Þjóðviljinn - 03.01.1959, Side 12
Kúbuher gengur Castro á hönd
Bafista og félagar hans komu til Banda-
rikjanna ránsfeng sem nemur milljörSum
Skæruher Fidels Castro, 32 ára gamals uppreisnarfor-
ingja, hafð'i í gær alla Kúbu á sínu valdi, og í dag mun
Castro halda innreiö sína í höfuðborgina Havana.
í gær voru framsveitir upp-
reisnarhersins komnar inn í
Havana og kom sumstaðar til
árekstra milli þeirra og áhang-
enda Batista einræðisherra, sem
flýði land á gamlársdag með
nokkrum nánustu samstarfs-
mönnum sínum. í verzlunar-
hverfinu háðu uppreisnarmenn
tveggja klukkutíma bardagavið
liópa úr lífverði og leynilög-
reglu Batista, sem höfðu búizt
þar um.
Allsherjarverkfall
Verkalýðssamtökin á Kúbu
lýstu yfir allsherjarverkfalli til
stuðnings við Castro og segja
fréttamenn að það hafi verið
algert í Havana.
Þegar Batista flýði fól hann
völd sín þrem herforingjum,
sem í fyrstu hugðust lialda á-
fram vopnaviðskiptum, en þeir
fengu ekkert við herinn ráðið.
Fengu þeir völd sín í hendur
fyrrverandi hermálafulltrúa
Kúbu i Washington, sem lýsti
jdir að herinn væri reiðubúinn
að taka við skipunum Castro.
Bráðabirgðastjórn
Castro hefur lýst Santiago
á austurenda Kúbu bráðabirgða-
höfuðborg og myndað þar
bráðabirgðastjórn undir forsæti
Manuels Urutia, dómara sem
Batista hrakti í útlegð. Hann
sagði í gær að fyrsta verkefni
bráðabirgðastjórnarinnar væri
að efna til lýðræðislegra þing-
kosninga.
Castro hefur skipað svo fyr-
ir að handtaka skuli alla her-
foringja og lögregluforingja,
sem gerzt hafa sekir um ill-
virki á stjórnarárum Batista.
Helzta baráttuaðferð leynilög-
reglu hans þau tvö ár sem upp-
reisnin undir forustu Castros
hefur staðið var að lífláta gisla
úr hópi pólitískra fanga og
myrða aðstandendur þeirra sem
gengu í skæruherinn.
Fréttamenn i Havana segja
að þar sé vitað að Batista og
samstarfsmenn hans þurfi ekki
að kvíða. útlegðinni. Frá því
einræðisherrann hrifsaði völdin
í annað sinn 1952 hefur hánn
og fylgifiskar hans gert sér
Kúbu að féþúfu og komið
fengnum jafnóðum úr landi. I
Havana segja menn að þeir
kumpánar eigi frá 500 til 600
milijónir dollara í erlendum
bönkum,
unum.
aðallega í Bandarikj-
Flugvélar með landflótta
stuðningsmenn Batista hafa
Fidel Castro
streymt til Miami í Bandaríkj-
unum síðan á gamlársdag.
Búizt er við því í Havana að
Castro verði landvamaráðherra
í bráðabirgðastjórninni sem nú
tekur við völdum. Hann getur
ekki boðið sig fram til forseta
fyrir sakir æsku, kjöraldur for-
seta á Kúbu er 35 ár en Castro
er aðeins 32 ára.
Sameiginlegi
markaðurinn
Samningur um sameiginlegan
markað sex Vestur-Evrópu-
ríkja, Frakklands, Italíu, Vest-
ur-Þýzkalands og Beneluxland-
anna, gekk í gildi um áramótin.
Voru þá tollar á vörusölu milli
ríkja þessara lækkaðir um 10
af hundraði. Næsta skref til
framkvæmdar sameiginlegs
markaðar verður tekið eftir
rúmt ár.
þlÓÐVIUIHN
Laugardagur 3 jauúar 1959 — 24. árgangur — 1. tolublað.
Verðlaunum úthlutað úr Rit-
höfundasjóði ríkisútvarpsins
Haiutes Sigfússon og Guðmundur Ingi hlutu
verðlaunin að þessu sinni
Á gamlársáag var úthlutað úr Rithöfundasjóði Ríkis-
útvarpsins og hlutu verðlaun þeir Hannes Sigfússon og
Guðmundur Ingi Kristjánsson.
Drenpr mlssir aup v!8
ú kveikja í sprengju
Bjöm Pálsson flaug eftir honum til Hólma-
víkur sl. þriðjudag •
Seint að kvöldi dagsíns fyrir gamlársdag flaug Björn
Pálsson norður á Hólmavík til að sækja 12 ára dreng
sem hafði misst annað augað er hann var aö fikta viö
heimageröa sprengju. — Drengurinn er nú úr hættu.
Tveim eða þrem dögum áöur hafði annar drengur á
Hólmavík misst framan af þrem fingrum af völdum
slíkrar sprengju.
Enginn í lami-
Iseigi
I gær var enginn togari að ó-
löglegum veiðum hér við land.
Brezku togararnir 4, sem í
fyrrad. hófu ólöglegar veiðar útaf
Langanesi, eru nú hættir þeim,,
en herskipið er samt enn á þess-
um slóðum ásamt birgðaskipi.
Þá voru brezku tundurspillarnir
HOUGE og SOLEBAY útaf
Austfjörðum í dag, en brezkir
togarar voru að veiðum á nokkr-
um stöðum utan 12 sjómíln.a
markanna í námunda við her-
skipin.
(Frá landhelgisgæzlunni).
Það var kl. 9 að kvöldi 30.
f.m. að Björn var beðinn að
koma í skyndí norður á Hólma-
vík. Guðmundur Þórðarson, 12
ára drengur hafði verið að
fikta með sprengju og sprakk
hún þannig að lenda í andliti
drengsins, hlaut liann mildð
sár á andlitið og missti annað
augað alveg. Mæddi drenginn
blóðrás, og engar aðstæður til
að gera að sárum hans nyrðra.
Björn flaug þegar norður.
Veður var gott um kvöldið,
nema éi gerði um það bil er
hann var að lenda ,en hann
slapp inná flugvöllinn, sem var
lýstur upp með blysum sem
menn héldu á. Tók hann dreng-
inn og flaug með hann suður
og kom til Reykjavíkur um
tólfleytið um nóttina. Systir
drengsins, sem er lijúkrunar-
kona í sjúkraskýli á Hólmavík
fylgdi honum suður. Drengur-
inn er nú úr hættu.
Tveim eða þrem dögum áð-
ur hafði ann,ar drengur á
Hólmavík misst framan af 3
fingrum, Hann var einnig að
fikta við heimagerða sprengju.
Flutti tvo á gamlársdag.
Á gamlársdag flutti Björn
Pálsson 2 sjúklinga. Fiutti
hann annan þeirra heim til sín
eftir uppskurð; fór hann með
hann vestur i Eyjahrepp, og
tók í sömu ferðinni 26 ára
gamlan mann frá Eyjarholti,
hafði hann fengið heilablæð-
ingu og lamazt.
Sjúkraflug Björns urðu
þannig 141 á árinu, eða noklcru
færri en í fyrra, en þá voru
þau 155. Á þessu ári flutti Ak-
ureyrarflugvélin nokkra sjúk-
linga, svo heildartala sjúkra-
flugferða varð svipuð á siðasta
ári og því næsta á undan.
Verðlaunaafhendingin fór
fram í Þjóðminjasafninu. Út-
hlutunarnefnd er skipuð 2 full-
trúum frá rithöfunafélögunum
og 2 frá Rikisútvarpinu en for-
maður hennar er stjórnskipaður.
Formaður ' úthlutunarnefndar,
dr. Kristján Eldjám þjóðmjnja-
vörður afhenti verðlaunin með
stuttri ræðu. Hannes Sigfússon
var viðstaddur til að taka á móti
verðlaunum sínum, en Guð-
mundur fngi Kristjánsson, sem
býr vestur á Kirkjubóli, gat ekki
komið til að taka á móti þeim.
Villijájmur Þ. Gíslason útvarps-
stjóri flutti einnig stutta ræðu
296 handteknir í
Arabalýðveldinu
Fréttaritari Reuters í Kairó
skýrir frá því að undanfarna
daga hafi yfir 200 kommúnistar
verið handteknir í Sambands-
lýðveldi Araba.
Blöð í Bretlandi og Banda-
ríkjunum ræða mjög um atlögu
Nassers gegn hinum bannaða
kommúnistaflokki í Arabalýð-
veldinu og segja að nú sé tæki-
færi fyrir Vesturveldin til að
vingast við Nasser.
og kvað útvarpið leggja áherzlu
á mikinn flutning bókmennta ár-
lega.
Þetta er í þriðja sinni að verð-
launum þessum er úthlutað. ,í
fyrsta sinni lilutu þeir verðlaun-
in Snorri Hjartarson og Guð-
mundur Frímann, en í f.yrra þeir
Jónas Arnason og Loftur Guð-
mundsson.
Frakkar drápu 136 Serki
ir á
fib
Franska herstjórnin i Alsír skýrir frá því að harður
bardagi hafi verið háður suður af Algeirsborg á nýjárs-
nótt.
Bardaginn var háður í Atl-
asfjöilum. Segjast Frakkar
hafa beitt þar þotum og hrakið
sveitir skæruliða Serkja á flótta
hærra upp í fjöilin eftir harðan
bardaga.
Frakkar segjast hafa fellt
þama 136 Serki, en geta ekki
um manntjón í eigin liði.
Þá segir franska herstjórnin
að hersveitir hennar hafi á
þessum slóðum getað eyðilagt
miklar vopnabirgðir Serk ja,
vopnaverksmiðju þeirra og aðr-
ar birgðir.
Viðbúnaður
við bólusótt
Heilbrigðisyfirvöld í Svíþjóð,
Danmörku og Noregi hafa
hvatt ferðamenn sem hyggjast
ferðast til Vestur-Þýzkalands
til að láta bólusetja sig við
bólusótt áður en þeir leggja af
stað. Óttazt er að bólusótt sem
kom upp í Heidelberg kunni að
breiðast út.
'tfh stfmrmm
í fánmiM
1 dag undirritar Eisenhower
yfirlýsingu um upptöku Alaska
í Bandaríkin. Verður það 49.
fylkið og hið langstærsta. í
gær ákvað íEisenhower nýja
gerð bandaríska fánans með 49
stjörnum. Síðast voru fylki tek-
in í Bandaríkin 1912, Nýja
Mexíkó og Arizona.
Ful'lyrt er í París að de
Gaulle muni gera Michael De-
bré að eftirmanni sínum í emb-
ætti forsætisráðherra. de Gaulle j
tekur við forsetaembættinu 8.
þ.m. f gær ræddi Gaulle við
Mollet, foringja sósíaldemó-
krata, og lagði að honum að
vera kyrrum i stjórninni.
Guðmundur Iugi Kristjánssan
Maðiir verður
bráðkvacklur á
vinmistað
Siglufirði... Frá ifréttar.
Þjóðviljans.
Á mánudaginn var varð
Mátthías Ágústsson fisksali
bráðkvaddur í fiskinið sinni.
Hann hafði farið heimanað
frá sér í búðina um morguninn
en þegar samstarfsmaður hans
kom í fiskbúðina var Matthías
þar. látinn. — Matthias var
maður á bezta aldri.