Þjóðviljinn - 03.08.1958, Blaðsíða 7
i
a
15
Hans S c h e r f i g
Fufltrúinn sem hvarf
— Það hlýtur að vera mikil eldhætta af þessum
primus. Þetta getur ekki verið löglegt. —
— Eg ber enga ábyrgo á því. Eg aðvaraði hann. Eg
sagði oft: Þessi garmur getur sprungið og kveikt í
Öllu húsinu. En þó er það verra í kamersinu hinum
megin. Þar sofa Olsen krakkamir og foreldramir láta
þau hafa olíulampa með sér upp á kvöldin, vegna
þess að þau eru myrkfælin. Það finnst mér óforsvaran-
legt. Og ég hef sagt þaö hundrað sinnum við frú Olsen.
En hvað stoðar það? — Það bjargast allt saman, seg-
ír hún. Það hefur aldrei neitt komið fjrrir. — Nei, en
það kemur að því, segi ég. —
— Eldaöi Mogensen sjálfur mat handa sér hér
'uppi? —
— Nei. Hann hitaði bara te. Hann drakk ógurleg
ósköp af tei. Að hann skyldi ekki eyðileggja í sér mag-
ann! —
— Hvar borðaði hann? —
— Hann borðaði stundum í Klerkegötu — í al-
menningseldhúsinu. En hann kvartaði yfir því að það
væru engin vítamín í matnum. Hann var víst mest á
fínu kaffihúsi, sem heitir „Fídusinn*. Inni í borginni.
— Jæja. Eg kannast við það.
— Eg skil ekki hvemig hann hafði í sig og á. Mér
hefur alltaf verið það ráðgátp, á hverju hann lifði.
Hann fékk engan styrk frá bænum. Og ég hef aldrei
vitað til þess að hann hefði neina atvinnu., En stundum
hafði hann mikia peninga handa á milli. —
— Hér er alls engin fatnaður. Hafði hann nokkurn
farangur meðferðis þegar hann fór? —
— Nei, hann átti ekkert annað en það sem hann
stóö í. —
— En hann hlýtur að hafa átt — einhver nærföt? —
— Nei. Og eins og ég hef sagt, hef ég ekki snert við
neinu héma uppi! — Mogensen fleygði gömlu sokkun-
um sínum þegar þeir vom slitnir. Hann var ekki í
neinni skyrtu. Hann keypti sér stöku sinnum „Saltfisk"
úr Sellulojdi eða pappír. Og fleygði hommi þegar hann
slitnaði. —
Lögreglumaðurinn rótaði í blaðabunkanum. Þar voru
allmörg gömul eintök af Times. Og neðst í bunkanum
voru nokkrir heilir árgangar af „Louis de Moulins
Revue“.
Hann leit einnig á bækumar sem voru í hlaða í einu
hominu. Þar kenndi margra grasa. Efst í hlaðanum
var bók Becks ofursta um Napóleon. Undir henni voru
nokkur hefti af Rocam'oole. Ljóð eftir Shelley. Skytt-
urnar. Sakamálasaga eftir Jean Tulipe á frönsku. „Átta
vikur í loftbelg“ eftir Jules Veme. „Biblía Stjórnleys-
ingja“. Englandssaga Goldsmiths III.
Og loks voru nokkrar bækur af konunglega bóka-
safninu: About Aerolit" eftir MacHoowen, Keule:
„Nitro-Gelatlne“. Og hin þykka bók Böckmans: „Die
Explosivstoffe".
Michael Mogensen virtist einnig hafa. haft áhuga á
sprengiefnum.
XIII
Blöðin höfðu ékki skrifað eins mikið um hvarf Micha-
els Mogensens og um hvarf Amsteds fullerúa.
En Mogensen er líka mannvera. Og lögreglunni ber
sama skylda til að rannsaka hvarf hans og hvarf emb-
ættismanns í hermálaráðuneytinu. Og hver veit nema
•eitthvert samband sé á milli hvarfs þessara tveggja
manna.
Hlutimir í litla herberginu em athugaöir og rann-
sakaðir alveg jafn vandlega og skjöl Amsteds fulltrúa.
Hverju gömlu dagblaöi er snúið og velt. Bókunum er
flett í leit að hugsanlegum athugasemdum.
Mogensen hefur ekki verið snyrtimenni eins og Am-
sted. Hann hefur engan veggskáp und;r skjöl sín og
gamlar minningar. Hann á engar skúffur undir tiygg-
ingarskírteini, happdrættismiða og bankabækur. Og
hann á engan fataskáp.
Hann átti aðeins fötin sem hann stóð í. Og þau vpru
mjög slitin. Allt sem lögreglan finnur af fatnáði í her-
bergi hans, er vesti og ónýtt hálstau úr sellulojdi. Vest-
ið er mjög óhreint. Lögreglumaðurinn tekúr þáð úpþ
með tveim fingrum og leitar í vösum þers. En þeir erú
-----------------------r-r--- ---------Surunudagiir 3. ágúst 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (7
csCeitíÉ tií
vor
meí liueró Lmiar
vunclamál um
RAFMAGNSMOTORA og ROFA
RIÐSTRÁUMSMáTDRA, EINFASA OG RRÍFASA
JAFNSTRAUMSMDTDRA í SKIP. 32 □□ 110 VOLTA
ORKUFLUTNING
* MEÐ’RENOLO - KEOJUDRIFUM
REHOLD - ÁSTENGJUM
BREYTINGAR Á SNÚNINGSHRAÐA
MEÐ REMOLD - KEÐJUDRfFUM
HOLROYD - GÍRUM
THURM - GÍRMOTORUM
KOPP - HRAÐAB R EYTU M
LEGUBÚNAÐ
MED <öli> - KÚLU- OG RÚLLULEGUM
lliN/A - NALALEGUM
R & M - PRÝSTILEGUM
TIMIIKEN KEILULEGUM
POLLARD - VATNSÞÉTTUM VELTILEGUM
MEÐ LEORI. GUMMI QG FLOKA
j VÉLAR, DÆLUR OG VÖKVALYFTUR
FLUTNINGSBÖND
TIL FLUTNINGS Á FÖSTU QG FLJÖTANDIíEFNI!
MEO REINOILD - FLUTNINGSKEÐJUM " <
HEMLABÚNAÐ
ÁLYFTITÆKI, FLUTNINGSBÖND OG RENNIHURÐIIR
MEÐ D&P - SEGULHEMLUM OG ROFUM
FIRD1WSPR/AD — IEINSTEFNUHEMLUN
XJeitvun f Þerk^rceÍiÍe^a aÍsto^ óiÉ váí ofy nötbun aíír
véiakltida öcj tœbja, iem vét* útvecfiun o<$ ieijum
FÁLKINN H.F.
VÉLADEILD
SÍMIT-B6-7D (5 LÍNURS - REYKJAVÍK