Þjóðviljinn - 26.11.1957, Síða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 26. nóvember 1957
Romanoff og Júlía
Magnús Jónsson 70 óra
Framhald af 7. síðu.
Þórðardóttir er glæsileg og
sannfærandi sendiherrafrú og
fatast hvergi tökin, og ber
ekki síður en Rúrik hin
amerísku sérkenni.
Fulltrúar Sovétríkjanna, Val-
ur Gíslason og Inga Þórðar-
dóttir, eru líka ýmsum kost-
um búin og segja margt svo
skoplega og hressilega að hitt-
ir í mark, samvalin og gervi-
leg hjón; gagnkvæmum ákær-
um og játningum þeirra er á-
nægja að kynnast. Valur lýsir
vel einlægri föðurást sendi-
herrans og er ef til vill bezt-
ur þegar hann byrstir sig og
lætur verulega til sin taka,
og hrifning frúarinnar af
franska hattinum er lifandi
og sönn.
Sjálfa elskendurna leika
þau Benedikt Árnason og
Bryndis Pétursdóttir, og eiga
raunar ekki hægt um vik,
hlutverkin eru lítt skopleg og
orðin sem þeim eru lögð í
munn næsta- hversdagsleg og
lítt girnileg til fróðleiks; en
þau eru bæði ástfangin, ung
og fríð, og. bregðast ekki
skyldu sinni. Leikur Bryndís-
ar er að vísu ekki ríkur að
blæbrigðum, en jafnan inni-
legur og fallegur; framsögn
Benedikts ekki nógu sveigjan-
leg og viðfeldin og dregur
noklcuð úr sannfæringarkraft-
inum í orðum hins drengilega
liðsforingja.
Talsmaður skáldsins og
orðflest hlutverk í leiknum
er hershöfðinginn svonefndi,
hann er um leið forseti lýð-
veldisins þennan dag. Róbert
Arnfinnsson lýsir honum á
mjög hugþekkan hátt, bros-
milt sólskin fylgir honum
hvar sem hann fer. Hjarta-
gæzka, hugarró og hjálpfýsi
skína af svip hans og orðum,
samningalipurð hans og út-
sjónarsemi verða ekki í efa
dregin, tungutakið er mjúkt,
þægilegt og skýrt. En vera má
að Róbert geri hershöfðingja
þennan að óþarflega fáguðu
glæsimenni, það sakaði varla
þó að hann væri ofurlítið
skringilegri eða hjákátlegri i
sjón og raun. — Þegar þess
er minnzt að Ustinov samdi
hlutverk hins símasandi góð-
mennis handa sjálfum sér,
gegnir nokkurri furðu hversu
fátækleg fyndnin er í rauninni
í orðræðum hans.
Hermejipirnir þáðir, Baldvin
Halldórsson og Bessi Bjarna-
son, gera vissulega skyldu
sína, skýrir og broslegir í máli
og snarir í hreyfingum. Ágæt-
ur er erkibiskupinn í meðför-
um Indriða Waage, aldargam-
all að minnsta kosti, heyrnar-
sljór og svo átakanlega hrör-
legur og titrandi að engan
myndi undra þótt hann yrði
bókstaflega að dufti fyrir
augum hans. Helgi Skúla-
son leikur sovézkan bílstjóra
og njósnara og síðar munk,
ímynd sjálfrar þjáningarinn-
ar; iðrun hans, grátur og
afturhvarf í faðm kirkjunnar
eru kátbrosleg og lifandi í
meðförum leikarans.
Brúðkaup austurs og vest-
urs er skáldinu ærið áhuga-
mál, ein brúðhjón nægja
honum auðvitað ekki. Hinir
elskendurnir eru rússneskur
kvenskipstjóri og ungur kæli-
skápaburgeis f rá Chicago,
Herdís Þorvaldsdóttir og
Klemenz Jónsson. Gervi Her-
dísar er ef til vill ekki vel
við hæfi, en hún lýsir snerpu,
dugnaði og áhuga hins hátt-
setta liðsforingja skýrt og
skörulega, og verður einlæg-
lega ástfangin við fyrstu sýn.
Klemenz er ekki óskemmtileg-
ur í hlutverki elskhugans, en
ber ekl:i í neinu svip ættlands
síns eða þjóðfélagsstöðu, hann
er góðlátlegur íslenzkur smá-
borgari, en alls ekki forrikur
Ameríkani og iþróttaunnandi
eins og hann á að vera.
Sigurður Grímsson þýddi
leikinn, og viðast hvar á lip-
urt og gott mál. Um sumt
er ég honum ekki samdóma,
en hef raunar ekki lesið leik-
ritið á frummálinu. Söngtext-
arnir eru ágætir eins og
vænta má.
Sýningin vann auðsæilega
mikla hylli áhorfenda, þeir
klöppuðu óspart fyrir hverju
fyndnu tilsvari og kátlegu og
óvæntu atviki. Leikendunum
var vel fagnað í lokin og leik-
stjóranum þó mest, en Walt-
er Hudd mælti nokkur orð að
skilnaði, þakkaði samstarfs-
Framhald af 7. síðu.
höfðingjatímabilið svonefnda.
Eg vildi óska, að honum
auðnaðist að njóta enn langra
lífdaga heill heilsu og hann
' settist við og semdi persónu-
legá sögu samtíðar sinnar í
komið eins við kvikuna í þjóð-
lífi okkar, starfað eins heilir í
andrá líðandi stundar og hann.
Hér á ég við Magnús Jónsson
prófessor, sem fyllir sjöunda
áratug sinn í dag.
„Mér líður bezt, þegar ég fæ
arida Sturlú Þórðarsonar; og ag gjtja ótruflaður við skriftir
annarra ágætra manna. Hann
hefur vasast í svo mörgu, að
slíkt rit frá hans hendi yrði
girnilegt til fróðleiks.
Björn Þorsteinsson.
ic
Uomo universale, það var
manngildishugsjón endurreisn-
artímans. Maðurinn áttj að
vera alhliða að mennt og jafn-
vígur til flestra hluta, vísinda,
lista, stjórnmála, hermennsku
og háttprýði. Enginn einn þátt-
ur mátti bera aðra ofurliði,
og þó mátti fjölhæfnin ekki
skyggja ó neinn.
í rauninni eru slikar mann-
gerðir fátíðar, en koma helzt
fram á tímum þjóðemislegra
vakninga. Þá eru dyrnar opn-
aðar í allar áttir, þjóðlífið
hrópar á athygli og starfsorku
manna frá öllum hliðum. Það
er líkt og vorleysing, þegar
alljr lækir suða og öll vötn
vilja fram. Þannig var nítjánda
öldin íslenzka, enda ól hún af
sér marga frábæra og fjölhæfa
menn. Okkar öld er hinsvegar
allt önnur. Þjóðfélagið hefur
náð því stígi, að geta léyft
sér að beina menntun manna
inn á þröng og afmörkuð spor,
— við sjálft liggur, að fjöl-
menntun sé nú kennd til and-
legrar losaramennsku. Sameind
mannlífsins hefur líkt og klofn-
að í frumstofna sina;,_ menn
í óhkum greinum eru óðum að
komast úr kallfæri hver við
annan. Því er það undarleg
reynsla að kynnast manni, sem
er holdtekin andstæða þessa,
manni, sem yndi sér eflaust
betur á málþingi með Battista
Alberti eða Francesco Sforza
en mehntamönnum 20. aldar.
Og þó hafa fáir menn núlifandi
eða standa við léreft mitt og
mála“, heyrði ég hann eitt sinn
segja. En honum voru ekki
ætluð þau grið, enda efast ég
um að hann hefði unað þe.im
til lengdar. Þegar menntun
manns stendur róturn út um
allan jarðveg þjóðlífsins, fer
ekki hjá því að limið teygi sig
víða. Lítið þjóðfélag leitar á
slíka menn, mergsýgur starfs-
þrek þeirra, svo furðulegt er,
að nokkur stund sé eftir skil-
in handa þeim sjálfum. Eldleg-
um anda sem Magnúsi er sízt
gefið að sitja utan við. Hann
vill sjálfur móta hlutina,
hamra hin glóandi járn dag-
anna, — og fáir Islendingar
hafa nokkru sinni haft fleiri
járn í eldi en hann. Kennimað-
ur í prédikunarstól, leiðarahöf-
undur pólitísks málgagns,
ræðuskörungur í þingsölum,
ritstjóri bókmenntarits, há-
skólarektor og ráðherra. Mað-
ur, sem er formaður fjárhags-
ráðs og skrifar ævisögu Hall-
gríms Péturssonar, sem er í
senn formaður dagskrárstjórn-
ar útvarpsins og landsbanka-
ráðs, en vinnst þó tím| til að
standa andspænis náttúrunni
róum huga og festa litróf henn-
ar á léreft sín, við hvað annað
er slíkum rnanni .að líkja en
manngildishugsjón renaissans-
ins? Ekki vantar hann heldur
ytri reisn til að standast þann ‘
kvarða: fimur í orðsvörum, víg-
ur á erlendar tungur og veizlu-
maður flestum betri. Og arn-
arsvipurinn er eins og mótaður
eftir minnispeningum Sforz-
anna.
Þó er það ekki þetta, sem ég
mun lengst minnast, er ég
hugsa til Magnúsar Jónssonar.
Ilitt mun seiglífara, sem er ut-
an við allar upphefðir, — sí-
vökul forvitn.i, skarpur og
klókur skilningur og kímni-
gáfa, sem eys jafnt af brunn-
um hugvits og minnis.
Að sitja með Magnúsi er að
komast í snertingu við húman-
Ismann e;ns og hann hefur
gerzt mestur hér á landi. Ilanri
er einn síðasti nítjándu aldar
maðurinn, einn síðastur af
þeim stóru.
Það er einlæg afmælisósk
mín, að honum gefist nú loks
það tóm til eigin starfa, sem
umbrotamikið þjóðiíf vildi
ekki veita, og honum endist til
þess heilbrigði og harhingja.
Björn Th. Bjorassoii.
mönnum öllum og lýsti á-
nægju sinni yfir dvölinni á
landi hér. Mér er ljúft og
skylt að þakka honum mikið
og giftudrjúgt starf í þágu
íslenzkrar leiklistar.
Á. Hj.
★
★
Nauðsynleg bók á hverju heimili
Dönsk-íslenzk orðabók
stærsta íslenzk orðabok af erlendu máli
bókin er 1066 bls,, hefur að geyma yfir
50 þús. uppsláttarorð
að stofni til bók Freysteins Gunnarssonar skólastjóra,
en aukin og endurskoðuð af Ágústi Sigurðssyni,
cand mag, dr. Ola Widding og Freysteini
Gunnarssyni, skólastjóra.
Bundin í lallegt band. — Verð kr. 340.00.
Kjörbækur
Isaioldar
Kj örskrá
Kjörskrá til bæjarstjórnarkosninga í Keflavíkur-
kaupstað er fram fara hér 26. jan. 1958, liggur
frammi í skrifstofu bæjarins, Hafnargötu 12,
Keflavík frá 26. nóv. til 23. des. næstkomandi
að báðum dögum meðtöldum.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu sendar í bæj-
arskrifstofuna eigi síðar en 5. jan. n.k.
Keflavíkurkaupstað 25. nóv. 1957
BÆJARSTJÓRINN
Inniskór
Barna og unglingainniskór úr flóka og
flaueli nýkomnir. — Stærðir 22 til 33.
Verð frá kr. 29.10.
Skóverzlunin HECT0R h.f.
Laugavegi 11 — Laugavegi 81
Kj örskrá
til hreppsnefndarkosninga í Njarðvikurhreppi, er
fram eiga að fara hinn 26. janúar 1958, liggur
frammi almenningi, til sýnis á skrifstofu hreppsins
að Þórustíg 3, Ytri-Njarðvík, frá 26. nóv. til 23.
des. n.k.
Kærur yfir kjörskránni skulu komnar til sveitar-
stjóra eigi síðar en ð. janúar n.k.
25. nóvember 1957,
Sveitarstjóriun í jNjarðvLkurhreppi.
.:í;