Þjóðviljinn - 20.12.1958, Page 1
Laugardagur 20. desember 1958 — 23. árgangur — 291. tbl.
Loksíns birfír SjálfsfœSisflokkurinn bjargrá3 sin:
6 prósent grunnkauplœkkun
Stefnt vcrði að því að framkvænia stóríellda gengislækltun
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins kom saman í fyrradag
og samþykkti þar þau bjargráð í efnahagsmálum að
grunnkau'p skull lœkkað um 6%, en það jafngildir nær
4.000 kr. lækkun á árskaupi Dagsbrúnarmanns. Jafn-
framt samþykkti flokksráðið að „stefnt verði að því að
afnema uppbótarkerfið, svo fljótt sem unnt er, með því
að skrá eitt gengi á erlendum gjaldeyri og gera útflutn-
ingsatvimvuvegunum kleift að standa á eigin fótum án
styrkja“ — með öðrum orðum flokkurinn krefst þess
að framkvæmd verði stórfelldari gengislækkun en nokk-
ur dæmi eru til í sögu þjóðarinnar.
Morgunblaðið skýrir frá þessu
í gær og birlir í heild yfirlýsingu
flokksráðsins. Var hún, eins og
áður er sagt, samþykkt í fyrra-
dag — þ. e. daginn eftir að Ólaf-
ur Thors lýsti yfir því að hann
treysti sér ekki til þess að reyna
að mynda stjórn. Engin slík yfir-
lýsing var hins vegar birt í við-
ræSum Sjálfstæðisflokksins við
aðra flokka.þar voru ekki lagðar
frairex neinar skriflegar tillögur.
Hins vegar orðuðu Ól. Thors og
Bjarni Benediktsson munnlega
hugmyndina um 6% grunnkaups-
lækkun, og skýrðu fulltrúar Al-
þýSubandalagsins þeim umsvifa-
laust frá því að slíkar hugmynd-
ir gætu ekki orðið grundvöllur
viðræðna um stjórnarmyndun.
6% lækkun á grunn-
kaupi
Tillaga Sjálfstæðisflokksins um
grunnkaupslækkunina er þannig
oröuð í yfirlýsingu flokksráðs-
ins:
„Launþegar afsali sér 6% af
gnmnkaupi sínu og verð land-
búaaðarvara breytist vegna hlið-
stæðrar lækkunar á kaupi bónd-
ans ogr öðrum vinnutilkostnaði
viffi landlnínaðarframleiðsluna.
Þó verði grunnlaun engrar stétt-
ar lægri en þau| ’voru, þeglar
efnahagsráðstafanir ríkisstjórnar-
irniar tóku gildi á s.I. sumri.“
Flokkurinn leggur þannig til
að kauphækkanir þær sem urðu
á s.l. sumri verði teknar aftur,
en. 'þær námu yfirleitt 6%. Laun-
þegar munu þó minnast þess að
á s.I. sumri, þegar átökin um
kaupið stóðu yfir, þóttist Sjálf-
stæðisflokkurinn mjög fylgjandi
grtuirmkaupshækkunum þessum.
FuHtrúar hans í verklýðsfélögun-
um beittu sér mjög fyrir þeim,
og Morgunblaðið þóttist styðja
þær af alefli — þær væru aðeins
sanngirnismál. Krafa Sjálfstæðis-
flokksins nú um að þessar
grunnkaupshækltanir verði tekn-
ar aftur, ætti að verða launþeg-
um minnisstæður vitnisburður
um hræsni Sjálfstæðisflokksins,
lýðskrum og yfirdrepsskap.
Aðeins launþegar
og bændur
Sjálfstæðisflokkurinn rökstyð-
ur tillögurnar um grunnkaups-
lækkun með þessari setningu:
„Það er ótvírætt, að þjóðin nojar
meiri fjármuni en hún aflar og
verður að taka afleiðingunum
af því.“ Sú „þjóð“ sem á að fóma
er að mati Sjálfstæðisflokksins
einvörðungu launþegar og bænd-
ur. í tillögum hans er ekki að
finna eitt einasta orð um fórnir
annarra stétta, ekkert um það að
heildsalar, milliliðir, atvinnurek-
endur, verðhólgubraskarar og
og aðrir kaupahéðnar „noti meiri
fjÚrmuiii en þeir afla“. Ekki
eru heldur bornar fram neinar
áþreifanlegar tillögur um það að
ríkið eigi að spara í skriffinnsku
sinni og annarri eyðslu.
Þvert á móti er það stefna
Sjálfstæðisflokksins að bæta eigi
hag atvinnurekenda. Um það
segir svo: „Framkvæma þarf
heildarendutskoðun á tolla- og
skattakerfinu í því skyni að
koma í veg fyrir, að skattaálög-
ur hindri eðlilega uppbyggingu
atvinnuveganna". Það á sem sé
að lækka skatta á atvinnurekend-
um en — „eðlilega uppbyggingu“
heimilanna á að framkvæma með
því að Xækka grunnkaup laun-
þega um 6%.
Vill einnig niður-
greiðslur
Sjálfstæðisflokkurinn gerir ráð
fyrir því að 6% lækkun á grunn-
kaupi muni lækka vísitöluna um
6—7 stig en leggur svo jafnframt
til að framkvæmdar verði aukn-
ar niðurgreiðslur: „Til þess að
halda vísitölunni I 185 stigum
yrði að auka niðurgreiðslur á
vöruverði, er næmi 10—12 stig-
um.“ Flokkurinn treystir sér
þannig ekki til að mótmæla
þeirri stefnu að vöruverð verði
lækkað og verðbólga stöðvuð
með niðurgreiðslum úr ríkissjóði
— aðeins vill hann að niður-
greiðslurnar verði ekki meiri en
svo að framkvæma þurfi jafn-
framt verulega grunnkaupslælck-
un.
Stórfelld gengislækkun
íramtíðarmarkmiðið
Framtíðarhugsjón Sjálfstæðis-
flokksins er hins vegar gengis-
lækkun. Um það segir svo í sam-
þykkt flokksráðsins:
„Stefnt verði að því að afnema
uppbótarkeríið, svo fljótt. sem
unnt er, með því að skrá eitt
gengi á erlendum gjaldeyri og
gera útflutningsatvinnuvegunum
kleift að standa á eigin fótum
án styrkja. Jafnframt verði lagð-
ur grundvöllur. að frelsi í at-
vinnurekstri og viðskiptum, svo
að hægt sé að afnema þau höft,
sem nú eru á viðskiptum og
framkvæmdum."
Á s.l. vori var reiknað út að
gengislækun sem dygði til að
afnema uppbótakerfið yrði að
vera svo stórvægileg að erlend-
ur gjaldeyrir hækkaði í verði
um a. m. k. 130%. Gengislækkun
nú yrði að verða enn stórfelld
ari til að ná því marki, og af-
leiðingin yrði svo mögnuð dýr-
tíðarskriða að allt það sem hing-
að til hefur gerzt yrði talið
semja við útgerðina um rekst-
ursgrundvöll, þannig að ekki
verði stöðvun um áramót.
Samtök útgerðarmanna hafa
því snúið sér til ríkisstjórnar-
barnaleikur eihn. Auk þess bætir
Sjálfstæðisflokkurinn við: „Strax
og aðstæður leyfa, þarf að draga
úr niðurgreiðslum" — þannig að
landbúnaðarvörur yrðu þá seld-
ar fullu verði. Væri fróðlegt að
fá upp í Morgunblaðinu hvað
Framhald á 3. síðu.
Eins og skýrt var frá í blað-
inu í gær fór forseti íslands þess
á leit í fyrradag við Emil Jóns-
son, forseta Sameinaðs Alþingis,
að hann tæki að sér að gera til-
raun til myndunar þingræðis-
stjórnar. Bað Emil Jónsson um
stuttan frest til að athuga málið.
Ræddi hann í fyrrakvöld við ráð-
herra Framsóknarflokksins í nú-
verandi ríkisstjórn, þá Hermann
Jónasson og Eystein Jónsson.
Einnig ræddi hann sama kvöld-
ið við formann og varaformann
Sjálfstæðisflokksins, Ólaf Thors
samningar yrðu teknir upp nú
þegar.
Sjávarútvegsmálaráðherra Lúð-
vík Jósepsson bauðst til að
ganga nú þegar í sanmingana,
enda fengi hann umboð til samn.
Mikojaet kom-
inn Éil Tas9-
• i
s|ár
Anastas Mikojan, varaforsæt-
isráðherra Sovétríkjanna kom til
Varsjár i gær en hann er for-
maður sovézkrar sendinefndar
sem viðstödd verður hátíðahöld
í tilefni þess að 40 ár eru liðin
frá stofnun pólska kommúnista-
flokksins.
Við komuna til Varsjár hélt
Mikojan ræðu og fór miklum
viðurkenningarorðum um pólska
Verkamannaflokkinn bæði fyr-
ir baráttu hans gegn endurskoð-
unarstefnunni og bókstafstrúar-
mönnum.
Mikojan fór hörðum orðum
um nernaðarstefnu Vestur-
Þýzkalands. í janúarmánuði
hyggst Mikojan fara til Banda-
ríkjanna í verzlunarerindum, en
hann fer með utanríkisverzlun-
armálefni Sovétríkjanna.
og Bjarna Benediktsson. í gær-
morgun ræddi Emil svo við full-
trúa Alþýðubandalagsins, þá Ein-
ar Olgeirsson, Finnboga Rút
Valdimarsson og Lúðvík Jóseps-
son.
Tilkynningin, sem barst frá
skxáfstofu forseta íslands í gær
er svohljóðandi:
„Emil Jónsson, foi’seti Samein-
aðs Alþingis, gekk á fund forseta
íslands í dag og tjáði honum, að
hann væri reiðubúinn að verða
við tilmælum forseta um að gera
tilraun til stjórnai’myndunar.“
inga á liliðstæðan hátt og áð-
ur, með samstarfi við fplltrúa
frá öðrum flokkum.
Flokkarnir neita.
Eftir tveggja sólarhringa um-
hugsun hafa nú Alþýðuflokkur-
inn og Framsóknai’flokkurinn
svarað þessu tilboði sjávarút-
vegsmálaráðherra neitandi. Telja
báðir flokkarnir að núverandi
ríkisstjórn geti ekki samið við
útgerðina og þeir vilji því ekk|
að sjávarútvegsmálaráðherra
taki að sér slíka sanminga.
Framhald á 3. síðu.
Er stefnt vísvitandi að
stöðvun útgerðarinnar?
Tilboði Lúðvíks lósepssonar að taka að sér samninga
við útveginn hafnað af Aíþýðuflokknum og Framsókn
Eigi aö afstýra stöðvun útvegsins í janúarbyrjun eru
nú síöustu forvöö að hefja samninga við sjómenn, út-
vegsmenn og fiskkaupendur.
Engu að síður hafa Alþýðuflokkurinn og Framsóknar-
flokkurinn sýnt það ábyrgðarleysi að hafna í gær tilboði
Lúðvíks Jósepssonar sjávarútvegsmálaráðherra aö hann
skyldi taka að sér samninga þessa, ásamt fulltrúum flokk-
anna, á sama grundvelli og undanfarandi ár.
OUum má ljóst vera að tími er iimar og lag't áherzht á að
orðinn naumur eigi að takast að
EmlS Jónsson tekur aS sér
sfjórnarmyndun
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta íslands
gekk forseti Sameinaös Alþingis, Emil Jónsson, á fund
forseta fslands í gær og tjáöi honum að hann væri reiðu-
búinn að gera tilraun til stjórnarmyndunar.
Gerið skil
Aígreiðsla happdrættisins opin til kl. 10 i kvöld
Drœtti
EKKI
frestað