Þjóðviljinn - 20.12.1958, Page 9

Þjóðviljinn - 20.12.1958, Page 9
Laugaxdagur 20. desember 1958 — ÞJÓÐVILJINN — $ Skálholtshátíðin 1956. Minning níu alda bisk- upsdóms á íslandi. Séra Sveinn Víkingur sá um útgáfuna. Bókaútgáfan Hamar. „S5ga er komin úr íslandi, skrivað í bók so breiða.“ Þessa gömlu ritfregn um ótil- greinda bók tilfærði Jákup Joensen prófastur, fulltrúi Fær- eyinga á Skálholtshátíðinni 1956 í kveðjuávarpi, er hann flutti þar. Og nú er ávarp hans komið á prent í breiðri bók, sem hátíð þessari er helguð. Bókin er 359 lesmáls- og myndasíður, glæst í sniðum og vönduð að frágangi. Nær helmingur hennar er samantekt séra Sveins Víkings um undirbúning allan að hátíð- inai og síðan það sem fram fór. Eru birtar þar ræður og kveðj- ur sem fluttar voru, ásamt leik- þætti Sveins Víkings og verð- launaljóðum Sigurðar Einars- sonar, Þorsteins Halldórssonar og Þorgeirs Sveinbjarnarsonar. í þessum bókarhluta er fjöldi mynda frá hátíðinni, sem flest- ar eru gjörðar af Pétri Thom- sen ljósmyndara. Skálholtshátíðin er þúsund- um manna í svo fersku minni, að slík samantekt um hana sætir ekki miklum tíðindum • nú, þó hún muni hljóta nokkurt heimildagildi er tímar líða. Ýmsir munu að vísu lesa sér til ánægju sitthvað af því, sem þar va* snjallast flutt, og einhverj- um kvnni að leika forvitni á að líta yfir verðlaunaljóð há- tíðarinnar sem beðið hafa birt- ingar fram að þessu. Við lestur þeirra rifjast upp, að svo var mælt fyrir í önd- verðu af hátíðarnefnd, að þessi tækifærisljóð skyldu gjörð til tónflutnings og vera í 4—5 köfl- um í lengsta lagi. Munu sumum skáldum hafa þótt skorðurnar þröngar; og tvö þeirra verð- launaljóða sem hér birtast eru reyndar í 12 köflum hvort, en þær glefsur úr öðru þeirra, sem fluttar voru á hátíðinni, auð- kenndar með skáletri. A skeiðvelli væri þetta kallað, að gæðingarnir hefðu hlaupið upp. og víst á óhemjan Pegasus vanda til þess. Hitt kemur á ó- vart. að dómnefnd virðist hafa faríð jafn léttilega á svig við fyrirmæli sín eins og folinn hrökk upp af skeiðinu. Á prestastefnu 1953 var á- kveðið að gefa út sérstakt rit una Skálholt minningarárið 1.956. Þetta fórst fvrir En rit- gerðir þriggja fræðimanna, er biskup haíði til fengið að skrifa urei stað og skóla, eru nú birtar hér í seinni bókarhluta. Bera þssr uppi ritið Dr. Jón Jóhann- esson fiallar þar um upphaf SkálhoHs og hina fyrstu Skál- hyltinga Er það stutt mál, glðggt og efnismikið. Dr. Magn- ús Jónsson bregður sviðgeislum sögunnar yfir aldafylkingu Skálholtsbiskupa. Ljósið er miK og skírt í hendi hans. Þeir •stajfida andartak í birtunni hver af 6ðrum, allt frá ís'eifi Gizur- arsyni til Geirs Vídalíns, og ’ hverfa aftur í irikkrið. Lengstu ritgerðina, og þá sem mestur fengur er að, ritar svo séra Benjamín Kristjánsson um Skálholtsskóla. Þar er fjallað um stórmerkan og vanrækt- an þátt í menningarsögu þjóð- arinnar, einstökum atriðum er að efninu lúta gjörð allýtarleg skil, og koma þar mörg kurl til grafar, alltof fáum kunn. í ræðu forseta íslands á Skál- þulum, sálmum, Ijóðum og öll- um góðum skáldskap." Þetta er orð að sönnu, þó hitt sé jafnframt rétt, að sagan er ein, og einstakir þættir verða þar ekki hver frá öðrum skildir. Með þessari bólc hefur jafnvel verið rituð ekki ómerk lína í hina órituðu kristnisögu þjóðar- innar, og eilítinn hlut gæti hún 42. páttur 20. des. 1958. ÍSLENZK TUNGA Ritstjóri: Árni Böðvarsson Dömkirkjan í Skálholti í tíð Brynjólfs Sveinssonar um 1650. holtshátíðinni segir svo um kirkjusögu og kristnisögu: „Þó mikil saga hafi geymzt, þá hefir og mikil saga gleymzt. Tindarn- ir blasa við, og íslenzka kirkju- sögu má rita svo, að vart sé get- ið nema bisku.pa og höfuð- klerka. En á sléttlendinu, þar sem lífið grær, hefir margt það fegursta gerzt í kristnisögu þessa lands . . . Vísast verður þessi saga aldrei skráð, öðruvísi en hvað á hana glitrar í gömlum átt í að frægja hinn forna Skál- holtsstað og hefia hann til vegs og helgi. Ýmsum þykir það hé- gómamál. En myndi ekki fær- eyska þjóðvísan fara þar sönnu nær: „Látið ei söguna doyggja, men goymi hana so væl; i dreingja sinni og moyggja hon miki útinna skal.“ Þorsteinn Valdimarsson. G>- Jólaltveðjur Það er líklega heldur seint að benda fólki á málvillu eem stundum er skrifuð á jólakort, því að þeir sem ekki póstlögðu jólakort sín í fyrradag eiga nærri því víst að þau verða ekki borin út fyrr en milli hátíða. Þessi málvilla er á þessa leið eða þvílíka: „Gleði- leg jól, gott og farsælt nýár, óska ég þér“. Ef þetta orða- lag er athugað, er Ijóst að fallið á orðunum „gleðileg jól“ og „gott og farsælt nýár“ er skakkt, það á að vera eignarfall, því að við óskum hvert öðru gleði'egra jóla og farsæls nýárs; ég óska þér góðs, en óska þér ekki gott. Hitt er alrangt að hafa þol- fall með þessari sögn. Það væri annars gaman ef unnt væri að fá einhverja hugmynd um það hversu margir hundr- aðshlutar jólakveðja í Reykja- vík væru á þessa lund, en ég geri ráð fyrir þeir væru þó nokkrir. Annars gagnar nú víst skammt að vera að tala um þetta í þessum þætti, því að þeir sem skrifa skekkju á borð við þessa, lesa yfirleitt ekki þætti um íslenzkt mál. Annars ósiðar í sambandi við jólakveðjur er rétt að geta hér, en það er þegar fólk seg- ir hvað við annað eftir að jóladagurinn er liðinn: „Gleði- lega rest“. Jólin eru ekki á enda þótt jóladagurinn 25. des. sé liðinn, því að þeim lýkur ekki fyrr en 6. janúar, á þrettándanum, og því er dagurinn kallaður svo, enda var nýársdagur fyrrum nefnd- ur áttidagur (= áttundi dag- ur jó’a). Annars er ávarpið „gleðilega rest“ aldrei nein ís- lenzka, heldur dönskusletta af verra tafft, bví orðið „rest“ fyllir ekki neitt skarð í mál- inu og er því algerlega óþarft. Við höfum nóg af íslenzkum -<♦> 10-12 millj. ám gcsmall forlað- ir maxuikynsxns finnst á Ítalíu Nú eru hundrað ár síðan Darwinskenningin kom fram, og með henni hófst leitin að forfeðrum þessarar líftegundar, sam siálf kallar sig „homo sapiens“, hinn vitra, en réttast væri að kalla hinn forvitna. Allcunnir eru ýmsir löngu liðnir mannflokkar, sem beina- leifar hafa fundizt af, og fræði- menn hafa gefið nöfn, eins og Cro-Magnon menn, Neanderth- alsmenn, o. fl. En með því varð þó ekki komizt mik'u nær um upprunann, og héldu menn helzt, að hinn sameiginlegi for- faðir manna og apa hefði verið einhver óþekkt skepna fvrir svo sem einni milljón ára. Upp á síðkastið hafa þó sumir hall- azt að þvi að leita þyrfti mun lengra aftur í tímann, og apa- tegupd. nokkur, sem litilfjör- . legar menjar höfðu fundizt um í tíu til tó’f milljón ára gömlum jarðlögum á Ítalíu, væri forfað- ir mannkynsins, og þó ekki ap- anna sem nú eru uppi. Leitað var af kappi að heillegri bein- um, en fátt hafði fundizt í heilu lagi þangað til fyrir fjórum mánuðum, að svissneskur pró- fessor, Johaunes Hiirzeler að nafni, sem var að grafa í mó- kolalag, 10 til 12 milljón ára gamalt, á stað sem heitir Gross- et.to úti við ströndina móts við Elbu (á Mið-ítaliu), fann strá- heila beinagrind af uppréttum apamanni, sem hefur verið lítið eitt stærri en gibbon en áður hafði hann fundið neðri kjálka sem liktíust mannskjálkum í því, að tennurnar voru í sam- felldri röð, en ekki bil milli framtanna og augntanna annars vegar og jaxla hinsvegar, eins og er á öpum. Olnbogabein hafði hann einnig fundið, sem sýndi, að sá sem það hafði átt, hlaut að hafa gengið uppréttur, en ekki stuðzt við hnúana, eins og mannapar gera. Það hefur verið hljótt um þennan gagnmerka fund síðan í sumar, vegna þess að ítalska stjórnin, sem áleit ríkið eiga tilkall til hans, neitaði að senda hann úr landi til rannsóknar hjá prófessor þessum. En 10. des. fékkst leyfið loksins, og próf. Hurzeler hafði beina- grindína með sér til Basel dag- inn eftir. Hún hefur þegar fengið nafn, eða réttara sagt tegundin, sem hún er af, og kallast oreopith- ecns bamboli, fjallabúinn. Próf. Húrzeler hefur lofað að ljúka við rannsóknina á beinagrind- inni einhverntíma á næstu fimm mánuðuir, og skila henni síðan. Á síðustu árum hafa heyrzt raddir um það, að stofn manna og apa hafi greinzt miklu fyrr en áður var haldið, eða fyrir 10 milljónum ára, og hafi þá komið fram hiji upprétta vera, sem síðar varð að manni, en uppruni mannapa talinn miklu eldri, eða frá því fyrir 35 til 45 milljónum ára. Það er gaman að þennan fund skuli bera upp á 100 ára afmæli þróunarkenningar Darwins M. E. orðum sem eru okkur hentari en það. Almennust þeirra eru til dæmis leifar, afgangur, það sem eftir er, eða eitthvað því líkt. Þeir sem óska „gleðilegr- ar restar" vita að enn er há- tíð, þótt hámark hennar sé hjá liðið, þar sem eru jóla- dagur og einkum aðfanga- dagskvöld og jólanótt. I staðinn fyrir orðasambanol eins og „þetta er restin" má segja til dæmis „þetta era leifarnar, afgangurinn, það sem eftir er“ eða bví um líkt. Ilins vegar er orðið leif, hvort sem er í eintölu eða fleirtölu, allt of hlutstætt til þess aS það verði með góðu móti not- að um tíma. Ekki er oft tal- að um „restina af ileginum*' né notuð önnur slík orðasam- taönd, enda munu þau orka skoplega á flesta. Það hæfir illa að nota slík skrípi um hátíðir, ekki sízt um jó'aliá- tíðina, sem hefur þó um lang- an aldur verið mesta hátíð ársins með Islendingum, bæði kkstnum og ókvistnum. Kveðian „gleði’eg jól“ er góð og gild svo lengi sem við get- um talað um jól eða jó'aleytið og eitthvert, tilha’d er í sam- bandi við hátíðina. Nú má vera að einhver les- andi v’lji spyria se”-i svo’ hvort kveðjan „gleð’legt nýár“ sé nothæf nema rétt um ára- mótin. Þetta er ein bezta kveð.ja ársins. osr v’(an'ega er ekkert á móti bvi f>ð nota hana þótt komið sé e’tthvað fram á nýja árið, til dæmis eitt- hvað fram í janúar. Þá er ný- bvrjaða árið vitanlega „nýtt ár“ í samanburði við hið gamla. Úr því að ég er Ivrjaður að tala hér um kveðiur al- mennt, er ekki úr vegi að minnast á aðra kveðju al- mennara eðlis sem oft er far- ið rangt með, en það er þeg- ar menn segja „gcða kvöld- ið‘“ í staðinn fvrir „gott kvöld“ eða „gott kvöUið". E? sagt er „góða kvöldiö", er þar með gefið í skvn a'S kvöldin séu aðeins tvö, ann- að gott en hitt slæmt („g>óða kvöldið, en ekki h’ð slæma“). Það er hliðstætt og ef boðið væri „gcða daginn“ eða „góðu nóttina", „gleðilegu jólin“, o.s.frv. Hins vegar er rétt að seg.ia „gleði’eg jólin“: þaS orða'ag mætti h’ig'-a sér sem styttíngu á setnivm eins og „gleðileg jólin sem í hönd fara“, á sama hátt og „góð- an daginn“ gæti verið stytting á „ég býð þér gcðan daginn bann sem nú er“. Annars eír það sannast sagna að svona orðasambönd eru almennt ekki stvttingar á heilum setningun-., ekki fremur en ,.ií“ er í siálfcí sér stvtting á heilli setningu, )>ó að þetta smáorð geti aS merkingu oft jafngilt heilii sétningu. Ura þessar mundir er mikiS taiað um „aðfangeiiag“, og ekk’ veit ég t!' að nnjns stað- ar sé nú orð’ð tíðkuð sá gamla merking þessa orðs að Framhald á 15. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.