Þjóðviljinn - 10.11.1957, Qupperneq 5
Sunnudagur 10. nóvember 1957 — ÞJÓÐVILJINN -— (5
t Haraldur Guömundsson rœðir við Zapotocky.
Sendiherra íslands gengur á
fund forseta Tékkóslóvakíu
Átjánda október tók Antonín
Zápotocký, forseti lýðveldisins
Tékkóslóvakía, á móti sendi-
herra lýðveldisins Islands, Har-
Verkfall í eld-
flaugastöð?
Svo getur farið að tilraimir
Bandaríkjahers með eldflaugar
stöðvist um óákveðin tima. Ó-
brej"ttir borgarar, sem starfa
við tilraunastöðina Cape Cana-
veral í Flórída hafa nefnilega
tooðað verkfall, ef ekki verður
hækkað kaup. I Cape Canaver-
al eru rejmdar allar helztu eld-
flaugar Bandaríkjamanna, svo
sem Júprter, Þór, Atlas og
fleiri,
Bólusetning við inflá-
enzu í Tékkóslóvakía
Bólusetning við Asíu-inflú-
enzunni er hafin í Tékkóslóv-
akíu. Framleiðsla bóluefnis við
hinu nýja vírusafbrigði gekk
að óskum. Blóðvatn við inflú-
enzunni verður einnig bráðlega
fyrir hendi.
II
aldi Guðmundssyni, í forseta-
höllinni í Prag. Sandiherrann
var kominn til að afhenda for-
setanum trúnaðarbréf sitt. Við
það tækifæri héldu forseti
Tékkóslóvakíu og sendiherra
Islands báðir stuttar ræður.
Haraldur Gúðmundsson, sendi-
heira Islands^ sa.gði um leið
,og hann afhenti trúnaðarbréfið,
að verzlunarviðskipti og menn-
ingarsamskipti miili Islands og
Tékkóslóvakíu hefðu aukizt til
muna á síðustu árum. Vaxandi
innflutningur tékkóslóvasks
varnings til Islands sýndi, að
öll tök væru á að efla við-
skiptasambandið milli landanna
tveggja enn frekar.
Antonín Zápotocký, forseti
Tékkóslóvakíu, svaraði þegar
hann hafði tekið við trúnaðar-
bréfinu, að ánægjulegt væri,
hversu verziunarviðskipti og
menningarviðskipti milli Tékkó-
slóvakíu og íslands hefðu dafn-
að. Forsetinn fullvissaði sendi-
herrann um, að hann sjálfur
og ríkisstjórn Tékkóslóvakíu
mj'ndu veita fullan stuðning
sérhverri viðleitni til að
treysta sambúð Tékkóslóvakíu
og Islands.
voru sýknaðir
Dómstóll i Nairobi í Ken-
ya hefur kveðið upp sýknu-
dóm yfir þrem fangavörðum
úr| fangabúðunum Athi í
Kenya, þar sem brezku ný-
lenduyfirvöldin hafa fjölda
Afríkumanna í haldi. Verð-
irnir báru ekki á móti að
þeir hefðu misþyrmt tveim
föngum, en kváðust hafa
gert það til að hindra. upp-
þot. Connell dómari tók þá
afsökun gilda. Læknar báru
fyrir réttinum, að tugir á-
verka hefðu verið á föng-
unum eftir barsmið með
stöfum.
eftir
N. Ostrovskí
Þýðandi
ÞÓRA VIGFÚSDÓTTIR
Frægasta skáldsaga Sov
étríkjanna frá byltingar-
tímanum, innblásin anda
hans, hugsjónum og hetju-
slcap.
Höfundurinn er dáður með
þjóð sinni og bókin nýtur
enn sömu vinsælda og
þegar hún kom út fyrir
24 árum.
Bókin er gefin út í tilefni
fertugsafmælis Sovétríkj-
Heimskringla
Nýtt tímabil í
eðlisfræði hafið
Dr. Kaplan, forstöðumaður
rannsókna Bandaríkjamanna á
alþjóðlega jarðeðlisfræðiárinu,
hefur sagt i blaðaviðtali, að
það að k'orria gervitunglinu á
loft sé vísindaafrek, jafn þýð-
ingarmikið og þegar mönnum
tókst fj’rst að kljúfa frumeind-
akjarna.
Sovétríkín búast
ekki tií árása
segir Spaak, framkvæmdastjóri Atianzliafs-
bandalagsins
Framkvæmdastjóri A-bandalagsins hafnaði í gær þeirri
skoðun, sem •forustumenn bandalagsins hafa haldiö fram
til þessa, að árásarhætta stafi af Sovétríkjunum.
Nýtt tímabil er hafið í eðlis-
fræði, stjörnufræði og fleiri vís-
indagreinum, segir dr. Kaplan,
Hann telur engan vafa á að
athuganir á þessu fyrsta gervi-
tungli muni koma Bandaríkja-
mönnum að góðu haldi.
Stjörnufræðingur
til suðurskauts-
Belgíumaðurinn Paul Henri
Spaak, sem tók við fram-
kvæmdastjórastarfi hjá banda-
laginu fyrr 4 Þessu ári, lét þessa
skoðun í Ijós i ræðu i Edinborg
í gær.
Hann komst svo að orðj, að
hann áliti ekki að Rússar væru
að búa sig undir stríð. Þrátt
fyrir það yrðu Vesturveldin að
vara gig á að egna þá, atburð-
irnar í Ungverjalandj í fyrra
sýndu hvað gæti gerzt, ef þeir
teldu beina hagsmuni sina í
veði.
Meginefnið i ræðu Spaaks var
að hvetja A-bandalagsríkin til
nánari samvinnu um vísinda-
rannsókn’r og vopnasmíðar.
Hann Uavðst þess fullviss, að
hægt væri að spara gifurlegar
fjárhæðir með því að samræma
visindatannsóknir, stuðla að
vopnaframleiðslu og dreifa
vopnasmíðunum viðar yfir
bandalúgsrikin.
Spútnikar Sovétrikjanna hafa
ýtt við Vesturveldunum og sýnt
þeim fram á að þau hafa ekki
lengur efnj á að dreifa kröftum
vísindamanna sinna, sagði
Spaak.
Gripu Tyrkja
með alvæpni
Sýrlenzka herstjórnin til-
kynnti í gær, að hermenn
hennar hefðu handtekið tyrk-
neskan hermann með alvæpni
á sýrlenzkri grund í gær. Gerð-
ist þetta skammt frá þeim stað,
þar sem herflokkar skiptust á
skotum í fyrradag. Skipuð hef-
ur verið sameiginleg nefnd
Tyrkja og Sýriendinga til að
rannsaka tildrög þess atburðar.
Herstjórn Frakka í Alsír seg-
ir að vopnaðir Serkir hafi ráð-
izt á. olíuleitarflokk í Sahara
og fellt fimm menn. Sveit úr
útlendingaherdeildinni leitar á-
rásarmannanna.
landsins
Frá og með byrjun des-
ember mun tékkneski stjörnu-
fræðingurinn Antonín Mrltos,
sem getið hefur sér orð fyrir
að finna halastjörnur, taka að
virða fyrir sér himinhvolfið
frá rannsóknarstöðinni Mirní á
Suðurskautslandinu. Mrkos
mun dvelja þarna fram á árið
1959 og gera. mælingar með
sérstökum tækjum á himninum
í ljósaskiptum og athuga suð-
urljós. Hann er annar Tékkó-
slóvakinn, sem til Suðurskauts-
landsins kemur, sá fyrri var
dr. Václav Vojteck, sem var
þar með leiðangri Byrds aðmír-
áls. Mælingar eins og þær, sem
Mrkos mun hafa með höndum,
hafa aldrei verið gerðar áður.
För sína fer hann í boði sov-
ézka leiðangursins, sem starfar
á Suðurskautslandmu á alþjóð-
lega jarðeðlisfræðiárinu.
Laus staða
Staða. bæjargjaldkera, sem jafnframt er skrifstofu-
stjóri Akraneskaupstaðar, er laus til umsóknar og
veitist frá 1. febrúar næstkomandi. -— Grunnlaun
kr. 3700.00 á mánuði.
Umsækjendur þurfa að vera þaulvanir bóklialdi,
reglusamir og á bezta aldri.
Eiginhandar umsóknir, ásamt meðmælum og öðrum
skilríkjum, sendist undirrituðum fyrir 10. des. næst-
komandi, er gefur allar nánari upplýsingar.
Bæjarstjórinn á Akranesi, 7. nóv. 1957.
Daitíel Ágúsiínusson.
tSiis hrundi5
20 fórnst
Tveir tugir manna fórust í
síðustu viku, þegar sjö hæða
hús í Kairó hrundi til grunna.
Þetta gerðist í útborginni Man-
ial. Brunamálastjóri borgarinn-
ar, sem stjórnaði björgunar-
starfinu, sagði að enginn vafi
væri á að slysið væri lélegu
byggingarefni að kenna.
Tilboð óskast
í Gasstöð Reykjavíkur til niðurrifs:
1. Stöðvarhúsin og kolaskúra ásamt tækjum, þar á
meðal gasmælum, gasofnum, leiðslum og öðru
tilheyrandi.
2. Gasgeymi.
3. 2 rafmagnsmótora.
4. Stórvirk olíukyndingartæki.
Nánari upplýsingar veitir gasstöðvarstjórinn. — Til-
boð skulu send skrifstafu borgarstjóra fyrir 1. des.
næstk. Verða þau opnuð þar hinn 4. des. næstk. að
viðstöddum bjóðendum.
Skrifstofa' borgarstjórans í Reykjavík 5. nóv. 1957.