Þjóðviljinn - 07.03.1958, Síða 11
Föstudagur 7. marz 1958 — ÞJÖÐVILJINN — (11
ERNEST GANN:
Sýður á keipum
.•••o®«oo©í>siS(»»6u>»«oeois*»
56. dagur.
snögglega og hann hafði komið. „Af hverju, errnn við að
fara á dýraveiðar eða hvað.“
„Di eru alltaf mörg sæljón undan Petro skaga, Brúnó.
Þegar maður er að draga upp fallegan lax, kemur sæljón
syndandi og bítur hann sundur í miðju. Ví verðum að skjóta
þau, annars steia þau öllu út úr höndunmn á olrkur. Ef
torfan er mjög þétt, þá höfum við Carl nóg að gera og þú
gætir hjálpað mikið með því að skjóta sæljónin öðru
hverju.“
. „Nújá. Já, það hlýt ég að geta.“
„Það er riffill undir dýnunni í kojunni minni og pakki
af skotum við höfðalagið. Líttu á það snöggvast.“
Hamil breytti um stefnu, tók langan sveig, svo að laxa-
línurnar flæktust ekki, fór síðan út úr stýrishúsinu og stóð
um stund á framþiljum. Það var margt'senrhann langaði
til að hugsa um, og meðan Carl var afturá að fylgjast með
línunum, var ágætt tækifæri til að gera áætlun um næstu
daga. Það þurfti að hugsa um ísinn í lestinni á Taage •—
hann var þegar orðinn fjögurra daga, og þar sem hann
hafði ekki tekið nema tonn upphaflega, var hæpið að
hann entist út vikuna. Þess vegna yrði bezt að fara í höfn á
föstudaginn, afferma bátinn þá ef einhver afli yrði, taka
aftiir ís, ká'nnski tvö eða þrjú tonn í það skipti og leggja
aðaláherzluna á næstu vil/a.
Nú var kominn miðvikudagur og Taage hafði ekki nema
einn dag í viðbót til að reyna gæfuna. Það var ómögulegt
að segja, en ef heppnin yrði ekki með þeim, var ólíklegt
að afli þeirra yrði nema tonn, og Hamil Linder þurfti ekki
að setja sig á háan hest yfir slíku.
Með hverju ári virtist laxinn koma í smærri stíl. Hann
minntist þess þegar hægt var að stíma út Gullna hliðið,
öruggur um bað að koma heim aftur með tonn eftir daginn.
En þá var verðið svo iágt — var það sjö eða átta sent
pundið? — svo lágt að sjómaður varð að hafa sig allan
við til að hafa rétt í sig og á. Þá voru engar talstöðvar,
engin vélgeng spil. I þá daga lagði maður hendurnar í
bleyti í saltvatn í klukkutíma á dag í tvo mánuði áður
en vertíðin byrjaöi, til aö heröa þær áöur en slagurinn
hófst. Svo var dregið allan daginn, og vöðvum mannsins
einum var beitt gegn laxinum. Hvern einasta þeirra þurfti
að draga með handafli og það kom fyrir að loknu dags-
verki að hendurnar voru orðnar svo stirðar og krepptar
að þær voru eins og tættar klær og það var með mestu
herkjum og kvölum að hægt var að rétta úr þeim aftur.
Nú á dögum var allt auðveldara, þótt leiðin á miðin
væri lengri, og þannig jafnaðist þetta kannski upp. Nú
voru sitt hvoru megin viö tollgrýfjuna sex málmásar
sem vélin í Taage sneri. Hægt var að stjórna hverjum
þeirra með því að kippa i og ýta á handföng og á hverjum
ás voru að minnsta kosti hundrað og fimmtíu faðmar af
stálvír. Vírarnir lágu yfir spólur sem héngu úr sperrum
í skutnum og síðan gegnum postulínseinangrara með sterk-
ari vírum.
Hamel snéri sér við, hallaði sér upp að stýrishúsinu
og virti fyrir sér veiðafæri Taage. Það var óhemju mikil-
vægt að þau væru í fullkomnu lagi, annars yrði allt í
vandræðum þegar laxinn færf að segjaj til sín fyrir
alvöru. Og meðan Taage skreið hægt yfir sjóinn, mynduðu
vírarnir sem teygðust aftur úr straumnum fíngert myn-
stur sem bar við bláan himininn. Straurarnir voru festir
þannig við borðstokkinn á Taage að það stóð á sama
hvað báturinn valt, þeir snertu ekki yfirborð sjávar.
Endar stauranna voni svo sem fimmtán fet yfir vatns-
borðinu óg úr þeim lágu línurnar langt afturfyrir kjöl-
far. Taage. Hamel virti fyrir sér Montarabelgina, upp-!
blásnu gúmmí flotholtin, sem kornu í veg fyrir að línurnar
flæktust saman, og komst að þeirri niðurstöðu að þeir.
væru enn of nærri bátnum.
“Carl” hrópaði hann, “gefðu línunum þrjá fjóra faðma
í viðbót”. I trollgryfjunni veifaði Carl hendinni og tók
í handföngin á spilinu. Ásarnir snérust og Montarabelg- j
irnir fjarlægöust þangaö til Carl tók aftur í handföng-!
in. Carl spuröi meö bendingum og Hamil kinkaöi kolli til
samþykkis.
Hamil þótti margt undarlegt í fari Carls. Það var
aldrei hægt að reikna hann út. Hann kunni að taka ó-
sigri. Það var ekki á alira færi að koma aftur í bezta
skapi, hafandi beðið ósigur í slagsmálum við minni mann.
Pilturinn hafði einn góðan kost. Hann hafði aldrei tekið
sjálfan sig of alvarlega. Auðvitað gat það líka verið
veiklyndi. Kærulaus kom sjaldan stórvirkjmn í fram-
kvæmd. Þegar maður Iiorfði á Carl og Brúnó saman,
var erfitt að trúa því að þessi slagsmál hefðu nokkum
tíma átt sér stað. Strax næsta dag höfðu beir unnið
saman í skipakvínni. Þeir höfðu meira að segja hent gam-
an að sárum sínum og helzt leit út fyrir það að Brúnó
hefði heppnazt áform sitt, ef þetta var tilgangur hans. Á
allan hátt var Carl meðfærilegrf en áður. Hann virtist hafa
fengið nýjan áhuga á Taage, og meira að segja á.föður
sínum, sem var enn undarlegra. I fyrsta skipti síðan Carl
kom úr hernum var Eægt að~Iíta á hann sem félaga. öðru
máii gegndi um það, hversu lengi það stæði,
Það væri ósanngjarnt að segja Brúnó að fara í land
núna, fyrst hann virtist hafa svo mikinn áhuga á að vera
um borð. Vegna þess að laxveiðar voru eiginlega tveggja
manna verk, var eiginlega engin skynsamleg ástæða til að
hafa hann um borð, en hann hafði lagt hart að sér og
hafði gert allt til þess að veita hjálp sína. Það var ekki
hægt að stugga við manni sem var svona heillaður af
sjónum og öllu sem að honiun laut. Brúnó var að verða
ágætis hjálparmaður. Hann var duglegur þessi Brúnó, með
alskýrustu náungum sem Hamil hafði unnið með. Það var
ekki hægt að skilja hann eftir á bryggjunni, þegar hann
vildi allt fyrir þig gera — þegar hann bað ekki um annað
en fá að vera með þér. Það var erfitt að átta sig á þessum
Brúnó, og eitthvað var dularfullt við þessi viðskipti hans.
En það var alltaf uppfullt af dularfullum mönnum í báta-
flotanum. Þeir komu aldrei með neinar skýringar á liðinni
ævi, vegna þess að það tíðkaðist ekki að spyrja spurninga,
og þeir töluðu aldrei um sjálfa sig. Margir þeirra voru
afbragðs sjómenn. Ef Brúnó kærði sig ekki um að tala
um sjálfan sig, þá var bezt af öllu að taka hann eins og
hann var.
Hamil skimaði eftir lífi við sjóndeildarhringinn. Þar voru
engir fuglar, engir hvalir, ekki einu sinni bátur. Engar
hnýsur stungu sér upp úr sjónum. Hafið var öldungis líf-
Litli kofinn
Framha)d af 6. síðu
einhverskonar negrabumhnr
og vafalaust af góðri kunn-
áttu, en hljómlist þessi á
varla heima á þessum stað
að mínum dómi. Ætlun leik-
stjórans er .auðvelt að skilja,
hann vill skapa nokkra fjöl-
breytni og lengja sýninguna
ofuriítið um leið. — Leiktjöld
Lárusar Ingólfssonar eru ein-
hver þau skrautlegustu og
litsterlrustu sem sézt hafa á
sviði Þjóðleikhússins, stór-
vaxinn hitabeltisgróður í öll-
um regnbogans litum. Sviðs-
mynd þessi fellur vel að efn-
inu, enda vandað verk og vel
unnið í hvívetna.
Um þýðingu Bjarna Guð-
mundssonar er margt gott að
segja. Á einstaka stað hefur
þýðandinn skotið inn athuga-
semdum frá eigin brjósti,
enda öllum velkomið í grin-
leik eins og þessum, en oftast
er fyndni þessi íslenzkuleg 1
meira lagi. Bjarna hefur sýjii-
lega langað til að staðfæra
leikinn, og væri það í raun og
veru nokkur goðgá að breyta
þeim félögum hreinlega í ís-
lenzka kaupsýslumenn á
skemmtiferðalagi kringum
hnöttinn? Á.Hj.
Fecííöi!! — Snysting
Geng í hús og gef megrun-
arnudd, andlitsböð, hand-
snyrtingu og litun.
U'plýsingar frá kl. 10---12
og *kl. 1—2.
Birgitta Engiibertz
fegrunarsérfræðingur ,
sími 19736.
Úfhreí 3/3
Þioövsljann
inu ljósari lit heppnast því að-
eins að gamli liturinn sé fyrst
lýstur með bleikiefni.
Ef efnið fyrir litun hefur
sterkan gulan, bláan, grænan,
rauðan eða brúnan lit má lita.
ru'.í dökkgulara, grænt, brúnt,
rautt eða svart;
bmtfc dökkbiárra, fjólublátt eða
dökkgrænt;
Ultl
Sólin flettir venjulega
ofanaf öllum ágöllum á
fatnaði, gluggatjöldum og
öðru slíku á heimilinu. Oft
langar mann því að hressa upp
á útlitið á þessu og lita efnin
sjálfur. Það er líka hægt, en
það þarf að gera á réttan
hátt.
Frá „Hemmenes forsknings-
institut" í Sviþjóð er fyrir
nokkru kominn nýr pési sem í
eru margs konar heilræði fyi*-
ir húsmóður sem litar heima.
Þar stendur að gera verði sér
ljóst að upprunalegur litur efn-
isins hafi áhrif á nýja litinn
og það verði að hafa í huga
við litaval.
Mynstrað eða röndótt efni er
ekki hægt að gera einlitt. Það
verður ævinlega mynstrað,
nema notaðir séu mjög dökldr
litir. Tilraunir til að gefa efn-
g-..**nt dkkgrænna, blágrænt,
dökkbrúnt eða svart;
rai'! t dökkrauðara, fjólurautt,
dckkbrúnt eða svart og
brúní dökkbrúnna eða svart.
Efni í mjög Ijósum lit má
lita í næstum hvaða litbrigði
sem er, en að sjálfsögðu ekki
ljósara en það áður var.
Mjög sterka rauða, brúna
eða rauðgula liti getur verið
nauðsynlegt að setja áður í
litarbað í d"kkbláum eða svart-
bláum lit, áður en hægt er að
fá þá fallega svarta.
Pr.TT'”
k morgun er síðasti
söiudagur í 3. flokki.
Athugið, að til áramóta eru eítir 10198 vinningai
á samtals kr. 13.245.000.00