt verða
þeir nú til áramóta að draga úr
ferðinni, auka aðgæzluna, forð-
ast að aka undir áhrifum á-
fengis svo að í slcýrslum ársins
1957 megi lesa:
EINUNGIS EITT BANASLYS
I REYKJAVfK ÁRIÐ 1957.
Ihald og skólar
Framhald af 1. síðu.
eins 600 þús. kr., þar af 100
þús. kr. til leikskólanna tveggja
og 500 þús. til byrjunarfram-
kvæmda vjð Breiðagerðisskóla.
Fái borinn í smábitum
Petrina Jakobsson ræddi um
að aldrei hefðu innflutnings-
gjöld hækkað eins og á þessu
ri. Flutti hún tillögu um að
fá einstaka hluta borsins af-
henta meðan verið væri að.
semja um greiðslu gjaldanna. >
Bæjarstjóm samþykkti loks
með 'ID atkv. fyrsta hluta til-
lögu Þórðar tun að bærinn legði
íherzlu á að koma bornum í
notkun, síðan var samþykkt
breytingartillaga borgarstjóra:
áskomn á ríkisstjórnina. að
leysa borinn úr haldi(!) og
loks. umsamin viðbótartillaga
Petrínar um að borinn yrði
afhentur í smábitum. — ösk-
ar Hallgrímsson sat hjá.
Eftirlit F.I.B.
Félag ísl. bifreiðaeigenda hef-
ur jafnframt haldið uppi eftir-
liti á götum bæjarins með það
fyrir augum að veita viður-
kenningu þeim ökumönnum,
sem athygli vekja á sér.
Eftirlitsmenn félagsins hafa
verið mjög vandlátir í vali sínu
svo að margir sem í fljótu
bragði virðast aka vel hafa
fallið á mismunandi grundvall-
aratriðum góðrar bifreiðastjórn-
ar. Viðurkenningaveitingar þess-
ar munu lialda áfram þar til
komið er í fulla tölu þeirra sem um
veita átti, en á það vantar
nokkuð enn.
Umferðarsýning
Slysavarnarfélag Islands og
Bindindisfélag ökumanna hafa
sameiginlega haldið umferðar-
sýningu í glugga Málarans í
Bankastræti. Hefur Slysavarna-
félagið auk þess staðið fyrir
sýningu umferðarmynda sem
aukamynda í kvikmyndahúsun-
um í Reykjavík en Bindindis-
félag ökumanna sent frá sér
allmargar blaðagreinar, út-
varpserindi og leikþátt um um-
ferðarinál.
Árekstrar færri
Árekstrar eru samkv. skýrsl-
um lögregluunar nokkru færri
í Reykjavík það sem af er
þessu ári en á sama tíma í
fyrra. Tilgangur umferðar-
nefndar með umferðarvikunum
tveim hefur fyrst og fremst
verið sá að fá ökumenn til þess
að aka betur, draga þannig úr
áíekstrum og umfram allt að
stuðla að því að hér verði ekki
fleiri dauðaslys á þessu ári.
Þótt nú verði slakað á í á
Alger umskipti
Það er fyrst á yfirstandandí
ári sem alger umskipti verða.
Þá virðist íhaldið í bæjarstjórn
fyrst skilja að í óefni er komið
og umsóknum um fjáráfesting-
arleyfi rignir eins og skæða-
drífu yfir fjárfestingaryfirvöld-
in. Vafalaust hefur þó íhaldið
vænst þess að geta eins og í tíð
Ólafs Thors skotið sér á bak
við þá afsökun að ekki fengist
leyfi til framkvæmda. En á
því liggur sterkur grunur að
sumar synjanirnar á undanförn-
árum hafi beinlínis verið
pantaðar af bæjarstjómaríhald-
inu til þess að eiga auðveldara
með að afsaka amlóðahátt sinn.
Eða hvemig getur íhaldið skýrt
það að því skuli sjmjað um
lej’fi af eigin samherjum en
aldrei hafi staðið á fjárfesting-
arleyfum til skólabygginga í tíð
vinstri stjórnarinnar? Almenn-
ingur kann áreiðanlega svarið
við þeirri spumingu.
Það sem af er þessu ári hefur
Reykjavíkurbær fengið fjárfest-
ingarleyfi að upphæð 2 millj.
750 þús. t;l Breíðagerðisskóla,
2 miþj. og 200 þús. kr. til gagn-
fræðaskólans við Réttarholtsveg
og 3 millj. kr. byggingarleyfi til
skóla í Hlíðunum, Vogunum og
á Melunum, eftir eigin vali. Er
það alveg í valdi bæjarins
hvemig hann hagar fram-
kvæmdum við þessa þrjá skóla
og aldrei leikið neinn efi á þvi
að auðvelt yrði að fá viðbóta-
leyfi eftir því sem framkvæmd-
um miðaði áfram. Samtals nema
þessi leyfj til skólabygginga í
ár kr. 7.950.000.00 eða 51% al
því sem um hefur verið sótt
á móti 39% sem veitt voru i
stjómartið íhaldsins.