Þjóðviljinn - 07.03.1958, Síða 6

Þjóðviljinn - 07.03.1958, Síða 6
«) ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. marz 1958 PIÓÐVILJINN ÚtRefandi: Samelninerarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn. - BitstJórar Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. - Fréttárítstjóri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Slgurjónsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson. — Auglýs- ingastjóri: Guðgeir Magnússon. - Ritstjórn. afgreiðsla. auglýsingar, prent- smiðja: Skólavörðustíg 19. — Siml: 17-5f»0 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 25 á mán. i Reykjavík og nágrenni; kr. 22 annarsst. - Lausasöluverð kr. 1.50 Prent8miffja ÞJóðviljans Alþýðublaðið og Iðja A lþýðublaðið birti í fyrradag forustugrein um kosning- arnar í verkalýðsfélögunum og þó einkum i Iðju, félagi verk- smiðjufólks. Er greinin öðrum þræði árás á afstöðu Fram- sóknarmanna í verlcalýðsfélög- unum að veita ekki íhaldinu stuðning í viðleitni þess við að leggja undir sig stjómir félaganna og síðan yfirstjóm heildarsamtakanna, en það er ■\utanlega markmið íhaldsins með brölti þess í verkalýðs- samtökunum. Með þeim hætti á svo að eyðileggja núverandi samvimiu verkalýðssamtak- anna og ríkisstjórnarinnar, svipta ve”T"ilýðinn áhrifum á löggjafarvaiu.'" og fram- kvæmdavaldið 0$,' ríkisstjórn- ina þeim grundvelli sem til- vera hennar hvílir á. Tlj’tla hefði mátt að Alþýðu- blaðið bæri í brjósti þá blygðunarsemi fyrir hönd flokks síns að láta gleymsk- una fremur geyma smán hans í sambandi við kosningarnar í verkalýðsfélögunum en að verða til að minna á hana að fyrra bragði. En þessu er ekki fyrir að fara hjá þeim Al- þýðuflokksmönnum. 1 stað þess að skammast sín og biðja alla heiðarlega vinstri menn afsökunar á framferði sínu hælast þessir ógæfumenn um og þykjast þess umkomnir að tala við vinstri sinnað fólk í hrokatón! Afrek þessara ó- gæfumanna er að hafa nú tryggt völd íhaldsins í Tré- smiðafélagi Reykjavíkur a.m. k. um eins árs skeið. Á at- kvæðum hægri krata hefur það án efa oltið að íhaldið hélt félaginu með 8 atkvæða meiri- hluta. Alþýðublaðið á bágt með að ^kilja þá afstöðu Fram- sóknarmanna í Iðju og Tré- sroiðafélaginu að láta ekki bafa sig til að hlaða undir í- haldið en hafa í þess stað samstarf við Alþýðubanda- lagsfólk og annað vinstri sinn- að fólk í félögunum. Kveður Alþýðublaðið Alþýðuflokkinn „einnig aðila að þessu máli“ og er það vissulega rétt að svo miklu leyti sem leyfar hans hafa þrótt til. Hans fáu hræður í Trésmiðafélaginu bera nú ábvreð á íhaldsstjóm- inni þar. í Iðju er hins veg- ar svo komið að íhaldið þarf greinilega ekki á hægri kröt- um að halda. Þakkað veri hundflatri þjónustu hægri manna við atvinnurekenda- flokkinn! Alþýðublaðið verður að reyna að skilja að ejund þessara mahna er svo áberandi og átakanleg að varla tekur því að telja þá fullgilda að- ila að kosningaátökum i þess- «m félögum. Þeir eru þar í algeru þjónustuhlutverki fylg- isskorts og umkomuleysis og verða að sætta sig við- aigera Þjóðleikhúsið minnihlutaaðstöðu. Barátta vinstri manna beinist því af eðlilegum ástæðum gegn þeim sem aflið leggja til, íhaldinu, en ekki þessum aumu fylgis- sveinum þess, sem allir vor- kenna og fyrirlíta. í grein Alþýðublaðsins er minnizt á úrslit Iðjukosn- inganna í fyrra. Þá var það tvímælalaust að hægri kratar afhentu íhaldinu félagið, því ótrúlegt er annað en þeir hafi ráðið þeim 26 atkvæðum sem munaði á listunum. Hitt er svo rangt að fyrrverandi stjórn hafi fallið á frammi- stöðu sinni í kjaramálum fé- lagsins, því óumdeilanlegt er, að kjör iðnverkafólks eru hennar verk og ekki annarra. Hinn róttæki og félagsvani kjarni í Iðju gerði félagið að því stéttarlega vígi sem það var þegar íhaldið tók við. Iðja var aldrei eftirbátur annarra verkalýðsfélaga í baráttunni fyrir kauphækkun eða öðrum kjarabótum verkafólks. Og sÍ2Ít situr á Alþýðublaðinu að vera með slíkar ásakanir, sama sneplinum sem Iét hala sig til að bera fram kröfuna um að Iðja yrði lögð niður þegar hún stóð I éinni örlaga- ríkustu og erfiðustu kjarabar- áttu sem liáð hefur verið I sögu félagsins. Tjá heldur Alþýðublaðið því *■ fram áð ,,andstæðingar“ fyrrverandi félagsstjórnar hafi verið sviftir félagsrétti í Iðju! Sjálft veit blaðið að það fer með vísvitandi ósannindi og algerlega tilefnislaus. Eða hvemig í ósköpunum áttu þeir þá aö ná yfirráðum í félag- inu S sínar hendur, eins og raunin varð á í fyrra, ef þeir voru félagsréttindalausir? Svona blekkingar eru of gegn- sæar til þess að nokkur taki mark á þeim. 17ða á þetta e.t.v. að leiða at- hyglina frá þeirri stað- reynd, að núverandi stjórn Iðju hefur orðið uppvis að stórfelldri fölsun á kjörskrá félagsins í þeim tilgangi að tryggja völd sín? Veit Al- þýðublaðið ekki að f jöldi fólks var nú tekin út af kjörskrá Iðju vegna þess að unnt var að sanna fyrir kosninguna að fæðingardagur og ár hafði verið vísvitandi falsað til þess að tryggja viðkomandi kosn- ingarétt í félaginu? A lþýðublaðið talar um að ■**■ Framsókn sé á hættulegri braut með því að samfylkja ekfki með íhaldinu í Iðju! Sú braut er Framsókn áreiðan- lega ekki hettuleg, nema síð- ur sé. En hvað um ritjumar af Alþýðuflokknum? Telur Alþýðublaðið e. t. v. að þær eigi engan metnað og enga sjálfstæða tilveru lengur ? Þær Litli kofinn eftir André Roussin Leikstjóri: Benedikt Árnason Það mua ekki ofmælt að André Roussin sé eitt vinsæl- ast tízkuskáld í París um þessar mundir, hlátursleikir hans eru sýndir bæði oft og víða. Þó má með ólíkindum telja að nokkurt þjóðleikhús annað en það íslenzka hafi sýnt „Litla kofann“ eða áþekk verk hins bragðvísa kunnáttu- manns, en ástæðna tæpast langt að leita. Það hefur verið fremur hart í ári hjá leikhús- inu þrátt fyrir almenna vel- gengni, og allmikið tómahljóð í fjárhirzlunni, en í annan stað telur leikhúsið það auð- vitað lieilaga köllun sína að koma fólki til að hlæja. En því í ósköpunum má ekki velia ’gamanleiki sem hafa nokkuð skáldskapargildi — á þeim er varla neinn skortur í Frakklandi og öðrum helztu menningarlöndum. Til dæmis mætti spyrja hversvegna eng- inn hinna snjöllu og góðkunnu háðleikja Marcels Aymé sé sýndur á landi hér. „Litli kofinn“ her auðþekkt franskt ættarmót, en efnið er ærið mjóslegið og svo marg- þvælt og gamalkunnugt að það vekur furðu að endast skuli höfundinum í þrjá heila þætti; en kunnátta hans í iðn- inni lætur ekki að sér hæða. Tveir karlmenn og ein kona bjargast úr skipbroti upp á fallega og frjósama eyðieyju í Suðurhöfum — eiginmaður- inn, eiginkonan og elskhug- inn, með öðrum orðum þrí- hymingurinn frægi. I fásinni þessu gefst vesaling's friðlin- um ekkert færi til ásta, hann getur ekki unað ástandinu lengur og tekur það til bragðs, að segja eiginmannin- um frá öllu saman. Ög viti menn, hann tekur fréttum þessum með furðulegu jafnað- argeði og stóískri ró, og felst áður en varir á tillögu elsk- hugans: þeir deila blátt áfram með sér ástum hinnar fögru og greiðviknu konu, sofa hjá konu vinar síns. Róbert virðist sjálfkjörinn í hlutverk eigin- mannsins, skapgóður, hóglífur og gamansamur eins og hann á að vera. Og þegar hann þakkar forsjóninni fyrir björgun konu sinnar og sættir sig þannig. við orðjnn- -hlut, tekst Róhert að verða mann- legur og hlægilegur í senn með næstum einstæðum hætti, sameina ósvikna viðkvæmni og safarika kímni. Hlutverk Rúriks er varla eins skemmti- legt í eðli sínu, bar sem frið- illinn er oftast rnuglyndur, óánægður og óstyrkur á taug- um, en leikaranum tekst að gera hann mjög skoplegan og bráðlifandi, orðsvörin eru þróttmikil og fyndin og hitta beint í mark. Þóru Friðriksdóttur verður að vonum ekki eins mikið úr sínu hlutverki og þeim félög- um, en hún er eiginkonau Leikendurnir fjórir: Rúrik Haraldsson, Róbert Arnfinnsson, Þóra Friðriksdóttir og Jóhann Pálsson. virðast hafa verið endanlega afhentar íhaldinu til notkun- ar og ráðstöfunar. Og Alþýðu- blaðið virðist vera hið ánægð- asta og enga ástæðu telja til að ugga um þá „braut“ sem hægri kratar feta, þótt hún liggi beint til pólitískrar tor- tímingar, eins og bæjarstjórn- arkosningarnar sönnuðu bezt. A lþýðublaðið segir að lokum ■^ að Alþýðuflokkurinn vilji fá úr því skorið hvort Fram- sókn ætli áfram að neita að styðja erindreka íhaldsins í verkalýðsfélögunum. Það er mikið hvað moldin getur rokið mikið i logninu! Þykist nú AI- þýðublaðið í öllu sínu um- komuleysi og eymd hafa efni á að tala í slíkum tón við líf- gjafa sinn úr síðustu Alþing- iskosningum? Eða eru hægri kratar kannski komnir það langt í samningum sínum \ið íhaldjð að öruggt sé að það taki við ómaganum o,g fram- fleyti honum í næstu kosning- um? Er það kannski engin tilviljun að í sama tölublaði Alþýðublaðsins og Helgi Sæm. | er látinn hrósa samvinmmni við íhaldið en snuora Fram- sókn, sendir Bjarni Ben. einkavin sinn Jón P. Emils •fram á ritvöllinn með nýja grein um kjördæmamálið ? Við bíðum og siáiim hvað setur. henni sína vikuna hvor í stóra kofanum. Þessi ráðabreytni hefur þó allt önnur áhrif en ætla máetti — eiginmaðurinn gerist ástfanginn og sæll eins og nýtrúiofaður unglingur og gengur í endumýjun lífdag- anna, en elskhuginn fyllist beizkri afbrýði; hamskipti þessi em eitt helzta hláturs- efni leiksins. Loks er þriðja ástmanninum teflt fram á sviðið með nokkuð óvæntum hætti, en lengra verður sagan ekki rakin, enda þarflaust með öllu. Tilgangi leikhússins var náð, áhorfendur hlógu oft og hjartanlega og klöppuðu ó- spart fyrir fyndnum tilsvör- um og kátlegum atvikum; vinsældir „Litla kofans“ þarf ekki að efa. Sýningin er borin uppi af tveimur ungum, snjöllum og jafnvígum leikur- um, Róbert Arnfinnssyni og Rúrik Haraldssyni, eiginmann- inum og elskhuganum. Báðir hafa hlutverkin í öllu á sínu valdi, túlka þau hiklaust og frjálslega, gæða létta en frem- ur tiibreytingarsnauða kímni höfundarins ósviknu fjöri og þrótti; ágætan samleik þeirra er ánægja að sjá og heyra. Báðir leika af mikilli smekk- vísi, hið franska ástargaman verður aldrei gróft eða klúrt i höndum þeirra, leikur- inn getur áreiðanlega ekki hneykslað nokkra sál. Báðir bera greinilega svip stéttar sinnar og stöðu, en náungar þessir em efnaðir kaupsýslu- menn — elskhuginn virðist fagra, þrætueplið í leiknum. Framsögnin er of blæbrigða- snauð til þess að kímnin njóti sín til fulls eða lýst verði til hlítar eðli þessarar ástheitu óvenjulegu konu sem kann að smeygja sér úr hverjum va'nda, sigra í hverri raun. En Þóra er skýr í máli og leikur af sýnilegum áhuga og þrótti, og hún er það sem mest er um vert: fríð og girnileg ung kona, eftirlæti karlmanna. Loks er Jóhantt Pálsson skipskokkurinn danski sem klæðist gervi „villi- manns“ og leikur óþvrmilega á þá félaga. Jóhann reyndist vandanum vaxinn, ungur og spengilegur og fer vel með hin fáu tilsvör sín, taiar skemmtilega hina bjöguðu ís- lenzku. Leikstjóri er Benedikt Árnason og „Litli kofinn" frumraun hans i sviðsetningu í Þjóðleikhúsinu, og gott Lil þess að vita er ungum og efnilegum mönnum gefast tæki- færi til að reyna krafta sína. Hann vinnur verk sitt af á- huga og lagni, leggur áherzlu á fiör og hraða, gætir þess eftir ir föngum að hvergi verði dauð ir kaflar í leiknum, og er oft skemmtilega hugkvæmur. Smávægileg tæknileg mistök urðu á frumsýningu og verða að sjálfsögðu ekki oftar, en betur þarf að búa um hnútana þegar villimaðurinn svonefndi bindur keppinauta sína við sigluna, það atriði varð ekki nógu eðlilegt né sannfærandi. 1 upphafi hvers þáttar leikur raunar ekkert hafa aðhafzt í Guðmundur Steingrímsson á sex ár annað en daðra við Framhalö á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.