Þjóðviljinn - 04.02.1958, Page 9
% ÍÞRÓTTIR HITSTJORI; FRlMANN HELGASOft
16mennvaldirtil fsrar á
laftlei!
Fara utan eítir þrjár vikur
Á sunnudaginn var gekk
Handknattleikssamband Is-
la.nds frá því hvaða leikmenn
og fararstjórn fer til heims-
meistarakeppninnar í Austur-
Þýzkalandi um næstu mánaða-
mót. Úrtökunefndin hafði val-
ið liðið, en í henni eru þeir
Sigurður Norðdahl og piimgr
Jónsson. Val þetta hefur sjálf-
sagt verið erfitt því margir
leikmenn eru það jafnir að erf-
itt er að gera upp á milli
þeirra. Fljótt á litið virðist
valið þó vera nokkuð nærri
sanni. Þó virðist manni sem
Hörður Felixson hefði átt að
vera með í þessum hóp en hann
hefur verið stoð og stytta liðs
síns um langt skeið og ekki
síður í vetur en í annan tíma,
þar sem hann hefur lengri æf-
ingu en nokkru sinni, vegna
utanfarar KR í haust. Það er
líka vafasamt að fara ekki með
fleiri en tvo markmenn þegar
tillit er tekið til þess að út
fara tvö lið og tveir menn í
viðbót. Vonandi kemur ekki
til þiess að þetta skapi vand-
ræði. Annars er hópurinn þann-
ig skipaður:
Birgir Björnsson FH, Berg-
þór Jóns'son FH, Einar Sigurðs-
son FH, Guðjón Ólafsson KR,
Gunnlaugur Hjálmarsson ÍR,
Hermann Sumarliðason ÍR,
Hörður Jcnsson FH, Karl Bene-
diktsson Fram, Karl Jóhanns-
son KR, Þórir Þorsteinsson KR,
Valur Benediktsson Val, Krist-
inn Karlsson Ármann, Ragnar
Jónsson FH, Reynir Ólafsson
KR, Sverrir Jónsson FH og
Kristófer Magnússon FH.
Fararstjórar verða: Árni26. febrúar.
Árnason fonnaður HSl og Ás-
björn Sigurjónsson úr stjórn
sambandsins.
Sigurður Nordahl fer sem
fulltrúi landsliðsnefndar og
Hallsteinn Hinriksson sem aðal-
þjálfari liðsins. Karl Benedikts-
son og Kristinn Karlsson eru
varafararstjórar og Kristinn
sérstakur fulltrúi HKRR,
Val liðsins erlendis annast:
Hallsteinn, Sigurður og fyrir-
liði liðsins Birgir Björnsson, en
varamaður hans er Karl Jó-
hannsson.
Áætlað er að farið verði héð-
an 24. febrúar og flogið um
London til Dússeldorf og það-
an til Magdeburg, en fyrsti
leikurinn verður við Ungverja
Handknattleiksmótið:
vanns Vat 29:17 í meistaraflokki,
iukar komu á óvart í þriðja flokki
Aðalleikur kvöldsins var
milli FH og Vals í meistarafl.
og lauk með auðveldum sigri
Hafnfirðinga. Hafa Hafnfirð-
ingar ef til vill aldrei verið
sterkari en þeir eru nú og var
það hraði þeirra sem gerði Vals-
mönnum erfiðast fyrir, og svo
var vörnin sterk, og reyndist
Val það erfitt verk að komast
í gegnum hana. Valsliðið er
ekki sérlega stei'kt að þessu
sinni var með nokkra unga
menn og lítt reynda og svo
eru þeir ekki í eins góðri þjálf-
un og Hafnfirðingar eru, að
Val Benediktssyni undanskild-
um, en hann og Geir Hjartar-
son eru beztu menn Valsliðsins.
Vafalaust eiga þessir ungu
Valsmenn eftir að þroskast og
verða meiri heild, en til þess
verða þeir að leggja hart að
sér, og skapa sér örugga und-
irstöðu sem nefna má grunn-
þjálfun, hana hafa Hafnfirð-
'Í'"
V ^ <
Ármann J. Lárusson
Ármann J. Lárusson vann
Skjaldarglímu Ármanns
Skjaldarglíma Ármanns var
háð í Hálogalandi á sunnudag-
inn var og komu 12 menn til
glímunnar en 11 luku henni,
og voru keppendur austan und-
an Eyjafjöllum og vestan af
Snæíellsnesi.
Var allmargt manna sem
horfði á þessa afmælisglímu, en
í ár eru liðin 50 ár síðan
fyrsta Skjaldarglíman fór fram,
sem þá var raunar kölluð Ár-
mannsglíman, en það var 1908
og varð Hallgrímur Benedikts-
son fyrsti skjaldarhafi.
Verður síðar vikið að glimu
þessari. — Úrslit í glímunni
urðu þessi:
1. Ármann J. Lárusson,
UMFR 10 vinninga.
2. Kristján H. Lárusson,
UMFR 8 vinninga.
3. Ólafur Guðlaugsson Umf.
Dagsbrún 8 vinninga.
4. Kristján Andrésson, Ár-
manni 7 vinninga.
Kristján og Ólafur urðu að
glíma um þriðja sætið, þar sem
þeir höfðu jöfn stig að glim-
unni lokinni.
ingar og komast því léttara út
úr leikjunum og með betri ár-
angur. Þetta skilja handknatt-
leiksmenn yfirleitt ekki og því
fer sem fer, þeir ná ekki þeim
árangri sem þeir annars gætu.
Leikur þessi var ekki sérlega
,,spennandi“, til þess voru yfii'-
burðir FH of miklir. Lið þeirra
er mjög samstillt og einstak-
lingar þeirra mjög sterkir og
má þar nefna Ragnar, Einar,
Birgir og Kristófer og koma
margir aðrir þar ekki langt á
eftir. Leikurinn var yfirleitt
prúðmannlega leikinn. Þó má
Ólafur Thorlacíus vera á verði
með of harðan leik og tók
dómarinn réttilega hart á því.
Það er ekki gróði fyrir hand-
knattleikinn sem íþrótt ef
harka og ruddalegur leikur á
að fá að leggjast hér í land.
Eftir þessum fyrsta leik
Hafnfirðinga í íslandsmóti
þessu virðist sem erfitt muni
að taka af þeim titilinn að
þessu sinni. Þó er ekki full-
komlega að marka þennan leik
þar sem lið Vals er ekki eins
sterkt og oft áður. Frímann
Gunnlaugsson var dómari og
dæmdi yfirleitt vel.
S. fl.: FH — Haukar 9:8 og
Víkingur — KR 8:4.
1 þriðjaflokki fcru fram tveir
leikir og komu úrslitin í báðum
nokkuð á óvart. Voru það B-
lið sem áttust við. Lið Hauk-
anna virtist mun sterkara en
það sem lék á laugardaginn,
og í skránni er kallað A-lið
og bendir til þess að félagið
hafi mikla ,,breidd“ af ungum
mönnum.
*Það sem þó vakti mesta at-
hygli var það að þessir ungu
Haukar léku- ekki alveg eins
og allir gera. Þeir virðast hafa
tileinkað sér svolítið aðra leik-
tækni en almennt gerist, enda
var það svo að hinir mikið
stærri og skotharðari FH-ingar
áttu fullt í fangi með hina yfir-
leitt smávöxnu Hauka. Og þó
FH sigraði á síðustu mínútunni
þá var leikur Hauka frá sjón-
armiði leikandi leiks með trufl-
andi sýndarleik og leikni, mun
betri.
Það er einmitt þetta sem
þessir litlu Haukar sýndu sem
ungir drengir ættu að tileinka
sér mikið meir í æfingum sín-
um, án þess að gleyma því að
æfa skotin. Þetta er oft mjög
jákvætt í leik og svo verður
Framhald á 11. síðu.
Þriðjudagur 4. febrúar 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Aðsend vísa — Hættuleg horn — Kyndilmessa —■
Merkisdagar.
ÞAÐ virðast því miður „hafa
lamast póstsamgöngur“ víða
að undanfömu, eins og eitt
blað komst einu sinni að orði.
Eftirfarandi vísa, send utan
af landi, er sýnilega ort fyr-
ir bæjarstjórnarkosningamar,
en barst mér ekki í hendur
fyrr en í gær. Þótt vísan sé
of seint á ferðinni til þess að
ráðleggingar hennar komi að
gagni í bæjarstjórnarkosning-
um núna, þá verður kosið oft-
ar, og þær eiga alltaf við.
Til athugunar við kjörborðið.
„Láttu falla um sjálfa sig
svarta auðvaldshrekki.
Kjóstu aldrei yfir þig
okur, brask né hlekki“.
Þess skal getið, að á þeim
stað, sem vísan kom frá, voru
úrslit kosninganna íhaldinu í
óhag. — Alþýðublaðið hefur
tekið upp umferðaþátt, og
var ein fyrirsögn í þættinum
um daginn þessi: Hættuleg
hom. Þátturinn var á sömu
opnu og Hannes á hominu, en
sum skrif Hannesar að und-
anförnu hafa verið á þá leið,
að ekki er ólíklegt, að það
homið hafi reynzt Alþýðu-
flokknum býsna hættulegt. Á
sunnudaginn var Kyndilmessa,
en hún er einn þeirra merkis-
daga, sem gamla fólkið mið-
aði við til að spá um veðrið
marga næstu daga. I bók
sinni: Loftin blá, kemst Páll
Bergþórsson svo að orði í
kaflanum: Mun þá verða mjög
gott ár: „Ekki virðist nokkur
skynsamleg ástæða til að taka
fremur mark á þessum dög-
um en öðrum. Vindarnir á
hinu órólega Atlanzhafi eru
óstýrlátari en svo, að þeir
hagi ferðum sínum eftir því,
í Þjóðvinafélagsalmanakinu
stendur, að þennan eða hinn
daginn sé Pálsmessa, kyndil-
messa, riddaradagur eða boð-
unardagur Mariu, svo að eitt-
hvað sé nefnt af merkisdög-
um þessum“. Síðar í kaflan-
um telur Páll upp merkis-
dagana og eru þar m.a. yfir
tuttugu „messur“, ætla ég að
telja þær upp til gamans:
Vincentíumessa, Pálsmessa,
Kyndilmessa, MatthíasmeSsa,
Pétursmessa, tveggjapostula-
messa, Úrbansmessa, Jóns-
messa, Þingmaríumessa, Mar-
grétarmessa, Jakobsmessa,
Lárentíusmessa, Maríumessa
fyrri, Bartolomeusmessa, Eigi
díusmessa, Krossmessa, Kross-
messa á hausti, Allraheilagra-
messa, Mikjálsmessa, Gallús-
messa, Marteinsmessa, Tómas-
armessa. Þið getið fundið í al-
manakinu, hvaða veðurspár
eru tengdar þessum dögum.
Gömul vísa segir þannig um
kyndilmessu:
„Ef í heiði sólin sezt
(sumir: sést)
á sjálfa kyndilmessu,
snjóa vænta máttu mest
maður upp frá þessu“.
Sjálfsagt kannast mörg ykkar
við orðtakið: öskudagur á 18
bræður, en mig minnir, að það
sé undir hælinn lagt hvemig
viðrar næstu daga á eftir
öskudeginum. En hvað sem
um þessa „merkisdaga má
segja, þá voru margir gömlu
mennirnir ótrúlega veður-
glöggir, og gömlu konumar
reiknuðu veðurfarið út eftir
því hvernig gigtin í mjöðm-
inni. hagaði sér hverju sinni.
tJTSALA
Mikil verðlækkun.
Fyrir telpur:
Pils frá kr. 70.00. Skokkar frá kr. 125.00. Blússur kr.
50.00. Peysur fi'á kr. 17.00.
KÁPUR allt að hálfvirði — ÚLPUR hálfvirði.
Fyiir dömur:
Blússur frá kr. 45.00 Brjóstahaldarar á hálfviiði.
Mjög ódýr sokkabandabelti. Flauelspils kr. 170.00,
Fyrir drengi:
Buxur kr. 39.00. Peysur kr. 15.00. ÚLPUR frá kr.
185.00. — Mikil verðlækkuun á dömutöskum, kr.
49.00 og 79.00. Nylonsokkar, kr. '25.00.
Hagkvæm kaup.
Laugaveg 33.