Þjóðviljinn - 07.11.1958, Síða 9

Þjóðviljinn - 07.11.1958, Síða 9
Föstudagur 7. nóvember 3958 — ÞJÓí>VILJINN (9 % ÍÞRÓTTIR HrrsTJöKit rniuAKt* utuGAsaas Mál á þingi Frjálsíþróttasambands íslands: Komið verði á og Reykvíkinga Á Jiingi Frjálsíþróttasamb- ands íslands komu fram marg- ar tillögur og mál sem fengu afgreiðslu. XJrðu um mörg þeirra miklar umræður sem aliar einkenndust af því, live málefnalega var á þeim tek- ið og með því einu hugarfari að það mætti verða. íþrótta- greininni til gagns og fram- , fara. Mikið var rætt um það, hvort efna ætti til landskeppni á komandi sumri, en öllum var ljóst, að það mundi kosta mikla peninga. Allir voru sam- mála um að það væri mjög þýðingai-mikið fyrir framgang frjálsra íþrótta að hægt væri að hafa þessi föstu samskipti við aðrar þjóðir í landskeppni. Brynjólfur Ingólfsson vildi fara að öllu með gát þó æski- legt væri að hafa sambönd um landskeppni. Kvaðst hann vilja leggja á komandi ári meiri rækt við uppbyggingarstarfið mnávið, og í því sambandi benti hann á að Iþróttasam- band Islands ætti að hafa miklu meira samband við hér- aðasamböndin úti um la'nd en verið hefði. Það ætti að senda framkvæmdastjórnnn og láta hann hafa á hendi erindrekst- Ur almennt fyrir iþróttamálin i heild, Brynjólfur benti á að íþrótta- hrejrfingin væri meira en unp- alandi hlaupavéla og hástökks- véla. Þær eru fyrst og fremst fyrir fjöldann. Sigrarnir eru «1 þess að vekja. athvgli á störfum hrevfingarinnar. Við verðum nð athuga, að við eig- um í höggi við marga óvin- veitta menn og það eru marg- ir sem ekki telja það fínt að vera góður íþróttamaður eða stunda íþróttir. Það þvkir fínna að vera „stælgæji" eða ,,rokk- ari“. Við þetta verðum við að ber.jast og við verðum að vinna málefni okkar f.vlgi. Eftir langar umræður var samþykkt að fela stjórninni að vinna að því af fremsta megni að koma á landskeppni í frjálsum íþróttum næsta sum- ar. Kom.íð verði á keppni utan- bæjarunglinga og Reykvík- inga. Samþykkt var að unnið skyldi að því að næsta sumar fari fram keppni á milli ungl- inga utan af landi og jafnaldra þeirra í Revkjavík. Var það einróma. samþykkt og var mik- ill áhugi fyrir því. Kom fram á þinginu að mál þetta hafði keppni utanbæjarmanna — Bréíaskóli verið athugað í Frjálsíþrótta- ráði Reykjavíkur á mjög já- kvæðan hátt. Var talíð að slik keppni yrði mjög jöfn og skemmtilég, ef allir gætu mætt til liennar. Bréfaskóli uin dómaramál. Samþykkt var einróma till. um það að fela væntanlegri stjórn að efna til bréfanám- skeiðs fyrir frjálsíþróttadóm- ara úti um landsbyggðina, og að hafizt yrði lianda um þetta þegar á næsta vori. Það kom fram, að víða úti um land er mikil vöntun á dómurum og þvi mjög erfitt að framkvæma mót svo vel fari. Slíkur skóli ætti að geta verið til mikils gagns fjnir dreifbýlið, og yrði auk þess til að auka áhuga almennt fyrir frjálsum íþróttum. Þá var samþykkt enn önnur tillaga, sem snerti dómaramál, og það var áskorunartillaga til FÍRR um að endurvekja dóm- arafélagið sem á sinum tíma var starfandi og hafði með að gera öll dómaramál og sá um dómaranámskeið. Siðan það hætti störfum dofnaði mjög yfir dómaranámskeiðum fyrir f r j ál síþróttadóma ra. Mörg önnur mál. Á þinginu komu fram mörg önnur mál en hér hafa verið nefnd að framan og eru þessi helzt: Ársþingið samþykkir að þeim. íslendingum, sem Ijúka mar- aþonhlaupi skuli veitt sérstök viðurkenning fyrir afrek sín. og var stjórninni falið að sjá um framkvæmd á því máli. Ársþingið lítur svo á að stjórn Laugardalsvallar verði að vanda mjög til tækja og áhalda er þar verða. staðsett, einkum að skeiðklukkur séu af beztu fáanlegri gerð. Ennfrem- ur vill þingið ítreka það að mjög er æskilegt að mark- myndavé! — photo finish — verði til á vellinum. Skorað var á alla þá sem sjá um mót á komandi tim- um að senda skýrslur til stjórnar FRÍ eigi síðar en mán. uði eftir að mótið hefur farið fram. Skorað var á stjórn FRÍ að safna skýrslum um það, hve margir vellir væni til i land- inu, löglegir, og birta um það opinbera skýrslu. Samþykkt var, að í fram- tíðinni skyldi afrekaskrá FRÍ ná til 20 manna í hverri grein. Þess má geta í þessn sambandi að fynr þinginu lá afrekaskrá sem náði til 10 beztu í hverri grein. Reglugerð um gnrpsmérki. Fyrir þinginu lá reglugerð um Garpsmerkh FRÍ, þar sem metið er í stigum viss afrek sem beztu menn vinna. Eru þar nefnd t.d.: Verðlaun á Olympíuleikjum, Evrópumótum, Norðurlandam., landskeppni, Islandsmeistaramóti og met. Er þetta mikill bálkur sem gerir stjórn FRl á hverjum tíma auðveldara að hafa sam- ræmi í viðurkenningum sín- um en áður. Var reglugerð þessi samþykkt einróma. Fréttamenn heiðraðir. í þinglok fór fram afhend- ing heiðursmerkja til ýmissa manna sem þingið taldi að hefðu unnið frjálsum íþrótt- um mikið gagn á umliðnum ár- um. Voru það gull, silfur, og eirmerki sem voru veitt. Með- al þeirra sem fengu viðurkenn- ingu voru þeir Sigurður Sig- urðsson útvarpsfréttamaður og Frímann Helgason íþrótta- fréttaritari Þjóðviljans, og var þess getið að það væri fyrir dygga fréttaþjónustu, þar sem frjálsar íþróttir hefðu notið mjög góðs í frásögnum og gagnrýni ætið verið visamleg, þótt engu hafi verið hlíft. Þeir sem heiðursmerki fengu voru: GuU. Þorgils Guðmundsson Reykja- vík. Ármann Dalmannsson Akur- eyri. Silfur. Stefán Runólfsson, Reykjavik Þórir Þorgeirsson Árnessýslu. Jóhann Jóhannsson Reykjavík. Gunnar B. Sigurðsson Reykja- vík. Ingimar Elíasson Strandasýslu. Eir. Hennann Guðmundsson Hafn- arfirði. Björn Jónsson Seyðisfirði. Sigurður Sigurðsson Reykja- vík. Jón Stefánsson Eyjafjarðar- sýslu. Guðmundur S. Hofdal Reykja- vík. Sigurður G. Gunnarsson Kjós. Frímann Helgason Reykjavík. Þetta þing FRl var jákvætt fyrir frjálsu íþróttirnar og hef- ur sjaldan kveðið jafn mikið að þeirri skoðun innan þings- ins, að það væri hin innri uppbygging sem vinna þyrfti að af alúð. Það var greini- legt að liinum yiigstu er nú gefinn meirj gaumur en verið befur, og það er eins og bjarm- inn af ,,stjörnunum“ sé notað- ur til þess að vísa þeim ungu leiðina fram á við, í stað þess að láta bjarmann blinda svo að annað sjáist varla. Brvnjólfur Ingólfsson sagði líka í kveðjuræðu sinni til full- trúa m.a., að verkefnið væri það að leiða æskuna til betri vegar, ekki aðeins til afreka íi íþróttum, lieldur og til að hafa góð álirif á hana. Stökkbreytingar í efnahagsmálum Framhald af 7. síðu. •því fólgið, að aldrei hefur á- ætlun um framleiðsluþróun verið samin með beinni þátt- töku svona margra mill.ióna manna, og sumpart í því að á- ætlunin er víðtækari og um- fangsmeiri en nokkru sinni fyrr, að það eru verulegar lík- uí' á því að með sjö ára áætl- uninni verði íiáð því marki sem allir ræða nú um: að ná háþróuðustu ríkjum í fram- leiðslu og neyzlu á íbúa á öll- um sviðum, sem máli skipta, svo sem þegar ,er orðið á sum- um sviðum. Það myndi þýða að markinu væri náð miklum inun fyrr cn á þeim 10—15 ár- um sem reiknað liefur verið með til þessa. Hvað veldur? TJkki þarf maður að um- gangast lengi verka- rnenn í verksmiðjum til þess að skilja hvað það er sem veld- ur því að nú er hægt að ræða um nýtt þróunarstig og talið fært að gera svo ævintýraleg- ar áætlanir. Það sem fyrir tæpu ári var aðeins vísir er nú að ná fullum þroska: verkamenn hafa öðlazt skiln- ing á því að þeir ráða yfii verksmiðjunum. Þeir finna beinlínis að þeir eiga verk- smiðjurnar og geta því stjórn- að þeim og verða raunar að gera það. Hækkun á fasta- kaupi, en ekki aflahlut Þjóðviljanum barst í gær eft- irfarandi frá Félagi ísl. botn- vörpuskipaeigenda: „I sambandi við fréttir dag- blaðanna um kauphækkun tog- arasjómanna, er rétt að benda á eftirfarandi: Sagt er að tog- arasjómenn hafi fengið 22% kauphækkun. En sú hækkun kemur aðeins á fastakaup, ekki á aflahlut, sem er svo til ó- breyttur. Aflahlutur nemur hinsvegar um og yfir helmingi launa tog- arasjómanna. Er því í-aunveru- leg hækkun á kaupi þeirra 9- 11% eftir aflabrögðum. Þá ber að benda á það, að þegar samið var við togarasjó- menn í júní s.l. fengu þeir ein- göngu lögboðnar hækkanir (þ. e. 5% auk lífeyrissjóðs), en síðan hafa flest stéttarfélög önnur fengið allmiklar kjara- bætur umfram þær er lögboðn- ar voru.“ Verður yfir- verkfræðingur Bæjarráð samþykkti á fundi síntim 4. þ. m. að Rögnvaldur Þorkelsson deildarverkfræðing- ur, verði eftirleiðis yfirverk- fræðingur grjótnáms, eand- náms, malbikunarstöðvar og pípugei’ðar bæjarins. Um langt skeið duldust þessi sannindi verkamönnum Sovét- rikjanna. Nú eru þau aftur lif- andi og færa árangur sem fer fram úr vonum þeirra bjartsýn- ustu. Engir vita betur en Rúss- ar ajálfir, að þetta er aðeins upphafið, að enn tekur sinn tíma að þessi nýi — og gamli — andi gagnsýri allt, að hinar nýiu meginreglur verða aðeins hagnýttar til fullnustu þar sem verkamenn og leiðtogar þeirra i kjaramálum og stjórnmálum hafa fullan skilning á hlutverki sínu. Forsendurnar „rkásemdir morgundags- ins“, sem boðaðar eru með því að kalla saman fiokks- þingið nýja, eru auðvitað ekki það eina sem Moskvubúar ræða sin á milli. Þeir hafa sín dag- legu viðfangsefni. Skólaárið er nýhafið og það hafa verið_ haldnar hátíðir fyrir skóiabörn í görðum og menningarhöllum. Ferðamannastraumurinn hefur verið mikill, og þótt hann sé nú að fjara setur hann enn sinn svip á götumj'ndina: finnskir og enskir langferða- bílar keppast við sovézka Intúr- ist-bíla og einkabíla með ferða- langa frá Englandi, Bandaríkj- unum, Vesturþýzkalandi o.s. frv.; hvarvetna má sjá ferða- mannahópa frú Júgóslavíu, ai- þýðuríkjunum og mörgum lönd- um öðrum. Þar við bætast fjöl- margir heiðursgestir: banda- ríski auðmaðurinn Cyrus Eat- on, enski sósíaldemókrataleið- toginn Conni Zilliacus, söngvar- inn Paul Robeson, listamanna- flokkar frá Júgóslavíu, Aust- urþýzkalanch, Skotlandi, Búlg- aríu og Póllandi. Og loks etu sendinefndir frá verkalýðs- hreyfingunni í fjölmörgum löndum sem vitnisburður um samhug hinnar alþjóðlegu verkalýðshreyfingar með Sovét- ríkjunum. Alstaðar heyrir mað- ur orðin „friður og vinátta", vinátta milli allra þjóða. Friður og vinátta eru for- sendur þess að allar hinar miklu áætlanir, allir hinir fögru en raunsæu draumar í- búa Sovétríkjanna verði að veruleika. Spennan í alþjoða- málum er því eins og myrkt óveðursský í v.itund fólksins. Oft verður maður var við nokkra beiskju. Ilvers vegua er það látið viðgangast að her- veldi eins og Bandaríkin og England leiði mannkynið út á yztu þröm styrjaldar aftur og aftur, í nálægari austurlönd- um og í fjarlægari austurlönd- um? Hví er alltaf umsvifalaust hafnað öllum tillögum Sovét- ríkjanna og annarra um frið- samlega og eðliiega sambúð? En jafnframt beiskjunni birtist einnig sú fullvissa, að faii^ striðssinnar feli of langt í ögr- unum sínurn muni þeir mæta einhuga mótstöðu ahs hins sósíalistíska heims og afleið- ingin getur ekki orðið önnur en endalok heimsvaldastefn- unnar, Kaupið miða i Happdrætti Þjóðviljans

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.