Þjóðviljinn - 25.01.1958, Side 6

Þjóðviljinn - 25.01.1958, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 25. janúar 195S ÐVIUINN jtKeíandl: Samelnlngarfloklcur alþýOu — Sósiallstaflokkurlnn. - Rltstjórar jlaarnús Kjartansson (áb.), Slgurður Ouðmundsson. — Préttarltstjóri: Jón öjarnaaon - Blaðamenn: Ásmunóur Sigurjónsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson. — Auglýa- ngastjórl: Ouðgelr Magnússon. — Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar, prent- «mlðja: Skólavörðustíg 19. — Síml: 17-500 (5 línur). - Áskriftarverð kr. 25 A nán í Reykjavík ok nágrenni; kr. 22 annarsst. - Lausasöluverð kr- 1.50 Prentsmlðja ÞJóðvlljana. Einbeitlni og dómgreind gegn öskri Morgunblaðsins fj rosiegt er að sjá Morgun- " blaðið í öngvum sínum vegna lygaþvæ'u íhaldsins um kosr.ingalagabreytinguna i vet- ur. Nú birtir það daglega marg- ar upphrópanir til að lýsa það ósannindi sem Morgunblaðið hamraði á dag eftir dag um þessa iagasetningu, sýnilega dauðhrætt um að einhverjir Reykvíkingar hafi tekið alvar- .ega og trúað áróðursþvælunni : vetur. Þess vegna vinnur nú Bjarni Ben það til að lýsa Morgunblaðið ómerkt að full- yrðingum þsss um kosninga- '.agabreyUnguna, en íhaldið jttast auðsjáanlega að Morg- unblaðið og Vísir hafi ruglað íólk svo að af verði alvarleg hindrun fyrir kosningasmala í- haldsins á morgun. f^egar rætt var um þá breyt- *■ ingu á kosningalögunum að banna að umboðsmenn ilokkanna gætu sent út úr Kjörfundarstofu á kosninga- skrifstofu jafnóðum upplýs- ;ngar um hvern einasta mann sem kýs, ætlaði íhaldið alveg að umhverfast. Bjarni Ben„ Jóhann Hafstein og >aðrir í- naldsiegátar hótuöu því í um- ■æðunum á Aiþingi hvað eftir annað, að á kosningadaginn 26. ianúar yrði magnaður að kjós- endum í Reykjavík meiri ó- friður en nokkru sinní fyrr. Kosningasmalar skyldu sendir í hvert einasta hús og engir látnir hafa fiið, hvorki þeir sem búnir væru að kjósa eða hinir sem eftir væru. Eftir er hlutur reykvískra kjósenda, og hafa þeir á morgun aðstöðu til að svará ófriðarhótunum í- haldsins, — með því að losa í- naidið við það sport að stjóma Reykjavíkurbæ á þann þokka- lega hátt, sem rífjaður hefur verið upp nú undanfamar vik- ur. Cula siðferðið" hefur sett mark sitt á íhaldið í þess- tari kosningabaráttu og ýms- um fylgismönnum Sjálfstæðis- fiokksins er farið að blöskra. í síðustu útgáfum lygaáróðurs- ins í formi gulu sögunnar er þeirri rúsínu bætt við að Ein- ari Oigeirssyni hafi ekki þólt nógu langt gengið á hag hús- eigenda og viljað eitthvað enn hroðalegra í þeirra garð en Titstjórum Morgunblaðsins og Vísis hafi upphugsazt í gulu sögunum fram á síðasta dag! Hverjum skyídi slíkur áróður ætlaður? Ein lygin tuggin og jórtruð eftir fyrirmyndum nazista dag eftir dag, og svo bara annarri bætt vfð, jafn tilhæfulausri, þegar hin ber ekki tilætlaðan árangur, Skyldi slíkum áróðri ætlað að efla dómgreindarhugsun kjósenda, sem Gunnar Thoroddsen var að augtýsa efLr? Ritst-jóri Vis- is kvartar sárlega undan því í gær, að tvö blöð í bænum hafi ekki tekið upp aðferð íhaldsblaðanna og látið allar rökræður víkja fyrir einu dómgreindarlausu áróðurs- öskri. Hersteinn Vísisritstjóri fræðir lesendur á því að í- haldsblöðin hafi framleitt xneiri hávaða í kosningabar- áttunni. Vel má það vera satt, en hávaði hefur aidrei þótt merki styrkleika og öryggis. enda munu íhaldsblöðin ekki megna að framleiða svo mik- inn hávaða, að hin þunga og- rökfasta ádeila af hálfu Al- þýðubandalagsins á misferli bæjarstjórnaríhaldsins heyrist ekki og hafi sín óhrif. ¥?inmitt við það er íhaldið í Reykjavík logandi hrætt um þessar kosningar: Að sarg- andi hávaði og gatslitinn á- róður sé hættur að hafa þau tilætluðu áhrif að æra fólk og trufla dómgreind þess, svo að það láti énn hafa sig til að kjósa íhaldið yfir sig. íhaldinu í Reykjavík hefur þótt óvenju þungt fyrir fæti í þessari kosningabaráttu, það óttast ró og æsingaleysi fólksins. Ekkert kemur íhialdínu ver en að fólk- ið: láti dómgreind ráða og gangi fumlaust og skýrt hugs- aiidi að kjörborðinu á morgun. Þar er auðunnið það þjóðþrifa- verk að losa Reykjavík við óstjórn og glundroða íhaldsins. Það er ekkert hávaðaverk að setja blýantskross á kjörseðil, en gangi nógu margir Reykvík- ingar til þess verks með skýrri hugsun og ótruflaðir af öskur- kór íhaldsins, geta þeir unnið höfuðborginni og þjóðarheild- inni hið þarfasta verk. A ndstæðingar íhaldsins í ■*■• Reykjavik óttast það mest við þessar kosningar, að þús- undir1 atkvæða einlægra vinstri manna og íhaldsandstæðinga fari til ónýtis. Þau hljóta að verða að engu á lista Þjóðvam- arflokksins sem engum kemur að. Þau geta farið til ónýtis á iista Aiþýðuflokksjns, sem tal- ið ,ýr líklegt að missi annan sinn mann. Þau geta farið til ónýtis á lista Framsóknar- fiokksins, sem talið er liklegt að fái talsvert meira en þarf til. að fá einn mann kjörinn, en er yoniaus um tvo. Lang- mest.ar iikur eru ti! þess að atkyæði . íhaldsandstæðinga notist bezt með því að kjósa G-listanh, iísta Alþýðubanda- lagsins. íhaldinu er ijóst að það er í mestri hættu ef Al- þýðubandalagið vinnur stóran kosnirjgasigur. Því ríður á miklu að heiðariegir íhaldsand- stæðingar verji vel atkvæði sínu, og varist að láta það falla dautt niður. Bréíi svaraö Kæri herra borgarstjóri! Þakka lijartanlega bréfið yðar, sem mér barst í dag. Eg er talsvert stoltur af því að vera orðinn bréfavinur eina borgarstjórans á íslandi, og veit að ekki eiga allir þvílíku láni að fagna. Ekki spillir það heldur ánægjunni að þér eruð rétt laglegur bréfritari af borgarstjóra að vera og líMið fremur læsilega rithönd — þótt bugðan á f-inu yðar beri samkvæmt rithandarfræðum vitni vissum breyskleik, sem bæjarstjórnarfulltrúar þekkja af persónulegri reynslu, en aðrir bæjarbúar af sorglegri afspurn. Þessvegna verður þeim stundum að brosa, þegar þér setjið upp mestan tignar- svip á almannafæri. Eg hrökk annars illilega við, þegar mér barst bréf yð- ar i hendur. Það rann upp fyrir mér i sama bili, að fyr- ir réttum fjórum árum skrif- iiðúð þér mér einnig ágætt bz-éf — sem ég lét undir höf- uð leggjast að svara. Nú ótt- ast ég að þér skrifið mér kannski aldrei framar, ef ég læt þessu bréfi ósvarað; og þar sem mér er metnaðarmál að halda góðu sambandi við yður, hef ég afráðið að taka mér penna í hönd — og bið yður fyrirfram að taka vilj- ami fyrir verkið. 'Bréf yðar snýst að sjálf- sögðu um það mál, sem nú er efst á baugi í borginni yð- ar: bæjarstjórnarkosningarn- ar á morgim. Eg dirfist ekki að brjóta ,upp á nýjum um- ræðuefnum við yður, svona tiginn mann; og þvi drep ég á nokkur atriði, sem mér finnst sérstaklega athyglisverð í bréfi yðar. Þér segið: „Sjálfstæðismenn, sem stjórnað hafa Reykjavík undanfarin ár, hafa reynt að auka framfarir á flestum sviðum og að bæta lífskjör fólksins". Setningin er betur orðuð en yður grunar sjálfan, og hún bregður skæru ljósi jTir hæversku yðar í þessari kosninganna orðahríð. Þér segið nefnilega einungis að Sjálfstæðismenn hafi reynt að auka framfarimar; þér full- yrðið ekki að ]>eim hafi tekizt það. Og málflutningur yðar er alveg laukréttur. Sjálfstæðis- menn ,,reyndu“ til dæmis um hrið að afla fjár til Sogs- virkjunarinnar nýju, en þeim tókst það ekki. Sjálfstæðis- menn hafa líka ,,reynt“ að leggja hitaveitu í Hlíðar- hverfið, en þeim -hefur ekki ennþá tekizt það. Sjálfstæðis- menn hafa sömuleiðis „reynt“ að útrýma bröggunum, en þeim hefur heldur ekki tek- izt það — þvert á móti: braggarnir hafa ,,útrýmt“ nokkrum tugum Sjálfstæðis- manna; þeir kváðu ætla að kjósa G-listann núna. Þið haf- ið svo sem „reynt“ sitthvað fleira, en lánazt miður. Eg nefni til dæmis sundlaugina í Vesturbænum, sem hann Bir- gir hyrjaði á í sumar. Þó stakk hann fyrir svo stónun hnaus á mjmdínni í Morgun- blaðinu að sundlaugin væri komin, ef honum hefði lukk- azt að losa hann. Það skal þó tekið fram að ég hef gam- afl. af sýndarmcnnsku, þegar ekki eru önnur skemmtiatriði á boðstólum. Þið hafið „reynt“ að auka framfarir „á flestum sviðum,“ segið þér. Orðin benda til þess, að þið hafið látið ein- hver svið afskiptalaus. Nú nefnið þér að vísu ekki þessi vanræktu svið ykkar Sjálf- stæðismanna, enda er það eitt ærið afrek að viðurkenna til- vist þeirra; en ég skal nefna fáein þeirra, svo eftirmaður yðar geti gengið beint að þeim. Þið hafið þá ekkt reynt að auka framfarir í vatnsmál- ,Mér hefur sýnzt að þér séuð orðinn pínulítið þreyttur“ um bæjarins, þannig að bæði Landakotshæðin og Klepps- holtið kváðu vera nærfellt vatnslaus frá 9.30 á morgn- ana til 23.45 á lnröldin; og þegar fína fólkið yðar var búið að að koma sér upp sér- stakri Snobhill á einum stað í borginni, þá gerðist sá ör- lögþrungni harmleikur í lúks- usvillum hamingjunnar að ekki var unnt að hleypa niður í skelplötuklósettunum eftir hádegi. Og svona mun þessu eimiig háttað í upphæðum Morgunblaðshallarinnar, sem þér enið þó sjálfur vanda- bundinn með þeim hætti að ekki gleymist meðan húsið stendur. Þið hafið heldur ekki reynt að koma upp verka- mannahúsi við iiöfnina; þið hafið ekki reynt að skipu- leggja úthverfin; þið hafið ekki reynt að byggja leigu- húsnæði handa einstæðum mæðrum, eða stofna dag- heimiii í þágu útivinnandi lrvenna. En biðskýlin hans Björgvins vega að sönnu þungt núna í frostunum, og fögur eru sólarlögin í Háuhlíð hiuna réttlátu. Þér segið: „Við höfum gert okkar bezta........“ Nú stendur þessi setning raunar^ í dálítið óljósu sambandi,*" þannig að ég veit ekki ná-! kvæmlega hvað þér hafið í huga. En ætli það séu ekki framkvæmdir bæjarins sem enn vaka fyrir yður; og þegar þess er gætt að peningurinn er afl þeiri'a hluta sem gera skal, þá skiijast orð yðar á- gæta vel. Þið hafið sem sé hækkað útsvarið mitt um 131% síðastliðin 4 ár. Þið haf- ið líka tæmt vatmsveitusjóðinn og rafveitusjóðinn og húsa- tryggingasjóðinn og ráðhús- sjóðinn og skipulagssjóðinn og lífeyrissjóðnum og að lok- um sjálfan framkvæmdasjóð- inn — og hvað. þeir nú allir heita. Þegar ég bjó á hita- veitusvæðinu, þá hélt ég í ein- feldni minni að hitaveitugjald- ið mitt yrði notað ttl að láta bróðir minn í Skjólunum fá hitaveitu. En þegar ég frétti að þið væruð famir að reisa hús yfir sjálfa ykkur fyrir hitaveitupeningana mína, þá fór ég hið snarasta inn í Teiga til að losna við hita- veitugjaldið, en bróðir minn fékk sér hitaveitu á Sauðár- króki. Og nú er hitaveitu- sjóðurinn líka tómur. Þess- vegna má það vissulega til sanns vegar færa, að þið Sjálfstæðismenn háfið gert ykkar hezta; og énginn hefði gert betur. Og þegar þér seg- ið ennfremur að það sé „yð- ar að dæma um“ hvernig störf yðar „hafi tekizt“, þá er það einnig hverju orðí sannara. Að sjálfsögðu verður sá dóm- ur felldur. Þér beinið að lokum þeim eindregnu tilmæluöi til mín að ég neyti atkvæðisréttar míns, og látið þess jafnframt getið að listi Sjálfstæðis- manna sé D-listi. Eg vil trúa yður fyrir því, og bið yður að láta það ekki fara lengra, að ég er staðráðinn að neyta nefnds réttar — eins og ég lief ævinlega gert síðan ég fékk hann. Eg kaus í fyrsta sinn sumarið 1946; og með þvi ég er kominn af aiþýðu- fólki og allir s"gðu að C-list- inn væri listi a'þýðunnar þá krossaði ég við hann. Sama varð uppi á teiúngnum í .kosn- ingunum 1949, 1950, 1953 og 1954. En 1956 sögðu allir að G-listinn væri listi alþýðunn- ar, og þá kaus ég hann. Nú heyri ég enn alla segja, að G-listinn sé listi alþýðunnar; og þessvegna verð ég að kjósa hann í annað sinn. Listi Sjálf- stæðismanna er altso D-listi, en listi fólksins er sem sagt G-listi. Finnst yður þetta ekki nægilega skýrt? Er ekki anzans ári þægilegt að hafa svona hreinar og beinar línur, kæri borgarstjóri ? Svo þakka ég yður áftur fyrir bréfið og kveð yður með virktum. Mér hefur sýnzt á nýlegum myndum af yður, að þér séuð orðinn pínuiítið þreyttur. Það er vitaskuld annað en gaman að herasvona föðurlega ábyrgð á okkur öil- um og standa í endalausum veizluhöldum fram á rauða- nætur, þvert ofan í vilja sinn. Því óska ég þess af Iieilu hjarta, að þér fáið nu eitt- hvert rólegt og friðsælt starf utan við alfaraveg þjóðlífsins frá og með næstu mánaðamót- um. Vantar ekki kennara við Réttarholtsskólann nýja?, Yðar einlægur Bjarni Benediktsson. Samt við eigum atkvæði Alltaf malar íhaldi, aUsnægtir þess gamla kvörn; samt við eigum atkvæði ambátta og þræla börn. DogG Amerísku auðvaldi íiialdið gaf listann D, en þeir sem unna íslandi allir niunu kjósa G.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.