Þjóðviljinn - 04.02.1958, Side 12
Fregnir hafa borizt um aö skammt sé aö bíða nýrra
gervitungla, bæöi frá Bandaríkjunum og Sovétríkjunum. !
Fyrsti spútník Bandaríkja-
manna heldur áfram göngu
sinni. Þýzki eldflaugafræðingur-
inn von Braun hefur skýrt frá
því að eldflaugasamstæðan, sem
bar hann út í geiminn, hafi náð
meiri hraða en tii var ætlazt,
og því sé braut spútniksins fjær
jörðu en hún átti að vera.
Vangruard enn
Bandaríska fréttastofan Asso-
ciated Press skýrir frá þvi að
gervitungladeild bandaríska
flotans sé ekki af baki dottin
að reyna að koma spútnik á
loft með eldflauginni Vanguard.
Búið sé að reisa eina eldflaug
á tilraunasvæðinu á Canaverai-
höfða og verði reynt að senda
kúlulaga spútnik á loft með
henni alveg á næstunni. Sá er
16 sm í þvermál og vegur 1.5
kíló. Takizt þessi tilraun verð-
ur reynt að senda fullkominn
spútnik, 50 sm í þvermál og bú-
inn mælitækjum, á loft með
Vanguard eldflaug í marz.
Þá segja bandariskir frétta-
menn, að farið sé að reisa nýja
eldflaugasamstæðu á vegum
bandaríska landhersins á Cana-
veralhöfða.
Spútnik þriðji
New Vork Times segir að
bandarískum eldflaugafræðing-
um hafi borizt vitneskja um að
Saharoff, yfirhershöfðingi
Sovétríkjanna í Þýzkalandi,
gekk á laugardagihn á fund
Grotewohls forsætisráðherra
og tilkynnti honum, að lok-
ið væri brottflutningi 41.000
eovéthermanna frá Austur-
Þýzkalandi. Voru þeir fluttir
heim og leystir úr herþjón-
ustu samkvæmt ákvörðun sov-
étstjómarinnar um að fækka
mönnum undir vopnum.
í Sovétríkjunum sé verið að
leggja síðustu hönd á undirbún-
ing að því að senda spútnik
þriðja á loft. Hann sé geysistór,
mun þyngri en spútnik annar,
sem vóg meira en hálft tonn.
Blaðið segir að bandarísku eld-
flaugafræðingarnir geri ráð fyr-
ir að eldflaug með spútnik
þriðja verði skotið á loft ein-
hvern næstu daga.
Ungur GrœnSendingur hefur
íslenzkunám við Háskólann
Átti íslenzkan aía, og er einnig aí
dönskum og grænlenzkum ættum
Ungur Grænlendingur, Leif Jensen frá Umanak, leit
inn á ritstjórnarskrifstofur Þjóðviljans í gær.
Hann er mýkominn til íslands Fólk hans hefur átt heima í
og hefur í hyggju að leggja Grænlandi í nokkra ættliði, og
stund á íslenzka tungu við Há- er Leif Jensen af dönskum,
skóla íslands. Hann hefur grænlenzkum og íslenzkum ætt-
llIðOVUJINN
Iriðjudagur 4. febrúar '1958 — 23. árgangur — 27. tölublað.
Næstu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar á fimmtudag
Þá verður í fyrsta simt flutt hér eiftt
ai meiriháttar verkum Carls Nielsens
Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tónleika i Þjóöleik-
liúsinu n. k. fimmtudagskvöld. Stjórnandi veröur Róbert
Abraham Ottósson, en einsöngvari með hljómsveitinni
Þuríður Pálsdóttir.
tæknifræðingsmenntun frá Dan-
mörku og hefur ferðazt víða.
204)0 metrm ís
á Suðurshauti
Brezki leiðangurinn undir
forustu dr. Vivians Fuchs, sem
reynir að brjótast þvert yfir
Suðurskautslandið, á nú 270
km ófarna til birgðastöðvar
700. Leiðangursstjórninni í
London hefur horizt skýrsla
frá Fuchs, þar sem hann seg-
ist hafa gengið úr skugga um
að fjöll séu undir ísnum á
Suðurheimskautinu og næsta
nágrenni þess. Á heimskautinu
sjálfu er ísinn 2000 m þykkur
en nokkuð frá því eru fjall-
garðar undir 600 m þykkum
ís.
Fresturinn til að skila lögum við
Ijóð Jónasar styttist nu óðum
Verðlaunin eru alls 11500,00 krénur
Ríkisútvarpið hefur ákveðið, eins og áður hefur verið
tilkynnt, að veita verðlaun fyrir beztu ný lög er því
berast við kvæði Jónasar Hallgrímssonar, og var þetta
tilboð upphaflega gert á vegum Afmælissjóðs útvarps-
ins, í sambandi við 150 ára afmæli Jónasar.
Verðlaun eru alls kr. 11.500,
— og eru annarsvegar verð-
laun fyrir íög við einstök
kvæði, en þar eru 1. verðlaun
kr. 2.000,— og 2. verðlaun
kr. 1.000,—. Hinsvegar eru
svo verðlaun fyrir umfangs-
meiri verk við eitthvert hinna
stærri kvæða, og getur þá ver-
ið um að ræða einsöngslög og
kórlög, 15—20 mínútna eða
lengri hljómsveitarverk. 1.
verðlaun eru þar kr. 6.000,—
og 2. verðlaun kr. 2.500?—.
Tónskáldum er heimilt að
velja sér sjálf texta, en Ríkis-
útvarpið hefur bent á ýmis
smærri kvæði og stærri, er það
telur einkum æskilegt að fá
lög við.
Útvarpið áskilur sér rétt til
frumflutnings laganna og á-
framhaldandi flutningsrétt og
einnig útgáfurétt, eftir sam-
komulagi, ef það óskar þess.
Frestur til að skila lögunum
er til 1. marz 1958. Lögin
skulu send með sérstöku auð-
kenni, er einnig sé sett á lokað
umslag, er í sé svo nafn höf-
undar.
1 dómnefnd eiga sæti, auk
útvarpsstjóra, dr. Páll Isólfs-
son, dr. Victor Urbancic, Fritz
Weisshappel píanóleikari og
Guðmundur Jónsson óperu-
söngvari.
Kvæði þau, er útvarpið hef-
ur tekið til, eru þessi:
I. Smærri kvæði: Ásta, La
Belle, Grátittlingurinn, Sr Þor-
steinn Helgason (einlkum 3. og
4. vísa), Sláttuvísa, Ó, þú jörð,
Hví skyldi ég ei vakna við,
Tómasarhagi, Occidente Sole.
II. Stærri kvæði: Gunnars-
hólmi, Hulduljóð, fsland far-
sælda frón, Ánnes og eyjar,
Formannsvísa.
stofni. Afi hans var íslending-
ur, Þorfinnur Hjaltason frá Ak-
ureyri.
Leif Jensen hyggur gott til
dvalarinnar á íslandi og hefur
mikinn áhuga á að kynnast ís-
lenzkunni og íslenzku þjóðlífi
eins vel og kostur er á.
Þetta eru aðrir tónleikarnir,
sem Róbert A. Ottósson stjórn-
Þuríður Pálsdóttir
ar, eftir heimkomuna frá Þýzka-
landi á sl. hausti. Þuríður Páls-
Sveinn Kristinsson varð skákmeisiari
Taflfélags Reykjavíkur 1957
Vann titilinn eftir fjórfalda keppni, er
stoo a ijoroa manuo
S. 1. föstudag lauk loks keppninni um titilinn skák-
meistari Taflfélags Reikjavíkur og hlaut Sveinn Krist-
insson það sæmdarheiti eftir harðvítuga baráttu.
Sjálf keppnin í meistaraflokki | kominn, þótt úrslitin væru tví-
fór fram í nóvembermánuði sl.; sýn lengi vel. Hann tefldi alls
Voru keppendur alls 13 að tölu
og fóru leikar svo, að þrir þeirra
urðu efstir og jafnir að vinning-
um, Þeir Svednn Kristinsson,
Kári Sólmundarson og Gunnar
Gunnarsson. Þeir urðu því að
keppa innbyrðis. um titilinn og
var ákveðið, að þeir tefldu tvö-
falda umferð. Lauk henni svo,
að þeir skildu enn jafnir, hlutu
2 vinninga hver. Áttu þeir því
aftur að tefla tvöfalda umferð.
Eftir fyrri umferð þeirrar
keppni stóð svo, að Sveinn
hafði 1V2 vinning, Kári 1 og
Gunnar V2. í síðari umferðinni
mættust þeir fyrst Sveinn og
Gunnar og vann Sveinn. Var
Gunnar þar með búinn að
missa alla möguleika til þess
að bera sigur úr býtum, svo að
hann gaf skák sína við Kára.
Hafði Sveinn þá 2^/2 vinning og
Kári 2 og áttu þeir eftir að
tefla eina skák saman. Var nú
ákveðið að breyta keppninni í
einvígi á milli þeirra. Tefldu
þeir því enn fjórar skákir og
fór Sveinn með glæsilegan sig-
ur af þeím hólmi, hlaut 3% vinn
ing gegn V2.
Það mun einsdæmi, hérlendis
a.m.k., að svo langan tíma hafi
tekið að fá hrein úrslit á skák-
móti, því að alls stóð keppnin
yfir á fjórða mánuð.
Ekki verður annað sagt, en
í þessari keppni 23 skákir, vann
12, gerði 10 jafntefli og tapaði
1 og hefur því hlotið 73.91%
vinninga. Er það mjög góður
árangur, einkum þegar þess er
gætt, að meira en helming skák-
anna tefldi hann við tvo sterk-
ustu keppinauta sína.
Framhald á 8. síðu.
ra
Siglufirði. Frá fréttaritara
Lúðrasveit Siglufjarðar, ásamt
blönduðum kór og blokkflautu
sveit barna hélt hljómleika hér
sl. sunnudag undir stjórn Sigur-
sveins D. Kristinssonar. Undir-
tektir voru ágætar.
Sigyrsveinn D. Kristinsson
kom hingað norður í desember
s.l. og hefur stjórnað tónlistar-
lífinu hér síðan. Hefur hann
komið upp skóla í blokkflautu-
leik, nótnalestri o.fl. og eru nem-
endur rösklega 100. Hann hefur
einnig æft hljóðfæraleik og söng
og hefur lúðrasveitin þegar tek-
ið miklum stakkaskiptum.
Viðfangsefnin á sunnudaginn
voru einkum ættjarðarlög og
þjóðlög. Viðtökur voru ágætar
og tónlistaráhugi hefur aukizt
að Sveinn sé vel að sigrinum hér mikið.
dóttir er nýkomin heim úr nokk-
urra mánaða námsdvöl í Milano,
en þar kom hún fram á tónleik-
um ásamt fleiri ungum söngvur-
um og hlaut góða dóma. Henni
var einnig boðið að fara með
tvö óperuhlutverk við eitt af
söngleikahúsunum í Milano, en
tímans vegna gat hún ekki þeg-
ið það boð.
Efnisskráin á tónleikunum nk.
fimmtudag er mjög fjölbreytt.
Fyrst verður leikinn forleikur að
óperunni Kátu konurnar í Wind-
sor eftír Otto Nicolai. Þá syng-
ur Þuriður Pálsdóttir með und-
Irleik hljómsveitarinnar óperu-
aríur, fyrst aríu úr óperunni
Don Giovanni eftir Mazart, sið-
an aríu úr Dan Pasquale eftir
Donizetti og loks aríu úr Fást
eftir Gounod. Að loknum söng
Þuríðar leikur hljómsveitin tvo
dansa úr óperunni Selda brúð-
urin eftir Smetana.
Eitt af stærstu verkum
Carls Nielsen flutt í
fyrsta sinn hér
Að loknu hléi verður flutt
hér í fyrsta sinn opinberlega
sinfónía nr. 2 eftir dansRa tón-
skáldið Carl Nieisen — sinfóníu
þessa nefndi tónskáldið Lyndis-
einkunnirnar fjórar —.
Carl Nielsen fæddist 1865, en
dó árið 1913 og var þá vafaiaust
frægasta tón-
skáld Norður-
landa, ef Si-
belius einn
var undanskil-
inn. Margir
telja að Niel-
sen hafi jafn-
vel verið enn
merkara tón-
skáld en hinn
frægi Finni,
en hvað sem því líður hefur
frægð Danans breiðst mjög ört
út síðustu tvo áratugina, ekki
hvað sízt meoai enskumælandi
þjóða.
Carl Nielsen samdi mikinn
fjölda tónverka, m.a, sex sinfón-
íur, nokkrar óperur og viðkunn-
ur er fiðlukonsert hans, sem
Emil Telmanyi, tengdasonur
Nilsens sem komið hefur hing-
að til lands tvívegis, átti mik-
inn þátt í að kynnaT'
Sinfónían, sem S;nfóníuhljóm-
sveitin leikur á fimmtudaginn.
er í fjórum köfium; má segja
Framhald á 2. síðu.
CarJ Nielsen
Hæster meðalafli
nær sex lestir
1 janúarmánuði öfluðu Stykk-
ishólmsbátar 172 lestir í 34
róðrum. Hæsti báturinn fékk
89 lestir í 16 róðrum eða nær
6 lestir í róðri.