Þjóðviljinn - 15.03.1958, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 15.03.1958, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 15. marz 1958 Einvígið Smi$Ioíi~Botvinnik Freysteinn Þorbergsson, sem er lesendum Þjóðviljans að góðu kunnur síðan hann hafði á hendi ritstjórn skák- þáttar blaðsins, stundar nú nám í Moskva. Hefur hann sent blaðinu eftirfarandi frá- sögn af fyrstu einvígisskák þeirra Smisloffs og Botvinn- iks um heimsmeistaratign- ina, en síðan mun hann á sama hátt lýsa skákunum sem á eftir koma. P Hið 24-skáka einvígi um heimsmeistaratitilinn í skák milli heimsmeistarans Vassily Smisloffs og áskoranda hans, fyrrverandi heimsmeistara Mikails Botvinniks, var hátíð- lega opnað í hljómleikasal gistihússins Sovetskaja í Moskvu 2, marz s.l. Viðstadd- ir voru, auk keppenda sjálfra, aðaldómari einvígisins sænski stórmeistarinn Gideon Stáhl- berg, aðstoðardómari Harry Golombek Bretland, aðstoðar- maður Smisloffs stórmeistar- inn Igor Bondarevsky, aðstoð- armaður Botvinniks meistari Grigor Goldberg, og ýmsir af forystumönnum sovézkra skákmála, auk áhorfenda. Meðal ræðumanna var vara- formaður alþjóðaskáksam- bandsins, V. Ragosin, er las bréf frá formanni þess, Sví- ans Folke Rogard. Stáhlberg lýsti reglum einvígisins, sem eru að mestu óbreyttar frá síðasta einvígi. Smisloff nægir jafntefii, eða 12 vinningar, til þess að halda kórónunni, þar sem Botvinnik hinsvegar verð- ur að ná a.m.k. l21/2 vinning til þess að tryggja sér heims- meistaratignina á nýjan leik. Síðan var dregið um lit; í fyrstu skákinni og kom það í hlut Smisloffs að stjórna hvítu mönnunum. Er nokkur tíu ára börn höfðu fært keppendum og dómurum blóm og flutt þeim heillaóskir á rússnesku og ensku, var hlýtt á konsert sovézkra listamanna. ast snemma biskupaparið, en til þess að geta fært sér það í nyt, þarf hann að geta opn- að línur og framkallað veilur í stöðu andstæðingsins. Fyrsta verkefni hans er að tefja hrókun hjá Botvinnik, en þeg- ar Botvinnik hrókár, hefur Smisloff beinar liernaðarað- gerðir með hótun á svörtu drottninguna í því skyni að framkalla veikingu, en svar Botvinniks er sterkara heldur en Smisloff hafði séð fyrir. Svarta drottningin tekur sér stöðu á miðju borði með djarfri þátttöku í orustunni. Framhleypinn hvítur biskup er skorinn af frá meginhern- um. Smisloff verður að sóa dýrmætum tíma til þess að koma honum aftur í skjól. Á meðan nær Botvinnik frum- kvæðinu í sínar hendur. Heimsmeistarinn er í vanda og notar mikinn umhugsunar- tíma. Eftir 18 leiki hefur hann eytt 2 st. og 10 mín. Á því aðeins 20 mín. eftir til þess að leika næstu 22 leikjum. Botvinnik á eftir 59 mín. og hefur nú náð slíku valdi á stöðunni, að hægt er að spá úrslitum honum í hag. Hann getur jafnvel unnið peð, ef hann kærir sig um, en hann velur þá leið að bæta enn stöðu manna sinna. Leikir Smisloffs eru nú farnir að markast af tíma- þröng. Þannig er 26. leikur hans aðeins tímasóandi vind- högg, en verkefni hans er ekki létt. Botvinnik teflir af þeirri skerpu og viljafestu sem hefndarhugurinn hefur blásið honum í brjóst. Smisloff á nú aðeins fimm mínútur eftir fyrir 13 leiki. Áhorfendur eru farnir að hvísla. „Botvinnik vinnur“. Þetta er að verða hraðskák. Með aðeins tvær mínútur fyr- ir fimm leiki, er heimsmeist- arinn nú farinn að ókyrrast. Ýmist verður honum litið á malandi skákúrið, eða tafl- borðið, þar sem menn hans eru nú í yfirvofandi hættu. Pískur áhorfenda er nú orðið svo hávært, að nauðsynlegt er að gefa ljósmerki með beiðni um næði fyrir keppendur. Að- eins Botvinnik heldur ró sinni og fær sér nú hressingu. Smisloff ákveður að undir- búa gagnsókn. Hann gefur peð • og síðan annað, það var orðið vonlaust að halda stöð- unni. Með tveggja peða liðsyfir- burði leikur Botvinnik bið- leiknum, eftir lófatakið, sem ekki var lengur haldið í skefjum, er keppendur höfðu lokið hinum tilskyldu 40 leikjum dagsins. Þrátt fyrir komandi gagn- sókn hvíts, er ljóst að staðan er unnin hjá svörtum. Áfram- haldið verður því aðeins spurning um tækni og tíma. Biðskákin 5. marz Botvinnik tekur broddinn úr sókn andstæðingsins með upp- skiptum og leggur síðan til upphlaups með frípeð sín. Hirðir ekki um þótt hann tapi öðru þeirra peða sem liann áður hafði unnið. Þegar heimsmeistarinn hef- ur fullvissað sig um að engin tök eru á því að ná þráskák, gefst hann upp. Staðan er 1:0 Botvinnik í hag. 1. skákin 1. e4 cfi 2. RcS d5 3. Rf3 Bg4 4. h3 Bxf3 5. Bxf3 Rf6 6. d3 9. 0—0 Bg7 10. Bf4 Db6 11. Habl 0—0 12. Bc7 Dd4 13. Bf3 e5 11. Bd6 Hfe8 15. Ba3 dxe4 16. dxe4 b5 17. Hfdl Db6 18. b3 Rc5 19. Bel Dc7 20. Be3 Re6 21. a4 a6 22. b4 Had8 23. Be2 De7 24. axbð axb5 25. Hxd8 Hxd8 26. Bb6 Ha8 27. 13 Ha3 28. Del Bh6 29. Bfl Rd4 30. Bc5 De6 31. Bd3 Rd7 32. Bxd4 exd4 33. Re2 Be3f 34. Khl Re5 35. Dfl Dd6 36. f4 Rxd3 37. cxd3 Hxd3 38. Df3 Hd2 39 lífl Dxb4 40. e5 Dc4 41. Rg3 I þessari stöðu fór skákin í bið. 41. — Hc2 42. f5 Hcl 43. e6 fxe6 44. fx!::6 Hxflf 45. Rxfl hxg6 46. Df6 b4 47. Kh2 g5 48. Rxe3 dxe3 49. Ðxg5t Kf7 50. Dxe3 b3 51. De5 c5 52. Dc7t Kg6 53. Db8 Kf5 54. DfBt Ke4 55. Df6 D(15 56. DfSt Kd4 57. Ddlt Ke5 58. De2t Kd6 59. Da6t Ke7 60. Da7t Kf6 61. Dh7 De5t 62. e7 7. Be2 Rbd7 8. Dg3 g6-" Khl 1)2 og Smisioff gafst upp. " Ríóbar • • If.V’ ;>t.K Slfji' :•>!»'! fi" . Keflavíkurílugvelli HEITIJR M.VIIiR — SMURT BRAUÐ — KAFFI ÖL — GOSDRYKKIR Opið frá kl. 7 f.h. til 11 e.h. Byggingarsamvinnufélag . lögrnglumanna í Reykjavík, hefur til sölu tvær íbúðir sem byggðar eru á vegum þess. Er önnur við Tómasarhaga, en hin við Bogahlíð. Þeir félagsmenn, sem neyta vilja forkaupsréttar, hafi samband við stjórn félagsins fyrir 23. þ.m. — Stjórnin. Opiia aftur vefnaðarverzlun mína — Langholtsvegi 19. Smisíoff og Botuinnik tefla fyrstu skákina. Sögulesíurinn í úívarpinu — Um tónlistina — Siníóníur eða létt lög — Músikkin sé betur flokkuð og kynnt 1. skák 4. marz Eins og vænta mátti opnar Smisloff með kóngspeði. Skák- menn víðsvegar um heim hafa með eftirvæntingu beðið þess hvernig Botvinnik mundi nú snúast við þessum leik, þar sem hann hefur á síðustu ár- um oftar en einu sinni orðið að þola algert hrun í uppá- haldsvörnum sínum, franskri v.örn, sem hann beitir nú í óvænta svar hans, Caro Cann vörn, sem hann beytir nú í fyrsta sinn á sínum langa skákferli, bendir í þá átt, að hann hyggist nú ætla að nota þá baráttuaðferð, að leitast við að ná jafntefli með svörtu, en tefla til vinnings þegar hann leikur hvítu mönnunum, þvi eins og kunnugt er ein- kennast flestar leiðir Caro Cann varnar af traustum varnargarði, en litlu svigrúmi til athafna fyrir svartan. Svartur verður því oftast að sætta sig við jafntefli, þótt hann tefli vel, nema hvítur ofrevni sig á því að reyna að brióta niður virkismúra and- stæðingsins. Einnig Smisloff velur rólega uppbyggingu. Honum áskotn- S J ÓMANNSKONA skrifar: „Mig langar fyrst og fremst til að þakka Ríkisútvarpinu fyrir sögulesturinn í útvarp- inu núna, en ef unnt væri, kysi ég og fleiri, að sögurn- ar væru lesnar fleiri kvöld í viku. En svo er það tón- listin. Þessar sífelldu sinfón- íur á næstum öllum tímum, og fleira þess háttar, sem ég kann vart að nefna, þótt það sé allt rækilega kynnt. Mér og ýmsum sem ég hef átt tal við, finnst allt of mikið af þess háttar hljómlist, að henni ólastaðri. Ef maður á að njóta hennar, verður maður að geta hlustað með athygli í ró og næði, en til þess gefst sjald- an tækifæri við dagleg störf. Væri því ekki betra að skipta tímanum þannig, að til kl. 15—15]/2 yrðu leiknar sin- fóníur og önnur æðri tón- list, en frá kl. 151/;-—16 yrðu lög eftir íslenzka höfunda leikin eða sungin, og eftir miðdegisfréttir kæmu dægur- lög og dansmúsikk. Og þau finnst mér að ætti að kynna eins og önnur lög; ekki kalla þau bara „syrpu af dægur- lögum“. Margir hafa einna mesta ánægju af norrænum, léttum lögum og ljóðum, og svo auðvitað íslenzkum dans- og dægurlögum, hvort sem þau eru leikin eða sungin. Mér t.d. finnst mjög skemmtileg lögin og ljóðin eftir Jenna Jóns; einihg textar eftir Kristján frá Djúpalæk, Þor- stein Sveinsson o. fi. Já, hvers vegna fáum við aldrei að heyra Hljóðakletta eftir Freymóð, lagið, sem Erla Þor- steinsdóttir syngur svo yndis- iega? Mér finnst nærri óþol- andi þessi væmni, erlendi „mjálmsöngur", sem aukizt hefur svo mjög að undanförnu og einnig frekjulegi negra- söngurinn. En fyrir þá sök, að þessu er blandað saman við aðra fremur skemmtilega músikk, neyðist maður til að hlusta í von um fleira af betra taginu. Væri ekki hægt að flokka lögin betur og kynna hvað fyrir sig? Með því móti gæfist fólki kostur á að velja og hafna.“ Ég ætla mér ekki þá dul að taka upp faglegar umræður um tónlist hér í póstinum, en ég vil vinsamlegast benda bréf- ritara á, að það eru a.m.k. 3—4 fastir dægurlagaþættir í vikudagskrá útvarpsins, þess utan er meira og minna leik- ið af slíkum lögum á degi hverjum, og á laugardags- og sunnudagskvöldum er útvarp- að dansmúsikk. Þetta virðist mér í fljótu bragði vera tals- verður skerfur af léttri tón- list, og þeir hlustendur, sem yndi/ hafa af sinfóníum og annarri slíkri tónlist, eiga vissulega heimtingu á sínum skerf líka. En sjálfsagt mætti kynna og flokka mús- ikkina betur, svo að hlust- endur hefðu liennar betri not. — Undir bréfinu, sem birtist í miðvikudagspóstinum stóð G. Ö., en átti að vera G. O., og er h'utaðeigandi beðinn af- sökunnar á misrituninni. — Þessir tveir botnar bárust norðan úr landi alveg nýlega: (Fyrripartur: Það var nosturþrifiim karl, Þórólfur Mostrarskeggur). Botn: Mata-rkostur mikið snarl, mygluð ostra og dreggur. (Fyrripartur; „Hefur þú boðið Helga Sæm heila köku í ljóðum?“) Botn: Komið, skoðið hvort er slæm köld, með sköku úr bjóðum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.