Þjóðviljinn - 25.10.1958, Blaðsíða 12
Þrjár nfjar bækur Menninprsjóðs
Pálmi Hannesson: Frá óbyggðum. — Barði Guðmundsson: Höí-
undur Njálu. — Brynleifur Tobíasson: Þjóðhátíðin 1874.
Þrjár bækur koma út í dag á vegum Bókaútgáfu
Menningarsjóðs: í óbyggöum, annaö bindiö af ritum
Pálma Hannessonar, Höfundur Njálu, eftir Baröa GuÖ-
mundsson og Þjóðhátíöin 1874, eftir Biynleif Tobíasson.
Fyrri bókin eftir Pálma
Hannesson kom út í fyrra, og
nefndist hún Landið okkar.
Þetta seinna bindi er ferðasög-
ur og landlýsingar, er Pálmi
skrifaði eftir dagbókum sin-
um og hafa hinar fullunnu rit-
gerðir margar birzt áður. Eru
það Arnarvatnsheiði, Kjölur,
Eyvindarstaðaheiði, Ferð suður
í Vonarskarð, Á Brúaröræfum,
Fjaliabaksvegur nyrðri eða
Landmannaleið, Leiðin uppí
Botnaver, Umgengni ferða-
manna og Borgarfjarðarhérað.
SJðari hluti bókarinnar er
sýn'shorn úr dagbókum Pálma
er Jón Eyþórsson hefur búið
til prentunar. Eru það kaflar
um Heljargjá og Botnaver,
Grænaldn, JTagavatn og Tungu-
fljót, Skeiðarárhlaupið 1945
og minnisLöð um Heklugos.
Allmargar ágætar myndir
eru í bókinnj er Pálmi tók í
ferðum sínum. — Bókin er
325 bls.
Höfundur Njá'n
BÓk Barða er ritgerðir hans
um Njálu og Njálurannsóknir
hans. Fjallar hún einkum um
hver sé höfundur Njálu og
m.a. hvaða samtíðarfólk hann
hafi haft til fyrirmyndar að
sögupersónum ■ sínum. Þeir
Skúli Þórðarson magister og
Stefán Pétursson skjalavörður
hafa búið bókina undir prent-
un.
Menningarsjóður mun gefa
Þjóðhátíðin 1874
Loks er bókin Þjóðhátíðin
1874, sem Brynleifur Tobíasson
hefur tekið saman. Eru í henni
lýsingar frá hátíðahöldunum
187'4 — úr flestum byggðar-
lögum landsins. Er þar safnað
saman samtímaheimildum eftir
föngum, en auk þess sneri
höfundurinn sér árið 1944 til
allmargra gamalla 'manna og
bað þá að lýsa því er þeir
myndu frá þessum hátíðahöld- i i-nilljónil’.
um. Flytur bókin lýsingar 30
manna á hátBahöldunum. —
I bókinni eru um 150 m5;ndir
HiðÐViuniN
Laugardagur 25. október 1958 — 23. árgangur — 243. tölublað.
Hagstœður vöruskiptajöfn- :
uður í sept. um 11,5 millj.
Fyrstu 9 mánuði ársins hefur jöfnuðurinn
orðið óhaastæður um 219,4 milljónir
í septembér sl. var vöruskiptajöfnuðurinn við útlönd
hagstæöur um 11,5 m'illj. króna, en fyrstu þrjá fjórðunga
ársins hefur jöfnuöurinn oröið óhagstæöur um 219,4
en hvor um sig er sjálfstæð
bók. Verður hin síðari ritgerðir
hans um uppruna Islendinga.
— Bókin er 322 bls.
síðar út aðra bók eftir Bnrða,| frá hátíðahöldunum og mönn-
um er þar komu við sögu. Bók-
in er 1 stóru broti, 258 bls.
Loks er þess að geta að
þetta eru ekki fastar félags-
bækur Þjóðvinafél. og Menning-
arsjóðs, heldur verða þær seld-
ar á frjálsum markaði, en fé-
lagsmenn fá 20% afslátt af
þeim.
Breti skotinn í
bakið á Iíýpur
62 ára gamall brezkur kaup-
sýslumaður var veginn á Kýpur
í gær. Var hann skolinn í bakið
þrem skotum. Herlögreglumenn
voru nærstaddir og þeyttu flaut-
ur sínar en morðinginn komst
undan með því að hlaupa inn í
mannþröng á fjölförnu stræti.
Þetta er fimmti óbreytti brezki
borgarinn, sem veginn er á eynni
síðan hin nýja Kýpuráætlun
brezku stjórnarinnar gekk í
gildi.
í bænum Limasol var sprengju
kastað inn í hótel nokkurt og
meiddust fimm brezkir her-
menn,
Þá særðist brezkur herm-aður,
er sprengja sprakk undir bif-
reið hans á Norður-Kýpur.
Önnur umferð
Haustmóts TR
tefld á morgun
Fyrsta umferð á Haustmóti
Taflfélags ReykjavJkur var
tefld sl. miðvikudagskvöld í
Breiðfirðingabúð. í meistara-
flokki urðu úrslit þau, að Jón
Pálsson vann Sigurð Gunn-
arsson, Eiður Á. Gunnarsson
vann Bjarna Linnet, Ágúst
Ingimundarson vann Hauk
Sveinsson, Reimar Sigurðsson
vann Braga Þorbergsson, en
jafntefli gerðu Eiríkur Marels-
son og Kristján Theódórsson.
Aðrar skákir fóru í bið, en
þátttakendur í meistaraflokki
eru 17 talsins. Biðskákirnar
verða tefldar kl. 2 á morgun
í salnum Grófinni 1, en önn-
ur umferð verður tefld kl. 8
á mánudagskvöld í Breiðfirð-
ingabúð.
Bourgiba nálgast
de Gaulle
Bourgiba, forseti Túnis, hefur
rætt um tilboð de Gaulle, for-
sætisráðherra Frakklands, um
að þjóðfrelsishreyfing Serkja í
Alsír skuli senda fulltrúa til
Parísar til viðræðha um að
hætta vopnaviðskiptum í Alsír,
Bourgiba taldi að tilboð de
Gaulle væri nýstárlegt og at-
hyglisvert, en sagði þó að það
væri hlutverk útlagastjórnar Al-
sírbúa í Maíró að svara því.
Bourgiba hefur nýlega valdið
sundurþykkju í Arababandaiag-
inu með því að veitast harðlega
að Nasser og Sameinaða araba-
lýðveldinu.
Þjóðfrelsishreyfing Alsírbúa hef-
ur enn ekki svarað tiiboði de
Gaulle. ■.
.Verðmæti útflutnmgsins í út íslenzkar vofi-r fyrir 75S
september sl. nam pamtál-s! mú.lj. króna, en inr.fiútnihgur-
tæpum 130 millj. króna en inn hefur á sama t/ma numið
innflutningurinn 118,4 millj. kr. i samta^s 977,6 m llj., þr.r af
I septembermánuði 1957 voru hnfa verið flutt inn skip fyrir
38,4 millj. Fyrstu 9 mánuði
fyrra árs nam útflutnmgurinn
700,6 millj. en innflutningur-
inn 915,5 millj., þar af var
andvirði innfluttra skipa 19,5
milljónir.
Féll af vinnupalli
Um klukkan tíu í gærmorgun
varð það slys inn við Rauðalæk
að maður að nafni Filippus
Björgvinsson datt af vinnupalli
og var fluttur í elysavarðstof-
una. Meiðsli ókunn.
Nýrri söngkonu
vel fagnað
Frú Guðrún Tómasdóttir, sópre
ansöngkona hélt sína fyrstu
söngskemmtun í Gamla bíói í
gærkvöld. Húsið var þéttsetið og
undirtekir áheyrenda ágætar.
fluttar út íslenzkar vörur fyr-
ir 87,5 millj. króna en innflutn-
ingurinn nam þá 132,6 millj.
Á thnabilinu jan.—sept. á
þessu ári hafa verið fluttar
Fjölmemmstu
hljómleikarnir
13. afmælisdagur Sameinuðu
þjóðanna var haldinn hátíðleg-
ur víða um heim í gær.
Nýstárlegt atriði í afmælis-
hátíðahöldunum I ár voru út-
varpshljómleikar, þar sem
heimsfrægir einleikarar og
hljómsveitir komu fram og var
þeim útvarpað í um 50 lönd-
um og er talið að aldrei hafi
verið fleiri áheyrendur á öðr-
um hljómleikum.
Meðal þeirra, sem komu fram
í þessum hljómleikum voru
spænski cellósnillingurinn Pablo
Casals, sovézki fiðlusnillingur-
inn David Oistrack og banda-
riski fiðlusnillingurinn Menuin.
Bar na ver ndar dagur inn er í dag
Barnaverndarfélögin vinna margháttað starf
til hfálpar börnunum
Barnaverndardagurinn er í dag. Barnabókin Sólhvörfl inni og sjá þeim fyrir fötum
og merki dagsrns er selt til ágóða fyrir starf þeirra 10 | <>K f*ði, það þarf að gera eitt-
barnaverndarfélaga er stofnuð hafa veriö í kaupstööum I hvað tii þess að þeir verði
landsins.
Markmið barnaverndarfélag-
anna cr eitt og hið sama: að
vinna i þágu barna, en þó sér-
staklega þeirra sem eru af-
brigðileg og vanþroska að ein-
hverju leyti. Hvert félag vinn-
ur hinsvegar að þvi verkefni
sem brýnast er taiið á hverj-
um stað. Þannig hafa félögin
á Akranesi, ísafirði, Húsavík
og Akureyrj komið upp dag-
heimilum og á Akureyri hefur
það starfrækt leikskóla og hef-
ur nú leikskóla í bj’ggingu.
Ungt fólk styrkt til
til náms
Barnaverndarfélagið hér i
Reykjavík hefur ekki talið
brýnast að rækja þennan þátt,
það hefur styrkt Skálatún, sem
heimili fyrir afbrigðileg börn,
stutt félög i Hafnarfirði til að
koma upp sumardvalarheimili,
en einkum hefur það styrkt
ungt efnilegt fólk til náms er-
lendis í kennslu og umönnun
afbrigðilegra barna. Sumt af
þessu fólki er þegar farið að
starfa. Nú er t.d. ung stúlka
á vegum féla.gsins við nám í
London í tal-lækningum. All-
mikið er hér um málgalla, og
ekki í flestum tilfellum vegna
gallaðra talfæra, heldur vegna
sálrænna orsaka.
Afbrotaunglingar
Þá kvað dr. Matthías Jón-
asson í viðtali við blaðamenn,
að barnaverndarfélagið hér
hefði fengið endurnýjaðan á-
huga fyrir hvað hægt væri að
gera fyrir unga afbrotamenn
til að hjálpa þeim að komast
á réttan kjöl aftur í lífinu.
Það er ekki nóg að loka þá
nýtir þegnar.
Lengi vel var þetta ekki
vandamál hér á landi, en nú
er svo komið. Erlendis fjalla
afbrotasálfræðingsr um slík
mál, og nú hefur Barnavernd
arféíagið og Kvenréttindafélag-
Framha'd á 7. síðu.
Mátti ekki vera
við hvíta fæðingu
Stjórn háskólans í Vestur-
Berlín hefur beðið læknastúd*
ent frá Afríkurikinu Ghana af-
sökunar og veitt prófessor í
Framhald á 7. síðu.
------- —— ------ T*T TTf?j'
Leikritið „Allir \
synir mínir4í
frumsýnt annað ]
kvöld 1
Annað kvöld kl. 20 frumsýn-
ir Leikfélag Reykjavíkur leik-
ritið „Allir synir mínir“, eftir
Arthur Miller. Leikstjóri , et
Gísli Halldórsson, þýðandi Jón
Óskar. Leikendur eru Brynjólf-
ur Jóhannesson, Helga Valtýs-
dóttir, Jcn Sigurbjörnsson, Guð
mundur Pálsson, Guðrún Step-
hensen, Sigriður Hagalín, Árni
Tryggvason, Steindór Hjörleifs-
son og Ásgeir Friðsteinsson. —
Leiktjöld málaði Magnús Páls-
son.
Leikritið var fvrst frumsýnt
í New York 1947 og með þvi
hefst frægðarferíll Arthurs
Millers sem leikritaskálds.
Leikurinn gerist í Bandarikj-
unum ári eft;r lok síðari heims-
styrjaldarinnar.
Málverkasýningu
Guðmundar frá
Miðdal að ljúka
Á morgun er síðasti dagur
málverkasýningar Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal, sem
haldin er að Skólavörðustíg 43.
Opið verður allan daginn frá kl.
10—23.
Góð aðsókn hefur verið að
sýningunni og um 30 myndir
selzt.
Sýnmg á verkum sovézkra málara hcr
Islenzkir listamoim svna í Sovétríkjunum
Borizt hefur boö frá menntamálaráöuneyti Ráðstiórn-
arríkjanna um aö ísland og' Ráðstjórnarríkin skiptist á
myyndlistarsýningum. Hefur íslendingum veriö boöið
að halda myndlistarsýningu í Leningrad og Moskva á
vori komanda, en Ráöstjórnarríkin munu senda hingaö
svartl i starmyndir.
Menntamálaráðuneytið hefur í
samráði við Menntamálaráð ís-
lands ákveðið að taka þessu
boði.
Mun sýning myndlistar frá
Ráðstjórnarríkjunum hefjast í
Reykjavík fyrri h'uta næsta
mánaðar, en gert er ráð fyrir að
íslenzka myndlistarsýningin
verði opnuð í Leningrad í apríl-
mánuði n.k.
Mun Menntamálaráð og
menntamálaráðuneytið i samein-
ingu annast undirbúning sýning-
arinnar. Tveimúr islénzkum
myndlistarmönnum raiin verða
boðið til Ráðstjórnarríkjanna í
sambandi við uppsetningu og
opnun sýningarinnar. Listmálar-
inn Vereinski Orest og listfræð-
ingurinn Natalia I. Socolova
undirbúa sýningu Ráðstjórnar-
ríkjanna hér, sem verður í boga-
sal Þjóðvinjasafnsins, og komu
þau til Reykjavíkur í gær.
(Frá menntamálaráðuneytinu)