Þjóðviljinn - 14.05.1958, Side 9

Þjóðviljinn - 14.05.1958, Side 9
Mlðvikudagur 14. mai 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Heimsókn handknattleiksliða H. I. F. Gestirnir sýndu mikla yfir- burði og sigruðu F.H. 33:24 Þeir sem álitu að karlalið HIF hafi farið fulla ferð í leik sínum móti KR, munu hafa sannfærzt um að svo var ekki eftir að hafa séð leik þeirra við FH. Það var eins og það væri annað lið og þó voru þetta, sömu mennirnir sem léku. Vera kann að þeir hafi eitthvað venð farnir að venj- ast húsinu, en hitt var samt það sem méstu réði að nú tóku þeir fram liraða sem rétt brá fyrir í fyrri leiknum. Var oft unun að horfa á leikni þeirra í sendingum og hvað þeir voru á mikilli hreyfingu. Gekk slíkt oft i lengri ti.ma svo að Hafnfirð- ingar fengu ekkert að gert. Þetta hafði þau áhrif á FH- liðið, að það va.rð um of miður sín og missti undarlega oft sjónar á leiknum. Það var eins og þeir hugsuðu lítt um ann- að en að við hinn endann á vellinum var mark og þangað ætti knötturinn að fara, og það án tafar. Þeir létu sér oftast nægja að láta hann ganga milli 2-3ja manna og svo varð ein-i hver að skjóta, og það þótt allt væri lolcað. Hraðar sendmgar og skiptingai’ á st^ðum maima, sem miðuðu að því að opna vörn HIF, framkvæmdu þeir illa og het'ði leikur þeirra far- ið allt öðruvísi ef þeir hefðu náð upp samleik, en ekki mið- að við skót í tíma og ótima, og það gerði leikinn líka af ‘þeirra liálfu áferðarljótari og ekki eins góðan og jákvæðan og þeir annars geta ef þeir ieika eins og þeir kunna bezt. Það var heldur ekki sterkilr leikur að skipta um markmann á því augnabliki sem gert var, því að Hjalti varði betur en Kristófer (nema Hialti hafi verið meiddur), er Hjalti orð- inn einn snjallasti markmaður okkar nú. Á móti svona hröð- um mönnum og vel leikandi urðu Hafnfirðingar að taka leiknina og samleikinn eins í þjónustu sína og þeir frekast gátu, og það vár þeirra óhapp í þessum leik að svo var ekki gert. Danirnir skoraðu fyrsta markið og höfðu forystuna all- an tímann og jókSt hún stöð- ugt. í hálfleik. stóðu mörkin 15:11 og virtist aldrei liggja nærrí að FH næði Jeiknum í sínar hendur. Hafnfirðingar virtust ekki hafa eins gott úthald og gest- irnir, sem skoruðu 5 mörk á síðustu 6 mínútunum en FH að- eins 1. Beztir gestanna voru Theil- man sem lék oft meistaralega, bæði sem þátttakandi í sam- leiknum og eins var leikni hans skemmtileg og fullkomin. Steen Petersen, stjórnandi liðsins á velli, var og ágætur. Ame Sör- ensen og Cramer áttu góða leiki. Markmaður liðsins Bent Mortensen varði líka af mikilli prýði. I heild sýndi lið þetta e.t.v. betri leik en hér hefur sézt áður. í liði Hafnfirðinga var Einar Sigurðsson bezti maðurinn og sá sem reyndi mest að leika handknattleilcinn eins og þurftí gegn þessum mönnum, og einn- ig Hjalti meðan hann var með Sjálf skotliarka Hafnfii’ðing- anna var sírt lakari en HIF og hraða áttu þeir líka, en hann var notaður á rangan hátt í leik þessum. Ekki er ólíklegt að FH, eins og raunar fleiri, hafi gert ráð fyrir styrk Dan- anna eins og liann birtist í leiknum við KR, og við það hafi verið miðað, en jafn leik- réyndir menn og FH-ingar enx, hefðu ekki átt að gera sömu villuna allan leikinn út. Þeir sem skoruðu fyrir FH voru Ragnar 9, Birgir 8, Ein- ar 3, Sverrir 2 og Pétur og Hörður 1 hvor. Fyrir Dánina skoruðu Theil- man 13, Arne Sörensen 8, Steen Petersen 6, Ci-amer 4 og Ja- cobsen og Bender l hvor. Dóm- ari var Frimann Gunnlaugsson og hefur oft tekizt betur upp. Áhorfendur voru margir eða svo áð heir komust ekki fyrir á áhorendasvæðum óg voru þeir komnir inn á leikvanginn sjálfan, ýmist standandi eða. liggjandi. Fór það líka svo að leikmaður úr' liði géstanna skall endilangur er hann hrasaði um áhorfanda sem sat inná gólfinu. Virðist sem það hlióti að vera eðlilegt að selja ekki meir inn í hús’ð en rúmast á áhorfenda- svæðum, en að ekki sé stefnt í hættu með að yfirfylla húsið eins og gert hefur verið á þéss- um tveim leikjum sem búnir eru í heimsókn þessai’i. Kn aftspyrnufrétíir: Skotar og Ungverjar gerðu jafntefli, 1:1, í leik sem fram fór í Glasgov 7. maí. Skotar skoruðu sitt mark í fyrri hálf- leik. Skotar voru með 7 nýja menn í liði sínu frá því að þeir léku við England og töpuðu 4:0 sællar minningar. England vann Portúgal 2:1 heima í London, og máttu þakka sínu sæla að vinna. Portúgalar-nir komu þeím al- gjörlega á óvart og áttu mörg tækifæri sem þeir misnotuðxi. Portúgalaniir gei’ðu vöm Bret- anna mjög erfitt fyrir, og sýndu mjög góða knattspymu. Lúxemborg vaim Þýzkalaml lí 4:1 í leik sem nýlega fór fram. 1 liði Þjóðverjanna vom margir af þeim sem líklegir em taldir að keppa í Svíþjóð og vei’ja l>ar titilinn í júni! Leik- ui’inn varð þvi mikil vonbrigði fyrir Þjóðverjana og Herberger hefur sætt gagnrýni. Ýmsir Ieilcir sem hafa farið fram nýlega: Ungverjaland — Rúmenía 5:1 — Austur-Þýzkaland B- Ungverjaland B 3:1 — Þýzka- land A-lið — Unglingalandslið 2:2 — England — Skotland, skólalandsleikur 3:1, Áhorfend- ur á þessum skólaleik voru 90.000! Albanía — Austur- Þýzkaland 1:1 — írland — Holland (áhugamenn) 1:1. — Lúxemborg — Holland B 0:0. Barcelona — London 6:0 — Grasslioppers, Sviss óg Wolver- hamton, England 3:1. Svíþjóð vann Sviss í lands leik sem fram fór í Gautaborg fyrir stuttu, og skomðu Svíar 3 möi-k en Svisslendingar tvö. Sviss skoraði fyrsta marlcið og í hálfleik stóðu leikar 2:2, en Sviar skoraðu á fyrstu mínút- um síðari hálfleiks og var sig- urimi verðskuldaður. Söluböni — Sölubörn! Mætið í G.T.-húsinu kl. 5 til 7 í dag eða á morgun frá kl. 10 og seljið merlci fyrir sumamámskeiðið að Jaðri. — Góð sölulaun og verðlaun. Nefndiit, Félag&líf . Þjóðdansafélag Reykjavíkur Aðalfundur félagsins verður haldinn í kvöld kl. 20.30 í Edduhúsinu við Lindargötu. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómin. Ferðafélag íslands fer tvær skemmtiferðir á fimmtudag (uppstigningadag). Önnur ferðin er göngu- og skíðaíerð á Hengil. Lagt af stað kl. 9 um morguninn frá Austurvelli. Hin ferðin er gönguferð um Heiðmörk. Lagt af stað kl. 1.30 frá Austur- velli. Upplýsingar i skrifstofu félagsins, Túngötu 5 sími 19533 Stutt námskeiÖ í handknattleik í fyrramálið kl. 11 mun þjálf- ari danska handknattleiksliðs- ins Helsingör I.F. sem hér er á ferð í boði KR efna til smá- námskeiðs í tækni og leikað- ferð.. Námskeið þetta fer fram í íþróttaliúsi KR við Kaplaskjól og er öllum meistaraflokks- mönnnm i handknattleik heim- il þátttaka. Er ekki að efa. að þeir munu notfssra sér þetta tækifæri. AuglýsiS í Þjóðviljanum sem endisf lengst vegna þess að hún er smíðuð úr nikkel- stáli, sem síðan er innbrennt og hert — þannig að það myndast harður slitflötur en SEIGUR KJARNI sem skapar AVKIÐ BURÐARÞOL Bíðjið því ávalit um KiN ftEGISTEREO TRADE MARW TIMKEN. Liccnsed user BrMlsh Tlmk.n Ltd. KEILULEGUR FBAMLEIDDAB AF BRITISH TIMKEN LT D DUSTON — NORTHA3VIPTON — ENGLAND Aðaluxnboð á íslandi: STÁL HF, — Reykjavík SÖLUUMBOÐ: FÁLKINN HF. VÉLADEILD SÍMI: 18670 — LAUGAVEG 24 REYKJAVÍK

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.